Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
SOME PIRATE5 JU5T I UÚONDER IF
lanped on THE BEACH! THEY'RE here
A REAL NA5TV TO LOOK FOR
L00KIN6 BUNCH! BURIEP TREA5URE..
rjC “7 p’ 0 1
V c )
THEY HAD CHOCOLATE, STRAWBERRY,
ANP MAR.8LE FUD6E, BUT l'M 6LAP
lUE ALL ORPEREP VANILLA.
r Ái
Einhverjir sjóræningjar Skyldu þeir vera hér Þeir áttu súkkulaði, jarðarbeija- og hnetuís, en ég
voru að stíga á land! Reglu- til að leita að földum er feginn að við skyldum allir panta vanilluis ...
lega ófrýnilegur hópur! fjársjóði?
JlorgtttílhltoíilSS
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Hætta á ferðum
Frá Gunnari Vigfússyni:
ÓGEÐSLEGIR atburðir eru að
gerast hér á landi. Útlendir auð-
hringir búa um sig með fjölgun
og stækkun álvera. Þeir boða inn-
göngu í Vinnu-
veitendas-
ambandið og
gera íslenskum
verkamönnum
erfitt fyrir í
kjarabarátt-
unni. Fyrir-
myndin er
vafalaust sótt
til þriðja
heimsins og
má nefna Suð-
ur- og Mið-
Ameríku í þeim efnum. Þar eiga
verkalýðsfélög erfitt uppdráttar
eða eru hreinlega bönnuð. Þekkt
er baráttan gegn Batista á Kúbu
og erfiðleikar þeir sem mætt hafa
Kúbumönnum eru engu líkir. Bar-
átta þeirra við volduga auðhringi
og verslunarbann Bandaríkja-
manna er mönnum víti til varnað-
ar. Sjaldnast hefur það orðið til
góðs að færa útlendingum at-
vinnureksturinn. Þeir hafa smátt
og smátt gengið á lagið og náð
raunstjórn á mörgum þessara
landa sem ánetjast hafa peninga-
veldi þeirra.
Mig furðar hve flokkar hér á
landi eru spenntir fyrir því að koma
íslenskum verkamönnum í óloftið
sem fylgir mengandi verksmiðjum.
Á meðan þessu fer fram í at-
vinnumálum okkar sigla frystitog-
arar okkar til útlanda með lítt
unninn físk sem vel mætti vinna
innanlands í vistvænum verksmiðj-
um.
Halldór Ásgrímsson er höfundur
kvótalaganna. Kvótar hafa lent í
eigu örfárra aðila og sífellt verður
algengara að byggðarlög missi
kvóta sinn þar sem menn hafa
ekki efni á að kaupa þá á upp-
sprengdu verði. Þetta ásamt fleiru
hefur stuðlað að síauknum flótta
frá landsbyggðinni. Er unnt að
hugsa sér meiri eyðibyggðastefnu
en Framsóknarflokkurinn hefur
stundað undanfarin ár?
Stóriðjunefnd hefur verið að
auglýsa í erlendum blöðum ódýrt
vinnuafl og rafmagn sem er allt
að því helmingur af því sem það
myndi kosta á hinum Norðurlönd-
unum. Allar þessar verksmiðjur
eiga að rísa á suðvesturhorni
landsins. Afleiðingin verður stór-
aukinn flótti frá landsbyggðinni
og var hann þó nógur fyrir.
Er hægt að hugsa sér stjórn-
málamenn sem fjálglega lýsa yfir
stuðningi við raunhæfa byggða-
stefnu í landinu en bregðast jafn-
skammarlega og framsóknarmenn.
I raun verður stefna þeirra eyði-
byggðastefna. Flokkurinn er
ábyrgur þar sem hann hefur haft
orkumálaráðherra að undanförnu.
Einum sem annt er um þjóðar-
hag.
GUNNAR VIGFÚSSON,
Njálsgötu 32, Reykjavík.
Leikur Pósts og
síma að tölum
Frá Tryggva Hjörvar:
ÉG ER ekki sterkur í talnafræði
frekar en stærsti hluti þjóðarinnar,
eins og við „höfum pappír upp á“.
Þar af leiðir að í öllu þessu talna-
flóði vegna Pósts og síma þef ég
gjörsamlega tapað áttum. Ég trúi
orðið síðasta ræðumanni hveiju
sinni, þó náttúrulega ekki forsvars-
mönnum Pósts og síma eða þeirra
yfirmanni.
Einhvern veginn finnst mér
þetta vera glæsileg sviðsetning
P&S. Ég ætla engum manni í for-
svari fyrir fyrirtæki að vera svo
vitgrannur að halda að sú hækkun
sem boðuð var á dögunum færi í
gegn um kerfið, og gengi í þjóð-
ina, orðalaust eða orðalítið. En
mér býður í grun að fyrri hækkun-
in hafi verið sviðsett, til þess að
endanleg hækkun virtist vera eft-
irgjöf eða lækkun gjaldanna. Styð-
ur það grun minn hvað nýjar tölur
lágu fljótt fyrir. Þetta hefur verið
leikið áður og virðist einnig hafa
tekist núna.
Einhver sagði að maður sem
stæði með annan fótinn í sjóðandi
vatni og hinn í ísköldu vatni hefði
það gott að meðaltali. Sama er að
segja um meðaltal P&S, það segir
ekkert um að hækkanirnar koma
verst niður á þeim er síst skyldi,
en lækka símakostnað innflutn-
ingsfyrirtækjanna að sama skapi.
Ekki veit ég hver er eðlileg af-
koma fyrirtækis af þessari stærð-
argráðu t.d. í sjávarútvegi með
frían kvóta. Það væri gaman að
sjá það á blaði. Því nefni ég frían
kvóta, að hliðstæða er ljósleiðarinn
sem P&S fékk gefins frá NATO,
þótt P&S tali um fyrirframgreidda
langtímaleigu á 3/8 strengsins,
hluta sem þeir koma aldrei til með
að þurfa að nota.
Mér er ekki ljóst hvað verður
um þessar 838 milljónir sem Sím-
inn hefur lagt til með Póstinum
samkvæmt töflu í Viðskiptablaðinu
5.11. ’97 en Pósturinn verður nú
að innheimta sjálfur hjá okkur
notendum. Ekki gufa þær upp, og
bara þær ættu að réttlæta raun-
verulega lækkun gjalda. Ég vil
biðja þá þingmenn, sem eru á þingi
okkar vegna, að fylgjast sérstak-
lega með því hvað verður um þessa
peninga.
Einn þingmanna vorra benti á
það í utandagskrárumræðu að P&S
þyrfti að reyta sem mest af okkur
meðan hann hefði aðstöðu til vegna
væntanlegrar samkeppni, og þetta
virtist hann segja í fullri alvöru.
Það er nú svo með mig eins og
fleiri, að vegna þeirra hundraða
milljóna sem P&S hefir greitt beint
til ríkisins á hverju ári, höfum við
litið á hluta símareikningsins sem
rekstrargjald og hluta sem skatt
til ríkisins, og þá liggur í hlutarins
eðli, að við breytinguna í einka-
fyrirtæki ætti skatthlutinn að falla
niður, en það er nú eitthvað annað.
TRYGGVIHJÖRVAR (eldri),
Austurbrún 35,104 Reykjavík.