Morgunblaðið - 23.10.1997, Page 22

Morgunblaðið - 23.10.1997, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ URVERINU Loðnuveiðin að kom- ast á fullan skríð GÓÐ loðnuveiði hefur verið úti af Vestfjörðum og norður af landinu síðustu tvo daga og er loðnan farin að færa sig austar. Er hún betri en verið hefur og minna af smáioðnu, sem hefur gert skipunum nokkuð erfitt fyrir. Illa gengur hins vegar að ná síldinni fyrir austan þótt hún finnist á nokkuð stóru svæði en menn trúa því, að hún fari fljótlega að gefa sig fyrir alvöru. Víkingur AK landaði í gær 1.000 -tannum af loðnu á Akranesi og Höfitmgur AK 600 tonnum í fyrri- nótt. Þá var Elliði GK væntanlegur um miðjan dag í gær með 850 tonn. Sveinn Sturlaugsson hjá Haraldi Böðvarssyni sagði, að þar hefði ver- ið landað alls um 9.500 tonnum af loðnu nú í haust og allt farið í bræðslu utan einn túr. Sagði hann, að dálítið væri farið að frysta og átti að athuga með aflann úr Elliða í því sambandi. Sveinn sagði, að mikið líf hafi verið í Akraneshöfn síðustu daga, ekki síst vegna loðnunnar, en auk þess hefði frystitogarinn Höfrungur III AK komið inn í fyrradag með afla, sem metinn er á 53 milljónir króna. Var það eftir mánaðartúr. Þá kom Sturlaugur AK með 140 tonn eftir viku. Fyrir austan hafa bátarnir verið að fá þetta 50 og upp í 200 tonn af síld en hún stendur djúpt og erf- itt að ná henni. Menn vita hins veg- ar af henni á stóru svæði og trúa ekki öðru en hún fari að gefa sig innan tíðar. Loðnan jafnstærri og betri Beitir NK var að kasta á loðnu- miðunum í gær og vantaði þá rúm 100 tonn upp á fullfermi en Súlan EA og Þorsteinn EA voru þá land- leið með fullfermi. Var Súlan með um 1.000 tonn og Þorsteinn, sem kom á miðin í fyrrinótt, fyllti sig á skömmum tíma. Háberg GK landaði í Grindavík í gær 650 tonnum og einnig Oddeyrin EA, sem var með rúm 700 tonn. Skipin hafa verið að fá loðnuna norður af landinu og norðaustur af Halanum og er hún farin að ganga austar. Er hún jafnstærri og betri en verið hefur og ekki eins blönduð smáloðnu. Bannað er að landa bræðslufiski erlendis „Þessari viðskiptahindrun þarf að ryðja úr vegi“ LÖG um umgengni um nytjastofna sjávar, sem tóku gildi í fyrrasum- ar, banna íslenskum fiskiskipum að landa afla sínum hjá erlendum fiskmjölsverksmiðjum, nema sjáv- arútvegsráðuneytið heimili siíkt með nýrri reglugerð. Að mati framkvæmdastjóra Farmanna- og fiskimannasambands íslands, virk- ar þetta heimildarleysi sem við- skiptahindrun milli landa. Kaup- endur loðnu hér heima geti not- fært sér þetta ástand og boðið lægra verð fyrir loðnuna en ella. Að sögn Áma Kolbeinssonar ráðu- neytisstjóra er nú unnið að reglu- gerð um þetta efni í ráðuneytinu sem væntanlega lítur dagsins ljós öðrum hvorum megin við helgi, en hún þarf m.a. að taka á því með hvaða hætti staðið verður að eftir- liti með löndunum og vigtunum erlendis. Áður en lög um umgengni úm nytjastofna sjávar voru sett, gátu íslensk skip landað bræðslufiski erlendis, en aðeins gegn því að hver löndun yrði metin á við full- fermi nema því aðeins að Fiski- stofa hefði samþykkt að löndunar- og vigtunaraðferðir á viðkomandi stöðum væru fullnægjandi. Með tilkomu nýju laganna, hefur hins vegar nokkurra efasemda gætt varðandi það hvort ákvæði eldri reglugerðar um landanir íslenskra skipa erlendis hafi haft næga laga- stoð í nýju lögunum og hefur sjáv- arútvegsráðuneytið nú nýlega tek- Von er á nýrri reglugerð frá ráðherra ið undir sjónarmið Farmanna- og fiskimannasambands íslands um að lagastoð skorti í nýjum lögum fyrir þá reglugerð, sem gilt hefur í þessu efni. Fullfermisreglan verði felld niður Mat Fiskistofu hefur á hinn bóg- inn hingað til verið á þá leið að ekki þyrfti nýja reglugerð til, en í bréfi sem hún sendi tii útgerðar- og skipstjórnarmanna í september sl. kemur fram að landi skip afla í erlenda fiskmjölsverksmiðju skuli við það miðað að um fullfermi hafi verið að ræða. Þessu mót- mælti Farmanna- og fiskimanna- samband íslands í bréfi til ráðu- neytisins og óskaði sömuleiðis eftir því að ráðherra gerði viðeigandi breytingu á reglum, Sem fælú í sér að umrædd viðmiðunarregla um fullfermi fiskiskipa yrði felld niður. „Þó um það megi deila, varð niðurstaða ráðuneytisins engu að síður sú í byrjun október að nýja reglugerð þyrfti til og á meðan hún ekki lægi fyrir, væri löndun erlend- is óheimil. Nú er unnið að nýrri reglugerð, sem vonandi lítur dags- ins ljós öðrum hvorum megin við Fjölbreytt æskulýðsstarf byggt á traustum grunni kristinnar trúar www.kirkjan.is/KFUM helgi. Hún mun heimila löndun erlendis með vissum skilyrðum um vigtun og eftirlit sem ég get ekki rætt á þessari stundu,“ sagði Árni Kolbeinsson ráðuneytisstjóri en ný reglugerð þarf m.a. að taka á því með hvaða hætti eftirlit við löndun og vigtun verður í framkvæmd. 24-32% hærra verð í norsku verksmiðjunum Að sögn Benedikts Valssonar hefur FFSÍ fylgst náið með loðnu- verði hér heima og erlendis og hann fullyrðir að verðið sé nú mun hagstæðara í Noregi en á íslandi. „Við metum það svo að verð, sem greitt er fyrir loðnu í dag, er á bilinu 7.500-8.000 krónur á tonn- ið hér heima. Hins vegar eru norsku fiskmjölsverksmiðjurnar að bjóða 9.900 króna lágmarksverð miðað við 18% fitu og 13,3% þurr- efnisinnihald. Verðið er þar með 24-32% hærra í Noregi. Áuk þess er hægt að kaupa olíuna á tiltölu- lega lægra verði í Noregi en hér heima þannig að það gæti verið ávinningur fyrir útgerð að selja loðnu í Noregi í stað þess að selja hana á íslandi. Þessi viðskipta- hindrun, sem er til staðar, er afleið- ing þess að óheimilt er að sigla með aflann. íslenskir kaupendur á loðnu geta þar með nýtt sér ástandið og greitt lægra verð fyrir hana en ella. Ég get alveg eins búist við því að ef þessari við- skiptahindrun verður rutt úr vegi, komi bræðslumar á íslandi til með að borga hærra verð fyrir loðn- una,“ sagði Benedikt. Erum alls ekki að hindra menn „Okkur gengur ekki annað til en að tryggja að afla sé rétt til skila haldið hvað varðar vigtunina. Við erum með öðrum orðum alls ekki að hindra menn í því að selja afla þar sem verðið er hæst. Það eru engar viðskiptahindranir í gangi af okkar hálfu,“ sagði Árni Kolbeinsson. Florida með íslenskum fararstjóra. Flugleiðir bjóða ferð þessa á sérstöku kynningartilboði og er eins gott að ganga frá pöntun sem fyrst. Gist verður á Roney Plaza Apartment Hotel sem staðsett er á ströndinni við Collins Avenue og 23. strætú, Hótelið er í örstuttu göngufæri frá miðju hins þekkta Art Deco svæðis. Stutt í mikið úrval af veitingastöðum, börum, skemmtistöðum og verslúnum. Verð á mann í: Fjórbýli 33.910 kn 1 Þríbýli 37.110 - Tvíbýli 43.610 - Einbýli 63.010 - Bókanir og upplýsingar í Hópferðadeild Flugleiða, Laugavegi 7 hjá Svönu (50 50 484) og Hörpu (50 50 491) Innifalið: Flug til Fort Lauderdale, rútuferðir tii og frá flugvelli, I íslensk fararstjóm, gisting og flugvallarskattar. FLUGLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.