Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993 t ••• r* / / Jolagjorm 1 ar er EKKERT MflL! íoaan á Uk oið Jo'm Jtál Biblía sem börnin geta lesið sjálf. Fæst í næstu bókaverslun. Félag'slegl húsnæði eftir Jón Kjartansson Hilmar Guðlaugsson, formaður Húsnæðisnefndar Reykjavíkur, skrifar í Morgunblaðið 4. desember sl. grein um félagslegt húsnæði. Greinin er svar við grein eftir Jón Rúnar Sveinsson félagsfræðing hjá Húsnæðisstofnun í Vikublaðinu frá 12. nóvember sl. Ég hef ekki séð þá grein, enda ekki fastur lesandi þessa vikublaðs sem ég veit ekki til hvers er gefið út. Ég veit að Jón Rúnar er manna færastur til að svara fyrir sig og ætla ekki að blanda mér í deilur þeirra í milli. Ég hef heldur ekki löngun til að agnúast út í Hilmar Guðlaugsson persónulega sem ég tel mætan mann sem Iengi hefur starfað að húsnæðismálum og orðið mörgum að liði þar. Það eru nokkur atriði í grein Hilmars sem mér þykir rétt að ræða úr því hann gefur færi á því, en Hilmar hefur það fram yfir marga aðra að hann setur fram skoðun sína skýrt og skilmerkilega og víkur sér ekki undan að svara fyrir hana. Það þykir mér virðingar- vert. Hann verður þó að taka því eins og aðrir að til er fólk sem hefur aðrar skoðanir en hann á hlutverki félagslegs hbsnæðis og reyndar húsnæðismálum yfirleitt. Ég ræði hér einkum tvö atriði í grein Hilm- ars. Það fyrra er: „Nefndin (Hús- næðisnefndin) hafi ekki sinnt hlut- verki sínu sem samstarf við félög og félagasamtök er starfi á sviði húsnæðismála í Reykjavík sem skyldi“ og „Húsnæðisnefnd Reykja- víkur hefur haldið fundi með þess- um félagasamtökum, þar sem málin hafa verið rædd. En mér er til efs að það þjóni nokkrum tilgangi að halda slíku áfram ef mark á að taka á þeim ummælum sem menn hafa um Húsnæðisnefnd Reykjavík- ur.“ Hið rétta er að Leigjendasamtök- in hafa ásamt samstarfsaðilum í óformlegum samtökum „Þak yfir höfuðið" átt tvo fundi með Hús- næðisnefnd og í hvorugt skiptið að frumkvæði nefndarinnar. Því miður varð af þessu lítill árangur að mínu mati vegna úreltra viðhorfa og stífni nefndarmanna. Kirkjutúns- málið er merkasta erindi okkar við Húsnæðisnefnd. Þar er um að ræða hugsanlega þátttöku borgarinnar í uppbyggingu nýs hverfis í miðri byggð, þar sem gert er ráð fyrir félagslegum íbúðum að stórum hluta. Að])essu standa ýmis samtök svo sem Oryrkjabandalagið, Sjálfs- björg, námsmannafélög, Samtök aldraðra, Búseti og kannski fleiri. Húnsæðisnefndin vísaði erindinu frá sér og þar tel ég að hún bregð- ist skyldum sínum um samstarf. Það þykja mér ónýt rök að stjórn borgarinnar hefur nýtt sér heimild- arákvæði í lögum varðandi leigu- íbúðir í eigu borgarinnar. Ég tel að nefndin geti ekki neitað að vera með í ráðum varðandi byggingu félagslegra íbúða á vegum félaga og samtaka þótt núverandi leigu- íbúðir borgarinnar séu á hendi fé- lagsmálaráðs og ég skora á nefnd- ina að breyta afstöðu sinni. Þegar þess er gætt að fyrrnefnt heimildarákvæði var sett inní lög um Húsnæðisstofnun að frumkvæði ráðmanna Reykjavíkurborgar, er ástæða til að spyrja: Er það stefna Húsnæðisnefndar og kannski borg- aryfirvalda að hamla gegn öllum breytingum á félagslega húsnæðis- kerfinu og standa á móti hverri til- raun til að bæta úr því hrikalega ástandi sem hér ríkir í húsnæðis- málum ungs fólks og lágtekju- manna? Það er ekki ónýtt fyrir fólk að fá svör við þessu fyrir kosningar! Um álitsgerð starfshóps sem kannaði reynsluna af félagslega íbúðarkerfinu frá 1990 þar sem lagðar eru til nauðsynlegar breyt- ingar á kerfinu, segir Hilmar: „Verði þetta að veruleika er hér um að ræða fyrsta skrefíð í þá átt að leggja félagsíbúðakerfíð niður,“ en tillögur um breytingar á eignar- formi má fínna í áliti hópsins. Er það virkilega skoðun Hilmars Guð- laugssonar að slíkar breytingar á eignarformi jafngildi því að leggja kerfið niður? Ég tel þessar breyting- ar nauðsynlegar til þess að kerfið geti þjónað tilgangi sínum, svo margir sem ráða ekki við kerfið Jón Kjartansson „Ég veit ekki um neina aðra þjóð sem eytt hef- ur stærstum hluta auðæva sinna í umbúðir utan um sjálfa sig eins og Islendingar hafa gert, og vanrækt í leið- inni nýja uppbyggingu atvinnulífsins.“ eins og það er. Ég hélt líka að Húsnæðisnefndin ætti að vinna með og fyrir alla þá sem vilja eða þurfa hér í borginni, en ekki bara fýrir fólk með ákveðnar skoðanir. Mér þykir þetta því furðulegra sem skoðanir fólks á þessum málum fara alls ekki eftir svonefndum flokkslínum. Það tel ég eitt dæmið um ónýti núverandi flokkakerfis. Skoðun sinni á hlutverki félags- lega húsnæðiskerfisins lýsir Hilmar skilmerkilega í greinarlok. Hann segir: Félagslega húsnæðiskerfíð á að vera þannig uppbyggt, að það sé eingöngu fýrir fólk sem hefur lágar tekjur og þarf sérstaka hjálp í húsnæðismálum, svo og unga fólk- ið sem hefur stofnað fjölskyldu og er að byrja búskap.“ Þetta tel ég ranga stefnu og löngu úrelta. Unga fólkið sést varla á fast- eignasölum, segja fasteignasalarnir sjálfir. Þeir sem reynt hafa að byggja íbúðir til að selja hafa flest- ir orðið gjaldþrota. Hefur Hús- næðisnefnd Reykjavíkur ekki enn heyrt af gjaldþrotahrynunni fýrir nokkrum árum? Aldrei í 15 ára sögu Leigjendasamtakanna hefur annar eins fjöldi ungs fólks leitað til samtakanna í leit að leiguhús- næði og á þessu ári, og önnur hver íbúð sem er til leigu er einnig til sölu. Þetta þýðir stöðuga skamm- tímasamninga sem er óþolandi lausn á bráðum húsnæðisvanda. Á PSJS ávaxtapressa Hönnun Philippe Starck verð kr. 3.850 ALESSI Kringlunni, sími 680633 ^SfcaMEllá ÍOLAIKf - i*feí éi «Mr M / i I K V : Sölustaðir: Skátahúsið Snorrabraut 60 Sími: 23190/15484 Jólatré-básinn , Jólamarkaðinum Faxafeni 10 Veitt er 10 ára ábyrgð á endingu - hvar annarsstaðar? Ókeypis fallegur og veglegur stálfótur fylgir með. s Skátar planta tveimur trjáplöntum í landi Úlfljótsvatns í fyrir hvert sígrænt jólatré sem keypt er. • Þú finnur ekki "eðlilegra" og fallegra jólatré á betra verði. • Ekkert vandamál að geyma - geymslubox fylgir. • Brennur ekki, fellir aldrei barr, og þarf ekki að vökva! • Ekta jólatré úr gerviefnum í fjórum stærðum. Umboðsaðili: Bandalag íslenskra skáta Skíðatöskur - skótöskur - skíöapokar Mittistöskur kr. 990 Skótöskur kr. 1.950 Bakpoki kr. 2.700 mMUTiLiFmm GLÆSIBÆ ■ SÍMI812922 5% staðgreiðsluafsláttur, einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga. Skíðapoki kr. 3.230 Stór taska kr. 3.560
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.