Morgunblaðið - 25.10.1995, Blaðsíða 50
50 : MIDV}Kib-pAfiUfi 25. OKTÓBKH 19ft5,
MORGyiíBLAÐIÐ
I STORBOI
HASKOIABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
^rnjm
« r
Í4CJ
að það var líkt og
ekiandi
wmt
VATNAVEROLD
★★★ Á. Þ. ★★★ ó H. T.
Dagsljós 0 Rás 2.
KEVIN COSTNER
WATERWORLD
Sýnd kl. 5, 7,30, 9.15 og 11.
SYÐUSTU SYNINGAR
Sýnd kl. 11.
. irirB Trtmir'irB-B
’ixmj ■tii’
100 sýningar fvrir 100 6r!
hreyfimynda-
dpélagið
Hin 19 ara Chi ma nauðug viljug halda
flugeldakeppni þar sem vonbiðlar
hennar þurfa að sýna getu sína í stór-
hættulegum flugeldasýningum.
Sýnd kl. 4.45 og 6.55.
Allra síðasti sýningadagur.
Sýnd kl. 5
A.Þ.DAGSLJOS
Bráðsketnmtileg og
hrífandi.
★★★ Ó.H.T. Rás 2
Framúrskarandi!!
★★★ G.B. DV
Sýnd kl. 9.
Sharon
heiðrað
í Frakk-
landi
► HÉR sést
leikkonan
Sharon Stone,
þar sem hún
var stödd í
Frakklandi í
gær. Þar var
hún slegin til
„riddara lista
og bréfa“ af
franska menn-
ingarmála-
ráðherranum
Phillippe Do-
uste-BIazy.
/■ff B# TíhM«hh1995
Tónlistarverðlaun Ríkisútvarpsins
Tónleikar í Háskólabíói
íimmtudaginn 26. okt. 1995 kl. 20.00
Einleikarar eru sigurvegarar TónVakans 1995:
Ármann Helgason
klarinettleikari
Júlíana Rún Indriðadóttir
píanóleikari
Einnig verður flutt verðlaunaverkið Ei-Sho
eftir japanska tónskáldið
Miehio Kitazume
sem kemur til íslands af þessu tilefni
Sinlóníuhljómsveit íslands
leikur undir stjóm
Ola Rudners
MiAasala á skrifstofu
SinfónÍMliljómsveitar íslands
í Iláskólabíói sími 562 2255
I FULLUM
BLOMA
HALLUR var, á árum áður,
aðallega þekktur fyrir
trommuleik sinn í ýmsum
hljómsveitum. Ekki er algengt að
trommulejkarar séu um leið laga-
smiðir. „Ég var oft í alveg ágætis
hljómsveitum en þrátt fyrir góða
hljóðfæraleikara voru lögin aldrei
nógu góð,“ segir Hallur. „Ég stalst
því gjarnan í gítarinn hjá stóra
bróður og fór að semja sjálfur. Ég
var alveg sannfærður um að ég
gæti gert betur en félagar mínir.“
Hann segist helst_ nota gítarinn
við lagasmíðarnar. „Ég sem tónlist-
ina í hausnum og finn undirspilið
á gítarinn. Raða stemmningunni
upp í kóllinum. Ég held að tónlistin
verði eðlilegust þannig.“ Hallur
segir mikla vinnu liggja í plötunni.
„Vinnan lá aðallega í undirbún-
ingnum. Þegar í hljóðverið kom var
að baki mikil vinna við texta- og
lagasmíð, auk þess sem ég hafði
skrifað niður í tölvu hvað færi á
hvaða rás. Þess vegna kláruðum
við plötuna á mjög stuttum tíma í
hljóðverinu, þrátt fyrir að tónlistin
sé flókin og mikið sé lagt í útsetn-
ingar.“
Aðspurður segir hann að heil-
mikill sparnaður náist með slíkum
vinnubrögðum. „Best er að líta á
upptökurnar sem eins konar
skýrslugerð. Vera búinn að prófa
allt og æfa fyrirfram og vera
ákveðinn í því hvað maður ætlar
sér.“ Hallur segir „Serpentyne"
vera víðari plötu en fyrri plötu
sveitarinnar, Salt. „Hún veltir upp
nýjum hliðum. Ef maður lítur á
sjálfan sig sem blóm sem er að
springa út sýnir nýja platan að það
ferli er lengra komið. Salt var að
mörgu leyti einbeittari, en á Ser-
pentyne veð ég meira úr einu í
annað. Hún er draumkenndari.“
Serpentyne hefur verið gefin út af
fyrirtækinu KOCH í Evrópu. Það
hefur hingað til einbeitt sér að sí-
gildri tónlist og selt margar plötur
í margfaldri platínusölu. Núna hef-
ur það komið á fót rokkdeild og
XIII er flaggskip þeirrar deildar.
„Við erum ákaflega stoltir af
viðtökunum úti. Ég var að lesa einn
dóm um plötuna í tímariti úti þar
sem við fáum 96 stig af 100 mögu-
legum. Annað blað gaf okkur 92
stig. Sá dómur er besti dómur árs-
ins í því blaði.“ Liðsmenn XIII
stefna á að halda utan og spila í
Hallur Ingólfsson er
burðarás hljómsveit-
arinnar XIII, en nýlega
kom út önnur skífa
hennar, Serpentyne.
Hann segist vera
ánægður með viðtökur
í útlöndum.
Evrópu í bytjun næsta árs. Salt
hlaut ekki góðar viðtökur hérlendis
á sínum tíma, en þeim mun betri
ytra. í hverju liggur munurinn á
evrópska markaðnum og þeim ís-
lenska? „íslendingum fínnst allt
frekar fínt sem gert er í útlöndum
og hafa ekki mikla trú á löndum
sínum. Þess vegna held ég að við
Morgunblaðið/RAX
höfum ekki notið sannmælis
hérna.“
Hallur segir að erlendum spek-
ingum finnist tónlist XIII mjög sér-
stök. „Þeir geta engan veginn lýst
tónlistinni í orðum og spyija mig,
en ég er engu nær en þeir.“ Hann
segist hafa trú á einstaklingseðlinu.
„Eg sé engan tilgang í því að apa
eftir öðrum. Maður hefur sína eigin
rödd. Ég held að ekki sé hægt að
líkja bestu tónlistinni við tónlist
annarra listamanna."
Ætlar Hallur að halda áfram á
sömu braut í tónlist? „Já, mín braut
er sú að vera sjálfum mér sam-
kvæmur og gera það sem mér líkar
eins vel og ég get. Ég kem þó ekki
til með að gera aðra Salt eða aðra
Serpentyne. Það vissi ég um leið
og ég lagði lokahönd á þær. Maður
veit um leið og maður er búinn að
semja efnið að maður á aldrei eftir
að semja neitt slíkt aftur. Þessa
stundina er ég, eins og alltaf, að
prófa mig áfram með eitthvað nýtt.“