Morgunblaðið - 16.12.1993, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
Reykjahlíðarkirkja
Hátíðleg
aðventu-
samkoma
Björk, Mývatnssveit.
AÐVENTUKVÖLD var í
Reykjahlíðarkirkju síðastliðinn
sunnudag klukkan 21. Kór
kirkjunnar söng undir stjórn
Jóns Árna Sigfússonar, ein-
söngvari var Oskar Pétursson
frá AkureyrL Undirleikarar
voru Örn Friðriksson og Garðar
Karlsson.
Þuríður Helgadóttir las jóla-
sögu. Sóknarpresturinn, séra Öm
Friðriksson, stjómaði samkom-
unni og flutti í lokin bæn sem við-
staddir tóku undir og síðan bless-
unarorð. Síðan sungu allir við-
staddir Heims um ból.
Þessi samkomustund í kirkjunni
var mjög hátíðleg. Fjölmenni var.
Kristján
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Tvöfalt afmæli
ÓLAFUR Sigurðsson fyrrverandi yfirlæknir á lyfjadeild FSA tók
fyrir 20 árum fyrstu skóflustungu að viðbyggingu við sjúkrahúsið
og bað Valtýr Sigurbjarnarson, formaður stjórnar sjúkrahússins,
hann í tilefni af því að skera fyrstu sneið afmæliskökunnar sem
boðið var upp á þegar tvöföldu afmæli var fagnað í gær, 120 ára
afmæli sjúkrahússrekstrar á Akureyri og 40 ára afmæli FSA.
Tvöfalt afmæli Fjórðungssjúkrahússins
Miklar breyting-
ar á 120 ára ferli
TVÖFÖLDU afmæli í starfsemi Fjórðungssjúkraliússins á Akureyri var
fagnað í gær að viðstöddu fjölmenni. Fyrsta sjúkrahúsið í bænum tók
til starfa fyrir 120 árum, árið 1873 í húsi sem var gjöf Friðriks Gud-
manns og kallað Gudmanns minni og er nú Aðalstræti 14. Fyrir 40
árum hófst starfsemi FSA í því húsnæði sem enn er í notkun og var
handlækningadeild opnuð þar 15. desember árið 1953.
Starfsemin hefur tekið miklum
breytingum frá því hún hófst í Gud-
manns minni fyrir 120 árum, þar
voru í fyrstu 8 sjúkrarúm, en nú er
sjúkrahúsið skráð með 214 rúm og
vinna þar á sjötta hundrað starfs-
menn. Á síðasta ári var fjöldi skráðra
legudaga tæplega 45 þúsund, en
sjúklingar voru 4.427.
Meira verður byggt
Á þeim 40 árum sem liðin eru frá
þvi flutt var á núverandi stað hefur
mikið verið byggt við sjúkrahúsið,
en á 100 ára afmæli sjúkrahúss á
Akureyri í nóvember 1973 tók Ólafur
Sigurðsson sem þá var yfirlæknir á
lyfjadeild fyrstu skóflustunguna að
nýjum áfanga, svokallaðri þjónustu-
byggingu sem er rúmlega 23 þúsund
fermetrar að stærð. Framundan eru
miklar byggingaframkvæmdir sem
bæta mun aðstöðuna enn frekar, en
í því húsnæði sem byijað verður að
öllum líkindum á næsta vor verður
m.a. ný bamadeild.
í tilefni af þessum tímamótum
hefur verið gefið út blað þar sem
ítarlega er rakin saga Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri og gerð
grein fyrir byggingasögu og starf-
semi hinna fjölmörgu deilda þess, en
það var Valgarður Stefánsson sem
tók söguna saman.
Þá vom sýndar fjölmargar ljós-
myndir þar sem ljósi er varpað á fjöl-
þætta starfsemi sjúkrahússins og
gestum gafst kostur á að kynna sér
sérstaklega starfsemi handlækn-
inga- og röntgendeilda FSA.
Mikil samkeppni á kjötvörumarkaðnum fyrir jólin
Hefðbundinn j ólamatur
hefur lækkað frá í fyrra
JÓLASTEIKIN hefur lækkað í verði á Akureyri frá því í fyrra sam-
kvæmt verðkönnun sem Neytendafélag Akureyrar og nágrennis gerði
á þriðjudag en verð í könnuninni er það sem gilti í verslununum kl.
13.30 þann dag. Alls var athugað verð á 42 kjöttegundum í 5 verslunum.
Vilhjálmur Ingi Árnason, formað-
ur Neytendafélags Akureyrar og
nágrennis, segir að mikil harka sé á
milli verslana sem keppist við að
bjóða sem lægst verð á hefðbundnum
jólasteikum. Hann segir að áberandi
Hafnarstræti 26,
Akureyri, s. 96-22551.
sé hversu hart er barist um að bjóða
lægsta verð á grísa- og nautakjöti.
Dæmi séu þess að verð á kílói af
nautalundum hafí lækkað frá því
fyrir nokkrum dögum og þar til könn-
unin var gerð um rúmar 700 krónur.
Sami tímapunktur
Verðkönnunin var gerð í 5 verslun-
um, Hagkaupum, Matvörumarkaðn-
um og þremur KEA-verslunum, í
Hrísalundi, Sunnuhlíð og Byggða-
vegi. „Þetta verð á að gilda til jóla,
við sendum út til verslananna lista
yfir þær vörutegundir sem kanna
átti verð á um helgina," sagði Vil-
hjálmur Ingi, „en síðan er greinilegt
að mánudagurinn hefur verið notað-
ur til að ákveða hversu langt ætti
að teyja sig niður á við.“
Bónus og KEA-Nettó eru ekki með
í þessari verðkönnun og segir Vil-
hjálmur Ingi að skýringin sé sú að
þar sé takmarkað vöruúrval í boði,
ákveðið hafi verið að kanna verðið í
þeim verslunum þar sem er kjötborð
eða mikið úrval lqótvöru á boðstólum.
Af þeim 42 vörutegundum sem
verðkönnunin nær til er verðið lægst
á 20 vöruflokkum í Hagkaupi og 13
vöruflokkum í Hrísalundi, en að sögn
Vilhjálms Inga er verðsamkeppnin
hörðust á milli þessara verslana.
Þannig eru Hagkaup með lægsta
verð á flestum tegundum fuglakjöts,
en í Hrísalundi er nautakjötið oftast
á lægsta verðinu.
Fj ár hagsáætlun Akureyrarbæjar samþykkt
Breytingatillögur
minnihlutans felldar
Ný glæsileg
gjafavara á
einstöku verði
Fæst í
Blómahúsinu á
Akureyri eins
og margt
annað faliegt
Baráttu-,
Þessi bók er fyrir ungt fóik
á öllum aldri, sem hefur
gaman af átakanlegum,
spennandi og
ævintýralegum
söguþræði, í flóknu
samspili sem gerist í
heimi manna og álfa.
ísey útgáfan
Símar 985-34078
& 96-23445
FJÁRHAGSÁÆTLUN Akureyrarbæjar fyrir árið 1994 var samþykkt
að lokinni síðari umræðu í bæjarstjórn Akureyrar á þriðjudag. Breyt-
ingartillögur minnihlutans við fjárhagsáætlunina voru felldar.
spennu-
og
œvintýrasaga.
stöfuníir en áður á meðan framlög
til annarra málaflokka eru hækkuð.
Verðskuldar stuðning
„íþróttahreyfíngin stendur illa
íjárhagslega og þar munar vissu-
lega um hveija krónu. Þessi hreyf-
ing skilar ómældu sjálfsboðastarfí
til samfélagsins og verðskuldar
meiri stuðning bæjarfélagsins,"
segir í greinargerð Þórarins og
Gísla Braga, en þar er lagt til að
fénu verði að mestu varið til íþrótta-
félaganna tii að greiða tímaleigu í
íþróttahúsum.
Önnur tillaga frá sömu aðilum
þar sem lagt var til að framkvæmd-
um við byggingu leikskóla í Gilja-
hverfí verði frestað um eitt ár var
einnig felld, Áætlað er að veita 40
milljónir króna í það verkefni á
næsta ári.
Sigurpáll er 19 ára og býr með afa
sínum á stóru kuabúi hans.
En nú kemur vofa fortíöarinnar og
heimtar uppgjör við gamla
manninn.
Líf gamla mannsins er að veði.
Hann hafði með lífsvilja og krafti
sfnum sem ungur maður snúið á
dauðaálögin.
Nu þarf hann meíra en kraftar
hans megna.
Hvað geta ást og kraftar unga
mannsins áorkað miklu,
þegar allt er lagt undir í
baráttu upp á líf og dauða.
■4
Þeir Gísli Bragi Hjartarson, Al-
þýðuflokki, og Þórarinn E. Sveins-
son, Framsóknarflokki, gerðu til-
lögu um að lækka framlög í liðinn
önnur mál um 6 milljónir en hækka
framlög um til íþrótta- og tóm-
stundamála um sömu upphæð.
Fram kemur í greinargerð með til-
lögunni að þessum málaflokki sé
ætlað mun minna fjármagn til ráð-
Krummarnir
JOLAMYNDIN
Fasteign til sölu
Til sölu erfasteignin Hafnarbraut 7 á Dalvík. í fasteign-
inni hefur útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Haraldur
hf. rekið fiskverkun. Fasteignin er á tveimur hæðum,
samtals 1.510 mz.
Á efri hæð eru skrifstofur og kaffistofa, auk veiðar-
færageymslu.
Til greina kemur að selja eignina í einu lagi eða hlutum.
Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Hauksson, löggiltur
endurskoðandi, í símum 96-61318 eða 96-26600.