Morgunblaðið - 16.12.1993, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
51
F ólksfjölgunarvandamálið og
vemdun norræna kynstofnsins
eftir Magnús
Þorsteinsson
Gífurleg fólksfjölgun einkum í
iöndum þriðja heimsins ógnar nú
mannkyninu. Víða er fólksfjölgunin
slík að fólksfjöldinn tvöfaldast á
hveijum 20 árum. Verði þessi fólks-
fjölgun ekki stöðvuð hlýtur þetta að
enda með því að jörðin yfirfyllist af
fólki sem eyðir ölium auðlindum og
gróðri og tortímir síðan sjálfu sér á
tiltölulega skömmum tíma. Eina leið-
in til að bjarga mannkyninu frá svo
dapurlegum örlögum er að komið
verði á alþjóðlegri Iöggjöf til að
stöðva fólksfjölgunina og þá jafn-
hliða alþjóðlegri lögreglu til að sjá
um að lögunum verði alls staðar
framfylgt, og þessi löggjöf þyrfti líka
að ná til allsheijarumhverfisverndar
og kjarnorkuver þyrfti að banria, og
koma verður í veg fyrir að skamm-
sýnar þjóðir eins og til dæmis Brasil-
íumenn ógni lífi jarðar með heimsku-
legum aðgerðum, eins og til dæmis
að brenna regnskógana.
Þarna er um líf eða dauða mann-
kynsins að tefla, svo að taka verður
á þessu föstum tökum. Nú hefur
mikill fjöldi af fólki frá löndum þriðja
heimsins sest að á Vesturlöndum og
veldur þetta fólk alls staðar hrika-
legu vandamáli. Sífellt vex ásókn
þessa fólks í að komast til Vestur-
landa og er nú orðið erfitt að standa
á móti þeim straumi. Þegar nú íbúa-
tala þessara landa tvöfaldast á 20
ára fresti, í löndum sem þegar eru
orðin yfirfull af fólki, má búast við
slíkri holskeflu af þessu fólki á næstu
árum að ekki verði nokkur leið að
standa á móti. Ef ekkert verður að
gert munu öll Vesturlönd yfirfyllast
af þessu fólki, sem fjölgar sér marg-
falt meira en fólk af norrænu kyni.
Mun þá norræni kynstofninn, þessi
mikilhæfi og glæsilegi kynstofn,
fljótlega líða undir lok og eftir það
verður varla langt að bíða að mann-
kynið tortími sér vegna offjölgunar.
Nú er ástandið í löndum þriðja
heimsins víðast þannig að fólks-
mergðin er svo mikil að þó að um
ftjósöm lönd og auðug af náttúru-
auðlindum sé að ræða lifir fólkið í
fátækt og vesaldómi, menntun er
yfirleitt lítil og margir ólæsir. Fram-
farir litlar, mannréttindi fótum troð-
in og valdhafar harðstjórar, sem
Magnús Þorsteinsson
„Eins og áður segir er
norræni kynstofninn í
útrýmingarhættu, þess
vegna þarf að koma á
í öllum norrænum lönd-
um löggjöf honum til
eflingar og verndar.“
hugsa mest um að safna auði í eigin
vasa en láta sér hag þegna sinna
sig engu varða.
Landeyðing og ofbeit er mikil og
miskunnarlaust er gengið á skóga.
Til dæmis hafa Brasilíumenn það á
stefnuskrá sinni að eyða öllum regn-
skógum meðfram Amasonfljótinu,
en ef þessum skógum verður eytt
gæti súrefni jarðar þrotið, vegna
þess að þessir skógar eru helsti súr-
efnisgjafi jarðar, og mundi þá allt
líf á jörðinni þurrkast út. Þetta hef-
ur Brasilíumönnum verið gert ljóst
en þeir láta það sem vind um eyru
þjóta og brenna nú og höggva af
meira kappi en nokkru sinni fyrr,
og talið er að þessir skógarbrunar
eigi stærstan þátt í eyðingu óson-
lagsins.
Eins og margar þjóðir þriðja
heimsins eru Brasilíumenn alveg
steinblindir á fólksfjölgunarhættuna
og hafa fram að þessu haft það á
stefnuskrá sinni að fjölga fólkinu
sem allra mest. Samt er fólksfjölg-
unarvandamál og fátækt gífurleg
þar í landi og heimiiislaus börn sem
sofa á götum úti og lifa á þjófnaði,
betli og matarúrgangi af sorphaug-
um skipta tugum þúsunda.
Aður en umhverfisráðstefnan var
haldin í Ríó síðastliðið sumar var
lögreglan látin fara um götu Ríó-
borgar með vélbyssur og skjóta eins
mikið af þessum börnum og hún
náði til, til þess að fulltrúar annarra
ríkja sem sátu umhverfisráðstefnuna
sæju ekki þessi börn.
Þetta lýsir vel þeim fantaskap og
mannúðarskorti sem einkennir flest-
ar þriðjaheimsþjóðir.
Eins og áður segir er norræni
kynstofninn í útrýmingarhættu, þess
vegna þarf að koma á í öllum nor-
rænum löndum löggjöf honum til
eflingar og verndar.
Þessi kynstofn er svo mikils virði
fyrir mannkynið að það væri glæpur
gegn mannkyninu að láta hann deyja
út, án þess að gera nokkuð honum
til verndar.
Enski hugsuðurinn H.S.T. Cam-
berlain taldi að norræni kynstofninn
ætti sér annan uppruna og æðri en
aðrir kynstofnar. Finnst mér mjög
trúlegt að það sé rétt, svo ber þessi
kynstofn langt af öðrum, að glæsi-
leika og göfugmannlegu yfirbragði.
Astandið í löndum norrænna
þjóða stingur mjög í stúf við ástand-
ið í löndum þriðja heimsins sem lýst
var hér að framan en í löndum nor-
rænna manna lifir fólkið við alls-
nægtir, framfarir miklar, menntun
góð og mannúð og mannréttindi í
heiðri höfð.
Hinn heimsfrægi spámaður
Nostradamus gaf út sína fyrstu spá-
dómsbók 1555 og fjöldi af spádóm-
um hans hefur komið fram en hann
spáði því að Islendingar myndu
bjarga mannkyninu. Nú ættu íslend-
ingar að láta þennan spádóm rætast
með því að koma á löggjöf til vernd-
ar íslenskum þjóðarstofni og vera
þannig öðrum þjóðum til fyrirmynd-
ar, gætu þá aðrar þjóðir farið að
dæmi íslendinga og komið á hjá sér
slíkri löggjöf. Mundi það verða til
þess að norræna kynstofninum yrði
bjargað frá útrýmingu, mannkyninu
til ómetanlegs gagns.
Höfundur er bóndi í Vatnsnesi.
Hreyfímyndafelagið með sýningii í kvöld
HREYFIMYNDAFELAGIÐ sýnir
kvikmyndina „Belle de Jour“, í
leikstjórn Louis Bunuel, í kvöld,
fimmtudaginn 16. desember, kl.
17 í Háskólabíói.
Meistari Bunuel er einna þekkt-
astur fyrir samvinnu sína við súr-
realistann Salvador Dali. Saman
gerðu þeir „Un Chien Andalou“,
frægustu kvikmynd sem gerð var
undir gunnfána súrrealismans.
Aðalhlutverkið leikur Catherine
Deneuve og fer hún með hlutverk
Séverine, eiginkonu skurðlæknis.
Hún getur alls ekki veitt kynórum
sínum útrás í hjónasænginni heldur
byrgir þá inni og verst eiginmannin-
um með kaldri brynju. Kynórarnir
leita samt útrásar og að lokum finn-
ur Séverine þeim faiyeg í hluta-
starfi á vændishúsi. Á milli raun-
veruleikans og draums dansar
Bunuel línudans þar sem sannleik-
urinn er lygi, lygin er draumur og
draumurinn sannleikur.
STJÖRNUKORT
Skemmtileg gjöi
Persónulýsing, íramtlðarkort, karmakort, samskiptakort.
Sjálísþekking er forsenda velgengni.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Stjörnuspekistöðin, Kjörgarði,
Laugcrvegi 59, sími 10377.
•Láser prentun
•Venjulegur pappír
64 gráskalar
172 skammvalsminni
Tölvutengjanlegt
•Hóphringing
SUÐURLANDSBRAUT 6, SÍMI 685277, FAX 689791
stgr.m/vsk