Morgunblaðið - 23.10.1997, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 23.10.1997, Qupperneq 55
morgunblaðið MINNINGAR FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 55 I I ) ) ) ) ) ) I í I > I I > I I ’■) I tt_ mennina. Ég held að Benedikt hafi notið þess vel að starfa í hinu formfagra húsi, burstabænum, hinni rammíslensku arfleifð sem Héraðs- skólabyggingin er. Starf skólastjóra við heimavistarskóla er meira, margþættara og vandasamara en tnargur hyggur. Þetta starf leysti Benedikt framúrskarandi vel og samviskusamlega af hendi. Þar naut hann vissulega aðstoðoar kennara en fyrst og fremst naut hann aðstoð- ar eiginkonu sinnar frú Öddu Geirs- dóttur kennara, sem studdi eigin- mann sinn vel og dyggilega alla tíð í margþættum störfum þess manns sem er meðvitaður um að það er hann sem ábyrgðina ber á heima- vist, umsjón og stjórn á stóru skóla- heimili nemenda á unglingsaldri. A Laugarvatni störfuðu lengst af ijórir framhaldsskólar sem áttu margt sameiginlegt og deildu með sér ýmsum rekstri. Það kom í hlut skólastjóranna að stjóma þessum rekstri og var það býsna mikii við- bót við skólastjórastarfið. Þar var gott að vinna með Benedikt eins og í öllu öðru samstarfi skólanna á Laugarvatni. Benedikt sat í skólanefnd íþrótta- kennaraskóla íslands um árabil. Þar reyndist hann góður liðsmaður og hjálpsamur. íþróttakennaraskóli ís- lands mun minnast Benedikts Sig- valdasonar sem eins af mestu og bestu velgjörðarmönnum skólans. Benedikt var mikill íþróttamaður, sundmaður góður, útivistar- og ferðamaður. Hann kunni vel að meta hina hreinu og ómenguðu nátt- úru. Gönguferðir hans um nágrenni Laugarvatns sumar og vetur, voru margar og þar naut hann kyrrðar- innar og fegurðarinnar jafnt við sólarupprás, nón og sólarlag. Bene- dikt og Adda ferðuðust einnig mikið erlendis, bæði autanhafs og vestan. Hér heima á Laugarvatni var þó unaðsreitur hans. Garður, skóla- stjórabústaður héraðsskólans, var heimili og athvarf Benedikts og Öddu á Laugarvatnsárum þeirra. Þar var bjart og þar var hlýtt, heim- ilið allt hið glæsilegasta og viðmót þeirra hjóna og gestrisni einstök. Þangað var gott að koma og þar áttum við samverustundir sem aldr- ei fyrnast. Benedikt lifði heilsusamlegu lífi. Hann var heilsuhraustur alla tíð og þótti í frásögu færandi ef honum varð misdægurt. Veikindi hans nú voru því óvænt en óumflúin, þrátt fyrir liðsinni frábærra lækna og hjúkrunarfólks. Eiginkona hans, frú Adda Geirsdóttir, var hjá honum og hjúkraði honum heima til hinstu stundar. Það var þeim báðum ómet- anlegt á meðan á þessari baráttu stóð og fyrir Öddu um alla framtíð. Syni hans af fyrra hjónabandi, systkinum og öðrum þeim sem tengdust honum, votta ég samúð og bið þeim blessunar Guðs. Kæra Adda, við Hjördís og Árni samhryggjumst þér og biðjum Guð að blessa þig og varðveita. Við kveðjum góðan vin og þökk- um samfylgdina. Blessuð sé minn- 'ng Benedikts Sigvaldasonar. Árni Guðmundsson. Það lætur nærri að liðið hafi 45 ár frá því ég sá Benedikt Sigvalda- son fyrst, er hann kom sem nýr enskukennari inn í kennslustofu landsprófsdeildar pilta á Laugar- vatni haustið 1952, og þar til ég sá hann síðast á lífi í sept. sl. - við útför samkennara okkar, Mínervu Jónsdóttur. í huga mínum er Bene- dikt - og verður - margt i senn: Ögleymanlegur kennari og félagi, leiðsögumaður um heimsborgir, samkennari, starfsféiagi sem skóla- stjóri í rúma tvo áratugi, en framar öllu öðru nákominn tryggðavinur allt frá menntaskólaárum mínum hér á Laugarvatni og til síðustu stundar. Við fráfall hans er mér því miklu meira þakklæti í hug en ég tneysti mér til að tjá í orðum, hvað þá í stuttri minningargrein. Eins og mörgum er kunnugt var Benedikt slíkur afburða námsmaður að fátítt má telja, lauk m.a. mennta- skólanámi á tveimur árum með hárri ágætiseinkunn. Færni hans í tungu- málum var slík að hann kenndi, ef svo bar undir, jafnt frönsku sem latínu _auk ensku sem var aðalgrein hans. I kennslu er hann mér einna minnisstæðastur fyrir fljótskarpa yfirsýn sem nemendur hlutu að hríf- ast af. Hinnar miklu yfirsýnar og glöggskyggni naut hann í aðalævi- starfí sínu, skólastjórninni sem hann gegndi samfleytt í 32 ár, frá 1959 til 1991; tók sér þó eitt ár orlof, gerði sér þá sem endranær lítið fyr- ir og lauk meistaraprófi í máivísind- um og kennslufræði. Hann var sannur félagi nemenda sinna, þess nutum við, stúdentar ML1957, ríku- lega þegar hann var leiðsögumaður okkar og hrókur alls fagnaðar í svonefndri „útskriftarferð" til Lund- úna og Parísar þá um vorið. Skólastjórn Benedikts kynntist ég nokkuð álengdar. Óhætt er að fullyrða að hún hafi öðru fremur einkennst af metnaði fyrir hönd nemenda og kröfum til þeirra um að neyta hæfileika sinna og efla þá með ósvikinni ástundun. Víst er að framhaldsskólar gátu treyst því að nemendur með góðan vitnisburð frá Héraðsskólanum á Laugarvatni væru vel búnir undir lengra og erf- iðara nám. Þetta er að mínum dómi umhugsunarvert nú þegar ungling- ar 13-15 ára í sveitum landsins dreifast, a.m.k. sums staðar, í fá- mennar grunnskóladeildir sem örð- ugt hlýtur að vera að veita sambæri- lega kennslu, en samvinna eða jafn- vel sameining sveitarfélaga gæti auðveldað og úr bætt. Nábýii okkar Benedikts og sam- vinna við skólana á Laugarvatni er einkar ljúft í minningu. Vegna ólíkra aldurshópa við skólana reyndi stundum á mismunandi þarfir og kröfur. Skilningi Benedikts og yfir- sýn mátti ætíð treysta án þess að hann slakaði í nokkru á sanngjöm- um kröfum sínum. Aðildin að sam- eignum skólanna kallaði einnig á alls konar samskipti og samvinnu sem aldrei bar skugga á. Eins og aðrir vinir Benedikts naut ég gestrisni og ánægjustunda á heimili hans, miklu fleiri en þakkað verði sem vert væri. Þetta á bæði við skólaárin hér fyrrum og síðar nágrennið frá 1970. Hugur okkar hjóna og barna okkar er nú fyrst alls hjá Öddu konu hans, fullur þakklætis fyrir allt sem þau vom okkur frá fyrstu tíð. Við hugsum með einlægri hluttekningu til einka- sonar Benedikts, systkina og ann- arra sem honum vom nákomnir. Og Öddu sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Kristinn Kristmundsson. Fljótlega eftir að ég hóf nám í eldri deild Héraðsskólans á Laugar- vatni haustið 1948, heyrði ég talað um óvenjumikinn námsmann sem útskrifast hafði úr gagnfræðadeild skólans vorið 1946. Þetta var bóndasonur úr Borgarfirði vestra, Benedikt Sigvaldason frá Ausu. Og Laugvetningar fylgdust með þess- um gáfaða Borgfirðingi, sem lauk námi úr Menntaskólanum í Reykja- vík vorið 1949 eftir aðeins þijú ár, með hæstu einkunn sem skólinn hafði gefið fram til þessa á stúd- entsprófi úr máladeild. Að námi loknu í MR hélt Benedikt til náms í Leeds á Englandi og lauk þar BA-prófi í ensku og latínu vorið 1952. Nýbakaður frá virtum há- skóla kom hann til Laugarvatns og nú sem kennari. Við, sem þá stund- uðum nám við framhaldsdeildir Héraðsskólans á Laugarvatni, fögnuðum mjög að fá til kennslu afburðamanninn unga, Benedikt Sigvaldason. Þar tókst með kenn- H H N H H H H H H Erfidrykkjur L A N H H H H H H H H H H Sími 562 0200 ^ rtxxxxxxxiiin ara og nemendum vinátta sem ent- ist ævilangt. Eftir að við hurfum frá Laugar- vatni til framhaldsnáms, mörg við Háskóla íslands, héldum við sam- bandi við hann eins og kostur var og jafnan var mikil gleði ríkjandi er við náðum fundi hans. Það fór fyrir Bendikt eins og svo mörgum öðrum sem dvalist hafa á Laugarvatni í lengri eða skemmri tíma að staðurinn heillaði hann. Og hér vann hann sitt ævistarf upp frá því, fyrstu árin sem kennari við Héraðsskólann og jafnframt stunda- kennari við Menntaskólann að Laugarvatni, uns hann var ráðinn skólastjóri Héraðsskólans árið 1959. Því starfi gegndi hann til ársins 1991, að frátöldu árinu 1974-1975 er hann lauk MA-prófi frá sínum gamla háskóla í Leeds. Sá sem þessar línur ritar átti því láni að fagna að starfa undir hans stjórn í 29 ár. Það segir e.t.v. meira en mörg orð. Hann gaf sig algerlega á vald þess starfs sem hann var ráðinn til, af þeirri alúð og trú- mennsku sem honum var í blóð bor- in. Metnaður hans og samviskusemi fyrir hönd nemenda og skólans gáfu lítið færi á að sinna öðrum hugðar- efnum. En frístundir sínar notaði hann vel. Hann fór oft í langar göngur og gjörþekkti því Laugardal- inn og umhverfi hans. Hann hafði mikinn áhuga á sögu og landafræði og hafði yfir að ráða yfirgripsmik- illi þekkingu í þeim efnum. Ég hygg, að fyrir utan Olaf Hansson mennta- skólakennara og síðar prófessor við Háskóla íslands, hafi vart fundist fróðari maður í landinu um seinni heimsstyijöld svo dæmi sé nefnt. Sumar eftir sumar ferðuðust þau hjónin, Benedikt og Adda, um Évr- ópu og sóttu heim sögustaði sem hann var þá gerkunnugur af lestri, og nú seinast í fyrrasumar ferðuð- ust þau á bílaleigubíl um Bandarík- in þver og endilöng og hef ég Öddu fyrir því að leiðsögn hans hafí verið með þeim hætti að á betra verði ekki kosið. Benedikt hélst sérlega vel á starfsfólki og leyfi ég mér að full- yrða að það andrúmsloft er ríkti á kennarastofu Héraðsskólans á Laugarvatni hafi verið einstakt. Það er vissulega margs að minnast, sam- starfs og vináttu sem hvergi bar skugga á. Stærsta gæfa Benedikts í lífinu var hún Adda. Eiginkona, húsmóðir og félagi er hæfði stórbrotnum gáfumanni. Þar hallaðist hvergi á. Nú síðustu mánuði og vikur vék hún ekki frá hlið hans er hann háði sína baráttu við erfíðan sjúkdóm. Saman stóðu þau í blíðu og stríðu og sam- an voru þau þegar hinsta kallið kom. Bóndasonurinn er forðum vakti verðskuldaða athygli Laugdælinga er genginn á vit feðra sinna. Héðan úr Laugardal fylgja honum óskir um fararheill með þökk fyrir ógleymanlega samfylgd. Öddu og aðstandendum öllum vottum við Margrét dýpstu sarnúð. Óskar H. Ólafsson. 0 Fleirí minningargreinar um Benedikt Sigvaldason bíða birt- ingar ogmunu birtast í blaðinu næstu daga. E ilid ivkkjin Gott verð og lipur þjónusta S KÚTAN Hólshrauni Hafnarfirði sími: 555 1810 + Ástkær eiginmaður minn, JÓHANNESJÓHANNESSON tæknifræðingur, Skaftahlíð 15, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 19. október. Fyrir hönd aðstandenda, Ólafía Björk Davíðsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TRYGGVI BJARNASON, Lindargötu 66, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu- daginn 24. október kl. 15.00. Arnfríður Benediktsdóttir, Svanur Tryggvason, Ásdfs Garðarsdóttir, Jón Tryggvason, Guðbjörg Jóhannesdóttir, Anna G. Tryggvadóttir, barnabörn og barnabamabörn. Jón Björn Friðriksson, Bjarndís Friðriksdóttir, Steinþór Friðriksson, Gróa M. Böðvarsdóttir, Helgi Mar Friðriksson, Rósamunda Baldursdóttir og barnabörn hins látna. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA SVEINBJÖRNSDÓTTIR, Engihjalla 11, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstu- daginn 24. október kl. 10.30. Svava Hauksdóttir, Hilmar Adolfsson, Ragnheiður Hauksdóttir, Gunnar Guðmundsson, Sveinbjörn Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur bróðir okkar og frændi, HALLDÓR ÞÓRÐARSON frá Sæbóli, sem lést á Sjúkrahúsi Selfoss föstudaginn 17. október, verður jarðsunginn frá Kópavogs- kirkju í dag, fimmtudaginn 23. október, kl. 15. Sveinn Þórðarson, Halldóra Þórðardóttir og ættingjar. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu ok- kur hlýhug og samúð við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SVANBERGS FINNBOGASONAR, Höfðabraut 7, Akranesi. Minný Pétursdóttir, Lilja Svanbergsdóttir, Eyþór Eyþórsson, Rafn Svanbergsson, Þórdís Reynisdóttir, Pétur Svanbergsson, Stefanía Sigurðardóttir, Sigurbjörn Svanbergsson og barnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, FRIÐRIK T. BJARNASON málarameistari, ísafirði, verður jarðsunginn frá (safjarðarkirkju laugar- daginn 25. október kl. 14.00.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.