Morgunblaðið - 16.10.1997, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 29
Dansað við úlfa
OSTDANS
Tjarnarbíó
SVÖLULEIKHÚSIÐ
FYRIR LÍFIÐ
Eftir Auði Bjarnadóttur og Láru
Stefánsdóttur. Tónlist: Áskell Más-
son. Leikmynd: Ragnhildur Stefáns-
dóttir. Búningar: Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir. Saumakona: Halla Guð-
mundsdóttir. Ljósahönnun: Lárus
Björsson. Ljósameistari: Benedikt
Sveinsson. Tónmeistari: Páll Sveinn
Guðmundsson. Hljóðfæraleikur á
segulbandi: Askell Másson: slagverk.
Guðni Franzon: bassa-klarinett.
Bryndís Halla Gylfadóttir: selló.
Framkvæmdastjóri: Svala Norðdahl.
FYRIR lífið er afrakstur sam-
vinnu þeirra Láru Stefánsdóttur
og Auðar Bjarnadóttur. Báðar eru
þær reyndir dansarar og danshöf-
undar og meðal annarra frum-
kvöðlar að því að sviðsetja óhefð-
bundin nútímadansverk og leik-
húsdansverk hérlendis. Höfund-
arnir styðjast við áhrif úr bókinni
„Konur sem hlaupa með úlfum“
en sú saga segir frá úlfakonunni
La Loba sem skríður yfir holt og
hæðir og safnar úlfabeinum. Ur
beinunum magnar hún seið svo úr
verður úlfur sem hleypur þar til
hann breytist í hlæjandi konu. Með
dansi, myndlist og tónlist upplifa
áhorfendur áhrif sögunnar og
fylgjast með konu sem túlkar sög-
ur rétt eins og úlfakonan La Loba.
Úlfur, kona, maður, úlfur
Áskell Másson gefur dansverk-
inu tóninn með kröftugum trumbu-
slætti sínum rétt eins og úlfar á
harða hlaupum. Á sviðinu er
skúlptúr af konu og mót skúlptúrs-
ins aftarlega á sviðinu. Hljóðfæri
hanga niður úr loftinu og gefa
sviðsmyndinni ævintýralegan blæ.
Upp frá beinahrúgu rís hvít vera
sem líður um sviðið dágóða stund.
Skömmu síðar fæðir hún afkvæmi
sitt. Andlit birtist gegnum kufl
hvítklæddu verunnar og hægt og
bítandi kemur úlfkonuungviðið í
heiminn dansað af Láru Stefáns-
dóttur. Unginn skimar í kringum
sig óöruggur og óstyrkur þegar
hann stígur sín fyrstu spor á svið-
inu. Hann vex úr grasi og karlvera
birtist á sviðinu dönsuð af Jóhanni
Frey Björgvinssyni. Konan mætir
karlverunni og sjálfri sér og tog-
streita margslunginna tilfinninga
á sér stað. I lokin leysist dansinn
upp og draumurinn eða sýnin end-
ar á því að kvenveran stígur í
beinahrúguna og hverfur.
Á mótum draums
og veruleika
Fæðingarferlið var vel unnið.
Það var myndrænt, látbragð og
dans fallega framkvæmt undir tón-
list sem minnti helst á hljóð úr
beinahrúgu úlfkonunnar. Jóhann
Freyr er ungur dansari sem á fram-
tíðina fyrir sér. Hann er jafnframt
ómótaður nútímadansari sem teflt
er á móti eldri og reynsluríkari
kvendansara.
Með frumkvæði konunnar í sam-
skiptum þeirra á milli, ögrandi til-
burðum hennar og krafti kom karl-
veran veikari út en ella. Hvort
ætlunin hafi verið að hafa kvenver-
una tvíeflda á móti karlverunni og
sýna þannig styrk hennar á hans
kostnað er óljóst. Leikurinn þeirra
á milli var ósanngjarn frá upphafi.
Dansararnir skila hlutverkum sín-
um ágætlega og áttu þrátt fyrir
misræmið góða spretti. Lára skilar
hlutverki úlfsterku konunnar með
ágætum. Hún hefur í þessu dans-
verki sterka nærveru og dans
hennar er í senn einbeittur og tján-
ingarfullur. Jóhann er lofandi
dansari sem gaman verður að
fýlgjast með í framtíðinni. Tónlist-
in var töfrandi og áhrif hennar
seiðandi. Þrátt fyrir það hefði farið
vel að tempra hana á köflum því
hún yfirgnæfði á tíma það sem
fram fór á sviðinu. Búningarnir eru
látlausir og kufl kerlingar þjónar
tilgangi sínum. Búningur Láru
Stefánsdóttur er skemmtilega ein-
faldur en hentar ekki hreyfingum
dansarans þar sem hann situr á
líkamanum og hreyfist ekki með.
Yndislegur skúlptúr af konu eftir
Ragnhildi Stefánsdóttir er afar vel
gerður. Hann er ekki nýttur í verk-
inu á afgerandi hátt og einangrað-
ist því fljótlega frá verkinu. Hann
naut sín engu að síður einn og
sér. Mót konunnar var jafnframt
afar myndrænt. Með lýsingu var
framkölluð innhverfa og úthverfa
hennar. Þó dansverkið sé ekki
gallalaust þá er það heilsteypt og
vel unnið. Það hefur yfir sér
draumkenndan ljóðrænan blæ. Það
er laust við alla tilgerð og einlæg
vinnubrögð höfundanna skila sér
vel í þeirri nálægð sem Tjarnarbíó
veitir.
Lilja ívarsdóttir
Volkswagen
Oruggur á alla vegu
HÖNNUN: RÚNA BA499 .LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON