Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 1

Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 1
96 SIÐUR B/C Beitir bola- brögðum Minsk. Reuter. ALEXANDER Lúkashenko, forseti Hvíta-Rússlands, hóf í gær undir- búning að því að bola andstæðing- um sínum út úr þinghúsinu í Minsk. Ráðgerir hann ekki að beita óeirðalögreglu heldur iðnaðarmönn- um sem sendir verða undir því yf- irskini að taka eigi húsið í gegn. Þeirri aðferð að loka vegna viðgerða var oft beitt til að kveða niður and- óf þegar Sovétríkin voru við lýði. Sendinefnd á vegum Evrópuráðs- ins viðurkenndi í gær þing stjórnar- andstæðinga og lýsti þjóðaratkvæð- ið ólögmætt. Semjon Sharetskí, forseti gamla þingsins, sagði að sérstökum síma- linum frá þinghúsinu til forsetans og stjórnarinnar hefði verið lokað. Pólveijinn Tadeusz Iwinski, sem fór fyrir sendinefnd Evrópuráðsins, sagði á blaðamannafundi í gamla þinginu í gær að Hvítrússar ættu að vera við öllu búnir. Rússar, sem eru öflugustu bandamenn Hvítrússa, hafa gefið til kynna að þeir muni viðurkenna nýja stjórnarskrá Lúkashenkos með því skilyrði að hann beiti andstæð- inga sína ekki ofbeldi. ------» ♦ ♦------ Norskur ráðherra segir af sér Ósló. Reuter. ÁSAKANIR um skattsvik og skjalafals knúðu Teije Rod-Larsen, skipulagsmálaráðherra í ríkisstjórn Thorbjorns Jaglands, forsætisráð- herra Noregs, til afsagnar í gær. Ekki er nema mánuður síðan Rod-Larsen kom heim frá Miðaust- urlöndum þar sem hann gat sér gott orð sem sáttasemjari á vegum Sameinuðu þjóðanna ti) að taka við sem eins konar „yfírráðherra" í ríkisstjórn Jaglands. Naut hann þá mikillar virðingar og átti að verða höfuðsmiður hinnar nýju, norsku framtíðarsýnar. Talsmenn norsku stjómarand- stöðuflokkanna sögðu í gær að af- sögn Rod-Larsens væri mikið áfall fyrir ríkisstjórn Jaglands enda hefðu miklar vonir verið bundnar við hann og embættið. Enginn efað- ist heldur um hæfileika Rod-Lar- sens en svo virtist sem hann hefði ekki lagt öll spilin á borðið í upphafi. ■ Verulegt áfall/19 --------------- Þotu saknað í Rússlandi Moskvu. Rcuter. RÚSSNESKRAR flutningaþotu af gerðinni Íljúsjín íl-76, með 19 manns og 30 tonn af vörum innan- borðs, var saknað í gærkvöldi. Þotan fór frá Abakan í Síberíu um klukkan 17 að íslenskum tíma og hélt áleiðis til Petropavlovks- Kamtsjatský en síðast heyrðist frá flugmönnunum sjö mínútum eftir flugtak. Óttast var að þotan hefði farist og voru björgunarsveitir sendar áleiðis til Abakan og ná- grennis til leitar. Mótmæii gegn Milosevic harðna Belgrad. Reuter. TUGÞÚSUNDIR stuðningsmanna serbnesku stjórnarandstöðunnar efndu til mótmæla í miðborg Belgrad í gær gegn þeirri ákvörðun stjórnar Slobodans Milosevics forseta að láta endurtaka bæjar- og borgarstjórnar- kosningar sem stjórnarandstaðan hafði áður unnið. Mótmæli hafa farið fram í Belgrad 10 daga í röð og hétu leiðtogar Zajedno, kosningabandalags stjórn- arandstöðuflokka, því í gær að halda aðgerðum áfram dag hvern þar til Milosevic játaði ósigur í þeim bæjum og borgum sem Sósíalistaflokkur hans hafði tapað í fyrstu tveimur umferðunum. Mótmælin hafa vaxið og harðnað með degi hveijum og sagði Zoran Djindjic, leitogi Zajedno, að smám saman molnaði úr pólitískum kína- múr Milosevics. Vuc Draskovic rit- höfundur, annar stjórnarandstöðu- leiðtogi, sagði að hingað til hefði það verið markmiðið að veija sigur stjórnarandstöðunnar í kosningun- um en nú hefði nýtt markmið verið sett; að knýja Milosevic til afsagnar. Trufla óháð útvarp Talsmenn óháðrar útvarpsstöðvar, B-92, sögðu að útsendingar þeirra hefðu verið truflaðar að undanfórnu og kenndu stjórnvöldum um. Kjörstjórnir, sem stjórnað var af Sósíalistaflokknum, úrskurðuðu Zajedno sigur í 15 af 18 stærstu borgum Serbíu fyrra sunnudag, þ.á m. í Belgrad, en ógiltu kosning- una nokkrum dögum síðar án rök- stuðnings. í fyrradag staðfesti hæstiréttur þá ákvörðun. Boðaði stjórnin til nýrra kosninga í gær en þátttaka í þeim var dræm. ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik sigraði Dani, 27:21, í fyrri leik liðanna í 5. riðli und- ankeppni heimsmeistaramótsins í gærkvöldi. íslenska liðið hafði lengstum forystu, 12:10, í leikhléi og á lokakaflanum skoraði liðið fimm mörk gegn einu marki danska liðsins. KA-maðurinn Ró- bert Julian Duranona gerði fimm mörk í sínum fyrsta landsleik fyr- ir Island í Laugardalshöll og var markahæstur. Valdimar Gríms- son, sem hér sést skora, hóf leik- inn vel og gerði fjögur fyrstu mörk íslands. Hann var síðan kallaður á varamannabekkinn og kom ekki meira inn á. Þjóðirnar leika síðari leikinn í Álaborg á sunnudaginn og ræðst þá hvor þjóðin kemst á úrslitakeppni HM í Japan í maí. Islendingar standa óneitanlega vel að vígi en sigur- vegari hvers riðils kemst áfram og það lið í öðni sæti sem bestum árangri nær. ísland er efst í 5. riðli, hefur hlotið níu stig, en Dan- ir eru í öðru sæti með átta stig. ■ Gott veganesti/B4 Morgunblaðið/Golli Sex marka sigur á Dönum V öruflutningabílstj óraverkfallið í Frakklandi breiðist út og harðnar Reuter SJÚKRAFLUTNINGAMENN í frönsku borginni Rouen taka bensín undir lögregluvemd í gær, en vegna aðgerða franskra flutningabíl- stjóra hefur bensín þrotið á 2.000 bensínstöðvum í Frakklandi og Qöldi stöðva á aðeins eftir nokkra dropa, sem naumt era skammtaðir. Shtnar upp úr viðræðum París. Reuter. SEINT í gærkvöldi slitnaði upp úr viðræðum franskra vörubílstjóra og viðsemjenda þeirra. Sáttasemjari stjórnvalda sagði eftir næturlangan fund með deiluaðilum í gær, að náðst hefði samkomulag um að lækka eft- irlaunaaldur og stytta vinnutíma. Talsmenn franskra vörubílstjóra sögðu í gær að vegatálmar yrðu ekki fjarlægðir fyrr en búið væri að semja um heildarlausn. Marc Blond- el, leiðtogi eins stærsta verkalýðs- sambands Frakklands, sagði að ganga yrði að öðrum kröfum bílstjór- anna sem vilja lengri lestunartíma og lágmarkshvíld. Blondel var helsti hvatamaður verkfallanna miklu sl. haust er sam- félagið lamaðist en þá voru opinberir starfsmenn, er óttuðust samdrátt í ríkisútgjöldum, í fylkingarbrjósti. Að þessu sinni eru deilurnar milli af- markaðs launþegahóps og einkafyrir- tækja og aðstæður því mjög ólíkar. Stjómvöld telja sig þó knúin til að beita sér af miklu afli fyrir lausn vegna þeirra miklu vandræða sem aðgerðimar valda í efnahagslífinu. Þegar samningafundur hófst síð- degis var ósamið um kauphækkun og vinnustundir. Starfsmenn járnbrautanna stöðv- uðu um hríð umferð á aðalbrautinni milli Parísar og Le Havre í gær til að mótmæla því að ríkisstjórnin hyggst koma á fót einkareknu járn- brautarfélagi. Telja starfsmenn rík- isfélagsins endurskipulagningu ógna störfum sínum. Einnig hófu starfsmenn flugfélag- anna tveggja sólarhringa verkfall í gær til að krefjast betri kjara. ■ Framleiðsla að stöðvast/20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.