Morgunblaðið - 16.10.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 41
Strengbrúðuleikhús
Davíðs Oddssonar
RÁÐHERRUM í núverandi ríkis-
stjórn væri ef til vill best lýst sem
óprúðum og óprúttnum leikurum,
sem leika lausum hala, leikandi
nærri því landslýð allan gi'átt, en þó
einkum þá sem minna mega sín eins
og t.d. aldraða og öryrkja. Dekrið
við forréttindastéttina breytist hins
vegar lítið, enda virðist það fara vax-
andi með hverjum degi sem líður.
Alþjóð veit mætavel að það er fjár-
málaráðherra mikið kappsmál að
sverfa ekki um of að vinnuveitend-
um með háum sköttum eins og hann
reyndar orðaði það sjálfur á síðasta
landsfundi Sjálfstæðisflokksins, allt
öðru máli gegnir hins vegar um lág-
launastéttirnar, aldraða og öryrkja.
Að hans dómi á allur þessi stóri hóp-
ur ekki betra skilið en að vera skatt-
pyndaður og það þindarlaust eða allt
til síðasta túskildings.
Það er sama hvert litið er, allt
stefnir að einu og sama marki, þ.e.
að bæta hag auðmannastéttarinnar,
en hagur allra annaiTa stétta er hins
vegar látinn sitja á hakanum ef ekki
alveg fyrir borð borinn. Það er ekki
Nú á að setja á laggir
nýjan saumaklúbb
eða jaðarskattanefnd,
segir Halldór Þor-
steinsson, og hún
verður eingöngu skip-
uð jákálfum.
ofmælt að örfáir einstaklingar eða
öllu heldur fjölskyldur, á að giska
15-20 talsins, eigi ísland. Meðal
þeirra eru alls kyns stóreignamenn
eins og t.d. stórvirkir bílasalar, eig-
endur stórmarkaða, verksmiðja,
sælgætisgerða, umboðsmenn er-
lendra olíufélaga, heildsalar, að
ógleymdum sægreifunum sjálfum.
Sjávarútvegsráðhej’ra hefur feng-
ið á sig æði misjafnt orð fyrir að
hygla sægreifum, kvótakóngum og
bröskurum og ekki síst fyrir þann
„rausnarskap" að færa sérréttinda-
aðlinum ríkiseignina, Þormóð
ramma, á silfurfati. Ber þessi
„sómakæri" ráðherra almannaheill
íyrir brjósti eða er hann aðeins ráð-
herra forréttindastéttarinnar og
kærir sig því kollóttan um sauð-
svartan almúgann? Ég bið ykkur,
lesendur góðir, að svara þessari
spurningu.
Fjármálaráðherra tíundar jafnan
nákvæmlega hvílíka fjárfúlgu það
myndi kosta ríkissjóð að hækka
bætur almannatrygginga og skatt-
leysismörk eða þá að lækka jaðar-
skatta, en á hinn bóginn lætur hann
alveg undir höfuð leggjast að nefna
nokkrar tölur þegar þingmenn
fengu fjörutíu þúsund króna mánað-
arglaðninginn, sem átti auk heldur
að vera skattfrjáls. Það var nú sið-
gæðisþroski á háu stigi, finnst ykkur
ekki, lesendur góðir? Nýleg launa-
hækkun æðstu embættismanna rík-
isins var svo enn eitt hneykslismálið
í viðbót og manni er spurn hvar
þetta „höfðingjadekur" ætli að enda
eiginlega.
Því er oft haldið á lofti, en þó
einkum íyrir kosningar, að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé flokkur allra
stétta. Þetta útjaskaða og innan-
tóma slagorð er ekki lengur á boi'ð
berandi fyi'ir hugsandi menn, enda
væri sanni nær að segja að Sjálf-
stæðisflokkui'inn væri aðeins flokk-
ur einnar stéttar, þ.e.a.s. auðmanna-
og forréttindastéttarinnar, sem
verður auðugri og þar með voldugri
með hverjum degi sem líður. Mér
brá heldur í brún þegar ég sá að
tekið var undir þetta sjónarmið eða
slagorð í sjálfum leiðara Morgun-
blaðsins og staðhæft að Sjálfstæðis-
flokkurinn væri „breiður vettvangur
allra stétta“. Hins vegar má til
sanns vegar færa að Morgunblaðið
sé breiður vettvangur ólíkra skoð-
ana og verður rit-
stjóminni aldrei nægi-
lega þakkað fyrir við-
sýni og mikil hyggindi
í þeim efnum.
Með álitsgerð sinni
hefur jaðarskatta-
nefndin reist sjálfri sér
óbrotgjarnan minnis-
varða um algjört að-
gerðar- og framtaks-
leysi að heita. Þessi
landsfrægi „sauma-
klúbbur" hefur með
öðrum orðum hjakkað í
eina og sama saumfar-
inu frá upphafi tilveru
sinnar til smánarlegra
endaloka. Fróðlegt
væri að fá að vita
hversu mikið nefndarmenn fengu
gi'eitt fyi'ir að gera ekki neitt. Nú er
ætlunin að setja á laggimar eða
stofna nýja jaðarskattanefnd eða
„saumaklúbb" sem verður eingöngu
skipuð þægum já-kálfum. Friðrik
frækni, fjármálai'áðherra, veit hvað
hann syngur og vill ekkert meira
múður frá fulltrúum verkalýðsins.
Lengi lifi lýðræðið í flokki allra
stétta!!
Af einskærum ótta við fylgistap í
næstu alþingiskosningum hefur ver-
ið gi'ipið til þess ráðs, örþrifaráðs
liggur mér við að segja, að stofna
öldungadeild innan Sjálfstæðis-
flokksins. Fréttir heima að Guð-
mundur Hallvarðsson vilji gefa kost
á sér sem formaður þessarar „virðu-
legu“ deildar og má vera að hann sé
þegar orðinn það þegar þetta er rit-
að. Hann er ekki beinlínis þekktur
fyrir að vera ötull baráttumaður í
hagsmunamálum aldraðra heldur
fyrir að vera sauðtryggur flokks-
maður, sem geldur einlægt jáyrði
við hvers kyns skerðingum á kjörum
okkar. Er til nokkuð aumkunai’verð-
ara en sjálfstæðismaður sem er
gjörsamlega ósjálfstæður jafnt í
hugsunum sínum sem gjörðum? Er
maður sem telur það hampaminnst
að láta aðra hugsa fyrir sig vel til
forystu fallinn? Svari hver fyrir sig.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
hinn sjálfskipaði og pennaglaði
málsvari kvótakeisaranna, hefur
viðrað þá hugmynd að Framsóknar-
flokkurinn gangi í Sjálfstæðisflokk-
inn. Það væri ef til vill ekki svo frá-
leitt, en gárungarnir kynnu kannski
að spyrja hvort hann væri ekki þeg-
ar genginn í hann? Er ekki sannleik-
urinn sá að ráðherrar úr röðum
Framsóknarflokksins fái litlu sem
engu að ráða í ríkisstjórn íslands.
Þegar öllu er á botninn hvolft eru
þeir lítið meira og merkilegra en
auvirðulegar strengjabrúður í auka-
hlutverkum.
Aður en sleginn er botninn í þetta
greinarkorn væri bæði rétt og við-
eigandi að víkja nokkrum orðum að
strengjabrúðuleikhúsi Davíðs Odds-
sonar. Þar ræður hann öllu einn.
Hann er ekki aðeins höfundur allra
þeirra verka sem sýnd eru heldur
líka leikstjóri og enda þótt hann
stjórni brúðum sínum með harðri
hendi verður ekki annað sagt en
haftn geri það þó alltaf með brosi
eða brandara á vör. Ráðherrarnir úr
Framsóknarflokknum eru ekki bein-
líns hátt skrifaðir hjá honum eins og
reyndar mátti búast við. Til frekari
skýringar sakar ekki að geta þess að
t.d. Páli Péturssyni félagsmálaráð-
-inn i
næstu
öld V
herra er falið hlutverk
bráðskemmtilegrar
brúðu sem talar alltaf
af sér. Finnur Ingólfs-
son túlkar hins vegar
athafnaþrá og óðagot
hins virkjunarglaða
iðnaðarráðherra aí fá-
gætri innlifun. I aug-
um höfundar og leik-
stjóra hefur Halldór
Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra hvorki roð við
Rússum, Noi'ðmönnum
né Hund-Tyrkjum. Sú
leikbrúða, sem vekur
hvað mesta kátínu með
óborganlegum uppá-
tækjum sínum og axar-
sköftum er Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra.
Þar sem Guðmundur Bjarnason um-
hverfisráðherra vh'ðist vera hrein-
asta núll í augum Davíðs fær hann
aðeins lítið statistahluverk í sýning-
unni. En það verður að segja höf-
undi til hróss að flokksbræður hans
og sálufélagar fá oft á tíðum lítið
skám útreið í leikverkum hans en
Framsóknarforkólfarnir. Það er til
að mynda sjaldnast heil „brú“ í því
sem Halldór Blöndal samgönguráð-
herra tekur sér fyrir hendur. Grár
fyrir járnum heyr hershöfðinginn
eða menntamálaráðherrann, Bjöm
Bjamason, blóðuga og endalausa
styrjöld við vanþakkláta og óstýri-
láta kennara sem heimta alltaf
hærri og hærri laun. Vonandi kann
Matthildingurinn gamli, Davíð
Oddsson, að meta þetta „græsku-
lausa“ grín mitt eða réttara sagt
þessa mynd sem bmgðið hefur verið
hér upp af ímyndaðri sýningu í
strengjabrúðuleikhúsi hans, en ef
hann kann hins vegar ekki að meta
þetta verður bara að hafa það. En
svo að öllu gamni sé sleppt, hafa
þingmenn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarfiokksins og allh- stjóm-
arsinnar glatað hæfileikanum til að
hugsa sjálfstætt eða voga þeir sér ef
til vill ekki að gera það? Era þetta
allt saman viljalausar og dauðskelk-
aðar hópsálir og strengjabrúður
sem þora ekki fyrir sitt litla líf að
hræra sig og bíða því í eilífri tauga-
spennu og ofvæni eftir því að kippt
sé í spottann? Auðsætt er að frjáls
hugsun er lítils sem einskis metin af
oflátungum og hræsnuram sem vilja
gjarnan láta kenna sig við frjáls-
hyggju.
Að lokum langar mig til, lesendur
góðir, að leggja fyrir ykkur þá stóra
spurningu hvort forsætisráðhema
okkar, Davíð Oddsson, sé nokkuð
annað og æðra en leiðitöm strengja-
brúða forréttindastéttarinnar, for-
deki-uð og vaggað af jafnmikiUi
væntumþykju og sjálfu „óskabarni"
Harðar Sigurgestssonar, forstjóra
Eimskipafélags íslands?
Höfundur er skólastjdri
Málaskóla Halldórs.
LIMABURÐUR
AUSTIN POWERS
ER EINSTAKUR
Halldór
Þorsteinsson
mögnuðiim tónlcikum Phil Collins
föstudagskvöldið 7. nóv.
-íboðiToyota.
Fjögurra stjömu gisting ábesta stað
TUboö »Þ|S±|Si
aðeins
á mann í tvíbýli á Forte Post House Regent’s Park.
Innifalið: Gisting í tvær nætur, flugvallarskattar, miði og rútuferð
á tónleika.
Takmarkaður fjöldiaf miðum!
Eí þú kaupir Toyota Corolla í októbcrgætir
þú tiiinið fcrð 1 kaupbæti! ___
1 1 ® TOYOTA
Tákn um gœði
Hafið samband við söluskrifstofur Flugleiða eða símsöludeild
Flugleiðaísíma 50 S0 100 (svarað mánud.-föstud. kl. 8-19
ogálaugard. kl. 8-16)
FLUGLEIDIR £&
Traustur tslenskur ferðafélagi ÆL
n íi.'ink
Síiortout
Seven Kioos
ftnMFÓDn CTATIAM