Morgunblaðið - 16.10.1997, Qupperneq 42
42 FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
Barátta Mið-
borgarsamtaka
Reykjavíkur
ATHYGLISVERT
hefur verið að fylgjast
með því atorkumikla
starfl sem hagsmuna-
aðilar í miðborg
Reykjavíkur hafa unn-
ið að á síðustu mánuð-
um. I febrúar á þessu
ari voru stofnuð Mið-
borgarsamtök Reykja-
víkur þar sem samein-
uðust Laugavegssam-
tökin, Miðbæjarfélagið
í gömlu Kvosinni, sam-
tök kaupmanna á
Skólavörðustíg og aðrir
hagsmunaaðilar í mið-
borginni. Þessi nýju
samtök hafa unnið
þrekvirki í að berjast fyrir uppbygg-
ingu og stefnumótun á málefnum
miðborgarinnar gegn þvermóðsku
núverandi borgarstjórnarmeirihluta
á flestum sviðum.
í miðborg Reykjavíkur eru hátt í
500 fyrirtæki sem eiga allt undir því,
bí
að vel sé staðið að mál-
um varðandi skipulag,
bflastæði, hreinsun og
fleira sem er á höndum
borgaryfirvalda. Mið-
borgarsamtökin hafa
lagt fram ákveðna
stefnumótun um nýtt
byggingarsvæði upp á
400 hektara með upp-
fyllingu út í Akurey,
skemmtilega lausn á
umferðarvanda vestur-
hluta Reykjavíkur með
því að færa Reykjavík-
urflugvöll á uppfyllingu
í Skerjafjörð, yfirtöku
á Bflastæðasjóði til að
breyta honum úr skatt-
heimtuumhverfi í þjónustufyrirtæki
og margt flefl-a.
Hvernig hefur svo núverandi
mefl’ihluti tekið á málum hagsmuna-
aðila í miðborginni? Það má eigin-
lega segja að viðbrögðin hafí verið á
þá leið að það komi aðilum með fyrir-
Snorri Hjaltason
tækjarekstur í miðborginni ekkert
við hvernig staðið sé að skipulagi,
bflastæðamálum eða öðrum þáttum í
miðborginni. Þessi skilaboð gátu
ekki verið táknrænni en einmitt með
lokun Hafnarstrætis og útilokun á
aðkomu að Bæjarins bestu. Rúntur-
inn í miðborginni og að fá sér pylsu á
Bæjarins bestu, er hluti af stemn-
ingu miðborgarinnar. Það virðist
vera að núverandi borgarstjórnar-
meirihluti skilji ekki þau grundvall-
aratriði sem ráða því hvernig mið-
borg Reykjavíkur verður í framtíð-
inni. Verslun hefur nánast lagst af í
Ef stefnu núverandi
meirihluta varðandi
miðborg Reykjavíkur
verður ekki breytt, seg-
ir Snorri Hjaitason,
mun hún í framtíðinni
verða sem eyðimörk.
Kvosinni og ef stefnu núverandi
meirihluta varðandi miðborg
Reykjavíkur verður ekki breytt í
grundvallaratriðum mun miðborgin í
framtíðinni verða sem eyðimörk.
Höíundur er byggjngumeistíiri og
frambjóðandi íprófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins.
Hugrekki
KOSNINGAR eru sú
aðferð sem lýðræði
býður uppá til að al-
menningur og félög geti
ákveðið hverjir eigi að
fara með stjórnartauma
ákveðið tímabil. Til að
um eitthvað sé að velja
verða fleiri kostir að
vera í boði og eftir því
sem fleiri góðir kostir
eru í boði þeim mun
meira spennandi og
áhugaverðari verða
kosningarnar. Kjósend-
ur eru grasrótin í hverj-
um stjórnmálaflokki
sem allri forystu er
hollt að halda sátt við.
Þessvegna er það ekki
heppilegt þegar forsvarsmenn flokks
reyna að segja kjósendum sínum fyr-
ir verkum og hafa áhrif á val þeirra í
prófkjöri. Sjálfstæðismenn í Reykja-
vík raða nú á sinn framboðslista fyrir
næstu borgarstjórnarkosningar.
Hvernig það tekst hlýtur að hafa
mikið um að segja hvort sá árangur
næst að vinna aftur meirihluta í
stjórn borgarinnar á komandi kjör-
tímabili. Sá sem leiðir listann í þeflri
orustu axlar stóra hluti. Inga Jóna
Þórðardóttir býðst til
að vinna þetta verk.
Spennandi framboð
Með framboði sínu
þó ekki sé annað sýnir
hún mikinn kjark. Sú
forustusveit sem setið
hefur í borgarstjórn
þetta kjörtímabil er
mjög samhentur og
góður hópur sem flokk-
urinn getur verið stolt-
ur af við þessar að-
stæður. Því er það
þannig að ýmsir hafa
hamrað á því að með
framboði sínu sé Inga
Jóna að ráðast að ein-
hverjum og efna til
óvinafagnaðar. Við sem styðjum
hana teljum að hér sé verið að gera
gott betra, nauðsynlegt sé að bjóða
upp á lýðræðislegt val. Þátttaka
Sýnum hugrekki, segir
Snorri Bjarnason,
kjósum Ingu Jónu í
fyrsta sæti.
Snorri
Bjarnason
...þegar þú tekur ákvörðun um greióslutilhögun.
Með BÍLASAMNINGI Lýsingar hf. getur þú endurnýjað bílinn þinn á þriggja ára fresti
án þess að greiða lokaafborgun en áfram greitt sömu lágu mánaðargreiðslurnar
og nú geturðu nýtt þér internetið til að reikna dæmið til enda.
PÚ E O T VIÐ STÝPIÐ OG LÝSING H F . EO ÞÉO SAMFEOÐA
Reiknió sjálf
hvernig bílasamningurinn lítur
út miöaö viö ykkar forsendur.
Slóðin er:
www.lysing.is
Sveigjanlegri greiðsluform
Möguleiki á framlengingu samnings
Greiðsludreifing á allt að 48 mán.
ji Jafnar mánaðargreiðslur
Englr ábyrgðarmenn
- Leigutaki verður þó að vera orðinn 25 óra
Lýsing hf. er I eigu eftirtalinna aöila:
SUÐUOLANDSBOAUT 22 • SÍMI 533 1500 • FAX 533 1505
Vertu
aiitaf á
nýjum bít
Lysirig hf.
fii- •
Ingu Jónu í stjórnmálum er orðin
löng. Hún hefur verið framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, setið í út-
varpsráði, þar sem hún gegndi for-
mennsku og átt sæti í borgarstjórn
síðasta kjörtímabil. Eg hef íylgst
með hvernig hún hefur tekið á mál-
um í borgarstjóm og dáðst að
hvernig hún hefur sett sig inn í þau
mál sem fjallað er um hverju sinni.
Mál sitt hefur hún flutt af einurð og
festu.
Konur og stjórnmál
Þegar litið er á hvernig konum
vegnar í stjórnmálum vekur athygli
hversu oft þær eiga í erfiðleikum
með að koma sér á framfæri. Kröf-
urnar sem til þeirra era gerðar eru
allt aðrar og meh-i en gerðar eru til
karlmanna í sömu sporum. Þess-
vegna þekkja allir athugasemdir
eins og: „Vargurinn! - Auminga
maðurinn hennar!" Allt er þetta
nokkuð sem engum dettur í hug að
segja þegar karlmenn eiga í hlut.
Það er ekki konan Inga Jóna þórð-
ardóttir sem býður sig fram í fyrsta
sætið heldur stjórnmálamaðurinn
Inga Jóna Þórðardóttir. Hún á ekki
að gjalda fyrir það að vera kona. Það
verða allir sem taka þátt í prófkjör-
inu að horfast í augu við og taka tillit
til þegar þeir raða á listann. Til að
bjóða sig fram í fyrsta sæti lista og
etja kappi við annars ágætan fram-
bjóðanda þarf hugrekki. Ég skora á
alla þá sem kjósa að sýna það hug-
rekki að kjósa Ingu Jónu í fyrsta
sæti listans. Með því sýnum við það
hugrekki sem flokkurinn þarf á að
halda í komandi borgarstjórnar-
kosningum.
Höfundur er grunnskóla-
og ökukennari.
AUSTIN POWERS
BROSIR MEÐ REISN