Morgunblaðið - 28.11.1996, Síða 20

Morgunblaðið - 28.11.1996, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ t VERKFALL VÖRUBÍLSTJÓRA Viðræður vörubílstjóra í Frakklandi og vinnuveitenda þeirra héldu áfram í gær. Sáttasemjurum á vegum stjórnvalda tókst að þoka málum nokkuð áleiðis. Aðgerðirnar eru þegar farnar að valda miklu efnahagslegu tjóni. Vörubílstjórar krefjast m.a. að eftirlaunaaldur verði lækkaður úr 60 árum í 55 ár, vinnutfmi verði styttur, hvíldartími aukinn og laun hækkuð. Fleiri starfsmenn í samgöngufyrirtækjum lögðu niður vinnu í gær. Um 800 erlendir vcrubíl- stjórar biða þess aðfáað fjya yfir Ermarsund B R E T L A N JD Dover r v 'V/ f Helstu vegatálmar Meira en 200 vörubilar, sem snúið varfrá Calais, bíða eftirað komast til Dover Jámbrautarstarfsmenn stöðva umferð milli Parisar og Le Havre Lögregla umkringir samgönguráðuneytið eftir að samtök leigubilstjóra hvetja til samúðarverkfalla Þrjú félög jámbrautar- starfsmanna valda samgöngutruftunum í Bordeaux og víðar í Suðvestur Frakklandi með verkfalli Skýrt er frá rúmlega 200 vegatálmum á mikilvægum samgönguleiðum REUTERS Tveggja daga verkfall starísfólks flugfélaga hófst ígær > Priðjungi flugferða til annarra álfa aflýst • Rúmum helmingi flugferða innan Evrópu a flýst Verkfall flutningabí lstj óra í Danmörku Vörur fyrir milljómr liggja undir skemmdum Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. CARSTEN Koch, skattamálaráð- herra Dana, tókst ekki í gær að fá þingið til að samþykkja nýjar skattareglur fyrir flutningabíl- stjóra sem hafa hindrað umferð flutningabíla um landamærin frá því á mánudag. Bæði í Danmörku og Svíþjóð eru áhrif aðgerðanna tilfinnanleg. Öngþveitið vex, vörur fyrir milljónir liggja undir skemmdum, það stefnir í lokun fyrirtækja vegna hráefnisskorts og skortur er á mjólk og öðrum vörum. Það leynir sér ekki hve háðir Danir eru vöruflutningum með bílum því ef verkfall flutningabíl- stjóranna heldur áfram bitna að- gerðirnar ekki aðeins á útflutn- ings- og innflutningsfyrirtækjum, heldur á almennum borgurum. Fyrirtækin munu væntanlega þurfa að senda fólk heim, í búðun- um mun í dag eða á morgun skorta mjólkurvörur sem daglega eru keyrðar á milli Jótlands og eyjanna Stefnir í lokun fyrirtækja vegna hráefnisskorts og landpóstur berst ekki. Vöru- skortur mun bitna á margvíslegum fyrirtækjum og þannig hafa Volvo-verksmiðjurnar sænsku til- kynnt að þær þurfi að senda fólk heim í næstu viku vegna þess að vörur frá birgjum berast ekki. Til fiskvinnslunnar á Jótlandi berst ekki hráefni og fyrirtækin geta ekki komið afurðum frá sér. Sjáv- arafurðir fyrir 330 milljónir ís- lenskra króna eru taldar liggja undir skemmdum í strönduðum bílum við Padborg og vörur fyrir svipað verð liggja í flskvinnsluhús- unum. Svíar illa úti Svíar verða einkar illa úti í átök- unum þar sem bílar þaðan keyra um Danmörku á leið til Evrópu og öngþveiti er við hafnir þaðan sem er siglt beint til Þýskaland. Þegar á meginlandið er komið tek- ur ekki betra við vegna aðgerða franskra bílstjóra og breskra mót- aðgerða við þeim. Frönsku bílstjórarnir heimta hærri laun en þeir dönsku deila við ríkisstjórnina um skattafrá- drátt. Koch skattaráðherra fékk í gær ekki meirihluta fyrir sínum tillögum um lægri frádrátt sem atvinnurekendur gætu síðan bætt bílstjórunum upp með hærri laun- um. Margir þingmenn hafa einnig haft á orði að þeir kæri sig ekki um að sitja í þinginu með hótanir bílstjóranna yfir sér eins og hlaðna byssu. Raddir eru um að beita lög- reglu gegn vegatálmum bílstjór- anna en hvernig lögreglan á að hnika til mörg hundruð bílum sem vega mörg tonn er óleyst mál svo að eina vopnið enn sem komið er stöðumælasektir. Framleiðsla að stöðvast í sum- um verksmiðjum París. Reuter, The Daily Telegraph. VERKFALL vörubílstjóra í Frakk- landi hefur nú staðið í 10 daga. Alls voru vegatálmar á 218 stöðum í gær, umferð um hafnir í Calais og fleiri borgum var í lágmarki. Fram- leiðsla er farin að dragast saman í verksmiðjum vegna skorts á hráefni og birgðum af ýmsu tagi, verkfalls- menn hafa stöðvað framleiðslu í olíu- vinnslustöðvum og lokað birgða- geymslum olíufélaganna. Truflanir hafa orðið á póstflutningum, bændur fá ekki fóður fyrir bú sín og sjómenn á vesturströndinni þora ekki að fara með vöru sína á markaði í borgum inni í landi af ótta við að verða stöðv- aðir. Langar biðraðir voru við bensín- stöðvar í Bordeaux og víðar í land- inu. Til slagsmála hefur komið í Calais milli franskra bílstjóra og bíl- stjóra á erlendum vörubílum er orðið hafa innlyksa. í grennd við sviss- nesku landamærin hleyptu franskir bílstjórar loftinu úr dekkjum er- lendra keppinauta, „við verðum að stöðva útlendinga og verkfallsbijóta, annars taka þeir að sér okkar störf“ sögðu Frakkarnir. Rannsóknardómari í París segist ekki geta útilokað að eldsvoði sem kom upp í járnbrautarlest í Ermar- sundsgöngunum nýverið, hafi verið af völdum fransks vörubílstjóra. Þótt skoðanakannanir sýni mikla samúð í garð bílstjóranna er talið ólíklegt að fleiri stéttir sláist í hóp- inn, hvatningar verkalýðssambands kommúnista, CGT, í þá veru báru lítinn árangur í gær. Reuter Solzhenítsyn fer hörðum orðum um ráðamenn í Rússlandi Eng’u betri en kommúnistar París. Reuter. RÚSSNESKA nóbelsskáldið Alexander Solzhen- ítsyn fór í gær hörðum orðum um hina nýju stétt pólitískra leiðtoga í Rússlandi og sagði, að þeir væru engu betri en kommúnistarnir, sem hann hefði barist gegn mest allt sitt líf. Segir hann í grein í franska blaðinu Le Monde, að Rússland sé ekki lýðræðisríki og þar muni seint komast á raunveruleg markaðshagkerfí. „Rússneskir ráðamenn komast upp með glæpi, sem hafa steypt landinu í glötun, leitt fátækt yfir milljónir manna og valdið dauða þúsunda annarra. Þeim er samt ekki refsað fyrir það,“ segir Solzhenítsyn en greinin birtist á sama tíma og Víktor Tsjernomyrdín, forsætis- ráðherra Rússlands, er í tveggja daga opin- berri heimsókn í Frakklandi. Solzhenítsyn var bannfærður í Sovétríkj- unum 1974 og hrakinn í útlegð en 1990 fékk hann rússneskan ríkisborgararétt á ný. Sneri hann aftur heim 1994. Ný yfirstétt „Hástéttarkommúnistar og nýríka fólkið, sem auðgast hefur gífurlega með svikum og prettum, hefur tekið höndum saman og mynd- að nýja yfirstétt þar sem 150 til 200 manns fara með öll völd í landinu," segir Solzhenítsyn Reuter ALEXANDER Solzhenítsyn ávarpar rússneska þingið árið 1994 skömmu eftir að hann sneri heim úr útlegð. í greininni, sem heitir „Rússland á grafarbakk- anum“. „Ríkisstjórnin er jafn ósnertanleg og kommúnísku valdhafarnir áður og á ekkert skylt við lýðræði." Solzhenítsyn segir, að þingið hafi orðið að lúta í lægra haldi fyrir valdamiklum forseta, þing sjálfstjórnarlýðveldanna séu aðeins vika- piltar héraðshöfðingjanna og sjónvarpið undir- gefið Borís Jeltsín, sem hafi verið kosinn for- seti án nokkurrar umræðu um fortíð hans eða framtíðarsýn. Örmagna þjóð Að mati Solzhenítsyns myndi ástand eins og það er í Rússlandi leiða til „sprengingar" í öðrum löndum en hann segir, að það muni ekki gerast í landi sínu. Eftir kommúníska stjórn í 70 ár sé þjóðinni allur kraftur þorrinn. Nóbelsskáldið segir, að einkavæðingin í Rússlandi hafi verið stórslys. Gersamlega getu- lausu fólki hafi verið færður þjóðarauðurinn á silfurfati. „Fyrirhafnarlaus gróði af þessu tagi þekkist ekki í sögu Vesturlanda," segir Solzhenítsyn og bætir því við, að spillingin í Rússlandi sé svo óskapleg, að fólk á Vesturlöndum sé jafn- vel ófært um að skilja það. Iranir mótmæla í Bonn UM 1.000 íranir gengu um mið- borg Bonn í gær til að krefjast þess að stjórnin í íran færi frá og að stjórnvöld í Þýskalandi hætti viðræðum við hana. Fólkið lýsti ennfremur yfir stuðningi við þýska saksóknarann Bruno Jost, sem hefur sakað Ali Khamenei, andlegan leiðtoga írana, og Ak- bar Hashemi Rafsanjani, forseta írans, um að hafa staðið á bak við morð á þremur irönskum andófsmönnum og túlki þeirra í Þýskalandi árið 1992. Á mynd- inni eru tveir Irananna í gervum Rafsanjanis og Khameneis. íranir efndu einnig til mót- mæla við þýska sendiráðið í Te- heran og kröfðust þess að Jost yrði tekinn af lífi. Klaus Kinkel, utanríkisráð- herra Þýskalands, ávarpaði þing landsins og sagði að þýska stjórn- in myndi halda áfram „gagnrýn- um viðræðum" sínum við stjórn- völd í íran um stuðning þeirra við hermdarverkamenn og mannréttindabrot í landinu. > í i I I i í I I I i 1 I I I i 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.