Morgunblaðið - 11.11.1997, Page 6

Morgunblaðið - 11.11.1997, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ 207 þúsund debetkort og tékkum fækkar Þrefalt færri tékkar gefnir út FÆRRI nota ávísanahefti en áður og að sama skapi fjölgar debet- kortum sífellt. Arið 1992 gáfu landsmenn út um 29,4 milljónir tékka, árið 1994 voru þeir rúm 21 milljón, en á síðasta ári var fjöldi tékka 9,8 milljónir. Debetkort í umferð voru tæplega 106 þúsund árið 1994, en fyrri hluta þessa árs voru þau rúmlega 207 þúsund tals- ins. Notkun kreditkorta hefur einn- ig vaxið jafnt og þétt. Samkvæmt Hagtölum mán- aðarins var heildarvelta útgefinna tékka um 1.185 millj- arðar króna árið 1992, en sú tala lækkar um leið og tékkunum fækkar. Árið 1996 var heildar- veltan komin niður í rúma 752 milljarða. Þróunin heldur áfram, því heildarveltan lækkaði um 2,6% milli 2. ársfjórðungs 1995 og 1996 og um 3,2% milli sömu tímabila í fyrra og í ár. Debetkortin voru ekki í hveiju veski árið 1994, þegar velta þeirra var tæpir 38 milljarðar. Ári síðar var veltan komin í tæpa 112 millj- arða og í fyrra var hún rúmir 147 milljarðar. Enn heldur þessi þróun áfram, því þegar borinn er saman 2. ársflórðungur 1996 og í ár, þá hefur veltan aukist um 19%. Á sama tímabili hefur notkun hrað- banka aukist um 19,6% og notkun debetkorta erlendis hefur aukist um 32,8%. Debetkortum heldur áfram að fjölga, því milli áranna 1996 og 1997 er aukningin 20,7%. Notkun kreditkorta hefur einnig aukist Notkun kreditkorta hefur einnig aukist hin síðari ár, þótt stígandi sé þar ekki jafn mikill og í debet- kortum, enda hafa kreditkortin verið mun lengur við lýði. Velta kreditkorta jókst þó um 12,2% milli 2. ársfjórðungs 1996 og 1997 og færslufjöldinn á sama tíma um 9%. Andlát GARÐAR H. SVAVARSSON GARÐAR H. Svavars- son kaupmaður lést á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur föstudaginn 7. nóv- ember síðastliðinn. Hann fæddist í Reykjavík hinn 29. júní 1935, sonur Sig- ríðar Guðmundsdóttur kaupkonu og Svavars Hafsteins Jóhanns- sonar bókara. Garðar ólst upp í Reykjavík og hóf þar ungur að árum verslunarstörf, en þegar mest var rak hann fjórar verslanir, kjötvinnslu og heildsölu. Þekktust verslananna var vafalaust Kjöt- verslun Tómasar Jónssonar á Laugavegi 2, sem Garðar keypti árið 1959, en þá verslun rak hann ásamt eiginkonu sinni allt til ársins 1982 er þau hjónin seldu hana. Þar var bryddað upp á ýmsum nýjungum eins og að útbúa matar- sendingar til íslendinga búsettra í öðrum löndum og sölu sérstakra þorrabakka. Hin seinni ár starfaði Garðar við uppbygg- ingu á Listasafni Flug- leiða og átti það starf hug hans allan. Garðar var lands- þekktur veiðimaður og þá sérstaklega stanga- veiðimaður. Hann stofnaði ásamt fleirum Veiðiklúbbinn Streng árið 1959, en hann hefur með Selá í Vopnafírði að gera. Einnig var Garðar stofnandi að Veiði- klúbbnum Þistlum sem verið hefur með Sandá í Þistilfírði til margra ára. Hin seinni ár dvaldi Garðar ásamt eiginkonu sinni stóran hluta úr ári hverju í Vopnafirði þar sem þau hjónin sinntu áhugamálum sínum. Eftirlifandi eiginkona Garðars er Hulda G. Guðjónsdóttir og eru börn þeirra Haukur Geir, við- skiptafræðingur og löggiltur fast- eignasali, Sigríður Huld, sjúkra- liði, og Heimir prentrekstrarfræð- ingur. Laugavegi 18 • Siml 515 2500 • Síðumúla 7 • Síml 510 2500 á nýjustu skáldsögu eins vinsælasta höíundar samtímans ii<a mt k 'íaWjsMvmXTjrffm íySBí 09 menning FRÉTTIR Morgunblaðið/Ágúst MINNA hefur verið að gera í síldarsöltun hjá Síldarvinnslunni í Neskaupsstað undanfarið en síðustu ár. Lakasta byrjun á sfld- arvertíð í tvo áratugi Aðeins tæplega þríðjungur af síldarkvótan- um hefur veiðst það sem af er vertíðar, Framleiðsla upp í samninga er á eftir áætlun. Fiskifræðingar telja að óvenjulegar umhverfísaðstæður valdi lítilli veiði. HAUSTVEIÐI á sfld hefur ekki farið verr af stað í um tvo ára- tugi. Síldarútvegsnefnd hefur gert samninga um sölu á 90 þúsund tonnum af síld á vestræna markaði og er framleiðslan þegar á eftir áætlun. Verulegt verðmætatap er framundan ef ekki rætist úr veið- inni. Veiðst hefur tæplega þriðj- ungur af heildarkvótanum. Verð á síld er hærra en áður og er t.a.m. verið að greiða 13 krónur fyrir kg af síld til mjölvinnslu og hefur verð- ið ekki verið hærra. Veiðst hefur 32.871 tonn af síld það sem af er þessari vertíð. Á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 49.900 tonn eða 17 þúsundum tonnum meira. Kvótinn núna er 100 þúsund tonn. Á síðustu vertíð veiddust 96 þúsund tonn af 110 þúsund tonna kvóta og 3 þúsund tonna kvóta sem færður var milli áranna 1995 og 1996. Þá veiddist talsverður hluti kvótans eftir ára- mót sem ekki er algengt. Meðalverð til skipa fyrir síld var á síðasta kvótaári 9,89 krónur á kílóið eða tæpur einn milljarður króna á vertíðinni. Síðan hefur orð- ið mikil hækkun á mjöli og lýsi þótt verð á vinnslusfld hafí hugsan- lega lækkað eitthvað. Því má búast við að meðalverð til skipa hafí hækkað frá í fyrra. Kemur í opna skjöldu Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, segir að þessi litla veiði nú komi mönnum í opna skjöldu vegna þess að haustvertíð hafí ekki brugðist með þessum hætti í 20 ár. Hann segir enga eina viðhlítandi skýringu á lítilli veiði. Helst sé litið til tiltekinnar þróunar á aldursdreifíngu í stofninum. Uppistaðan í stofninum sé eldri en venjulega, eða sex til átta ára göm- ul síld. Hún virðist kvikari og styggari síðastliðin tvö til þijú ár. Hún leggist á botninn og gefí sig ekki til í góðum torfum. Einnig er talið að það sé tiltölulega hlýtt í sjónum ennþá og því hálfgert sumarástand á stofninum ennþá. Jakob telur að veiði geti glæðst hvenær sem er. „Fyrir tæpu einu ári virtist eins og við hefðum náð mjög góðri mælingu á stofninum. Þá voru mæld tæplega 500 þúsund tonn. Þessar mælingar hafa reynst mjög vel og við höfum 20 ára reynslu í þeim, Við teljum því að það hljóti að vera nægjanlegt af síld í sjónum þótt hún sé ekki veið- anleg,“ sagði Jakob. Ekkert vart við síld Jakob segir að fregnir séu af kaldari botnstraum út af Austfjörð- um og síldin leggist í kuldann þar. Þar fékk Venus fullfermi í flotvörpu í annað sinn í síðustu viku. 20 skip hafa fengið leyfí til veiða með flot- vörpu í tilraunaskyni en færri hafa stundað slíkar veiðar. Hafrannsóknaskipið Bjami Sæ- mundsson er nú fyrir austan á síldarslóð og hefur ekki orðið var við sfld. Hjálmar Vilhjálmsson físki- fræðingur er um borð í Bjarna Sæmundssyni og segir hann að á slóðum þar sem síldveiði hefur oft verið góð hafí ekkert orðið vart við síld. Ekki varð heldur vart við sfld djúpt út af sunnanverðum Aust- fjörðum. „Þetta er óvanalegt miðað við undanfarin ár. Það var allt eðlilegt með þennan stofn í fyrrahaust þeg- ar hann var mældur. Það er alveg nýtt í sögunni ef þessi síld verður sjálfdauð á einu ári,“ sagði Hjálm- ar. Veruleg verðmæti í húfi Síldarútvegsnefnd hefur gert samninga um sölu á um 90 þúsund tunnum af síld. Nefndin hefur hald- ið að sér höndum við gerð frekari samninga vegna óvissunnar um veiðina en þar eru ákveðnir við- bótarsamningar mögulegir. Gunn- ar Jóakimsson, framkvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar, segir að búið sé að framleiða um þriðjunginn af því magni sem þegar hefur samist um. „Okkur hefur tekist að af- greiða upp í fyrstu sendingar. En ef það fer ekki að rætast úr veið- inni á næstunni stöndum við and- spænis því vandamáli að geta ekki staðið við þær skuldbindingar sem við höfum gert,“ segir Gunnar. Á síðustu síldarvertíð voru fram- leiddar um 160 þúsund tunnur, þar af töluvert magn til Rússlands en ljóst er að mun minna verður selt á Rússlandsmarkað á þessari ver- tíð. Ekki hefur dregið mikið úr sölu á aðra markaði. „Við erum þegar komnir töluvert á eftir áætlun með framleiðslu og það er mjög mikilvægt að fá fram- leiðslu í gang sem fyrst. Ljóst er að veruleg verðmæti eru I húfí ef veiðin glæðist ekki,“ sagði Gunnar. Hátt verð í bræðslu Forsvarsmenn síldarvinnslunnar fyrir austan eru, eins og vænta má, óánægðir með vertíðina það sem af er. Þeir eru þó vongóðir um að úr rætist innan tíðar. Freysteinn Bjarnason útgerðar- stjóri hjá Síldarvinnslunni í Nes- kaupstað sagði að veiði væri eitt- hvað örlítið að glæðast hjá trollbát- unum. Beitir fór í veiðiferð í gær- kvöldi með flotvörpu og Þorsteinn hefur einnig verið á flotvörpu. Hann sagði að menn væru ekki á eitt sáttir um veiðar í flotvörpu. Glögg skil væru á viðhorfum manna eftir því hvort þeir gætu verið með troll eða ekki. „Með hveijum deginum sem líður minnka möguleikarnir á góðri ver- tíð. Menn telja að það sé bara enn- þá sumar í hafínu og þegar sjórinn kólni safnist síldin saman og legg- ist í þennan dvala sem hún er vön að gera,“ sagði Freysteinn. A fímmta þúsund tonn af sfld hafa komið á land í Neskaupstað. Undanfarin ár hafí vinnslan byijað af fullum krafti síðast i september. Dauft sé yfir vinnustaðnum um þessar mundir en í Neskaupstað eru nokkrir tugir aðkomumanna sem vinna aðeins dagvinnuna. Freysteinn segir að verið sé að greiða á bilinu 10-15 krónur'fyrir kg. Bræðsluverðið sé allt upp í 13 krónur kg. „Það er langsamlega hæsta verð sem verið hefur á bræðslusíld. Menn eru þá í sárri þörf fyrir hráefnið og geta nýtt það til að lyfta upp mjölpartíum sem eru slakari. Menn eru líka klárlega í vandræðum með að framleiða upp í samninga. Það er afleitt ef ekki tekst að afgreiða upp í þá samn- inga sem gerðir hafa verið um síld- arafurðir því samkeppnin við Norð- menn og fleiri er svo hörð,“ sagði Freysteinn. Liðlega fímm þúsund tonn af síld hafa borist til Borgeyjar á Höfn í Homafírði. Halldór Árnason framkvæmdastjóri segir að mönn- um þyki þetta heldur lítið. Eðlilegt væri að rúmlega 10-15 þúsund tonn hefðu borist á land um þetta leyti árs. „Það er mjög alvarlegt ef sölu- samningar standast ekki og það hefur áhrif á stöðu okkar á mark- aðnum. Við vonum bara að úr þessu rætist,“ segir Halldór.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.