Morgunblaðið - 16.12.1993, Page 59
Minning
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
59
*
Jónmundur Eiríks-
son frá Ljótshólum
Fæddur 9. janúar 1914
Dáinn 15. nóvember 1993
Á tveim fyrstu tugum aldarinnar
fæddust og ólust upp töluvert mörg
börn hér í Svínavatnshreppi. Meiri-
hluti þeirra bjó hér áfram og vann
hér mestallt sitt ævistarf. Hér er
mikið graslendi, aðallega mýrar, erf-
itt til ræktunar áður en véltækni
nútímans kom til. En það var laust
fyrir og eftir miðja öldina sem hún
kom. En þá var einmitt þetta fólk á
besta aldri, tilbúið að takast á við
verkefni sem fyrir hendi voru, og lét
heldur ekki sitt eftir liggja. En nú
er þetta góða fólk á hraðri leið yfir
hin miklu landamæri sem bíður okk-
ar allra. Þannig hafa átta manns
úr þessari sveit horfið okkur á rúmu
ári. Síðastur í röðinni er sá sem hér
er kvaddur, Jónmundur Eiríksson.
Hann var sonur hjónanna Ingiríðar
Jónsdóttur frá Ljótshólum og Eiríks
Grímssonar frá Syðri-Reykjum í
Biskupstungum. Þau bjuggu í Ljóts-
hólum. Jón faðir Ingiríðar var Skag-
firðingur, en móðir hennar Guðrún
Eysteinsdóttir var af vel þekktum
húnvetnskum ættum. Elsta barn
þeirra hjóna var drengur, sem hét
Jónmundur, en hann fórst af slysför-
um og varð af mikill harmur. Næst-
ur í röðinni var Jónmundur en Grím-
ur var yngstur. Hann lést 22. maí
á þessu ári.
Heimili þeirra Ingiríðar og Eiríks
var rómað fyrir margra hluta sakir.
Þar var snyrtimennska í fyrirrúmi,
bæði úti og inni, svo að af bar. Þar
var einhugur sem náði jafnt til allra,
hvort sem þeir voru vandabundnir
eða ekki og þar var gestum gott að
koma. Þar var góður jarðvegur til
þroska þeim sem þar ólust upp.
Konan mín, Guðrún Jakobsdóttir,
ólst þar upp frá átta ára aldri. Hafði
hún þá misst fósturmóður sína sam
var systir Ingiríðar. Þar var henni
tekið sem dóttur og systur æ síðan
og var svo einnig frá hennar hendi,
þar átti hún foreldra og bræður. En
oft kemur skuggi af skýi, skúr eftir
heita stund. Haustið 1932 lést Eirík-
ur faðir þeirra bræðra á besta aldri.
Þá var Jónmundur 18 ára en Grímur
16. Það var mikið áfall fyrir fjöl-
skylduna, bæði tilfinningalega og
efnahagslega. En „Þó að fjúki fönn
í spor og fölni rós á vanga, alltaf
kemur aftur vor, eftir vetur langa“.
Svo fór einnig hér. Með samheldni
og dugnaði komst allt vel af og þeir
Ljótshólabræður tóku fullan þátt í
því mikla umbótastarfi hér í dalnum
sem getið er um hér að framan.
Hinn 31. mars 1940 gekk Jón-
mundur að eiga eftirlifandi konu
sína, Þorbjörgu Þorsteinsdóttur frá
Geithömrum, ágæta konu, sem hefur
reynst honum mjög vel um langan
ERFIDRYKKJUR
aldur. Hún var myndarleg húsmóðir,
eins og hún átti kyn til því að móð-
ir hennar var til fyrirmyndar á því
sviði. Hún var Halldóra Björnsdóttir,
systir Guðmundar Bjömssonar land-
læknis frá Marðamúpi. Þegar þeir
bræður voru báðir orðnir fjölskyldu-
menn varð þröngt um þá báða í
Ljótshólum. Fékk Jónmundur þá
hluta af Auðkúlu sem þá hafði verið
lögð af sem prestssetur. Fluttist
hann þá þangað 1952 með fjölskyldu
sína og byggði þar nýbýli. Fengu
þau hluta af gamla húsinu til íbúðar
meðan á uppbyggingu stóð. Það var
að sjálfsögðu mikið átak, þó að nokk-
ur styrkur fengist þá til þeirra hluta.
Þau byggðu yfir fólk, fénað og fóð-
ur, allt úr steini, og ræktuðu stórt
tún. Þetta tókst með þrautseigju og
dugnaði þeirra hjóna, enda voru þau
bæði komin frá góðum heimilum.
Þau hjónin héldu uppi þeim gamla
sveitasið, þegar að Auðkúlu kom,
að bjóða öllum kirkjugestum til
kaffidrykkju að messu lokinni, og
var þá alltaf spjallað saman í léttum
dúr, enda þau hjón bæði gestrisin í
eðli sínu. Jónmundur var að eðlisfari
mikið prúðmenni en gat verið glett-
inn og gamansamur ef því var að
skipta. Hann var opinskár og hrein-
skiptinn, glaður í viðmóti og laus
við alla undirferli. Hann hafði gaman
af góðum bókum og var einstakt
snyrtimenni. Jónmundur tók þátt í
félagsstörfum í sveit sinni, sat til
dæmis í hreppsnefnd og sóknar-
nefnd.
Eftir að Jónmundur fluttist að
Auðkúlu, skipti aðeins lítil á löndum
okkar og var því mikill samgangur
hrossa og sauðfjár. Stundum veldur
slíkt ósamlyndi milli bæja, en það
koma aldrei til þess hjá okkur, ekki
vottur. Við ræddum alltaf saman af
hreinskilni og velviid og það er undir-
staða undir gott samkomulag. Milli
heimila okkar var alltaf vinátta,
enda tengsl á milli heimilanna eins
og áður segir, auk þess er Þorbjörg
frænka mín. Þeim hjónum famaðist
vel búskapurinn á Auðkúlu. Þegar
aldur færðist yfir þau, létu þau búið
í hendur Eiríki eldri syni sínum og
fluttust til Reykjavíkur. Þar fékk
Jónmundur starf hjá Fasteignamati
ríkisins árið 1967.
Þau hjón eignuðust þrjú mann-
vænleg börn sem eru: Eiríkur, f.
1940, nú bifreiðastjóri í Reykjavík,
giftur Birnu Jónsdóttur; Þorsteinn,
f. 1944, trésmiður í Reykjavík, gift-
ur Rögnu Jóhannsdóttur; Halldóra,
f. 1944, var gift Ásbirni Jóhannes-
syni, en hann er látinn. Þau byggðu
annað nýbýli á Auðkúlu og bjuggu
þar, en Halldóra býr þar enn.
Við hjónin sendum Þorbjörgu og
allri fjölskyldunni hlýjar samúð-
arkveðjur og þökkum langa og góða
samfylgd í gegnum árin.
Þórður Þorsteinsson.
t
Ástkær eiginmaður minn,
ÞÓRARINN PÁLSSON,
Þrúðvangi 26,
Hellu,
Rangárvallasýslu,
verður jarðsunginn frá Oddakirkju laugardaginn 18. desember
kl. 14.00.
Fyrir hönd barna minna og tengdabarna
Ingibjörg Soffía Einarsdóttir,
Hellu.
t
Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
SIGURBORGAR BJÖRNSDÓTTUR,
Skúlagötu 64,
Reykjavik,
áður til heimilis á Fjólugötu 11,
Vestmannaeyjum,
sem lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 9. desember, fer fram
frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. desember kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hennar, er bent á Samtök gegn astma og ofnæmi.
Verð frá kr. 850-
P E R L A N sími 620200
Ólafur Runólfsson,
Petra Ólafsdóttir, Jóhannes Kristinsson,
Ester Ólafsdóttir, Einar Bjarnason,
Birgir Ólafsson, Anna Lind Borgþórsdóttir
og barnabörn.
Erfidrykkjur
(ilívsiicg kalli-
hlaðborð Megir
síilirogmjög
góð þjónusla.
Ujjplýsingar
ísíma22322
. flugleidir
laÁmni l Anmt nthti
+
Ástkær eiginkoha rhín, móðir okkaf,
téhgdáfhóðíri áfhlfia laHgafflífiáj
hLíf aLfoldína schiöth
LÁIíUSÖÖftÍRi
Bölstaðarhlíö 62,
Reykjavík,
sem lést þann 8. desember sl. í Borg-
arspítalanum, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju föstudaginn 17. desember
kl. 15.00.
Þorleifur Jónsson,
Baldur Þorleifsson, Sigrún Bjarnadóttir,
Örn Þorleifsson, Isabella Þorleifsson,
Ásbjörn Þorleifsson, Helga Aðalsteinsdóttir,
Lovisa Þorleifsdóttir, Ólafur Egilsson,
Björk Þorleifsdóttir, Jón Guðnason,
Brynja Þorleifsdóttir, Lárus Þorleifsson,
Helgi Þorleifsson, Brigitte Michon,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Fóstra mín og systir okkar, GUÐLAUG SIGURÐARDÓTTIR kennari frá Útnyrðingsstöðum, sem lést 4. desember, verður jarðsungin frá Vallaneskirkju laugar- . daginn 18. desember kl. 14.00. Þeir, sem vilja minnast hennar, eru beðnir að láta sjúkrahúsið á Egilsstöðum njóta þess. Jón Þóroddur Jónsson, Sigríður Sigurðardóttir, Þorsteinn Sigurðsson.
+ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR, Bakkavegi 25, Hnífsdal, verður jarðsungin frá Hnífsdalskapellu laugardaginn 18. desem- ber kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á að láta Fjórðungs- sjúkrahúsið á ísafirði njóta þess. Ágúst Guðmundsson, R. Margrét Ágústsdóttir, Ástþór Ágústsson, Józefa Nieduzak, Trausti M. Ágústsson, Þóra Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR JAKOBSSONAR frá Þórshöfn. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Húsavíkur og Hvamms, heimilis aldraðra, Húsavík. Þórhalla Sigurðardóttir, Bjarni Aðalgeirsson, Erna Sigurðardóttir, Haraldur Jóhannesson, Vigdís Sigurðardóttir, Sigtryggur Þorláksson, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar og tengdaföður, ÓLAFSÁGÚSTSSONAR frá Jörfa, Borgarfirði-eystra. Börn, tengdabörn og fjölskyldur þeirra.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts systur minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR ÞORGEIRSDÓTTUR, Sigtúni 41. Guðrún Þorgeirsdóttir, Þorgeir Baldursson, Ragna Gunnarsdóttir, Eyþór Baldursson, Gyða Ólafsdóttir, Hildur Baldursdóttir, Bjarni Finnsson, Hilmar Baldursson, Vigdfs Hauksdóttir, Sólveig Baldursdóttir, Gunnar Hrafnsson, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum öllum þeim, sem við andlát og útför föður okkar og tengdaföður, HJARTAR HJÁLMARSSONAR fyrrverandi skólastjóra, vottuðu honum virðingu og okkur og fjölskyldum okkar samúð. Sérstakar þakkir eru færðar Flateyringum, hreppsnefnd Flateyr- arhrepps og starfsfólki Barmahlíðar, dvalarheimilis aldraðra á Reykhólum. Emil Ragnar Hjartarson, Anna Jóhannsdóttir, Grétar Snær Hjartarson, Sigrún Sigurðardóttir.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGILEIFAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Þjótanda, Hraunbæ 103. Sérstakar þakkir til Kórs eldri borgara. Einar Ólafsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Sesselja Ólafsdóttir, Gunnar Ólafsson, Sólveig Gyða Guðmundsdóttir, Árni Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn.