Morgunblaðið - 25.10.1995, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Abendingar ú mjólkurumbúðum, nr. 6 af 60.
ORÐSENDING
frá Lífeyrissjóði
Verkfræðingafélags íslands
Til sjóðfélaga
Lífeyrissjóður Verkfræðingafélags íslands
hefur sent sjóðfélögum sínum yfirlit yfir mót-
tekin iðgjöld á tímabilinu 1. janúar-31. júlí
1995.
Hafi einhver ekki fengið yfirlit, en dregið hafi
verið af launum hans í Lífeyrissjóð Verkfræð-
ingafélags íslands, eða ef yfirlitið er ekki í
samræmi við frádrátt á launaseðlum, þá vin-
samlegast hafið samband við skrifstofu sjóðs-
ins nú þegar og eigi síðar en 31. október nk.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda til lífeyris-
sjóðsins geta dýrmæt réttindi glatast.
GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir
meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar
ábyrgðarsjóðs launa vegna gjaldþrota skulu
launþegar innan 60 daga frá dagsetningu
yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda
til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á ið-
gjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka
leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það
tímabil sem er í vanskilum. Komi athugasemd
ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyris-
sjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á
grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem
þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum
ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
Lífeyrissjóður Verkfræðingafélags íslands,
Engjateigi 9,105 Reykjavík,
sfmi: 568 8504
fax: 568 8834.
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Röng hlutföll í
íslenska
fánanum
KRISTJANA hringdi og
sagðist hafa séð íslenskan
fána, sem ekki var í réttum
hlutföllum, í kirkju um
helgina. Hún spyr hvort
það sé ekki skylda að hafa
fánann í réttum hlutföllum.
Einnig minntist hún á að
dagskrá sjónvarpsins væri
fyrir neðan allar hellur.
Tapað/fundið
Gleraugu
töpuðust
29. september sl. var farið
í jeppaferð yfir Arnar-
vatnsheiði og víðar og
týndust í þessari ferð vönd-
uð og dýr gleraugu. Þau
voru í brúnni umgjörð með
tvískiptu gleri (varilux-
slípun). Gist var í félags-
heimilinu Brúarási í Hálsa-
sveit, þaðan haldið í Surts-
helli um Húsafell, síðan
ekið suður í Álftakrók og
komið við í skálanum. Þá
var ekið austur fyrir Arn-
arvatn hið mikla og stans-
að þar, þá ekið til baka og
komið í skálann norðan
Sesseljuvatns, síðan ekið
norður í Miðijörð og Víði-
hlíð og norðuryfir og síðan
suður á Hveravelli þar sem
gleraugnanna var saknað.
Þeir sem verða gleraugn-
anna varir eða geta gefíð
upplýsingar eru vinsam-
lega beðnir að hringja í
síma 551-8510.
Hjólkoppur
tapaðist
HJÓLKOPPUR af Totota
Corolla tapaðist aðfarar-
nótt laugardags á Nýbýla-
vegi. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 553-5243.
Vasahnífur
fannst
MERKTUR vasahnífur
fannst í Vesturbænum fyr-
ir nokkru. Upplýsingar í
síma 551-8510.
Týnt veski
LJÓSBRÚNT fílofax-veski
með rennilás tapaðist í
miðbænum á milli Astró
og Óðals aðfaramótt sl.
laugardags. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
561-9950. Þorsteinn.
Lyklakippa
fannst
SJÖ lyklar á kippu fundust
við Dalbraut 21. október
sl. Upplýsingar í síma
551-6363.
Úr á festi
GULLÚR á hálsfesti tap-
aðist 15. október sl., lík-
lega í búningsklefa í Ár-
bæjarsundlaug. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
553-2090.
Hanskar
töpuðust
SVARTIR loðfóðraðir
kvenleðurhanskar töpuð-
ust í Þjóðleikhúskjallaran-
um aðfararnótt sl. laugar-
dags. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 562-7376.
Derhúfa
tapaðist
DERHÚFA með blóma-
munstri tapaðist í Kola-
portinu sl. laugardag.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 552-3679 eft-
ir kl. 19. Fundarlaun.
Hjólkoppur
tapaðist
HJÓLKOPPUR af Opel
Corsa tapaðist sl. laugar-
dag í Reykjavík. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
568-7215 eða 562-3557 á
kvöldin.
Hálsmen
tapaðist
SILFURPLATA með
krossi-framan á og faðir-
vorinu aftan á tapaðist á
Reykjavíkursvæðinu 7.
október sl. finnandi vin-
samlega hringi í síma
587-2812.
Gæludýr
Köttur með
búslóð
EINS árs gömul læða ósk-
ar eftir góðum fósturfor-
eldrum, fóstra eða fóstru.
Hún tekur búslóðina með
sér sem er kattakassi,
ferðabúr, svefnkarfa með
teppi og matarílát.
Hringdu í síma 552-6538.
Týndur köttur
HVÍTUR fressköttur með
svarta og bröndótta flekki
tapaðist frá heimili sínu,
Furugrund 32, 21. október
sl. Hann er með svartan
flekk á öðrum afturfæti,
ólarlaus og ógeltur. Ef ein-
hver hefur séð hann er
hann beðinn að hafa sam-
band í síma 564-2993.
Með morgunkaffinu
VERTU svo vænn að
taka verðmiðann af.
Þetta er nefnilega gjöf.
H ANN má þó eiga það að
hann er snyrtilegur.
SKÁK
llmsjón Margeir
Pctursson
SVARTUR leikur
og vinnur
STÓRMÓT svissneska Credit
Suisse bankans hófst í Horg-
en í Sviss á laugardaginn.
Þessi staða kom upp í fyrstu
umferð. Jan Timman
(2.590), Hollandi, var með
hvítt, en Rafael Vaganjan
(2.645), Armeníu, hafði svart
og átti leik.
33. - Rxh4! 34. Bxh4 -
Hf4 (Vinnur manninn til baka
og hvíta staðan hrynur eins
og spilaborg) 35. Bxe6 —
Bxe6 36. Bg3 - Hg4 37.
Re2 - Bxg5+ 38. Kdl -
h5 39. Hfl - h4 40.
Bf4 - Be7 41. Be3 -
g5 42. Kel - Bd5 43.
Hgl — Hxgl 44. Rxgl
— Kf7 og Timman gaf
þetta vonlausa endatafli.
Gary Kasparov, PCA
heimsmeistari, er á með-
al keppenda í Horgen bg
hefur gert jafntefli við
þá Ehlvest og Timman í
fyrstu tveimur umferð-
unum. Boris Gulko frá
Bandaríkjunum hefur
byijað best, hann vann
þá Kortsnoj og Vaganjan.
Nigel Short er annar með 1 '/2
vinning, en hann byijaði vel
með sigri á ívantsjúk. 3-7.
Kasparov, Vaganjan, Ehlvest,
Lautier og Júsupov 1 v. 8.
Kramnik '/2 v. úr einni skák,
9-10. Kortsnoj ogTimman 'h
v. og Ivantsjúk hefur engan
vinning, en hann sat yfír í
annarri umferð.
Víkveiji skrifar...
AÐ er merkilegt að fylgjast
með þróuninni á landamærum
margra Evrópuríkja. Ekki eru nema
fyrr ár frá því að enn var sæmilega
virkt eftirlit á landamærum Þýska-
lands að t.d. Lúxemborg, Belgíu og
Hollandi. Þó svo að umferðin hafi
runnið greiðlega' í gegn fylgdust
landamæraverðir með henni og
gerðu stikkprufur á bifreiðum. Vík-
verji bjó í nokkur ár á þessum slóð-
um og fór oft nokkrum sinnum í
viku yfir í næsta land. Ekki kom
það oft fyrir að sýna varð skilríki
eða ræða við tollverði en það gat
þó ávallt gerst.
Það voru því mikil viðbrigði þeg-
ar þessum landamærastöðvum öll-
um var lokað fyrir tveimur til þrem-
ur árum og sérstök tilfinning fyrir
íbúa þessa svæðis (eða fyrrverandi
íbúa líkt og í tilviki Víkveija) að
keyra fram hjá tómum kofunum.
Enn meiri voru hins vegar um-
skiptin þegar Víkveiji var þarna á
ferð fyrir skömmu. I stað
landamærastöðvarinnar gömlu á
hraðbrautinni milli Þýskalands og
Lúxemborgar hafa nú verið reistar
glæsilegar bensínstöðvar. Verð á
bensíni og öðrum neysluvörum á
borð við kaffi og áfengi er nokkuð
lægra í Lúxemborg en í Þýskalandi
og flykkjast því Þjóðveijar er búa
á landamærastöðvum þangað yfir
í verslunarleiðangra. Það var óneit-
anlega sérstök sjón að sjá upplýsta
bensínstöðina birtast í kvöldmyr-
krinu á landamærunum og tákn-
rænt um þær breytingar, sem eru
að eiga sér stað í Evrópu.
XXX
ESSI þróun er hins vegar alls
ekki einhlít og ljóst að hermd-
arverk þau er framin hafa vérið í
Frakklandi á undanförnum mánuð-
um hafa gert það að verkum að
landamæraeftirlit allt hefur verið
stórhert þar í landi. Þessa varð
Víkveiji áþreifanlega var nokkrum
vikum síðar er hann hélt til Frakk-
lands með lest. Tveir alvörugefnir
menn úr landamæralögreglunni
grandskoðuðu skilríki farþega og
báru saman myndir í vegabréfum
við andlit þeirra. Blökkumaður er
sat nokkru framar í vagninum var
nánast berháttaður fyrir framan
aðra farþega og yfirheyrður um til-
gang ferðar sinnar. Allir vasar hans
voru tæmdir og töskur opnaðar.
Tók þessi leit hátt í fimm mínútur
áður en landamæraverðirnir höfðu
leitað af sér allan grun.
Sprengjuherferð heittrúaðra
alsískra múslima hefur greinilega
tekið mjög á Frakka og margir
þeirra segjast veigra sér við að
fara til Parísar af ótta við sprengju-
tilræði. Utan höfuðborgarinnar
verða menn þó einnig áþreifanlega
varir við öryggisaðgerðir stjórn-
valda. Allar ruslafötur á almanna-
færi í helstu borgum landsins hafa
verið innsiglaðar til að koma í veg
fyrir að hægt sé að fela í þeim
sprengjur. Setur þetta óneitanlega
svip sinn á borgirnar, ekki fyrst
og fremst vegna ruslafatnanna
heldur alls þess sem eiginlega ætti
að vera í þeim en liggur nú á víð
og dreif.