Morgunblaðið - 28.11.1996, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
LISTIR
Óánægja með ísraelsstjórn
í Bandaríkjunum
Gagnrýna Netan-
yahu harðlega
Washington. Reuter.
BANDARIKJASTJORN gagnrýndi í
fyrradag harðar en nokkru sinni fyrr
stefnu Israelsstjómar og Benjamins
Netanyahus forsætisráðherra hvað
varðar nýbyggðir gyðinga á Vestur-
bakkanum. Sagði hún, að heimsókn
hans í byggðirnar á þriðjudag myndi
ekki greiða fyrir friðarviðræðunum.
Yfirlýsingin, sem Nichoías Bums,
talsmaður utanríkisráðuneytisins,
kom á framfæri þykir sýna vaxandi
óánægju Bandaríkjastjórnar með
stefnu Netanyahus en litið er á heim-
sókn hans í gyðingabyggðirnar sem
beina ögrun við Palestínumenn. Var
hún farin daginn eftir að palestínska
heimastjórnin krafðist þess, að bygg-
ingaframkvæmdir í gyðingabyggð-
unum á Vesturbakkanum yrðu stöðv-
aðar tafarlaust.
Nýr tónn
Bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur áður lýst yfir óánægju með
gyðingabyggðirnar almennt en með
því að tengja hana beint við heim-
sókn Netanyahus hefur það gengið
lengra en fyrr í gagnrýninni.
Palestínskir embættismenn sögðu
í fyrradag, að Palestínumenn myndu
hætta að sinni þátttöku í friðarvið-
ræðunum til að mótmæla því, að ísra-
elar hafa ekki staðið við friðarsamn-
inga, sem undirritaðir voru í fyrra.
Undirbúningur EMU
Ósætti um stöðug-
leikasáttmála
Brussel. Reuter.
SÉRFRÆÐINGANEFND Evrópu-
sambandsins (ESB) í peningamálum,
mistókst í gær, þrátt fyrir sextán
stunda löng fundahöld, að komast
að samkomulagi um „stöðugleika-
sáttmála" fyrir þau ríki, sem vilja
gerast aðilar að Efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópu, EMU.
Að sögn embættismanna reyndist
nefndinni ekki mögulegt að sætta
ólík sjónarmið á ýmsum þáttum téðs
sáttmála. Einkum skiptust nefndar-
menn í tvö hom í
afstöðu sinni til
þess hvernig meta
skuii sérstakar
efnahagsaðstæður
ríkis, sem stefnir
að þátttöku í
EMU, sem myndu
leyfa viðkomandi
ríki að komast hjá refsiaðgerðum,
ef því tekst ekki að virða tilskilin
mörk fyrir EMU-aðild, sem kveðið
er á um í Maastricht-sáttmálanum.
Samkvæmt fyrirliggjandi hug-
myndum kynnu ríki sem rækju rikis-
sjóð með meira en 3% árlegum halla
af vergri landsframleiðslu að þurfa
að sæta háum sektum ef þau skæru
ekki ríkisútgjöld niður.
Þjóðveijar, sem áttu frumkvæði
að stöðugleikasáttmálanum, leggja
mikla áherzlu á hann og vara við
því að EMU-skilyrði Maastricht-sátt-
málans verði „vötnuð út“.
Búizt er við að peningamálanefnd-
in muni á leiðtogafundi ESB-ríkjanna
í Dublin 13.-14. desember nk. leggja
fram tillögur sem sæmileg sátt geti
orðið um, þrátt fyrir að hafa mistek-
izt að ná samkomulagi nú.
Árangur í eitt ár
ekki nægjanlegt
í viðtali við þýzka viðskiptadag-
blaðið Handelsblatt segist Yves Thi-
bault de Silguy, sem fer með fjármál
í framkvæmdastjóm ESB, telja mjög
mikilvægt, að ríki sem vildu taka
þátt uppfylltu öll EMU-skilyrðin og
að þau sanni að árangur þeirra sé
ekki aðeins
skammær. Hann
segir ríki ekki
munu sjálfkrafa
teljast hafa upp-
fyllt skilyrðin fyrir
stofnaðild að EMU
1. janúar 1999,
jafnvel þó það upp-
fylli skilyrðið um 3% halla á árinu
1997, eins og eitt skilyrða Maastricht
sáttmálans hljóðar upp á. Hann segir
framkvæmdasijómina og Evrópsku
peningamálastofnunina (EMI) munu
meta hvort ríkisfjármál og efnahagur
einstakra ríkja uppfylli skilyrðin, en
til að fá vottorð um að árangur við-
komandi ríkis á þessu sviði sé fullnægj-
andi, sé ekki nóg að efnahagstölur
þess samræmist skilyrðunum í eitt ár.
„í okkar skýrslu til ríkisstjórna-
leiðtoganna [á fundinum í Dublin]
munum við halda okkur stranglega
við Maastricht-skilyrðin og sýna
fram á að samræmingin [á ríkisfjár-
málum ríkjanna sem stefna að EMU-
þátttöku] verði mikil og varanleg,"
segir Thibault de Silguy.
Kostir innri markaðarins kynntir
Ný alnetsþjónusta ESB
fyrir borgarana
Brussel. Reuter.
EVROPUSAMBANDIÐ opnaði í
fyrradag nýja þjónustu á alnetinu.
Vefsíðurnar, sem eru skrifaðar á
öllum tungumálum ESB, líka þeim
óopinberu, eiga að veita hinum
almenna borgara uppiýsingar um
það hvernig hann getur nýtt sér
hinn hindrunarlausa innri markað
sambandsins.
„ Allir eiga rétt á að vita hvern-
ig Evrópusambandið hefur áhrif
á daglegt líf þeirra og ég vil
tryggja að allir hafi aðgang að
upplýsingunum, ekki bara fá-
mennur hópur þeirra, sem bezt
eru upplýstir," sagði Jacques
Santer, forseti framkvæmda-
stjórnar ESB, á blaðamannafundi.
Á vefsíðum framkvæmdasljórn-
arinnar, sem skrifaðar eru á öllum
opinberum tungumálum ESB-
ríkja og mörgum minnihlutamál-
um, á borð við basknesku, gelisku
og velsku, er að finna upplýsingar
um rétt borgaranna samkvæmt
reglum ESB um heilbrigðis- og
öryggismál á vinnustöðum, jafn-
rétti, neytendavernd, atvinnu-
tækifæri, búseturétt, skólavist og
margt fleira.
Fyrir þá, sem ekki hafa aðgang
að alnetinu, hefur verið sett upp
simaþjónusta sem þjónar svipuðu
hlutverki.
Flest þau réttindi borgaranna,
sem innri markaðurinn felur i sér,
ná einnig til EFTA-ríkjanna, sem
eiga aðild að Evrópska efnahags-
svæðinu, og er þess sérstaklega
getið á vefsíðunum, þar sem við
á. Netslóðin er eftirfarandi:
„http://citizens.EU.int“.
:v>?;><• í'-ss n;«<$■<■>
« ><■:»> »:<* xrí \<í -
.
Morgunblaðið/Golli
SCHOLA cantorum heitir nýr kammerkór við Hallgrímskirkju sem heldur sína fyrstu tónleika í kvöld
í Þorlákshafnarkirkju.
Nýr kammerkór kveður sér hljóðs
Fjögurra radda messa
SCHOLA cantorum er nýr kór sem
stofnaður hefur verið við Hall-
grímskirkju í Reykjavík. Þetta er
kammerkór skipaður sautján
manns sem flestir syngja eða hafa
sungið með Mótettukór Hallgríms-
kirkju einnig. Fyrstu tónleikar
Schola cantorum verða haldnir í
Þorlákshafnarkirkju að kvöldi
fimmtudags 28. nóvember og hefj-
ast klukkan 21. Þeir verða endur-
teknir í Hallgrímskirkju sunnu-
daginn 1. desember klukkan 17.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Hörður Áskelsson, stjórn-
andi kórsins, að hann yrði viðbót
við Mótettukórinn þótt síðarmeir
væri hugsanlegt að kórarnir tveir
skiptu með sér verkum. „Þetta er
tilraun sem við ætlum að fara af
stað með. Við höfum í sjálfu sér
ekki sett okkur neitt markmið
nema að fremja góða tónlist. í
seinni tíð hafa slíkir kórar orðið æ
algengari í kórastarfi, þessi stærð
á kór er viðráðanlegri og sveigjan-
legri og verður gaman að takast
á við þetta verkefni.“
Tónleikarnir hefjast á því að lat-
neski aðventusálmurinn Veni, veni
Emanuel er sunginn í tvíradda
raddsetningu sem talin er vera frá
þrettándu öld. í kjölfarið syngur
kórinn hina íslensku gerð sálmsins,
Kom þú, kom, vor Immanúel, í
raddgerð Róberts A. Ottóssonar.
Að öðru leyti er aðallega á efnis-
skránni ensk tónlist frá sextándu
og sautjándu öld. Þar kemur Will-
iam Byrd mest við sögu og ber
hæst fjögurra radda messu hans,
Mass for four voices, sem er meðal
glæsilegustu tónverka endurreisn-
ar. Einnig syngur Schola cantorum
hina himnesku mótettu Hear my
prayer, 0 Lord eftir Henry Purcell
og gerir nýstárlega tilraun með
sérstæðum flutningi á sálmútsetn-
ingu eftir Johann Sebastian Bach.
Þar er hefðbundin hrynjandi brotin
upp svo að tónlistin leysist upp í
kynngimagnað hljómhaf.
Hörður Áskelsson, organisti
Hallgrímskirkju, stjórnar Schola
cantorum og munu tónleikagestir
í Þorlákshafnarkirkju fá að heyra
hann leika á glænýtt orgel kirkj-
unnar sem er listasmíð Björgvins
Tómassonar, orgelsmiðs í Mos-
fellsbæ.
Norræn ljóð fá Spænsku
bókmenntaverðlaunin
Francisco J. J.A. Fernández
Uriz Romero
SPÆNSKU þýðendurnir Franc-
isco J. Uriz og José Antonio Fern-
ández Romero hlutu á föstudag-
inn æðstu þýðendaverðlaun Spán-
ar 1996, Premio Nacional de
Traducción, fyrir þýðingar sínar
á ljóðasafninu Poesía Nórdica
(Norræn ljóð) sem kom út í fyrra.
Verðlaunin eru veitt af spænska
menningarmálaráðuneytinu fyrir
bestu þýðingu á spænska tungu
árið 1995. Uriz ritstýrði safninu
og þýddi skandinavískan hluta
þess, en Romero íslensku ljóðin.
Uriz hefur þýtt verk fjölda nor-
rænna skálda og er forstöðumað-
ur Þýðendahússins í Tarazona í
Aragónhéraði, en frá starfseminni
þar hefur verið sagt í Morgun-
blaðinu. Romero hefur m.a. þýtt
verk eftir Halldór Laxness og
hefur nýlokið þýðingu Engla al-
heimsins eftir Einar Má Guð-
mundsson. Hann er prófessor við
háskólann í Vigo í Galisíu.
Mörg íslensk skáld
Mörg íslensk skáld eiga ljóð í
Poesía Nórdica, en íslenski hlut-
inn nær yfir 178 síður með inn-
gangi eftir Eystein Þorvaldsson.
Skáldin sem þýtt er eftir eru
Snorri Hjartarson, Ólafur Jóhann
Sigurðsson, Jóhannes úr Kötlum,
Steinn Steinarr, Jón úr Vör, Stef-
án Hörður Grímsson, Einar Bragi,
Hannes Sigfússon, Sigfús Daða-
son, Þorsteinn frá Hamri, Vilborg
Dagbjartsdóttir, Matthías Jo-
hannessen, Hannes Pétursson,
Nína Björk Árnadóttir, Jóhann
Hjálmarsson, Þuríður Guðmunds-
dóttir, Steinunn Sigurðardóttir og
Gyrðir Elíasson. Mörg Ijóð eru
valin eftir hvert skáld.
Bókinni hefur verið vel tekið á
Spáni, en mesta athygli vakti
heilsíðugrein í ABC, stærsta dag-
blaði Spánar, eftir Nóbelsverð-
launahöfundinn Camillo José Cela
(5. maí sl.) sem var einn dýrðaróð-
ur um safnið. Hann
tekur undir með og
vitnar í sænska skáld-
ið Östen Sjöstrand,
sem situr í sænsku
akademíunni, að bók-
in eigi sér enga hlið-
stæðu í heiminum.
Francisco Uriz, skrif-
ar Cela, er sá Spán-
verji sem best þekkir
norræna ljóðlist og
hefur unnið verk sitt
af ást á efninu og með
skilningi á næmri
ljóðrænni tilfinningu
skálda Norðurlanda-
þjóðanna fimm.
Francisco J. Uriz
vinnur nú að þýðingum verka eft-
ir norræn skáld, m. a. útgáfu
smáhefta þar sem norræn skáld
eru kynnt. Komin eru út tvö hefti
í þessum floki með ljóðum eftir
Finnann Claes Andersson og
Svíann Sandro Key-Áberg. Ljóð
Jóhanns Hjálmarssonar í þýðingu
J.A.F. Romero eru væntanleg í
vor.
Útgefandi Poesía Nórdica er
Ediciones de la Torre í Madríd.
Bókin er 1.054 síður með formál-
um og upplýsingum um skáldin.
Bókin fæst hjá Máli og menningu
við Laugaveg og kostar 3.995 kr.