Morgunblaðið - 23.10.1997, Side 4

Morgunblaðið - 23.10.1997, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ - FRÉTTIR Húsnæði Kántrýbæjar á Skaga- strönd eyðilagðist í eldsvoða Morgunblaðið/Ingibergur Guðmundsson HLJÓÐSTOFA Kántrýbæjar er gjörónýt eftir brunann. „Eins og sálin í lífi mínu“ ELDUR kom upp í húsnæði út- varpsstöðvarinnar Kántrýbæjar á Skagaströnd um miðnætti í fýrrinótt og gjöreyðilagðist það áður en tekist hafði að ráða niðurlögum eldsins um einni og hálfri klukkustund síðar. Vegfarandi, sem leið átti hjá, varð eldsins var og hófst slökkvistarf þá þegar, en lögreglu barst ekki til- kynning um atburðinn fyrr en um klukkustund síðar. Rannsókn á elds- upptökum stendur yfir, en talið er líklegt að kviknað hafi í út frá peru- stæði á efri hæð hússins. Hallbjöm Hjartarson, eigandi Kántrýbæjar, sagði í samtali við Morgunblaðið að útvarpsstöðin hefði orðið fimm ára 14. nóvember næstkomandi og hún hefði verið sál- in í lífi hans. „Mér fannst þetta eins og að vita af einu bama minna brenna þegar ég horfði á þetta,“ sagði hann. Starfsemi haldið áfram Hallbjöm sagði að húsnæði og tækjabúnaður hefði verið sæmilega vel tryggður og hann ætlaði sér ekki að gefast upp þrátt fyrir þetta áfall og halda starfsemi útvarpsstöðvar- innar áfram í framtíðinni. Veitingastaðurinn Kántrýbær, sem er á neðri hæð húsnæðisins, varð ekki eldinum að bráð en skemmdist hins vegar talsvert af vatni og reyk. Fimm borgarfulltru- ar neita að tala á fundi um skólamál Sögðu að þátttaka kæmi ekki til greina á viðkvæmum tíma FUNDI Skólastjórafélags Reykja- víkur og Kennarafélags Reykjavík- ur um stöðu skólamála, sem halda átti í dag, var aflýst vegna þess að fimm fulltrúar úr borgarstjóm sögðu að ekki kæmi til greina að þeir hefðu þar framsögu eða sætu fyrir svörum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði að þetta hefði verið sameiginleg ákvörðun allra borgarfulltrúanna fimm og Ijóst hefði verið að þótt boðað hefði verið til fundar um skólamál mundi fundurinn snúast um kjaramál. Fundinn átti að halda síðdegis í dag og var borgarstjóra og borgar- fulltrúunum Áma Sigfússyni, Guð- rúnu Ágústsdóttur, Sigrúnu Magn- úsdóttur og Vilhjálmi Þ. Vilhjálms- syni boðið að flytja stutt framsögu- erindi. „Við mátum það sem svo úr því að komið væri tilboð frá samninga- nefndinni og væntanlegt gagntil- boð fi-á kennurum væri staðan í kjaramálunum á það viðkvæmu stigi að ekki væri heppilegt að boða til opins fundar," sagði Ingibjörg Sólrún. Á fund borgarstjóra Óðinn Pétur Vigfússon, kennari í Réttarholtsskóla, var annar þeirra, sem sendu bréfið til borgarfulltrúa og á fundi trúnaðarmanna grunn- skóla í Reykjavík síðdegis í gær greindi hann frá því að í gærmorg- un hefði hann verið kvaddur á fund borgarstjóra og Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar, borgarfulltrúa sjálf- stæðismanna. „Ég gerði það og þá var fyrsta spumingin: „Hvað er í gangi?““ sagði Oðinn Pétur. „Við gáfum ástæður fyrir því hvers vegna þau ættu að koma og var að mínu mati mjög heiðarlegur í svömm. Þeim þótti sem tímasetningin myndi veikja stöðuna þar sem komið væri tilboð og annað gagntilboð á leið- inni. Borgarstjóri sagði að umræð- an yrði ófrjó og þarna yrði seilst inn á vald launanefndar. Allt þetta væri voðalega viðkvæmt og við væmm hreinlega að leiða þá til slátmnar." „ ... hafi ekki þorað að standa frammi fyrir kjósendum" Að sögn Óðins Péturs hefðu borgarfulltrúamir gjaman viljað ræða skólamál, en ekki í dag. Sagði hann að félag skólastjóra hefði haldið fund vegna þessarar niður- stöðu og samið yrði bréf um málið. „En svarið var sem sagt nei,“ sagði Óðinn Pétur. Fundinum var því af- lýst. Finnbogi Sigurðsson, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, gagn- rýndi borgarfulltrúana á fundinum: „Þeir afþökkuðu allir sem einn ... og gáfu ýmsar ástæður, sem em svo sem góðra gjalda verðar, stað- an væri viðkvæm og þetta gæti spillt fyrir. En okkar túlkun hlýtur náttúrlega að vera sú, að borgar- fulltmar hafi ekki þorað að standa frammi fyrir kjósendum sínum og tala um skólamál á þessum stað og tíma.“ Ingibjörg Sólrún kvaðst í gær- kvöldi reiðubúin til að ræða þessi mál hvenær sem væri, en svo hefði verið litið á að vegna tímans og skamms fyrirvara hefði fundurinn snúist um kjaramál. Borgai-fulltrú- arnir hefðu verið reiðubúnir til að koma til fundar um skólamál í næstu viku, en því hefði í raun ver- ið hafnað af hálfu fundarboð- endanna. „Andspænis kjós- endum alla daga“ „Við mátum það svo, að það væri hvorki til hagsbóta fyrir kennara né samninganefnd sveitarfélaga að halda fundinn á þessum tíma- punkti," sagði borgarstjóri. „En málið hleypur ekki frá okkur þótt fundurinn verði ekki haldinn og við stöndum andspænis kjósendum og foreldrum alla daga.“ Kosningar á þingi VMSÍ Signý vill verða vara- formaður Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, um verkfallsboðuii vélstjóra Erum að lenda í verk- falli sem er óleysanlegt KRISTJÁN Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, segir að staðan í samninga- málum sé mjög alvarleg eftir verk- fallsboðun Vélstjórafélagsins frá áramótum. Viðræður séu tilgangs- lausar og útvegsmenn séu að íhuga til hvaða aðgerða þeir geti gripið. Vélstjórar séu ekki aðeins að efna til styrjaldar við útvegsmenn heldur einnig aðrar stéttir sjómanna vegna krafna um breytingar á hlutaskipt- um. Kristján sagði að Vélstjórafélagið hefði boðað verkfall á skipum sem væru með stærri vélar en 2.400 hestöfl. Það þýddi að meirihluti frystitogaranna og nokkur hluti loðnuflotans yrði settur í verkfall einn og sér. Þarna væri um að ræða hæst launuðu sjómenn á íslandi sem væru dregnir út úr og stefnt í verkfall til þess að fá stærri skipta- hlut. Hæst launuðu menn á íslandi fyrir utan skipstjóra Hann sagði að úvegsmenn teldu ekki koma til greina að breyta hefð- bundnum hlutaskiptum, þar sem háseti hefði einn hlut, skipstjóri tvo, fyrsti vélstjóri einn og hálfan og annar vélstjóri 1,25. Þessi hluta- skipti hefðu gilt hér alla tíð. Nú vildu vélstjórar hækka hlut 1. vél- stjóra í 1,75 á þessum skipum þar sem kjör þeirra væru best. Hæstu laun sem greidd væru á Islandi væru laun þessara vélstjóra að und- anskildum launum sídpstjóra á sömu skipum. „Það að láta sér detta í hug að fara í verkfall með þessa aðila er slík storkun og lítilsvirðing við þá sem eru að greiða þeim þessi háu laun, svo maður tali ekki um kollega þeirra á sama skipi, því engir aðrir áhafnarmeðlimir, hvorki skipstjór- ar, stýrimenn né hásetar telja þetta koma til greina og segja okkur að ef við fórum að breyta þessum hluta- skiptum sem þeir gera ekki kröfu til, muni þeir ætla sér það sama,“ sagði Kristján. Hann sagði að þar með væri kom- ið inn í vítahring sem engin leið væri út úr því þama væri byggt á hlutföllum. Málið væri grafalvarlegt og engin lausn í sjónmáli. Utvegs- menn væru í sjálfheldu, en horfðu jafnframt upp á verkfall á þeim skipum þar sem launakjörin væru best. Hægt að boða verkfall á blámáluð skip Kristján sagði að mörgum kæmi á óvart að hægt væri að boða verk- fall einungis á þeim sldpum sem væru yfir tiltekinni vélastærð. Af þeim sökum hefði hann látið kanna íyrir sig hvort hægt væri að boða verkfall eingöngu á þeim skipum sem væru blámáluð en ekki rauð- máluð til dæmis. Svarið hefði verið að það væri hægt samkvæmt nýju vinnulöggjöfinni „þannig að vitlaus er nú þessi vinnulöggjöf okkar hvað þetta varðar," sagði Kristján. Hann sagði að til viðbótar væri Vélstjórafélagið að stilla eigin félagi upp gagnvart mismunandi kröfum fyrir menn í sama starfi, þar sem þeir gerðu ekki kröfur hvað þetta varðar fyrir vélstjóra sem væru á skipum með minni vélar en 2.400 hestöfl. „Við erum að lenda í verkfalli sem er óleysanlegt og það er alvarlegt mál. Svo bíða hinir og kveða mjög skýrt að orði að þeir ætli ekki í að- gerðir á sama tíma og Vélstjórafé- lagið vegna þess að þeir eigi enga samleið með þeim,“ sagði Kristján. Hann sagði aðspurður að auðvit- að hlytu útvegsmenn að íhuga gagn- aðgerðir. Engin lausn væri í því fólgin að semja við mikinn minni- hluta hæst launuðu vélstjóra. Það þyrftu að nást samningar við alla áhöfnina á öllum sldpum flotans. Aðspurður hvort það kæmi til greina að setja verkbann sagði hann að það væri eitthvað sem þeir þyrftu að íhuga, því þetta gæti ekki gengið fram með þessum hætti. Enginn samningafundur hefur verið boðaður og sagði Kristján að hans mati væri slíkur fundur alger- lega tilgangslaus eftir framsetningu þessara krafna. „Það er enginn til- gangur í að ræða þetta. Það er al- gerlega búið að gera þeim grein fyr- ir því að verkfall í þessu efni breytir ekki okkar afstöðu," sagði Kristján einnig. SIGNÝ Jóhannesdóttir, formaður verkalýðsfélagsins Vöku á Siglu- firði, lýsti því yfir á þingi Verka- mannasambandsins í gær að hún byði sig fram í embætti varafor- manns VMSÍ. Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómanna- félags Keflavíkur, útilokar ekki að hann muni einnig sækjast eftir kjöri. Jón Karlsson, formaður verka- lýðsfélagsins Fram á Sauðárkróki, hefur verið varaformaður VMSI undanfarin ár, en hann sækist ekki eftir endurkjöri. Hefð er fyrir því innan VMSI að alþýðubandalags- maður gegni embætti formanns sambandsins og alþýðuflokksmaður embætti varaformanns. Jón er al- þýðuflokksmaður og það sama á við Kristján Gunnarsson. Signý Jó- hannesdóttir er hins vegar sögð vera stuðningsmaður Alþýðubanda- lagsins og það má því líta á framboð hennar sem ögrun við þá hefð- bundnu flokkaskiptingu sem hefur verið innan VMSI. Nokkur spenna er á þinginu um hvort kjörnefnd gerir tillögu um Signýju. Kristján sagði í samtali við Morg- unblaðið, eftir að Signý gaf sína yf- irlýsingu, að hann útilokaði ekki framboð til varaformanns. Hann myndi hins vegar ekki gefa neina yfirlýsingu um framboð á þinginu. Kjörnefnd ætti eftir að ræða málin og hann myndi taka sínar ákvarðan- ir í framhaldi af þeim umræðum sem þar ættu eftir að fara fram. Ný forysta VMSÍ verður kjörin á morgun. Ekki er gert ráð fyrir öðru en Björn Grétar Sveinsson formað- ur verði endurkjörinn án mótfram- boðs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.