Morgunblaðið - 16.10.1997, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 53
Danir steinlágn í því
SKAK
Grand Hótcl
Rcykjavík
8. — 22. októbcr
VISA NORDIC GRAND
PRIX, ÚRSLIT
Jóhann Hjartarson og Jonny Hector
eru jafnir og efstir eftir sex umferð-
ir á úrslitamóti Norrænu bikar-
keppninnar í skák.
DÖNSKU keppendurnir voru í
þriðja til fjórða sæti fyrir umferð-
ina á þriðjudagskvöldið og hafði
hvorugur tapað skák. En heilladís-
irnar yfirgáfu Curt Hansen Norð-
urlandameistara og hann tefldi
sem heillum horfinn í skák sinni
við Norðmanninn Rune Djurhuus,
sem hafði tapað þrem-
ur skákum í röð.
Hansen sá aldrei til
sólar í skákinni og
Djurhuus afgreiddi
hann með laglegri
hróksfórn.
Eftir þetta verður
mjög á brattann að
sækja í titilvöminni
fyrir Curt Hansen.
Hann er orðinn einum
og hálfum vinningi á
eftir efstu mönnum
og þyrfti helst að
vinna þá báða. Það
hefur þó ekki verið
neinn meistaraljómi
yfir tafimennsku hans
og því góðar horfur á að nýr
maður taki við. Landi hans, Lars
Schandorff, mátti einnig bíta í það
súra epli að lúta í lægra haldi
gegn Norðmanni. Einar Gausel
vann varnarsigur á honum og
hreppti sinn fyrsta heila vinning
á mótinu.
Jóhann Hjartarson hefur verið
í efsta sæti allt frá upphafi. Jó-
hann hefur nú hægt aðeins á ferð-
inni og í sjöttu umferð gerði hann
jafntefli við Norðmanninn Jon-
athan Tisdall í mikilli baráttuskák
þar sem Tisdall beitti drekaaf-
brigðinu í Sikileyjarvöm. Þetta var
því afar góður dagur fyrir Norð-
mennina þijá, því Tisdall hafði
svart gegn Jóhanni.
Svíinn sókndjarfí og frumlegi,
Jonny Hector, komst upp að hlið
Jóhanns með því að leggja fær-
eyska keppandann John-Arna Ni-
elsen mjög örugglega að velli.
Hector hefur teflt mikið I sumar
en ekki náð sér vel á strik. Nú
teflir hann vel og
gæti haldist áfram
við toppinn, því þótt
hann sé ekki stigahár
þá er hann mjög mis-
tækur og stendur sig
oft vel á sterkum
mótum.
Hector hafði hvítt
á Jóhann í sjöundu
umferðinni í gær-
kvöldi. Úrslit í þeirri
skák má sjá á frétta-
síðum Morgunblaðs-
ins. Áttunda umferð-
in fer fram í kvöld
og það er ástæða til
að brýna það fyrir
skákáhugamönnum
að til að missa ekki af úrslita-
augnablikunum þarf að mæta á
skákstað á Grand Hótel Reykjavík
ekki síðar en klukkan 19.30, því
fyrstu tímamörkin em kl. 20.
Hannes Hlífar Stefánsson hefur
nú hrist af sér mótlætið sem hann
varð fyrir í upphafi og vann félaga
sinn Þröst Þórhallsson snaggara-
lega í sjöttu umferð. Hannes mjak-
ast upp töfluna og er kominn í
þriðja til sjötta sæti.
Norðurlandameistarinn sýndi
enga hugmyndaauðgi á þriðju-
dagskvöldið. Hann fann enga
áætlun í miðtaflinu og Norðmað-
urinn náði ömggum stöðuyfír-
burðum. Hansen reyndi að bjarga
sér með því að leggja með kónginn
á flótta, en var þá mátaður yfir á
hinum vængnum:
Hvítt: Rune Djurhuus
Svart: Curt Hansen
Nimzoindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3 -
Bb4 4. e3 - c5 5. Bd3 - Rc6
6. Rf3 - Bxc3+ 7. bxc3 - d6
8. 0-0 - e5 9. Rd2 - 0-0 10. Hbl
- He8 11. d5 - Re7 12. f3 -
Bf5 13. e4 - Bc8 14. g3 - h6
15. Hf2 - b6 16. Rfl - Rh7 17.
Re3 - Rg5 18. Khl - Rh3 19.
Hfl - Rg6 20. Hb2 - Hb8 21.
Rf5 - Re7 22. Kg2 - Rxf5 23.
Jóhann
Hjartarson
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
JÓHANN Hjartarson og Jonny Hector eru efstir eftir 6 umferð-
ir og mættust í sjöundu umferð í gærkveldi.
VISA BIKARMOTIÐ Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 VINN. ROÐ:
1 J.-A. Nielsen, Fœr. 2.310 0 0 % Ví 0 0 1 14.
2 Jóhann Hjartarson 2.605 1 'A ’/2 1 1 5 1.-2.
3 T. Hillarp-Persson, Sv. 2.445 1 0 0 0 1/2 y2 2 11.-13
4 R Akesson, Svíþi. 2.520 'A 'A 1 0 y2 1/2 3 7.-8.
5 J. Tisdall, Noregi 2.480 'A 'A 1/2 y2 1 1/2 3 'A 3.-6.
6 J. Hector, Svíþjóö 2.470 1 1 1/2 1 1 y2 5 1.-2
7 L. Schandorff, Danm. 2.505 ’/2 vs ’/2 1 1 0 3'Á 3.-6.
8 Curt Hansen, Danm. 2.600 Vi 1/2 1 y2 0 1 3'A 3.-6
9 Helqi Áss Grétarsson 2.475 0 V, 1/2 A, y2 0 2 11.-13
10 Þrðstur Þórhallsson 2.510 ’/í 'A Vi 0 1/2 0 2 11.-13
11 H. Westerinen, Finnl. 2.410 1 'A 0 0 1/2 1/2 2’/2 9.-10.
12 R. Djurhuus, Noregi 2.525 1 'A 0 0 0 1 2’/2 9.-10.
13 E. Gausel, Noregi 2 540 0 'A ’/* y2 y2 1 3 7.-8.
14 Hannes Hlífar Stefáns. 2.545 1 0 'A 0 1 1 ■ 3'A 3.-6.
exf5 - Rg5 24. h4 - Rh7 25.
Hhl - Hb7 26. Be4 - f6 27. g4
- Kf8 28. Be3 - Ke7 29. Bc2 -
Hg8
Hér eða í næsta leik hefði svart-
ur átt að leika Bd7.
30. Kf2 - Kd7 31. Ba4+ - Kc7
32. Bc6 - Hb8 33. Da4 - a5 34.
Hdl!
SJÁ STÖÐUMYND
Vinningsleikur, sem er miklu
sterkari en 34. Hdbl, en þá getur
svartur varist með 34. - Ba6. Nú
er afar erfitt að svara öflugri hót-
un hvíts sem er 35. Bxc5! sem
væri sannarlega glæsilegur leikur.
34. - Bd7
Aðrir möguleikar em engu
betri: 34. —. Df8 35. Bxc5! - dxc5
36. d6+ - Kd8 37. Hxb6 - Hxb6
38. Dxa5 og svartur er óveijandi
mát, eða 34. - Ba6 35. Bxc5 -
dxc5 36. d6n— Kc8 37. Bd5 og
vinnur.
35. Hdbl! - Rf8 36. Hxb6! og
Curt Hansen gafst upp. Eftir 36.
- Hxb6 37. Hxb6 - Kxb6 38.
Db5+ - Kc7 39. Db7 er hann mát.
Margeir Pétursson
Daði Orn Jónsson
Biblían,
menning og
samfélagið
GUÐFRÆÐIDEILD Háskóla ís-
lands stendur fýrir málþingi undir
yfírskriftinni Biblían, menning og
samfélagið í tilefni af því að 150
ár eru liðin frá stofnun Prestaskól-
ans í Reykjavík. Það verður haldið
í Þjóðarbókhlöðunni, fyrirlestrasal,
2. hæð, Iaugardaginn 18. október
kl. 14-17.
Dagskrá málþingsins er eftirfar-
andi: Kl. 14-14.30 Jón Svein-
björnsson prófessor: Guðfræði og
biblíuþýðing, kl. 14.30-15 dr.
Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor:
Hirðir og hjörð. Áhrifasaga, líking-
ar úr Gamla tstamentinu. Kl.
15—15.30 dr. Jón Friðjónsson pró-
fessor: Áhrif Biblíunnar á íslenskt
mál.
Eftir kaffihlé kl. 16-16.30 flyt-
ur teol.lic. Kristján Búason, dósent
erindið: Táknmálið í Biblia pauper-
um. Að því loknu kl. 16.30-17
verða pallborðsumræður undir
stjórn sr. Sigurðar Pálssonar, fv.
framkvæmdastjóra Hins íslenska
Biblíufélags.
Mistök við úr-
vinnslu verð-
könnunar
„NOKKRAR umræður hafa verið
í fjölmiðlum í framhaldi af verð-
könnun ASÍ, BSRB og Neytenda-
samtakanna í 79 matvöruverslun-
um um land allt. Meðal annars
hefur því verið haldið fram að hún
sé ómarktæk. Þessari fullyrðingu
hafna áðurnefnd samtök og leggja
áherslu á að allar megin niðurstöð-
ur könnunarinnar séu réttar.
Mistök urðu hins vegar við úr-
vinnslu hvað varðar verslunina KÞ
Þingey á Húsavík. í stað þess að
vera fjórtánda lægsta verslunin á
lista yfir stórmarkaði og keðju-
verslanir er KÞ Þingey í fímmta
sæti á listanum. Tekið skal fram
að verðtökufólk á Húsavík á enga
sök á þessum mistökum.
Ofangrein samtök biðjast vel-
virðingar á þessum mistökum og
fagna jafnframt hagstæðu verðlagi
hjá neytendum á Húsavík," segir
í fréttatilkynningu frá ASÍ, BSRB
og Neytendasamtökunum.
Úthlutað úr
Námssjóði Fé-
lags einstæðra
foreldra
ÚTHLUTAÐ verður úr Námssjóði
Félags einstæðra foreldra annað
árið í röð. Sjóðurinn var stofnaður
með framlagi Rauða Kross íslands
árið 1996. Meginmarkmið sjóðsins
er að veita styrki til einstæðra
foreldra í námi. Reynslan hefur
sýnt að brýn þörf er á slíkum
styrkjum þar sem styttra starfs-
nám sem bætir stöðu á vinnu-
markaði veitir oft ekki aðgang að
námslánum eða annars konar
styrkjum.
Félagið hefur unnið markvisst
að því gegnum tíðina að bæta stöðu
einstæðra foreldra. Með stofnun
námssjóðsins hefur Rauði Kross
íslands lagt Félagi einstæðra for-
eldra lið í þessu verkefni. Allir fé-
lagsmenn í Félagi einstæðra for-
eldra geta sótt um námsstyrkinn.
Það sem lagt verður til grundvallar
við úthlutun er fjárhagsstaða, fé-
lagslegar aðstæður og námsstaða.
Þeir félagsmenn sem hafa hug
á að sækja um námsstyrk geta
fengið eyðublöð hjá Félagi ein-
stæðra foreldra Tjarnargötu lOd
101 Reykjavík. Umsóknarfrestur
er til 22. október 1997.
AEG
„Öko-System" sparar allt aS 20% sópu
« Taumagn: 5 kg
c Vindingarhraði: 800 snúningar á mín,
með hægum byrjunarhraSa.
Hitastillir: Sér rofi, kalt -95'
Þvottakerfi: Öll hugsanleg
ásamt sparnaSarkerfi
Ullarkerfi: Venjulegt mikiS vatnsmagn,
hægur snúningur á tromlu
• 1/2 hnappur: Minnkar vatnsnotkun
þegar lítiS er þvegiS
• Vatnsnotkun: 98 lítrar
• Orkunotkun: 2,2 kwst
í tílefni
sjötíu og (imm ára
afmælisárs
Bræðranna Ormsson
Þýskt vörumenkl
þýskt hugvit
þýsk framleiðsla
Þriggja ára
ÁBYRGÐ Á ÖLLUM
AEG
ÞVOTTAVÉLUM
Umboðsmenn:
...bjoðum við
Lavamat 53JS
þyottavel
á sérstöku afmælisverði
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesl, Kt. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð.Búðardal.
Ve8tflrölr: Geirseyrarbúöin.Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvik.Straumur.ísafiröi.Noröurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga.
Kf. Húnvetninga, Ðlönduósi. Skagfiröingabúð.Sauðárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. KEA, Siglufirði. KEA, Ólafsfirði. Kf. Þingeyinga,
Húsavík.Urö, Raufarhöfn.Lónið, Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfiröinga, Vopnafirði.Verslunin Vík, Neskaupstað.
Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúðsfiröi. KASK.Djúpavogl. KASK, Hðfn. Suðurland: Mosfell, Hellu.Rafmagnsverkstæði KR, Hvolsvelli. Árvirkinn, Selfossi. Rás,
Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.