Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
SIEMENS
«<u
Heimilistœkinfrá SIEMENS eru heimsþekkt
fyrir hönnun, gœði oggóða endingu.
Gefðu vandaðajólagjöf- gefðu SIEMENS heimilistœkl
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300
MOBIRA CITYMAN
NQKA1BO
Farsími framtíðarinnar
480 g -allt i sama tækinu
> Lítill, fer vel í vasa
• Léttur fer vel í hendi
• Fallegur, fer vel í bílnum
Nýjung!
NOKIA 150 er aðeins fáanlegur með
Nickel Metal Hybrid rafhlöðu.
Þær endast lengur og hafa
meira en helmingi lengri líftíma.
Tæknilegar upplýsingar um NOKIA 150:
3 Stærð: h:l77 b:58 d:36 mm. Þyngd: 480 g. (sá léttasti)
3 RAFHLADA STÖÐUGT TILBÚINN TIL
í TAL NOTKUNAR
1000 mAh 50 mín 20klfit.
HLEÐSLA HLEÐSLUTÍMl
1000 mAh
Kveikjarasnúra í bíl 12 V 80 mín
Feröahleðsla 220V 80 mín
Boróstandur 220V (heíma) 80 mín
Nokia 150 - fislétti farsíminn
er enn ein nýjungin frá Nokia
Mobile Phones í Finnlandi en
þeir eru stærstu framleiðendur
farsíma í Evrópu í dag.
Nokia 150 hefur alla þá kosti sem
alvöru farsími þarf að hafa, svo lítiil
og þægilegur, hvort sem hann er
í töskunni, brjóstvasanum eða
klemmdur við beltið að þú veist varla
af honum - nema þegar þú þarft
á honum að halda.
NOKIA 150
- bylting ífarsímum á íslandi.
Leitið upplýsinga!
IX
Hátæknihf.
ÁRMÚLA 26 P. 0. BOX. 8336, 128 REYKJAVÍK
SÍMi 675000, FAX 689443
Seglskútan Eldingin.
Gaf Byggðasafninu
í Görðum Eldinguna
HAFSTEINN Jóhannsson, sem sigldi umhverfis jörðina á skútu sinni
Eldingu fyrir tveimur árum, hefur boðið Byggðasafninu í Görðum
á Akranesi að þiggja skútuna að gjöf eftir sinn dag til að hún megi
vera þar til sýnis og varðveislu.
Hafsteinn tilkynnti Gunnlaugi
Haraldssyni, þjóðháttafræðingi og
forstöðumanni safnsins, þessa
ákvörðun á samkomu á Langasandi
á Akranesi á sunnudaginn og hann
kynnti þar nýútkomna endurminn-
ingabók og sagði frá hnattsiglingu
sinni og sýndi myndir úr ferðinni.
Auk þess hefur Hafsteinn sent safn-
inu skriflega staðfestingu á þessum
ásetningi sínum.
Við sama tækifæri afhenti Haf-
steinn Halldóru Jónsdóttur, bóka-
safnsfræðingi, sem veitir forstöðu
nýstofnuðu skjalasafni í Akra-
nesbæ, til varðveislu allar skip-
dagbækur Eldingarinnar gömlu
sem hann gerði út sem aðstoðar-
og björgunarskip á árunum 1959
til 1969. Einnig fékk hún í hendur
skýrslur yfir öll köfunarstörf sem
Hafsteinn annaðist á þessum tíma.
Er þarna meðal annars um að ræða
afar merkar heimildir frá blóma-
tíma síldveiða fyrir norðan og aust-
an land. Alls aðstoðaði Eldingin
1.154 fiskiskip meðan á þessari
starfsemi stóð.
Éristján Jóhannsson fékk 4 gullplötur
Af lífi og sál seld í
11.000 eintökum
PLATA Kristjáns Jóhannssonar, Af lífi og sál, hefur nú selst í um
11 þúsund eintökum. „Hún rokselst og gengur vonum framar," sagði
Kristján í samtali við Morgunblaðið í gær. Salan á Af lífi og sál
hefur þegar tryggt Kristjáni fimmtu platínuplötuna í safnið en hann
fékk afhentar fjórar platínuplötur og tvær gulllötur frá Jóni Karls-
syni útgefanda sínum í beinni útsendingu í sjónvarpsþætti Hermanns
Gunnarssonar í siðustu viku.
„Ég sagði í þessum þætti þegar
Hermann var að spytja mig um
gullplötur að Jóni Karlssyni hefði
alltaf þótt þær vera hégómi en vissi
ekki að þá var Jón búinn að láta
útbúa fyrir mig fjórar platínuplötur
og tvær gullplötur handa mér vegna
fyrri platnanan minna og hann fékk
Hermann til að afhenda mér þær
við þetta tækifæri í beinni útsend-
ingu,“ sagði Kristján. „Sumir hafa
misskilið þetta þannig að Jón hafí
Loðnuvertíðin
Heildarveiðin orðin
tæp 447 þúsund tonn
HEILDARVEIÐIN á loðnuvertíðinni var orðin tæplega 447 þúsund
tonn í gær. Kvótinn sem veiða má er 975 þúsund tonn og eru því
528 þúsund tonn óveidd. SR-verksmiðjan á Siglufirði hefur tekið við
mestum afla, tæplega 95 þúsund tonnum.
Næstar í röðinni eru SR á Seyðis- af loðnu. Með mestan afla voru
firði með tæp 60 þúsund tonn og Hólmaborg, 1.155 tonn, Júpiter,
SR á Raufarhöfn með Túm 58 þús- 1.121 tonn, og Víkingur með 1.008
und tonn. tonn.
í gær var landað 8.113 tonnum
aldrei viljað láta mig hafa þessar
platínuplötur en það er öðru þær.“
Fyrsta plata Kristjáns kom út
fyrir 10 árum og er Af lífi og sál
hin sjötta í röðinni. Jón Karlsson
hefur annast útgáfu þeirra allra.
„Hann er sá eini sem hefur verið
nógu stórtækur til að gera hlutina
á þeim standard sem ég hef óskað
eftir,“ sagði Kristján í símtali við
Morgunblaðið, en hann dvelst nú
heima hjá sér á Ítalíu.
I SAMBAND sunnlenskra
kvenna hefur hafið árlega jóla-
kortasölu sína og rennur ágóðinn
til tækjakaupa fyrir Sjúkrahús
Selfoss. Jólakortið í ár er með
mynd eftir Svövu Sigríði Gests-
dóttur og heitir Vetrarsól. Kortið
er prentað í Prentsmiðju Suður-
lands.
Jólakort sunnlensku kvennanna.