Morgunblaðið - 16.12.1993, Qupperneq 56
56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
JOLASKINKA
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Eg skrapp í helgarferð til
Þýskalands í byijun
jólaföstu til að upplifa
erlenda jólastemmn-
ingu og borða þarlendan jólamat.
Þar á meðal borðaði ég mikið af
skinku í ýmsum útgáfum. Mikið
langaði mig til að henda öllu úr
töskunum og fýlla þær af heims-
frægum, Ijúffengum þýskum
bjúgum og skinku. En slíkt gerir
maður ekki. Þegar heim kom var
mér gengið inn í ljúfmetishorn
Hagkaups í Kringlunni og við mér
blöstu stórar gimilegar skinkur.
Mér fannst ég vera horfin aftur
til útlanda. Þarna var jólaskinkan,
komin, það stóð meira að segja
Jólaskinka á pakkanum, einmitt
það sem mig vantaði á jólaborðið,
en á mínu heimili er aðeins heitur
matur á aðfangadagskvöld, hina
dagana er eingöngu borðaður
kaldur matur, sem allan er búið
að útbúa fyrir jól. Mig langaði til
að fræðast um þessa girnilegu
skinku og var vísað á Kjötvinnslu
Sigurðar Ólafssonar á Smiðjuveg-
inum og þar fékk ég allar upplýs-
ingar um þessa nýjung á íslandi.
Lærið er úrbeinað og skankinn
tekinn af og allar sinar hreinsaðar
úr. Fitukransinn er að mestu skor-
inn frá undir pörunni og teknir
fleygar í jaðarinn í kring. Skinkan
er sett í sérstakan kryddpækil,
barbecuepækil eða einiberjapækil.
Þar stendur kjötið í tvo sólar-
hringa, en er síðan soðið undir
pressu í 12 tíma við 67°C hita.
Skinku þessa er skemmtilegt að
bera fram heila og þá kalda en
líka má skera tíglamunstur í pör-
una og setja í vel heitan bakara-
ofn, 250°C, og hafa þar í 30
mínútur. Skinkan hitnar þó ekki
í gegn, og það má hún ekki, þá
fer safi að renna úr henni. En hún
fær mjög fallega mahognýlitaða
áferð við þessa meðferð. Einnig
má sneiða skinkuna niður og setja
fallega á fat. Skinkan er í
lofftæmdum umbúðum og geymist
í nokkrar vikur í kæliskáp, en ef
hún er fryst rennur mikill safi úr
henni og hún verður ekki góð.
Ekki er sama hvernig skinkan
er borin fram, en fallegt er að
skera hluta hennar í þunnar sneið-
ar, raða síðan skinkunni í sneiðum
og rúllum á fat. Einnig má leggja
hveija sneið saman. Fallegt er að
setja ávexti með á fatið, t.d. vín-
ber eða melónur. í rúllumar má
setja einhvers konar salat. Græn-
meti er best að hafa heitt og setja
í skál eða á annað fat. Með svona
góðum mat þarf gott meðlæti, en
hér em uppskriftir af því.
Kartöflustappa (mús) er mjög
góð með skinku, en ekki er sama
hvernig sú stappa er. Tilbúin
stappa í pakka er ekkert
lostæti. Hér er upp-
skrift af kartöfl-
ustöppu með asp-
as, en hana má
búa til fýrirfram,
setja í skál og
stinga í bakara-
ofninn eða ör-
bylgjuofninn fyrir
notkun.
Kartöflustappa
með aspas
1/2 kg bökunar-
kartöflur
1 dós niðursoðinn
aspas, 400-500 g
1 egg
1/8 tsk. múskat (má sleppa)
1 msk. smjör
1. Opnið dósina og látið safann
renna vel af aspasnum. Setjið saf-
ann í pott.
2. Afhýðið hráar kartöflurnar,
skerið í þunnar sneiðar og sjóðið
í aspassoðinu. Sjóðið fýrst helming
kartöflusneiðanna, takið upp úr
soðinu með spaða og sjóðið síðari
helminginn.
3. Setjið kartöflur og soð í
hrærivél og hrærið vel sundur.
Einnig má nota kartöflustappara.
Setjið múskat, egg og smjör sam-
an við og hrærið vel saman.
4. Skerið aspasinn í smá bita
og setjið saman við. Setjið í skál
og bakið strax eða síðar í 20 mín-
útur í bakaraofni eða í um 5 mín-
útur í örbylgjuofni.
Piparrótar/eplasalat
1 dós sýrður ijómi
1 dl þeyttur ijómi
3 epli
smábiti fersk piparrót
1. Afhýðið eplin, stingið úr þeim
kjarnann, rífið gróft.
2. Afhýðið piparrótina og rífið
fínt með rifjámi. Setjið í skál
ásamt sýrðum ijóma. Blandið vel
saman og látið bíða í nokkrar
klukkustundir.
3. Þeytið ijómann og blandið
saman við um leið og þetta er
borið fram.
Athugið: Fallegt og gott er að
búa til rúllur úr skinkunni og setja
þetta salat inn í þær. Rúllurnar
má festa saman með tannstöngl-
um.
Ávaxtasalat með granateplum
2 meðalstórar melónur
væn grein græn vínber
1 kíwí
2 granatepli
safi úr 1 sítrónu eða límónu
1 msk. hunang
1/2 dl matarolía
1/8 tsk. múskat (má sleppa)
1/8 tsk. coriander (má sleppa)
1. Skafið melónukjötið upp með
skeið og setjið í skál. Notið ekki
safann sem myndast.
2. Skerið vínberin í tvennt
langsum og takið úr þeim steina,
setjið með í skálina.
4. Takið granateplin í sundur,
bijótið síðan í bita og takið steina
og aldinhlaup úr, setjið í skálina.
5. Hitið hunangið örlítið, t.d. í
örbylgjuofni, setjið í hristiglas
ásamt sítrónu- eða límónusafa og
matarolíu. Setjið múskat og cor-
iander saman við. Hristið saman
og setjið yfir salatið. Blandið sam-
an með tveimur göfflum.
Líklega vilja margir hafa anan-
as með skinkunni. Hér er upp-
skrift. af uppáhaldsvetrarsalatinu
mínu, sem hefur margoft birst í
þætti þessum.
Hvítkáls/ananassalat
1/2 meðalstór hvítkálshaus
1 hálfdós kurlaður ananas
2 dósir sýrður ijómi
Skerið hvítkálið smátt. Síið an-
anasinn og setjið saman við ásamt
sýrðum ijóma. Blandið vel.
Villa var í uppskrift af finnsku
kaffíbrauði í þættinum 11. desem-
ber sl. Þar stóð 200 g hveiti en
átti að vera 400 g. Er beðist vel-
virðingar á þessum mistökum.
Gleðileg jól.
RAÐAUG/ ÝSINGAR
Atvi n n utækif ær i
Vegna mikillar vinnu undanfarið vantar okkur
greiðabíla.
Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu
Sendibílastöðvarinnar hf., Borgartúni 21.
Kópavogur - vesturbær
Einbýlishús til leigu eða sölu
Nýlegt, stórt og glæsilegt einbýlishús á út-
sýnisstað. Húsið er hið vandaðasta. Inn-
byggður bílskúr. Lúxus eign. Uppl. veitir:
Fasteignamarkaðurinn Óðinsgötu 4.
Símar 11540 og 21700.
FJÖLBRAUTASKÚUNK
BREIOHOLTI
Skólaslit
Fjölbrautaskólans
íBreiðholti
verða í Fella- og Hólakirkju laugardaginn
18. desember kl. 14.00.
Allir nemendur dag- og kvöldskóla, er lokið
hafa prófum á þriggja og fjögurra ára braut-
um, eiga að koma þá og taka á móti próf-
skírteinum.
Foreldrar, aðrir ættingjar, svo og velunnarar
skólans, eru velkomnir á skólaslitin.
Skólameistari.
Skata
Fiskkaupmenn - innkaupastjórar
Til sölu kæst tindaskata.
Upplýsingar hjá fiskvinnslunni, Grandatröð 4,
Hafnarfirði, sími 650516.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Þjónustufyrirtæki óskar eftir 100-150 fm
skrifstofuhúsnæði til leigu.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl.
sem fyrst, merktar: „H - 13059."
I- I: I. A (i S S T A H F
Hafnarfjörður
Framboðsfrestur vegna
prófkjörs
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði hefur ákveðið að opið
prófkjör skuli fara fram fyrir val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins
í bæjarstjórnarkosningunum næsta vor, eins og fyrr hefur verið
auglýst. Prófkjörið mun fara fram dagana 29. og 30. janúar 1994.
Hér með er minnt á, að framboðum skal skila til kjörnefndar Sjálr-
stæðisflokksins, Strandgötu 29, Hafnarfirði, milli kl. 16.00 og 19.00,
föstudaginn 17. desember 1993, en þann dag rennur framboðsfrest-
ur fyrir prófkjörið út. Framboð í prófkjöri skal vera stutt af 10 flokks-
mönnum búsettum í Hafnarfirði og staðfest skriflega af frambjóð-
anda. Nánari upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson, formaöur kjör-
nefndar, í vinnusíma 50565 eða heimasíma 53219. Kjörnefnd
St. St. 5993121619 VII
I.O.O.F. 5 = 17512168V2 = Jv.
I.O.O.F. 11 = 1751216872 = JV
Hvítasunnukirkjan
Völvufell
Almenna samkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfirði
Félagsvist í kvöld, fimmtudaginn
16. desember. Byrjum að spila
kl. 20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir.
VEGURINN
Krístiö samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Almenn lækningasamkoma kl.
20.00 i kvöld á Smiðjuvegi 5,
Kópavogi. Kennt verður um guð-
lega lækningu og beðið fyrir
sjúkum.
„Blessaður er sá maður, sem
reiðir sig á Drottinn."
§Hjálpræðis-
herinn
y Kirkjustræti 2
Fimmtudagur kl. 20.30:
Ljósvaka í umsjá unglingana.
Veitingar og happdrætti.
Verið velkomin á Her.
Flóamarkaðsbúðin er opin í dag
og á morgun, föstudag, kl. 13-18.
Komið og gerið góð kaup.
'singor
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30. Allir velkomnir!
Ath.: Svante Rumar kennir
annað kvöld.
FREEPORT
KLÚBBURINN
Freeportklúbburinn
Aðventufundur verður haldinn í
safnaðarheimili Bústaðakirkju í
kvöld kl. 20.30
Gestur okkar verður hr. Sigur-
björn Einarsson biskup, og mun
hann flytja okkur aðventuhug-
leiðingu. Við hvetjum félaga til
að koma og taka með sér gesti.
FERÐAFELAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Áramót í Þórsmörk
4 daga ferð með brottför 30'12
kl. 8.00. Farmiöa þarf að panta
og staðfesta strax á skrifstof-
unni Mörkinni 6, sími 682533,
því pláss er takmarkaö. Göngu-
ferðir, kvöldvökur, áramóta-
brenna, flugeldar, blysför.
Munið Esju um vetrarsólstöður
sunnudaginn 19.des.kl. 10.30.
Ferðafélag l’slands.