Morgunblaðið - 23.10.1997, Side 27

Morgunblaðið - 23.10.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 27 LISTIR Öðruvísi verkalýðssaga KVIKMYNPIR Háskölabíó og Rcgnboginn MEÐ FULLRI REISN „THE FULL MONTY“ ★ ★ ★ Leikstjóri: Peter Cattaneo. Handrit: Simon Beaufoy. Kvikmyndatöku- stjóri: John De Boorman. Tónlist: Annie Dudley. Aðalhlutverk: Robert Carlyie, Tom Wilkinson, Mark Abby. Fox Searehlight Pictures. 1997. BRESK kvikmyndagerð er í mik- illi uppsveiflu þessi misserin. Frá Bretlandi kemur hver góðmyndin á fætur annarri, nú síðast þessi ómót- stæðilega gamanmynd, Með fullri reisn, um atvinnulausa stáliðju- verkamenn í Sheffield sem gerast fatafellur í eymd sinni. Nema það verður engin eymd úr því. Þvert á móti hljóta þeir virðingu beska at- vinnuleysissamfélagsins fyrir sjálfs- bjargarviðleitni og skemmta kven- þjóðinni í leiðinni. Myndin Qallar kannski fyrst og fremst um lummuna gömlu að þora að koma fram eins og maður er klæddur (fákæddur í þessu tilviki), teygja á takmörkunum sínum, „opna“ sig. Efnið fær mjög aukið vægi vegna þess að um er að ræða fullkomlega venjulega kaffibrúsa- kalla, sem sleppa af sér öllum höml- um og gerast fatafellur. Þeir eiga ekkert sameiginlegt með öðrum karlkyns nektardönsunum, hinum glæsilegu líkamsræktarbuffum sem fletta sig klæðum og dilla sér frammi fyrir fullum sal af skríkjandi konum. Það er ekkert glæsilegt við Sheffleldmennina. Þeir eru illa vaxn- ir, ýmist grindhoraðir eða með loðna bumbuna út í loftið, vart danshæfir og verulega hversdagslegir menn, sem vantar pening og kannski svo- litla spennu í líf sitt. Robert Carlyle fer fyrir hópnum en hann vakti mikla og verðskuldaða athygli þegar hann lék hlutverk of- beldisbullunnar í „Trainspotting". Hiutverk hans í Með fuliri reisn er af allt öðrum toga. Hann er atvinnu- laust ljúfmenni, fráskilinn og á það á hættu að missa umgengnisrétt við son sinn ef honum tekst ekki að útvega peninga í skyndi. Nærtæk- asta ráðið til að auðgast fljótt er að hóa í nokkra atvinnuleysingja og koma saman nektardanssýningu. Myndin hangir í raun á iitlu öðru en þessari frábæru hugmynd um hinar ólíkindalegu fatafellur. Frá- sögnin er ákaflega einföld. Rakið er hvernig hópurinn verður til og hvernig það leggst í meðlimina sem þeir eru að gera og því tengjast nokkrar hliðarsögur, sú stærsta um samband Carlyles og sonar hans. Fremur er það viðvaningslega fram- sett í ómarkvissri leikstjórn Peter Cattaneos og leikur Carlyles vill verða fullákafur. En það eru minni- háttar agnúar. Mannskapurinn í myndinni er fínn og oft frábærlega spaugilegur í skondnum kringum- stæðum og Með fullri reisn hlýtur á endanum að teljast einhver skemmti- legasta verkalýðssaga, sem gerð hefur verið. Boðskapur myndarinnar liggur ljós fyrir: Öreigar allra landa - afklæðist. Arnaldur Indriðason Reykvíkitigar þuifa á ungufólki meÓ reynslu ah halda í borgarstjóm. Tryggjum Kjartani Magnússyni, blaðamanni og varaborgaifulltrúa, góóa kosningu í prófkjöri Sjálfstœóisflokksins t Reykjavík. Stuðningsmenn. Sólheimar 33 • Sími 588 5570 • Símbréf 588 5571 • http://this.is/kjartan Baráttumann í borgarstjórn Eg læt ekki meta mig. Eg er traustur viðskiptevinur! Þess vegna er ég í Vörðunni! Landsbanki íslands Einstaklingsviöskipti Traustið er hjá þér og ébyrgðin hjá okkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.