Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
53
í yfir 30 stiga hita getur verið freistandi að skella
sér út í næsta gosbrunn.
Leikarar götuleikhússins reyndu að fá áhorfendur
til þess að taka þátt í leiknum.
hljóðfæraleikurum, og The Peop-
le’s Gospel Choir Montrealborgar,
sem hélt magnaða tónleika er
ómuðu yfír fullt Place des Arts
svæðið á lokakvöldi hátíðarinnar.
Minna svið Maurier Ltd. var
helgað dixieland-tónleikum auk
þekktari hljómsveitum úr borginni
s.s. Block Note og sextett Franco-
is Marcaurelle, sem tilnefndur var
til djassverðlauna Maurier Ltd.
fyrirtækisins og auk þess til Socan
verðlaunana.
Labatt bjórframleiðandinn sá
ekki einungis um að koma sinn
framleiðslu í sölu á þessari hátíð
heldur hafði einnig á sínum vegurn
tvö útisvið. Labatt Blues-sviðið
tryggði blúsunnendum tvenna tó-
leika daglega. Fyrri tónleikarnir
voru helgaðir hljómsveitum úr
Québec-fylki. Má þar nefna hljóm-
sveitir eins og Working Overtime,
sem kom skrifstofustúlkum í
þröngum pilsum og á háum hælum
á leið heim úr vinnu til þess að
staldra við og sveifla sér í taktinn.
Á síðari tónleikunum léku hljóm-
sveitir eins og Benoit Blue Boy frá
Frakklandi og Mississippi Heat frá
Chicago og voru þeirra áheyrendur
greinilega harðsnúnir blúsunnend-
ur helst á miðjum aldri og eldri.
Á Labatt Légére-sviðinu var
heldur léttari tónlist, suður-amer-
ískur djass, cajun djasspopp og
smá fusion flaut þar með. Helstu
listamenn á því sviði voru hljóm-
sveitin Roddie Romero and the
Rockin’ Cajuns frá Lousiana, gítar-
leikarinn John Monney og hljóm-
sveit hans Bluisiana frá New Orle-
ans og hljómsveitin The Iguanas
einnig frá New Orleans.
Olíufyrirtækið Ultramar var
með dálítið blandaða dagskrá á
sínu sviði, þó var aðaláherslan á
afrískan og arabískan „djass“. Þar
voru einnig mjög góðar hefðbundn-
ar djasshljómsveitir t.a.m. Bernie
McGann tríóið frá Ástralíu, sem lék
við mikinn fögnuð viðdstddra,
kvennahljómsveitin Velet Glove frá
Tórontó og kanadíski píanóleikar-
inn Lorraine Desmarais auk kvart-
etts sem lék með japanska
trompetleikaranum Tiger Okoshi.
Á Pessí-sviðinu var slegið á
heldur alvörugefnari strengi, ac-
ustic djass og fusion, tvisvar á
dag, þrisvar um helgar. Þar mátti
að heyra meðal annarra Montreal
organistann Denis Lepage ásamt
kvartett, breska hljómsvéit tólist-
arundursins Django Bates, Human
Chain, og kvartett landa hans Orp-
hys Robinsons.
Flugfélagið Air Canada og
mjólkurfélagið Le lait voru með
útisvið á veitingasvæði hátíðarinn-
ar og léku þar undir borðum minna
þekktir jass- og dixieland-hljóm-
listarmenn borgarinanr.
Fjórtán lönd áttu tónlistamenn
á þessari djasshátíð, meðal annars
frá Zaire, Madagaskar, Alsír, Suð-
ur-Afríku, Haiti, Brasilíu og Kúbu.
Á síðasta ári voru ferðamenn '4
hluti hátíðagesta. 39% þeirra voru
Bandaríkjamenn, 37% komu frá
öðrum hlutum Kanada og 17%
voru frá ýmsum löndum Evrópu.
Rúmlega helmingur ferðamanna
var sérstaklega kominn til Montré-
al til þess að fylgjast með hátíð-
inni. Fréttaflutningur er alþjóðleg-
ur og fylgdust 300 blaðamenn með
þessari hátíð sem sjónvarpað var
í um 30 löndum.
Höfundur er myndlistarkona,
búsett MontreaJ
MARGT SMATT
GERIR EITT STÓRT!
<GLr HJÁLPARSTOFNUN
V“l rj KIRKJUNNAR
meö þinni hjálp
HREINASTA GERSEMI
NÝJA NILFISK RYKSUGAN ER KOMIN
NILFISK GM200
SOGAR MEIRA - SÍAR BETUR - ENDIST LENGUR
STAÐGREIÐSLUVERÐ KR. 21.990
iFOnix
HÁTÚNI 6ASÍMI (91)24420