Morgunblaðið - 16.12.1993, Side 20

Morgunblaðið - 16.12.1993, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993 Líttu á verðið! Við bjóðum MARK I itsjónvarpstækin meó fullkominni fjarstýringu ó ótrúlegu verói: 14" kr. 27.810 stgr. 20" kr. 35.910 stgr. TAKMARKAÐAR BIRGÐIR! Eínar Farestvelt&Co.hff. Borgartúni 28 ÍP 622901 og 622900 kynningartilboð í örfáa daga Canon Canon FAXB200 •Notar venjulegan pappír •64 gráskalar •20 bls. skjalaminni •37 skammvalsminni •Innbyggður faxdeilir kynningarverð: Kr. 99,800.- stgr.m/vsk. SKBIFVIUN HF' SUÐURLANDSBRAUT 6, SÍMI 685277, FAX 689791 Astir og ástríður Bókmenntir Eðvarð Ingólfsson Helgi Jónsson: Englakroppar. Skjaldborg 1993. Helgi Jónsson er einn af fáum íslenskum höfundum sem skrifar eingöngu fyrir unglinga. Fjórða og nýjasta skáldsaga hans heitir Englakroppar. Hún fjallar um 18 ára bandaríska stúlku sem gerist „au-pair“ hjá íslenskri fjölskyldu á Akureyri. Bókin er kynnt sem „gamansaga“ en hefur samt alvar- legan undirtón. Hér eru ástir og ástríður aðalviðfangsefnið og áður en yfir lýkur sitja nokkrir eftir í sárum. Margt gott má segja um þessa sögu. Hún er vissulega fyndin á köflum og rík af frásagnargleði. Gagnrýni sögumanns á yfirborðs- mennsku og hégóma fullorðna fólksins hittir oft í mark þó að hún sé stundum nokkuð einfeldnings- leg. Og Helgi er laginn við að skapa spennu, halda huga lesand- ans föngnum. Hinum gráa fiðringi heimilisföðurins lýsir hann skemmtilega og á trúverðugan hátt. Helsti galli sögunnar er aftur á móti persónusköpunin. Aðalper- sónurnar eru dregnar ansi ljósum dráttum, eru of einhliða, og þar gætir jafnvel ósamræmis, t.d. í lýsingunni á Kristófer Erni sem er sagður vera „sjúklega feiminn“ og eiga í mestu erfiðleikum með að tjá sig um einföldustu hluti (sbr. bls. 21) — en hikar þó ekki við að játa aðalsöguhetjunni, Michelle, ást sína í síðari hluta sögunnar og kveðst vilja giftast henni — án þess að vita hvort hún hefur nokk- urn áhuga á honum. Það þarf ansi kjarkaðan pilt, að ég held, til að bera slíkar tilfinningar á torg. Einnig má finna að því að Mich- elle er svo að segja eingöngu met- in að verðleikum eftir útliti sínu en ekki innræti. Þar hefði sögu- maður þurft að veita henni upp- reisn æru til samræmis við aðra gagnrýni á hismi. Þó að auðvitað megi finna galla á Englakroppum eins og flestum öðrum sögum þá er víst að mörg- Helgi Jónsson um unglingum á eftir að líka hún vel. Hún er nokkuð „villt“ og óbeisluð á köflum. Það má kannski segja höfundi til hróss að hann þorir að fara ótroðnar slóðir í verk- um sínum, bæði hvað varðar mál- far og efnistök, þó að hann beini sjónum sínum fullmikið að „líkam- anum“. Og hafi hann verið að hugsa fyrst og fremst .um að rita afþreyingarsögu verður ekki ann- að séð en hann hafí náð því markmiði — auk þess sem hún skilur eftir sig, þegar allt kemur til alls, nokkur atriði til umhugsunar. BARA VINIR Bókmenntir Anna G. Ólafsdóttir MacLeod Trotter, Janet (þýð. Sigríður Rögnvaldsdóttir): Bara vinir. Iðunn, Reykjavík, 1993. Hin sautján ára gamla Lulu Lew- is lifir fremur kyrrlátu og öruggu lífi þegar fótunum er skyndilega kippt undan tilveru hennar. Bestu vinir hennar, Sally og Sid, bytja saman og allt í einu virðist fátt geta glatt hjarta hennar. Hún lætur þó ekki við svo búið sitja og ákveð- ur að venda kvæði sínu í kross, leggja fótboltaskóna á hilluna og fara í jóga, breyta um fatastíl og hárgreiðslu. Með þessu móti eignast hún Qöldann allan af nýjum vinum og ekki líður á löngu þar til Vince Volpi, einn eftirsóttasti ungi maður- inn í bænum, fer á fjörurnar við hana. Þótt hratt sé farið yfir sögu er frásögn Janet MacLeod langt frá því að vera flókin. Inntakið er á sama hátt fremur klisjukennt, „ekki er allt gull sem glóir“, og persónu- sköpunin grunn. Aðeins Lulu nær því að verða áhugaverð og kemur þannig í veg fyrir að lesandinn missi áhuga á þræðinum. Hún er DSEfsDBNŒRAMICA =T=- -T- \íp VI' - LL StórhiMOa 17 vl» GuUlöbrti, síral 67 4« 44 ráðagóð og fyndin, þeirri gáfu gædd að geta gert svolítið grín að sjálfri sér. Rod, litli bróðir hennar, er á sama hátt áhugaverð aukapersóna og þjónar vel þeim tilgangi að varpa ljósi á hvernig Lulu breytist úr hálf- gerðri strákastelpu í konu. Hins vegar vantar herslumuninn á að foreldrar systkinanna verði áhuga- verðir og hefði að ósekju mátt blása meira lífi í fleiri persónur, t.d. Sid, Lennon og vinahóp Vince. Sagan er engu að síður þokkaleg afþreying fyrir ungt fólk og gerir ágætleg skil á þeim þroska sem Lulu tekur út í sögunni. Eins er gaman að fylgjast með því hvernig viðhorf hennar til Vince tekur breytingum. Lulu sér aðeins spjátr- ung í upphafi en áhugi hans veldur því að tilfinningar hennar breytast. „Hvernig get ég sagt henni að sam- bandið við Vince sé það stórkostleg- asta sem hefur hent mig síðan Hartburn vann deildarmót héraðs- ins fyrir fjórum árum? Já, reyndar það besta sem nokkru sinni hefur gerst“ (bls. 92), útskýrir hún fyrir Rosie sem trúlega hefur sömu til- finningar gagnvart Vince, sem nú er orðinn að grískum guði. Fallið verður þess vegna hátt þegar blekk- ingar hans eru afhjúpaðar og Lulu stendur eftir sem sigurvegari. Þrátt fyrir ýmsa annmarka bók- arinnar er gaman að sjá loks röska og úrræðagóða stelpu í aðalhlut- verki og ekki er ókostur að hún er ögn eldri en margar aðalpersónur íslenskra unglingasagna. Ekki virð- ist heldur skemma fyrir að þjóðfé- lagið er annað enda sammannlegir hlutir á ferðinni. Stíll bókarinnar er fremur flatur en þýðingin er gerð af vandvirkni og frágangur til sóma. Valdlmar Lárusson. Ljóðabók eft- ir Valdimar Lárusson ÚT ER komin ný ljóðabók, eftir Valdimar Lárusson og nefnist hún Laust og bundið. Í bókinni eru 33 ljóð, rímuð og órímuð. Árið 1990 kom út eftir Valdi- mar ljóðabókin „Rjálað við rím og stuðla“. Útgefandi er höfundur. Bók- in er tæpar 50 bls. í kiljubroti og kostar 1.000 krónur. Bókin er til sölu hjá höfundi sjálfum og í bókaversluninni Vedu, Hamraborg 5 Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.