Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 72
m HEWLETT PACKARD HPÁ iSLANDI H F Höfðabakka 9, Reykjavík, sfmi (91) 671000 Frá möguleika til veruleika ÞREFALDUR 1. vinningur ’s?mGe9imXSÍMBRÉFN69n8l, 'pósthólf^smo^/ AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Greiðsla til foreldra Tillaga um sex þúsund með barni í TILLÖGU borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem lögð er fram í borgarstjórn í kvöld er gert ráð fyrir greiðslum til for- eldra barna á aldrinum tveggja og hálfs árs til fjögurra og hálfs árs. Greiðslur miðist við 1. jan- úar 1994 og eingöngu til þeirra foreldra sem sannanlega nýta ekki leikskólaþjónustu á vegum borgarinnar eða aðra dagvistar- þjónustu styrkta af borginni. Er gert ráð fyrir að upphæð .•neð hveiju barni miðist við rekstr- -*#h'styrk fyrir bam á einkaleikskóla, sem nú er 6 þús. á mánuði. Upp- hæðin er ákveðin hveiju sinni við gerð fjárhagsáætlunar. Lagt er til að greiðslum verði skipt niður í fjögur þriggja mánaða tímabil og að útborgun fari fram mánuði eft- ir að hveiju tímabili lýkur, í fyrsta sinn 1. maí 1994. Þeir sem eiga börn sem verða tveggja og hálfs á tímabilinu hafa rétt á greiðslum þar til börnin ná fjögurra og hálfs árs aldri. — Sækja þarf sérstaklega um greiðslur fyrir hvert tímabil. Gert er ráð fyrir að umsókn til Dagvist- ar barna verði að berast eigi síðar en viku eftir að greiðslutímabili lýkur. -------------- Hvalfjarðargöngin Fjármögn- un komin veláveg LÍFEYRISSJÓÐIR og fleiri stofnanafjárfestar hafa gefið viljayfirlýsingar um að þeir muni kaupa skuldabréf að fjár- hæð um 1.000 milljónir kr. í fyrirhuguðu skuldabréfaútboði Spalar hf. vegna Hvalfjarðar- ganga. Alls er ætlunin að afla 1.580 milljóna hér innanlands með sölu skuldabréfa. Vonast er til að viljayfirlýsingar liggi fyrir frá lífeyrissjóðum og öðr- um stofnanafjárfestum um kaup á öllum bréfunum í síðasta lagi um áramótin. Fyrirhugað er að um tveir þriðju af því fjármagni sem þarf til fram- kvæmdanna vei-ði fengnir að láni erlendis eða samtals 2,6 milljarð- ar. Hafa tveir erlendir bankar, Nomura-bankinn í London og Union Bank of Switzerland, þegar gefið vilyrði fyrir lánveitingu vegna framkvæmdanna. Er gert ráð fyrir að 4-5 bankar til viðbót- ar láni í þetta verkefni en þar af verður einn íslenskur banki. Um þessar mundir standa yfír ' Tokarannsóknir vegna gangagerð- arinnar undir Hvalfjörð og eftir áramót verður gerð ný umferð- 'arspá. Þegar niðurstöður liggja fyrir er stefnt að því að bjóða út verkið þannig að framkvæmdir gætu hafist næsta sumar. Sjá nánar viðskiptablað bls. Bl. Samkomulag leikskóla sjúkrahúsanna Fallið frá stig- minnkandi ríkisframlagi SAMKOMULAG hefur tekist í deilu heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra og borgarstjóra um rekstur leikskóla sjúkrahús- anna í Reykjavík. Er þar gert ráð fyrir að framlag til rekst- urs leikskóla Borgarspítalans verði 20 milljónir á árinu 1994 og 14 milljónir á árinu 1995. Eru það hlutfallslega sömu tölur og gilda um rekstrarstyrki ríkisins til leikskóla annarra sjúkra- húsa í Reykjavík. Ekki verður af áformuðum stigminnkandi rekstrarstyrkjum ríkisins til leikskóla sjúkrahúsanna í Reykja- vík á árunum 1996 til 1998. í bréfi Guðmundar Árna Stef- ánssonar heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra til Markúsar Arnar Antonssonar borgarstjóra frá því í gær kemur fram að ráð- herra telji mikilvægt að eyða óvissu foreldra þeirra barna sem skjól hafa á leikskólum sjúkrahúsanna í Reykjavík. Því sé mikilvægt að fulltrúar ráðuneytisins og borgar- innar fari yfir málið á nýjan leik og leiti sameiginlegrar niðurstöðu. Æskilegt væri að viðræður hæfust þegar. Greitt samkvæmt reglum Eins og fyrr segir tókst sam- komulag þegar sama dag og er þar meðal annars gert ráð fyrir að borgin greiði rekstrarstyrki eins og reglur segja til um vegna einka- rekinna leikskóla í borginni eða með hverju barni sem á lögheimili í Reykjavík og vistast á leikskóla sjúkrahúss á Reykjavíkursvæðinu. Borgin mun greiða fyrir börn einstæðra foreldra með lögheimili í Reykjavík og sem vistast á leik- skólum sjúkrahúsa á Reykjavíkur- svæðinu samkvæmt reglum sem um það hafa verið settar. Það er mismunur á mánaðargjaldi og greiðsluhlutdeild foreldris. Þá eru aðilar sammála um að skipa vinnuhóp sem geri tillögur fyrir maí 1995 um rekstrarfyrir- komulag og skiptingu rekstrar- kostnaðar þeirra leikskóla sem samkomulagið nær til og skal mið- að við að það taki gildi frá og með 1. janúar 1996. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þorláksmessa nálgast JON Björnsson, físksali í Stjörnufiskbúðinni, var að taka á móti saltaðri og kæstri Þorláksmessuskötu frá Vestmannaeyjum þegar ljósmyndarann bar að garði. Jón er einnig búinn að hengja upp kæst skötubörð sem hörðustu skötuunnendur leggja sér til munns með vestfirskum hnoðmör. Jón reiknar með að selja um hálft tonn af skötu fyrir Þorláksmessu. Prófmál ríkissjóðs gegn Félagi vatnsvirkja Heimildum hafnað Lögbann áGlám ogSkrám uin skatt á 900 millj. FÉLAG vatnsvirkja hf. var í gær í héraðsdómi Reykjaness sýknað af öllum kröfum ís- lenska ríkisins í prófmáli sem varðar það hvort ríkissjóður hafi rétt til að krefjast skatt- greiðslna af 900 milljóna króna útborgun hlutafjár til hluthafa POTTASLEIICIR DAGAR TIL JÓLA í Sameinuðum verktökum í jan- úar 1992. í málinu var hafnað kröfu ríkisins um ógildingu á úrskurði ríkisskattanefndar sem sú útgreiðsla byggðist á en samkvæmt honum skyldi við mat á heimild til útgáfu jöfnun- arhlutabréfa meta verðmæti eignarhluta Sameinaðra verk- taka hf. í íslenskum aðalverk- tökum ekki aðeins með hliðsjón af stofnfé félagsins heldur skyldi líta til hlutdeildar SV í óskiptu eigin fé íAV. Ríkið mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness til Hæstaréttar að þvi er Gunnlaugur Claessen rík- islögmaður sagði I samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Formlega snerist málið um 103 milljóna króna hlutafjárhækkun með útgáfu jöfnunarhlutabréfa í SV í júni 1990 en að henni lokinni var hlutafé jafnharðan lækkað um 95 milljónir króna sem voru afhent- ar hluthöfum með skattfrjálsum greiðslum. Ríkisskattstjóri taldi þessa út- gáfu jöfnunarhlutabréfa umfram heimildir laga og krafðist tekju- og eignarskatts frá hluthöfunum af greiðslunum. Ríkisskattanefnd kvað upp úrskurð hluthöfunum í vil í janúar 1992 og á grundvelli þess úrskurðar ríkisskattanefndar var hlutafé í Sameinuðum verktök- um hækkað með 900 milljóna króna útgáfu skattfrjálsra jöfnun- arhlutabréfa en lækkað um sömu fjárhæð jafnskjótt og sú fjárhæð greidd út til hluthafa og skyldi greiðslan njóta skattfrelsis miðað við niðurstöðu ríkisskattanefndar. Til að fá þessum úrskurði ríkis- skattanefndar hnekkt og til að fá viðurkennda skattskyldu hluta arð- greiðslunnar höfðaði ríkið mál það sem dómur gekk um í gær gegn einum stærsta hlutahafa Samein- aðra verktaka, Félagi vatnsvirkja. Dóm Héraðsdóms Reykjaness í gær kváðu upp Már Pétursson héraðsdómari og dómsformaður og meðdómendur hans, Steingrímur Gautur Kristjánsson héraðsdómari og Sigurður Tómasson löggiltur endurskoðandi. BÚIÐ er að samþykkja lög- bannsbeiðni Ragnars Aðal- steinssonar hrl. á útsending- ar íslenska útvarpsfélagsins með Glámi og Skrámi. Trygging af hálfu gerðar- beiðanda, Andrésar Indriða- sonar, var 1.000.000 króna. Að sögn Ragnars, lögfræð- ings Andrésar Indriðasonar, er lagt „lögbann við því að ís- lenska útvarpsfélagið birti í útvarpi eða prentriti verk með auðkenninu Glámur og Skrám- ur, öðru hvoru nafninu eða báðum, eða með öðru auðkenni svo áþekku, að líklegt sé að villst verði á þeim og verkum gerðarbeiðanda, Andrésar Ind- riðasonar, eða að villst verði á höfundum verkanna“. Lög- bannsbeiðnin var byggð á 31. grein höfundarréttarlaganna um titilvernd. Málshöfðun og skaðabótakrafa Ragnar sagði einnig að höfð- að yrði mál innan sjö daga. Hann myndi gera kröfu um staðfestingu lögbannsins og gera skaðabótakröfu á Islenska útvarpsfélagið fyrir hönd Andr- ésar Indriðasonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.