Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 14

Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason. ÞÓR Gíslason, verkefnisstjóri Jarðborana hf., Erling Garðar Jónasson umsjónarmaður virkjanaaðila og Ólafur Hilmar Sverrisson bæjarsljóri í Stykkishólmi við hitavatnsholuna í Iandi Hofstaða, en þar er mikið af 87 gráðu heitu vatni. I baksýn er Helgafell, en þar hafa óskir margra Hólmara ræst. Mikið af heitu vatni finnst við Stykkishólm Nýtanleg orka yfir 20 MW sem er sama og þrjár Andakílsárvirkjanir gefa Stykkishólmi - Mikil ánægja ríkir í Stykkishólmi með ótrúleg- an árangur sem fengist hefur við borun eftir heitu vatni í landi Hofstaða, 5 kílómetra fyrir ofan Stykkishólm. Leitin að heitu vatni fyrir Stykkishólm er samvinnu- verkefni Stykkishólmsbæjar og RARIK. í gær var vinnsluholan prófuð og kemur í ljós að risaæð kemur inn í hana á 819 metrum sem gefur um 45 sekúndulítra af 87 gráðu heitu vatni. Önnur minni æð kemur inn á 830 metrum. Við dælingu kemur nær ekkert vatn inn í holuna úr efri kerfum. Ólafur Hilmar Sverrisson bæjarstjóri í Stykkishólmi er að vonum ánægður með árangurinn. Hann segir að þó að menn hafi verið bjartsýnir í byijun, þá áttu þeir ekki von á svona góðum ár- angri. Það er dýrmætt að holan skuli vera svona góð og að vatn hafi fundist í þessu magni og hita. Eini neikvæði þátturinn er að selta finnst í vatninu. Áætluð neysluþörf fyrir Stykkishólm er rúmir 20 sek- úndulítrar og á auðveldan hátt er hægt að ná upp úr holunni 45 sekúndulítrum eða tvöfaldri orku- þörf Stykkishólms. Orkan sem hægt væri að ná upp úr holunni er yfir 20 megavött sem er sama orka og þrjár Andakílsárvirkjanir. Talið er að hægt væri að dæla upp úr holunni 100 ltr/sek. Það sem takmarkar að nýta alla þá orku er sverleiki holunnar og stærð dælu. Aðstreymið í holuna er mikið og svæðið stórt svo að holan ætti að vera margra ára- tuga uppspretta. Að sögn Ólafs Hilmars er ekki þörf á að bora dýpra og er þætti Jarðborana hf. lokið og er verið að taka borinn og flytja burt. í dag er von á verkfræðingi til að staðsetja eina til tvær hitastiguls- holur nær Stykkishólmi í þeirri von að hægt verði að ná í vatnið nær. Ólafur Hilmar segir að vet- urinn verði notaður til rannsókna og útreikninga. Þennan árangur þakkar hann m.a. góðri undirbún- ingsvinnu sem fram hefur farið og að árangur vísindamanna sé stórkostlegur í þessu verki. Ferskir bændur semja við Hagkaup Byrjað að hleypa til í Húna- vatnssýslu FÉLAG ferskra fjárbænda hefur gert samning við Hagkaup um kaup á fersku dilkakjöti á næsta ári. Hagkaup mun kaupa mun meira af fersku kjöti en samið var um fyrr á þessu ári. Bændur í Vestur-Húnavatns- sýslu gerðu fyrr á þessu ári samn- ing við Hagkaup um kaup á fersku kjöti utan hefðþundinnar sláturtíð- ar, allt að 200 dilkum á viku, frá byrjun ágúst og fram í desember. Eyjólfur Gunnarsson bóndi á Bálka- stöðum í Hrútafirði segir að fram- kvæmd samningsins hafi gengið vel. Erfitt hafi verið að fá nægilega marga dilka fyrstu tvær vikurnar en það hafí lagast og í haust hefur verið slátrað um 400 lömbum á viku. Kjöt verður afgreitt sam- kvæmt þessum samningi fram í desember. Eyjólfur tekur fram að samskiptin við Hagkaup hafi geng- ið sérstaklega vel. Bætast í hópinn Nú hafa bændur í Dalasýslu og Strandasýslu gengið til liðs við Húnvetninga. Stofnuðu þeir Félag ferskra fjárbænda og gerðu nýjan samning við Hagkaup. Samkvæmt honum verður slátrað 400-500 dilkum á viku og hefst slátrun mánuði fyrr en í sumar, eða í byrj- un júlí, og mun standa fram að jól- um. Sláturhúsið Ferskar afurðir ehf. á Hvammstanga slátrar fénu. Eyjólfur segir að bændur vinni að því með ýmsum ráðum að útvega kjöt fyrir samninginn við Hagkaup. Bændur fyrir norðan séu til dæmis byijaðir að hleypa til og fyrstu lömbin muni fæðast i lok mars. Félag ferskra fjárbænda mun einnig vinna að því að lækka kostn- að við fjárbúskapinn. Segir Eyjólfur það bráðnauðsynlegt enda sýnt að ekki verði hægt að hækka afurða- verðið. Samkaup á áburði eru m.a. til athugunar til að nýta þá af- slætti sem viðskiptavinir Áburðar- verksmiðjunnar eiga kost á þegar þeir kaupa tiltekið magn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.