Morgunblaðið - 25.10.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995 21
LISTIR
Harmljóð
úr norðri
í RÚMENÍU er verið að vinna
að útgáfu á harmljóðum úr
norðri, það er að segja bæði frá
Norður-Evrópu og Norður-
Ameríku, og hefur íslenskum
skáldum verið boðið að birta
ljóð sín í bókinni. Það er Hesp-
erus Cultural Foundation í
Búkarest sem stendur fyrir út-
gáfunni en stofnunin hyggst
bjóða skáldunum sem eiga efni
í bókinni að fara í upplestrar-
ferð um Rúmeníu, Þýskaland,
England, Skotland, Irland og
Svíþjóð þegar bókin kemur út.
Ritstjóri bókarinnar, Ioan
Iacob, hefur þegar fengið til
liðs við sig sem umsjónarmenn
Englendinginn Alan
Brownjohn, Svíann Gunnar
Harding, Þjóðveijanm Christ-
ian W. Schenk og Bradiey R.
Strahan frá Bandaríkjunum.
Leitað hefur verið til Jóhanns
Hjálmarssonar í sama skyni.
Verkið verður einnig gefið út
á þýsku, ensku og sænsku og
spænsk útgáfa er í athugun.
Upptök þessarar bókar má
rekja til útgáfu á rúmenskum
ljóðum í Bretlandi árið 1991. í
kjölfar útkomu hennar var far-
ið í upplestrarferð um Bretland
sem tókst vel. Markmiðið með
þessum útgáfum er ekki síst
að efta tengsl þeirra landa sem
hlut eiga að máli; til að gera
það á sem víðustum grundvelli
hefur einnig verið leitað til fyr-
irtækja og áhrifamanna í við-
skiptalífi viðkomandi ríkja til
að taka þátt í verkefninu.
Háskólatónleikar
1. og5.
sellósvíta
Bachs
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í
Norræna húsinu í dag, mið-
vikudag, flytur Helga Þórarins-
dóttir víóluleikari 1. og 5. sel-
lósvítu
Bachs. Tón-
leikarnir
eru um
hálftími að
lengd og
hefjast kl.
12.30.
Helga
stundaði
nám í víólu-
leik við
Royal Northern College of'
Music í Manchester og hjá Ge-
orge Neikrug í Boston. Hún
hóf störf við Sinfóníuhljómsveit
íslands árið 1980 og gegnir nú
starfi 1. víóluleikara þar. Hún
kennir við Tónlistarskólann og
víðar og hefur gegnum árin
tekið virkan þátt í tónlistarlífi
borgarinnar.
Handhöfum stúdentaskír-
teina er boðinn ókeypis að-
gangur, en aðgangseyrir fyrir
aðra er 300 kr.
Breskur
drengjakór
syngur við
bænastund
KÓR St. James Parish Church
frá Grimsby syngur við hádeg-
isbænir í Dómkirkjunni í dag
miðvikudag kl. 12. Kórinn hélt
tónleika í Hallgrímskirkju síð-
astliðinn sunnudag og vakti
söngur kórsins verðskuldaða
athygli, segir í kynningu.
Ánnað kvöld kl. 20.30 syng-
ur kórinn í Skálholtskirkju.
Gestatónleikar í Vesturbyggð
Tálknafirði. Morgunblaðið.
SKÓLAHUÓMSVEIT Kópavogs,
yngri sveitin, hélt tónleika í Fé-
lagsheimili Vesturbyggðar nýlega
að viðstöddum fjölda áheyrenda.
Stjórnandi var Össur Geirsson.
Á seinni hluta dagskrárinnar
léku með hljómsveitinni nemendur
úr Tónlistarskóla Vesturbyggðar.
í skólanum eru börn frá Patreks-
firði og Bíldudal og starfa tveir
breskir kennarar við skólann.
I lok tónleikanna talaði Anna
Jensdóttir frá Foreldrafélagi Tón-
istarskólans og sagði meðal ann-
ars að það væri ómetanleg reynsla
fyrir ungt tónlistarfólk úti á landi,
FRÁ tónleikunum.
að fá að leika með reyndri skóla-
hljómsveit, eins og þeirri er nú
væri í heimsókn.
Fyrirhugað er að starfrækja
skólahljómsveit við skólann í vet-
ur og jafnvel á stefnuskránni að
fara í tónleikaferð til Noregs
næsta vor. Sagði hún að foreldra-
félagið stefndi að því að safna
fjármagni til kaupa á einkennis-
búningum á hljómsveitarmeðlimi
fyrir ferðina.
Góður rómur var gerður að
tónleikunum sem stóðu í klukku-
stund, en um 50 börn voru á svið-
inu er allir voru saman komnir.
Eitt sinn var hann lítill en
nú er hann orðinn stór...
SUZUKIBALENO 1996
Nýi bíllinn frá Suzuki er bíll í sama stærðar- og gæðaflokki og
Toyota Corolla, VW Golf, Opel Astra og Nissan Almera.
Það er þó eitt sem skilur þá að - VERÐIÐ
Suzuki Baleno er á mun lægra verði en aðrir sambærilegir bflar
í millistærðarflokki.
Suzuki Baleno 3ja dyra handskiptur kostar kr. 1.095.000
sjálfskiptur “ 1.195.000
Suzuki Baleno 4ra dyra handskiptur kostar kr. 1.220.000
sjálfskiptur “ 1.320.000
Komið, reynsluakið og gerið verðsamanburð.
Suzuki - Afl og öryggi
$ SUZUKI
--Y///---------
SUZUKI BÍLAR HF.
SKEIFAN 17 - SÍMI: 568 5100