Morgunblaðið - 28.11.1996, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 28.11.1996, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Að verða að manni Ljósmyndari: Kjartan Jónsson. UMSKERENDUR. Þeir njóta mikillar virðingar. Sótthreinsandi efni eru ekki notuð við umskurnaraðgerðina. PILTARNIR komu fyrir hornið á skýlinu og gengu rólega fram fyrir það. Hægt og rólega stilltu þeir sér upp í fjórar beinar raðir. Þeir voru klæddir skinnfötum eins og siðurinn kvað á um en sumir höfðu sveipað sig teppum eða lökum. Þarna stóðu þeir alvarlegir og steinþegjandi, enginn var með læti eða leikara- skap. Af stærðinni að dæma gátu þeir verið á aldrinum 10 til 20 ára. Foringinn bauð mig velkominn og sagði að nú ætluðu þeir að syngja »f. fyrir mig. Síðan hófu þeir upp raust sína og sungu um forföðurinn, upp- hafsmann þjóðflokksins. Að söngnum loknum var mér boðið í skoðunarferð um búðirnar. Að öllu jöfnu fær enginn, sem ekki er innvígður í þjóðflokkinn, að koma inn í þær. Þarna hafði verið hróflað upp löngu húsi úr einfaldri tijágrind og klætt yfir með grasi. Þetta var mjög óvandað, enda húsinu ekki ætlað að standa nema í nokkrar vikur. 60-80 piltar sváfu þarna í einu fleti á grasmottum á moldar- gólfínu í nokkrar vikur. Þeir áttu að læra um bræðralag og að þola sársauka og hörku hermannsins. Herbergi öldunga, kennaranna, var í öðrum enda hússins. Óvönduðu eldhúsi hafði verið komið upp rétt við aðalhúsið. Þar var eldað í hálfum olíutunnum. Bað og barsmíðar Óumskorinn maður á meðal Pók- otmanna í Kenýa er talinn í hópi barna, hversu gamall sem hann er. í sumum hreppum fær hann ekki að kvænast og fær ekki að vera þátttakandi í ákvarðanatöku karla- samfélagsins. Að sjálfsögðu er __s óhugsandi að hann fái nokkra ábyrgðarstöðu. Piltar eru umskornir í hópum á nokkurra ára fresti. Þó að þetta sé regla samfélagsins verða þeir að biðja öldungana um að fá að verða umskornir. Öldungarnir eru mjög tregir til að veita samþykki sitt því að enginn faðir vill eiga son sem ekki er nógu harðnaður fyrir hiná sársaukafullu aðgerð og kveinkar sér þegar á hólminn er komið. Slíkt leiðir skömm yfir fjölskylduna sem aldrei afmáist og verður henni fjöt- ur um fót ávallt upp frá því. Þess vegna setja karlarnir ýmis skilyrði fyrir samþykki sínu. Þeir heimta að strákamir bruggi bjór __ , fyrir þá, slátri nauti og haldi þeim veislu, geri við húsin þeirra ef á þarf að halda, og ýmislegt annað, sem þeim dettur í hug. Þegar þeir eru sáttir við þjónustu piltanna halda þeir fund og ræða hvaða strákar séu nógu þroskaðir, að þeirra mati, til að fara í gegnum þetta ferli. Venjulega eru piltamir kallaðir fyrir einn og einn í einu og spurðir út úr. Öldungarnir reyna mjög að draga úr þeim og segja að þeir hafi ekkert að gera í þessa miklu þolraun. Þessu til áréttingar er tekin glóð úr eldinum og sett á læri þeirra. Þar er hún látin vera og svíða skinnið. Strákarnir mega hvorki taka hana né kveinka sér. Standist þeir prófið eru þeir venju- lega taldir nógu harðir af sér til að þola umskurnina og samþykki er gefið. Þegar þessum áfanga hefur verið náð er staður fundinn í skóginum utan alfaraleiðar. Nokkuð stórt Óumskorinn maður er á meðal Pókotmanna í Kenýa, segir Kjartan Jónsson, talinn bam, hversu gamall sem hann verður. svæði er girt af fyrir umskumarbúð- ir til að koma í veg fýrir að óum- skomir karlmenn, konur og börn komist þangað inn. Síðan er ýmist byggt eitt stórt hús fyrir piltana með herbergi fyrir leiðbeinendur þeirra eða tveir kofar, annar fyrir piltana og hinn fyrir leiðbeinend- urna. Þá er eldiviði safnað og annar nauðsynlegur undirbúningur gerður fyrir dvölina í búðunum. Aður fýrr var hún þrír til sex mánuðir en hef- ur verið stytt, m.a. vegna tilkomu skólaskyldu, í tvo til þijá mánuði. Umskurnin getur farið fram þeg- ar staða sólar, tungls og stjarnanna Merkúrs og Júpíters er rétt. Brot á þeirri reglu kallar bölvun yfir sam- félagið. Kvöldið fyrir umskurnina fer fram syndajátning og helgun. Strákarnir verða að játa allar synd- ir (=brot á reglum samfélagsins) sem hafa ekki verið hreinsaðar með fórn eða hreinsunarritúali. Sérstak- lega er gengist eftir kynlífssyndum. Að játningu lokinni verða þeir sem eru syndugir að tína ákveðna villi- ávexti, setja þá í hrúgu og kasta þvagi á þá. Síðan era þeir smurðir með hvítum leir sem sagður er flytja líf og frið inn í umskurnarbúðirnar. Þá fer fram hreinsunarritúal og dauðinn er rekinn á brott. Allt þetta er gert til að tryggja að sár pilt- anna grói fljótt og vel og koma í veg fyrir að illir andar valdi óstöðv- andi blæðingum og ígerðum í sárum þeirra og jafnvel dauða einhvers þeirra. Eftir þetta fara allir niður í á og baða sig naktir í ísköldu vatni. Þeg- ar komið er aftur til búðanna er farið inn í kofa öldunganna, sem ásamt fræðuranum raða sér með- fram veggjum hans. Strákarnir eru látnir hlaupa hvíldarlaust í hringi meðfram þeim. Söngvar eru sungn- ir allan tímann og piltarnir eru barð- ir óaflátanlega og miskunnarlaust með löngum og mjóum greinum, sem eru líkar svipum. Þetta heldur áfram fram á miðja nótt. Allt þetta stuðlar að því að deyfa sársauka- skyn þeirra. Þegar þessu er lokið fá strákarn- ir að sofa í klukkutíma, en era þá vaktir fyrir sjálfa umskurnina. Þolraunin mikla Öllu skiptir að piltarnir sýni á hinni stóra stund að þeir séu karl- menn sem þola hina sársaukafullu aðgerð með hugprýði án þess að kveinka sér hið minnsta. Feður þeirra eða aðrir nákomnir ættingjar af karlkyni eru viðstaddir. Þeir eru vopnaðir og gera sig líklega til að drepa syni sína ef þeir standa sig ekki. Umskerandinn er fljótur að framkvæma umskurnina og strák- amir standa sig yfirleitt með prýði. Piltar í umskurnarbúðum eru á eins konar millistigi í mannlegri til- vera. Þeir era ekki lengur börn en ekki heldur fullorðnir. Þeir eru að vissu marki óhreinir og í mjög við- kvæmu ástandi, sem endurspeglast í því að fýrsta mánuðinn verður að mata þá. Sérstakt ritúal verður að fara fram áður en þeir mega mat- ast með eigin höndum. Þetta er um það bil sá tími, sem það tekur sár þeirra að gróa. Mörg ritúöl fara fram í umskurn- arbúðunum og piltarnir mega ekki yfirgefa þær fyrr en eftir margar vikur. Margvísleg fræðsla er veitt á umskurnartímum, t.d. um réttindi og skyldur fullgilds karlmanns í samfélaginu, hvernig menn geti lif- að saman, hvernig þola megi sárs- auka, um kynlíf, hjónaband og hvernig stjórna beri fjölskyldu, hvernig þeim ber að umgangast foreldra sína og fólk af eldri kyn- slóðinni og hvernig þeir geti náð sambandi við forfeðurna. Síðast en ekki síst eru þeim opinberuð leynd- armál samfélagsins. Piltarnir þurfa að þola margs konar harðræði á umskurnartíman- um. Það á að gera þá færa um að standast pyntingar óvinahers án þess að verða knúnir til sagna um leyndarmál hersins. Þeir eiga jafn- vel að þola pyndingu til dauða. Stúlkur era líka umskornar á meðal Pókotmanna. Hvenær verðum við fullorðin? Það er misjafnt eftir samfélögum hvenær menn teljast fullorðnir. Víða þarf fólk, sérstaklega piltar, að ganga í gegnum mjög erfiðar þrautir til að teljast fullgildir þegn- ar síns samfélags. Hvenær verður fólk fullorðið á íslandi? Lengi var fermingin talin vera mörkin á milli æsku og fullorð- insára. Það stenst vart, enda búa unglingar eftir sem áður í foreldra- húsum og eru upp á foreldrana komnir. Þeir verða fullgildir þjóðfé- lagsþegnar mörgum árum síðar en raunin var á fyrir t.d. 30 árum. Við getum lært af Pókotmönnum að við verðum að undirbúa unga fólkið okkar undir að verða fullgild- ir þjóðfélagsþegnar, ekki bara gefa því faglega menntun. Tíðarandinn leggur mikla áherslu á að njóta en miklu minni á ábyrgð okkar, t.d. í hjónabandi og fjölskyldulífí. Á þessu sviði eram við e.t.v. frumstæð þjóð. Höfundur er kristniboði. Paö tekur aöeins einn virkan aö koma póstinum þínum til skila PÓSTUR OG SÍMI Viö spörum þér sporitt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.