Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vel fer á með Jeltsín og Jiang 1 Kínaheimsókn Rússlandsforseta
Endi bundinn á landa-
mæradeilur ríkjanna
Peking. Reuters.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti og
Jiang Zemin, forseti Kína, bundu í
gær enda á langvinnar landamæra-
deilur landanna. Undirrituðu þeir
yfirlýsingu þar sem hnýttir eru
lausir endar á samkomulag sem
Kínverjar og Rússar gerðu með sér
árið 1991 en tók ekki gildi. Jeltsín
er í opinberri heimsókn í Kína og
hefur það vakið athygli hversu vel
fer á með leiðtogunum tveimui-. Er
talið að það eigi hvað mestan þátt í
bættum samskiptum þjóðanna.
Landamæri Kína og Rússlands
eru um 4.300 km löng og ná átökin á
þeim aftur í aldir. Síðast kom til
átaka þar árið 1969 er í brýnu sló á
milli herdeilda Alþýðuhersins og
Rauða hersins. Deilur þjóðanna
hafa staðið um hvar landamærin
eigi nákvæmlega að liggja á svæð-
inu frá Mongólíu og að Japanshafi.
Full sátt er hins vegar um 50 km
kafla sem liggur á landamæranum
frá Mongólíu og að Kazakhstan.
Er Jiang og Jeltsín höfðu undir-
ritað samkomulagið sagði forseti
Kína að það myndi „skapa trygg-
ingar fyrir friði, stöðugleika og ró á
landamæram Rússlands og Kína og
það mun þjóna þeim tilgangi að
styrkja góð samskipti nágrannanna
Rússa og Kínverja, auk öryggis á
svæðinu."
Jeltsín tók í sama streng og sagð-
ist nú telja sig þekkja forseta Kína
jafnvel og Kínverjar sjálfir. „Það er
Viðskipti einnig
á dagskrá
leiðtoganna
góður grannur virðingar og bættrar
vináttu okkar.“
Fundur Jeltsíns og Jiangs er
fimmti leiðtogafundur ríkjanna en
auk landamæradeilnanna er ætlun-
in að ræða hvemig ýta megi undir
viðskipti landanna. Undirrituðu
varaforseti Kína, Li Lanqing, og
Boris Nemtsov, aðstoðarforsætis-
ráðherra Rússlands, þrenna samn-
inga sem miða að því að ýta undir
viðskipti landanna, sem era svo lítil
að það veldur mörgum áhyggjum í
löndunum.
Nú nema þau um 50 milljörðum
ísl. kr. á ári en stefht er að því að
viðskiptin verði komin í um 140
milljarða ísl. kr. um aldamót.
Mikilvægastur er talinn samning-
ur um lagningu gasleiðslu frá Síber-
íu til Kyrrahafsstrandar Kína en
áætlað er að hún muni kosta sem
svarar til 860 milljarða ísl. kr. Auk
Kínverja munu Suður-Kóreubúar
og Japanir fá gas með leiðslunni.
„Nánir og ánægjulegir fundir"
Jeltsín hefur fengið höfðinglegar
móttökur í Kína en þetta er í þriðja
sinn sem hann kemur þangað i op-
inbera heimsókn. Við komu hans til
Peking á sunnudag féllust leiðtog-
arnir í faðma og spjölluðu um
barnabörnin sín en Jeltsín varð
fyrir skemmstu afi í fimmta sinn.
Jiang á tvö barnabörn.
Þykir hið vinsamlega andrúms-
loft í hrópandi andstöðu við fundi
Jiangs með bandarískum ráða-
mönnum í Bandaríkjaheimsókn
hans. Vart er þó við öðra að búast
þar sem Bandaríkjamenn og Kín-
verja greinir á um ótalmargt, þó
fyrst og fremst mannréttindi, en
Kínverjar og Rússar eiga að sama
skapi margt sameiginlegt.
Greinilegt þykir að Jeltsín og Ji-
ang era áfram um að sýna um-
heiminum hversu vel fer á með
þeim. Fóra þeir mörgum orðum
um vináttu sína, Jiang sagði fundi
þeirra „nána og ánægjulega“.
Reuters
Chuan Leekpai
tekur við í Tælandi
CHUAN Leekpai, leiðtogi Lýð-
ræðisflokks Tælands, sór á
sunnudag eið sem nýr forsætis-
ráðherra landsins og var myndin
tekin er hann heilsaði þingmönn-
um sem viðstaddir voru þá at-
höfn. Að sfjórninni standa átta
flokkar en Chuan tekur við af
Chavalit Yongchaiyudh, sem
sagði af sér í síðustu viku. Chuan
sagðist þurfa tíma til að leysa
brýnasta efnahagsvanda þjóðar-
innar áður en boðað yrði til
nýrra þingkosninga. Er því tæp-
ast búist við að efnt verði til
þeirra á næsta ári.
Nýfætt barn fannst í Disney World
Orlando. Reuters.
LÖGREGLA í Orlando í Flórída
leitar nú að móður nýfædds bams
sem fannst yfirgefið í klósetti í
skemmtigarðinum Disney Worid.
Barnið fannst eftir að kona
heyrði undarleg hljóð og rak aug-
un í blóð á gólfi snyrtingarinnar.
Við athugun fann hún barnið þar
sem það lá í vatninu í lokaðri kló-
settskálinni og með aðstoð
tveggja kvenna vafði hún það í
handklæði og hljóp út í leit að
hjálp.
Það var læknir, sem var í fríi
með fjölskyldunni, sem heyrði
köll kvennanna og kom til hjálpar.
Hann sagði eftir á að barnið hafi
sennilega ekki verið meira en
fimm mínútna gamalt er hann
fékk það í hendur og að það hafi
verið hætt komið. Hann sagðist
hafa notað penna til að hreinsa úr
koki þess og bundið skóreim um
naflastrenginn. Barnið, sem hef-
ur hlotið gælunafnið Jasmín
prinsessa, var þvínæst flutt á
sjúkrahús og því heilsast nú vel.
Lóðaúthlutun
Kársneshöfn — Kópavogi
Hafnarstjórn Kópavogsbæjar auglýsir eftirfarandi lóðir lausar til úthlutunar á
athafnasvæði Kársneshafnar:
Kársneshöfn
SKIPULAG
1.
Hafnsækinn iðnaður.
Fimm lóðir við Bakkabraut 6-14 undir eins til tveggja hæða iðnaðarbyggingar um 450 m2 að grunnfleti.
Vegghæð um 6,5 m. Stærð lóða 1.500 til 1.700 m2.
2.
Útgerð og fiskvinnsla.
Lóð við Bakkabraut 9 undir einnar hæða byggingu um 600 m2 grunnfleti fyrir útgerð og fiskvinnslu.
Vegghæð um 4,5 m og mænishæð 6,5 m. Stærð lóðar um 3.000 m2.
3'
Útgerð og fiskvinnsla.
Tvær lóðir, Bakkabraut 11 og 13, undir eins til tveggja hæða byggingar um 600 m2 að grunnfleti.
Æskileg landnotkun tengd útgerð og fiskvinnslu.
Vegghæð 7,0 m og mænishæð um 10,0 m. Stærð lóða 2.300 til 3.800 m2.
4.
Útgerð og fiskvinnsla.
Lóð við Bakkabraut 13a undir einnar hæða stálgrindarhús um 1.700 m2 að grunnfleti fyrir útgerð og
fiskvinnslu. Vegghæð 8,0 m og mænishæð 10,0 m. Stærð lóðar um 5.000 m2.
5.
Veiðafærageymslur og aðstaða fyrir smábátaeigendur.
Sex lóðir við Bakkabraut 7 (a-f) undir veiðafærageymslur og aðstöðu fyrir smábátaeigendur. Byggingar
yrðu að hluta til steinsteyptar, 10x10 m að grunnfleti.
Vegghæð um 5,5 m með möguleika á millilofti.
6.
Vörugeymslur. Inn- og útflutningur.
Um er að ræða eina Ióð, Bakkabraut 15, um 15.000 m2 sem hugsanlega mætti skipta í fleiri lóðir. Á
lóðinni má byggja allt að fjórar stálgrindarskemmur 58x24 m eða um 1.400 m2 að grunnfleti hver um sig
eða alls um 5.600 m2. Vegghæð er áætluð um 5,0 m.
Skipulagsuppdrættir, skipulags- og byggingarskilmálar svo og umsóknareyðublöð liggja frammi
á Tæknideild Kópavogsbæjar, Fannborg 2, III. hæð kl. 9.00—15.00 alla virka daga.
Uppdrátturinn hér til hliðar sýnir samþykkt deiliskipulag hafnarsvæðisins frá 1989. Óski
umsækjendur eftir frávikum frá því m.a. hvað varðar lóðarstærð og gerð bygginga mun
hafnarstjórn fjalla sérstaklega um þær með breytingar á gildandi deiliskipulagi í huga.
Nánari upplýsingar eru veittar á Bæjarskipulagi Kópavogs í síma 5541570.
Hafnarstjórínn í Kópavogi.