Morgunblaðið - 16.12.1993, Síða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
★ EVRÓPUFRUMSYNING A GEGGJUÐUSTU GRINMYND ARSINS
16500
Hún er
lega út
algjör-
í hött..
Já, auðvitað, og hver ann-
ar en Mel Brooks gæti
tekið að sér að gera grín
að hetju Skírisskógar?
Um leið gerir hann grín
að mörgum þekktustu
myndum síðari ára, s.s.
The Godfather, Indecent
Proposal og Dirty Harry.
Skelltu þér á Hróa;
hún er tvímælalaust
þess virði.
Leikstjóri: Mel Brooks.
★ ★★★ BOX OFFICE
★ ★★ VARIETY
★ ★★ L.A. TIMES
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
W|
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
* BÍOMYNDIR & MYNBOND Tímarit áhugafólks um kvikmyndir ★
* DESEMBERBLAÐIÐERKOMIÐÚT.ÁSKRIFTARSÍMI 91-811280. ★
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
Jólaljós kveikt á Skagaströnd
SkagastrSnd.
BLÍÐVIÐRI var þegar
kveikt var á jólatrénu á
Hnappastaðatúni þetta ár-
ið. Lúðrasveitin í Höfða-
skóla spilaði, jólasveinar
komu í heimsókn og geng-
ið var í kringum tréð og
sungið eftir að kveikt hafði
verið á því.
Mörgum fullorðnum finnst
það orðið ómissandi þáttur í
undirbúningi jólanna að
koma þegar kveikt er á trénu
og syngja jólalögin með
börnunum. Ekki er laust við
að margur finni við þetta
tækifæri hve stutt er í barn-
ið í sjálfum sér og njóti
stundarinnar á sama hátt og
þau.
- O.B.
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
Jólasveinar komu í heimsókn og gengu í kringum jóla-
tréð með börnunum.
SKEMMTANIR
Hljómsveitin Nýdönsk leikur á Tveimur vinum.
UVINIR DÓRA eru í sinni
árlegri jólablúsferð um
landið og spila á næstu
dögum á eftirtöldum
stöðum: í kvöld, fimmtu-
dag leikur hljómsveitin í
Sæluhúsinu á Dalvík,
föstud. 17. des. Blóma-
húsinu, Akureyri, laug-
ard. 18. des. Biókaffi,
Siglufirði, sunnud. 19.
des. Kántríbæ, Skaga-
strönd, mánud. 20. des.
Hóteli Vertshúsi,
Hvammstanga, þriðjud.
21. des. Ver-sölum, Ól-
afsvi'k, miðvikud. 22. des.
Hóteli Stykkishólmi,
Stykkishólmi, og fimmtu-
daginn 23. desember leik-
ur svo hljómsveitin á Café
Bóhem, Reykjavik.
MGAUKUR Á STÖNG í
kvöld leikur hljómsveitin
Rask með Sigrfði Guðna-
dóttir í fararbroddi.
Föstudags- og laugar-
dagskvöld leikur svo
hljómsveit Rabba og Co.
og Stjórnin leikur fyrir
gesti Gauksins sunnudag
og mánudag. Borgard-
ætur leika þriðjudag og
miðvikudag.
MPÁLL ÓSKAR OG
MILLJÓNAMÆRING-
ARNIR leika föstudags-
kvöld á veitingastaðnum
Ömmu Lú. Á laugardags-
kvöldið leika félagarnir í
Krúsinni, ísafirði.
MHÓTEL SAGA Mímis-
bar verður opinn til kl. 3
föstdags- og laugardags-
kvöld og leika þar lifandi
tónlist þeir Þorvaldur
Halldórsson og Gunnar
Tryggvason. Jólahlað-
borð verðnr í Skrúði í há-
deginu og á kvöldin og eru
yfir 60 réttir á hlaðborð-
inu. Jónas Þórir og Jónas
Dagbjartsson leika fyrir
matargesti á píanó og
fiðlu. I Súlnasal föstu-
dagskvöld er jólahlaðborð
fyrir félaga í Heimsklúbbi
Ingólfs. Á laugardags-
kvöldið verður jóla-
stemming með jólahlað-
borði og skemmtidagskrá
þar sem fram koma m.a.
Egill Ólafsson, Örn Árna-
son, Elien Kristjánsdótt-
ir, André Bachman, Eliý
Vilhjálms o.fl.
■ TODMOBILE leikur
föstudagskvöld í
skemmtistaðnum 1929,
Akureyri. Sérstakir gestir
það kvöld verður hljóm-
sveitin Pís of keik og er
miðaverð 900 kr. Þessir
tónleikar eru þeir síðustu
hjá hljómsveitinni á Norð-
urlandi. Laugardags-
kvöldið 18. des. leikur
hljómsveitin í Félags-
heimilinu í Hnífsdal. Það
er að sjálfsögðu í síðasta
skiptið í bili sem Todmo-
bile leikur á Vestfjörðum.
MTEXAS JESÚ heldur út-
gáfutónleika í kvöld,
fimmtudag, en í dag kem-
ur út 13 laga snælda sem
nefnd hefur verið
Nammsla Tjammsla.
Tónleikarnir verða haldnir
í Café Bóhem v/Vitastíg
og hefjast kl. 21. Auk Tex-
as Jesú koma fram Pulsan
og The Dumb Blonde
Brunette Duet. Meðlimir
hljómsveitarinnar eru
Sigurður Óli Pálmason
söngvari, Jón Ó. Erlends-
son, trommuleikari, Einar
Jónsson, gítarleikari,
Lára Magnúsdóttir Lilli-
endahl, trompetleikari,
Sverrir Ásmundsson,
bassaleikari, og Marteinn
Vilhjálmsson, hljóm-
borðsleikari.
MSTJÓRNIN leikur sitt
síðasta ball í Sjallanum,
Akureyri, nk. föstudags-
kvöld. Einnig verður loka-
dansleikur hljómsveitar-
innar í Þotunni, Keflavfk,
á laugardagskvöld.
MTVEIR VINIR í kvöld,
fimmtudagskvöld, verða
útgáfutónleikar hljóm-
sveitarinnar Sigtryggs
dyravarðar. Þessa sveit
skipa m.a. Jóhannes
Eiðsson, söngvari og
Jónsi, kenndur við Stjórn-
ina stundum. Nýdönsk
ætlar að sjá um föstu-
dagskvöldið og leikur efni
af nýrri plötu sinni Hun-
ang í bland við eldra efni.
Útgáfutónleikar Nýdan-
skrar sem haldnir voru í
Þjóðleikhúsinu þann 30.
nóv. verður sjónvarpað í
Ríkissjónvarpinu annað
kvöld. Á laugardagskvöld-
ið verður í umsjá Bifhjóla-
samtaka lýðveldisins,
Sniglanna dansleikur og
er það hljómsveitin
Sniglabandið sem
skemmtir að sjálfsögðu.
Þetta er árlegur góðgerð-
ardansleikur samtakanna
og nú ætlar þau að safna
leikföngum og skal greitt
inn á dansleikinn með
leikföngum sem síðan
verða gefin þeim sem á
þurfa að halda.
MDANSBARINN Föstu-
dags- og laugardagskvöld
leikur hljómsveit Rúnars
Þórs.
MÁSLÁKUR - SVEI-
TAKRÁ Helgina 17. og 18.
des. leikur dúettinn 66
sem skipaður ,er þeim
Birgi Haraldssyni söngv-
ara og Karli Tómassyni
trommara en þeir eru
báðir meðlimir Gildrunn-
ar. I bland við gamla og
nýja slagara leika þeir
einnig ný lög sem vænt-
anleg eru á geislaplötu.
MCAFÉ AMSTERDAM
Hljómsveitin Örkin hans
Nóa leikur um helgina
föstudags- og laugar-
dagskvöld.
MINDIE-KVÖLD er orðinn
fastur punktur á Veitinga-
staðnum 22. Þau hafa
verið haldin á u.þ.b.
tveggja mánaða fresti allt
þetta ár. Lokavöld ársins
1993 verður í kvöld,
fimmtudagskvöld. Skífu-
þeytir verður DJ - Skugga
Baldur, betur þekktur í
gervi útvarpsmannsins
Baldurs Bragasonar en
hann hefur verið í þátta-
gerð á ýmsum útvarps-
rásum síðustu sex ár.
Vegur Indie-tónlistar hef-
ur líklega aldrei risið eins
hátt og þetta ár. Það má
nefna Suede, Depeche
Mode, Auteurs, Björk og
New Order sem dæmi um
listamenn úr óháða geir-
anum er sendu á árinu frá
sér sterkar breiðskífur.
Enskjóla-
messa í
Hallgríms-
kirkju
SÚ HEFÐ hefur skapast
siðustu þrjá áratugi hér í
Reykjavík að halda guðs-
þjónustu fyrir enskumæl-
andi fólk, fjölskyldur
þeirra og vini. Nú í ár verð-
ur guðsþjónustan haldin
sunnudaginn 19. desember
kl. 16 í Hallgrimskirkju.
í messunni verður jólasag-
an rakin í tali og tónum.
Mótettukór Hallgrímskirkju
leiðir safnaðarsöng undir
stjórn Harðar Askelssonar,
organista og farið verður eft-
ir hinu hefðbundna formi níu
lestra og söngva. Daði Kol-
beinsson leikur á óbó og sr.
Karl Sigurbjörnsson þjónar.
Sendiráð Bandaríkjanna
býður kirkjugestum að
þiggja léttar veitingar í
Menningarstofnun Banda-
ríkjanna, Laugavegi 26, eftir
guðsþjónustuna.
Þeir sem þessa tilkynningu
lesa eru beðnir að segja
enskumælandi vinum sínum
frá guðsþjónustunni.
Wterkurog
k/ hagkvaimur
auglýsingamiðill!