Morgunblaðið - 16.10.1997, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 15
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
GISLI Kristinn Lórenzson forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar við nýja laugarkerið
en í baksýn sést í nýbygginguna.
Framkvæmdir fyrir um hálfan milljarð við sundlaugina
Ný laug, pottar og bygging
Norðlenskir
dagar
NORÐLENSKIR dagar hefjast í
matvöruverslunum Kaupfélags Ey-
firðinga á Akureyri, Dalvík, Ólafs-
firði, Siglufirði, Grímsey og Hrísey
í dag, fímmtudaginn 16. október,
og standa þeir yfir til loka mánaðar-
ins, 31. október.
Þetta er fimmta árið sem Norð-
lenskir dagar eru haldnir og hefur
góð þátttaka verið einkennandi fyr-
ir þau fjögur skipti sem þeir hafa
áður verið og er svo einnig nú.
Tilgangurinn með Norðlenskum
dögum er að koma á framfæri því
sem er að gerast í norðlenskum
matvæla- og iðnfyrirtækjum, stuðla
að uppbyggingu þeirra og kynna
sem flestum norðlenska vöru og
þjónustu. Sérstakt blað verður gefið
út og því dreift á Eyjafjarðarsvæð-
ið. í matvöruverslunum verður fjöid
kynninga og tilboða þann tíma sem
átakið stendur.
-----♦ ♦ ♦----
Tilboð ogaf-
sláttur í miðbæ
UM 40 verslanir og fyrirtæki í
miðbæ Akureyrar bjóða fólki upp á
hressingargöngu þeirra á milli á
morgun, föstudag og laugardag, en
ýmis tilboð verða í gangi og afslætt-
ur boðinn af ákveðnum vörutegund- •
um. Slíkt átak sem miðast að því
að fá fleira fólk í bæjarrölt verður
næstu fjórar vikurnar.
í þessu skyni hefur Akureyrar-
bær gengið til liðs við eigendur
verslana og fellir niður gjaldskyldu
á bílastæðum í miðbænum frá kl.
13 á umræddum föstudögum. Eru
það vinsamleg tilmæli til starfsfólks
á miðbæjarsvæðinu að taka ekki frá
þessu helstu bílastæði í miðbænum
á þessum tíma, heldur taka sér
sjálft örlítið lengri hressingargöngu
og leggjá á stæðum sem eru nokkru
lenerra frá vinnustað sínum.
UMFANGSMIKLUM framkvæmd-
um við Sundlaug Akureyrar miðar
vel og sagði Gísli Kristinn Lórenzson
forstöðumaður að nú væri búið að
steypa upp nýtt sundlaugarker, 25
X 16 metra að stærð og þá er einn-
ig búið að steypa nýja nuddpotta.
Gert er ráð fyrir að byggingu eins
hæðar húss þar sem m.a. verða bún-
ingsklefar kvenna ljúki eftir um
hálfan mánuð. í síðustu viku var nýr
hreinsibúnaður við laugina tekin í
notkun.
Samkvæmt fyrstu áætlunum átti
að ljúka byggingu nýju sundlaugar-
innar og taka hana í notkun síðasta
sumar, en frosthörkur á liðnum vetri
settu strik í reikninginn. Forgangs-
röð framkvæmda var því breytt,
hægt var á gerð sundlaugarkersins
og þess í stað settur kraftur í að
byggja upp nýtt hús. „Það stóð fyrst
til að bjóða út byggingu hússins í
desember en nú er svo gott sem
búið að steypa það upp,“ sagði Gísli
Kristinn, en hann átti von á að frá-
gangur innanhúss yrði boðinn út um
eða eftir áramót.
Næsta vor verður nýja sundlaugin
tekin í notkun sem og heitur pottur
við hana, en lengra verður í að hús-
ið verði tiibúið. I húsinu verður m.a.
afgreiðsla, kaffítería og búningsklef-
ar kvenna, en í kjallara verður æf-
ingasalur, geymslur þvottahús og
einnig er hreinsibúnaður lauganna
þar. Karlaklefinn verður á sama stað
og nú í eldra húsnæðinu en hann
verður færður til nútímalegra horfs
og stækkaður. Gera má ráð fyrir,
að sögn forstöðumanns, að heildar-
kostnður við framkvæmdirnar, það
sem gert hefur verið á síðustu árum
og þau verkefni sem eftir er, nemi
allt að hálfum milljarði króna.
Fjölskyldugarður
stækkaður
„Þegar þessu verður lokið höfum
við möguleika á að taka á móti mun
fleiri gestum en nú og gerum reynd-
ar einnig ráð fyrir að aðsóknin muni
aukast mikið,“ sagði Gísli Kristinn.
Aðsókn var mjög góð í sumar sem
leið, yfir 2.000 manns komu að jafn-
aði í laugina þegar veðurblíðan var
hvað mest. í tengslum við sundlaug-
ina er rekin fjölskyldugarður með
margvíslegum leiktækjum og fær
hann til umráða aukið pláss næsta
sumar. Neðra svæðið á tjaldstæði
Akureyrar verður lagt af og þar
komið fyrir leiktækjum.
Spurninga-
keppni
Baldursbrár
HIN vinsæla spurningakeppni
kvenfélagsins Baldursbrár er nú að
heijast. Fyrsta umferð verður í
safnaðarsal Glerárkirkju annað
kvöld, föstudagskvöldið 17. október
og hefst hún kl. 20.30.
Fyrirhugað er að keppa einu sinni
í mánuði fram í mars að undanskild-
um desembermánuði. Sex lið keppa
á hverju kvöldi. Aðgöngumiði sem
jafnframt er happdrættismiði kost-
ar 300 krónur og í hléinu verður
selt kaffi og óáfengur drykkur. All-
ur ágóði rennur til æsku bæjarins.
----------♦ ♦ ♦---
Námskeið í
EKG-túlkun
NÁMSKEIÐ sem heitir EKG-túlkun
verður haldið á Akureyri næstkom-
andi laugardag, 18. október og
stendur það frá kl. 9.30 til 18. Það
er haldið í samstarfi Háskólans á
Akureyri og Endurmenntunarstofn-
unar Háskóla íslands.
Námskeiðið er einkum ætlað
hjúkrunarfræðingum en er öllum
opið. Markmið þess er að þátttak-
endur öðlist aukinn skilning á grund-
vallaratriðum EKG-túlkunar, þeir
geti túlkað hjartalínurit í bráðatilvik-
um og þekki helstu lífshættulegar
hjartsláttartruflanir og einnig að
þeir geti tengt breytingar á hjarta-
línuriti við daglegt líf sjúkiings.
Fjallað verður um sögu hjartalínu-
rits og kenningar sem liggja þar að
baki, um hjartsláttartruflanir sem
allir verða að þekkja og túlkun í
bráðatilfellum svo eitthvað sé nefnt.
Kennari á námskeiðinu er Christer
Magnússon, hjúkrunarfræðingur á
slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Skráning á námskeiðið_ er hjá
Endurmenntunarstofnun HÍ.
Staðalbúnaðurinn í Baleno langbak er ríkulegur - m.a. 2 öryggis-
loítpúðar, rafmagn í rúðum og útispeglum, samlæsingar, vökva- og
veltistýri, toppgrind, upphituð framsæti, útvarp og segulband með 4
hátölurum, vindkljúfur með hemlaljósi að aftan, bensínlok opnanlegt
innanfrá, geymsluhólf undir farangursrými og draghlíf yfir farangursrými.
Aflmikill, rúmgóður, öruggur
og einstaklega hagkvœmur
með notagildið ífyrirrúmi
SUZUKI
AFL OG
_j
SUZUKI BILAR HF
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11.
Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, simi 482 37 00.
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
IBALENO WAGON 1998
4WD: 1.595.000 kr.