Morgunblaðið - 23.10.1997, Síða 23

Morgunblaðið - 23.10.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 23 ERLENT Norska Náttúruverndarráðið líkir rányrkju Norðmanna í Suðurhöfum við Smuguveiðar NORSKA Náttúruvemdarráðið sakar þarlend stjómvöld um að veita útgerðarmönnum sem stundi rányrkju í Suðurhöfum pólitískan og efnahagslegan stuðning. í skýrslu sem ráðið vann að beiðni norska utanríkisráðuneytisins segir að rányrkjan minni um margt á veiðar íslendinga og Færeyinga í Smugunni sem stjómvöld hafí gagnrýnt svo harkalega. Em þau hvött til þess að líta í eigin barm og grípa til aðgerða gegn Suður- hafsveiðunum, að því er fram kem- ur í blaðinu Nordlys. Gunnar Album hjá Náttúm- verndarráðinu gagnrýnir norsk stjómvöld fýrir aðgerðarleysi hvað varðar veiðar norskra skipa á svo- kölluðum patagónskum tannfíski. Nú er veitt fimm til sexfalt meira af honum en fiskifræðingar CCAMLR, Ráðstefnu um verndun fiskistofna í Suðurhöfum, hafa ráð- lagt. Telur Album að verði veiðun- um haldið áfram hrynji stofninn á innan við ári. Um þijátíu ár tekur að byggja hann upp að nýju. Styrkir til smíða skipanna í skýrslu Náttúmvemdarráðsins segir að af 93 skipum sem stundi veiðarnar séu að minnsta kosti 17 í eigu Norðmanna. Norska Fiski- stofan hefur áður gefíð til kynna að norsku skipin séu að minnsta kosti níu. Vandinn er hins vegar sá að þau eru öll skráð undir henti- fána og margir norskir útgerðar- menn sem fullyrt er að eigi skipin, hafa neitað því. Það á m.a. við um meintan eig- anda Aliziu Glacial sem áströlsk yfirvöld færðu til hafnar í síðustu viku fyrir ólöglegar veiðar. Er það í fyrsta sinn sem þarlend yfirvöld grípa til slíkra aðgerða gagnvart fiskiskipum. Um 200 milljóna ísl. kr. styrkur var veittur til smíði Aliz- iu Glacial en skipið er skráð í Belize. Gunnar Album segir yfirvöld hafa greitt styrki til smíða allnokk- urra skipa sem nú stundi rányrkj- una í Suðurhöfum. Þá fái útgerðar- mennirnir í sumum tilfellum styrki úr Atvinnu- og héraðasjóði hins opinbera. „Þetta er afleiðing þeirrar stefnu norskra yfirvalda að byggja upp allt of stóran fiskiflota, miðað við fiskistofnana," segir Album í samtali við Nordlys Hann segir norsk stjórnvöld, stjómmálamenn og sjómenn hafa látið hörð orð falla í garð íslendinga og Færeyinga vegna veiða utan kvóta í Smugunni. „Noregur hefur NÝ SPARPERA sem kveikir og slekkur Electronic Energy Saver 15 w ífSjUl Söluaðilar um land allt Segir stjórnvöld eiga að líta í eigin barm gagnrýnt notkun hentifána, póst- kassafyrirtæki og löndun afla sem veiddur er utan kvóta. Norsk skip stunda nákvæmlega sömu iðju í Suðurhöfum. Og þær veiðar eru ef til vill ennþá alvarlegri því þær eru stundaðar á stofnum sem geta hmnið innan örfárra mánaða," seg- ir Album. Norðmenn krafðir svara Norskum yfírvöldum barst fyrsta aðvörunin vegna veiða norskra skipa í Suðurhöfum í upphafi síð- asta árs. Hafa kvartanir ríkja sem lögsögu eiga að hafsvæðinu sem Norðmenn veiða á ítrekað kvartað yfír veiðunum og þær verða eitt aðalmálið á aðalfundi CCAMLR, sem haldinn verður í næstu viku. Album bendir hins vegar á það að veiðamar eigi sér einkum stað innan 200 sjómílna lögsögu ríkja á borð við Ástralíu, Nýja-Sjálands og Suður-Afríku og að þau hafi ekki tekið nógu hart á veiðunum. í skýrslu Náttúruverndarráðsins segir að norska sendinefndin á fundinum verði að hafa svör á reið- um höndum um hvernig yfírvöld hyggist stöðva veiðarnar en skýrsluhöfundar telja að þau hafi tekið of létt á málinu. Dagfinn Steneseth, ráðgjafi utanríkisráðu- neytisins í málefnum heimskauts- svæða, viðurkennir að málið sé allt hið óþægilegasta fyrir fiskveiði- þjóðina Noreg. Vísað er til tillögu norsku Fiski- stofunnar um að breytt verði lögum um úthafsveiðar á þann hátt að banna megi skipum í eigu Norð- manna að veiða hvar sem er í heim- inum. Núverandi löggjöf nær að- eins yfir skip sem skráð eru í Nor- egi. Þeirri tillögu hefur hins vegar verið vísað á bug og telur Album ástæðuna án efa vera ótta yfir- valda við að vekja reiði útgerðar- manna. Björn Tore Godal, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, hét því fyrr á árinu að stjórnvöld myndu útvega sér heimild til að gripa til aðgerða gegn útgerðarmönnum sem stunduðu ólöglegar veiðar undir hentifána. Ekkert bólar á slíkri lagasetningu og kenna emb- ættismenn í utanríkisráðuneytinu flókinni undirbúningsvinnu um. • Brottfararskírteini í millilandaflug daginn íyrir brottför • Vildarpunktar • Fríar ferðir í Kringluna • Innisundlaug og ein fullkomnasta líkamsrækt Norðurlanda, Planet Pulse • .öll herbergi búin nýjum fullkomnum hótelsjónvörpum • Fjölbreytt herbergjaúrval • Sérhannaðar Skáldastofur • Saga Class stofur • Víðsýnisstofur • Funda- og ráðstefnusalir í sérflokki Allt þetta og miklu meira Vcvö t ra 3.900 ki Hefurðu liugleitt hvað Hótel Loftleidir og Hótel Esja bjóða umfram önnur hótel? ICELANDAIR1 IOTFIS Hótel og híll frá kr, 4.200" 1 FLUGLEIÐIR j0m Gttté Bílaleiga Grænt númer 800 6322, sameiginlegur bókunarsími 50 50162 Nánari upplýsingar á síðu 788 í textavarpi Ríkissjónvarpsins ’Nóttin í eins manns herbergi - ”Verð á mann í tveggja manna herbergi og glæsibifreið frá Bílaleigu Flugleiða. Innif. 100 km akstur, trygging og vsk. T|I/'<H K»)01l»9im*10n» »HKIU|

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.