Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 61
1
J
J
í
I
I
3
2
I
2
2
I
3
JÓN Halldór Bergsson, eigandi Jónshúss.
Jólabas-
ar í Gjá-
bakka
HINN árlegi jólabasar eldri
borgara í Kópavogi verður í
Gjábakka fimmtudaginn 13.
nóvember og verður opinn frá
kl. 13 til 19.
„Að undanförnu hafa kom-
ið óskir frá eldri borgurum
þess eðlis að þeir fái aðstöðu
til að selja handverk sitt sjálf-
ir og þá helst oftar en einu
sinni á ári. Til að koma til
móts við þessar óskir eldri
borgara var ákveðið að að
þessu sinni ættu þeir þess
kost að fá aðstöðu á „sölu-
borði“, og þar gætu þeir látið
þá ósk rætast að bjóða sjálfir
sitt handverk til kaups.
Ef vel tekst til er líklegt
að þetta verði upphafið að
„Handverksdögum" í Gjá-
bakka og ekki fjarri lagi að
álíta að annar „Handverks-
dagur“ verði í desember í Gjá-
bakka þar sem boðnar yrðu
jólavörur til kaups.
Hið hefðbundna vöfflukaffi
verður afgreitt í Gjábakka frá
kl. 14.30 til 17.30,“ segir í
fréttatilkynningu.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarapdi athugasemd frá Aðal-
steini Óskarssyni forstöðumanni
Byggðastofnunar á ísafirði:
„I framhaldi af símtölum frá íbú-
um í ísaljarðarsýslu í morgun óska
ég að tekin verði til athugunar
framsetning í frétt Morgunblaðsins
þann 9. _nóv. s.I. um fólksfækkun í
Norður-ísafjarðarsýslu, sbr. tilvitn-
un: „íbúum í Vestur- og Norður-
Lýst eftir stol-
inni bifreið
LÖGREGLAN í Grindavík lýsir
eftir bifreiðinni AL-309 sem stolið
var í Grindaík 6. nóvember sl. Bif-
reiðin er af gerðinni Nissan Van-
etta, sendibifreið, árgerð 1992 og
er hún hvít að lit. Þeir sem veitt
geta upplýsingar um afdrif bifreið-
arinnar eru beðnir um að hafa
samband við næstu lögreglustöð.
Jónshús
JÓNSHÚS hefur opnað versl-
un í Aðalstræti 9 í Reykjavík.
Jónshús sérhæfir sig í fram-
leiðslu á handunnum trévör-
um. Einnig selur Jónshús ís-
lensk kerti frá Blesastöðum á
Skeiðum og kertastjaka frá
Smíðagalleríinu undir pír-
amídakerti.
Verslunin er opin virka
daga frá kl. 11 -18 og laugar-
daga kl. 11-14. Eigandi Jóns-
húss er Jón Halldór Bergsson.
ísafjarðarsýslu hefur fækkað um
10% á tímabilinu og þar búa í dag
5.910 íbúar. I Norður-Isafjarðar-
sýslu hefur íbúum fækkað um 44
% á tímabilinu, sem er hæsta hlut-
fall í nokkurri sýslu á landinu."
Af samtölum við fólk má ráða
að það telur að þar með hafi íbúum
allrar sýslunnar að meðtöldum þétt-
býlisstöðum fækkað sem þessu
hlutfalli nemur. Hið rétta er að íbú-
um í hreinu dreifbýli eða utan þétt-
býlisstaða í ísafjarðarsýslu fækkaði
úr 207 í 116 eða 44%. Nánar tiltek-
ið fækkun í fyrrverandi Ögur-
hreppi, Reykjafjarðarhreppi, Naut-
eyrarhreppi og Snæfjallahreppi.
Ekki skal dregið úr hinni alvar-
legu stöðu sem þessi fækkun gefur
til kynna í jaðarbyggðum sýslunn-
ar. En ekki má heldur gefa færi á
að mistúlka þróun þessara mála,
en sem gefur að skilja eru allar
fréttir um fólksfækkun mjög við-
kvæmar og hafa mótandi áhrif á
afstöðu fólks til búsetu og í umflöll-
un um landshlutann í heild.“
íslandsmótið í
Netskák 1997
TAFLFÉLAGIÐ Hellir gengst fyrir
íslandsmótinu í Netskák nk. sunnu-
dag, 16. nóvember, kl. 20. Þetta er
í annað sinn sem mótið er haldið en
fyrsti íslandsmeistarinn og núver-
andi handhafi titilsins er Þráinn Vig-
fússon.
Mótið fer fram með dálítið óhefð-
bundnum hætti því að keppendur
tefla undir dulnefnum og vita þeir
því ekki hvort andstæðingur þeirra
er byijandi eða stórmeistari.
Tefltverður á evrópska skákþjón-
inum í Árósum. Þátttökutilkynning-
ar og fyrirspurnir sendist til Hall-
dórs Grétars Einarssonar á asb@is-
mennt.is og þurfa dulnefni að fylgja
þátttökutilkynningum. Nánari upp-
lýsingar verða birtar á íslensku
skáksíðunni: www.vks.is/skak/hellir
í vikunni.
Mótmæla hluta-
félagavæðingu
Á AÐALFUNDI Leigjendasamtak-
anna 25. október sl. var samþykkt
eftirfarandi ályktun:
„Aðalfundur Leigjendasamtak-
anna haldinn 25.10. 1997 ítrekar
mótmæli samtakanna gegn hlutafé-
lagavæðingu leiguíbúða borgarinnar
og hótunum meirihluta borgarstjórn-
ar um frekari leiguhækkanir og
skert öryggi leigjendanna. Fund-
urinn telur þetta sérstaklega alvar-
legt í ljósi þess að flestum biðlistum
varðandi félagslegar íbúðir hefur
verið lokað vegna ásóknar fólks í
slíkt húsnæði. Þetta er sérstakt
undrunarefni í ljósi stefnuyfirlýsing-
ar R-listans fyrir síðustu kosningar
um fjölgun leiguíbúða í eigu borgar-
innar.“
LEIÐRÉTT
Félagsbústaðir hf.
í FRÉTT um Félagsbústaði hf. í
Morgunblaðinu féll niður að um
hlutafélag væri að ræða. Eru hlut-
aðeigandi beðnir velvirðingar á mis-
tökunum.
Athugasemd
vegna fréttar um
fólksfækkun
Dagbók lögreglunnar
Hraðakstur og meiðingar
7.-10. nóvember
UM helgina voru 14 ökumenn
stöðvaðir vegna gruns um ölvun
við akstur og 38 kærðir vegna
hraðaksturs.
Aðfaranótt mánudags var bif-
reið sem stolið hafði verið fyrr
um kvöldið stöðvuð og tveir piltar
handteknir og fluttir á stöð.
Líkamsmeiðingar
Karlmaður missti stjórn á skapi
sínu í verslun í miðborginni á
sunnudag. Hann reyndi að stela
úr versluninni og kom síðan til
átaka við viðstadda. Maðurinn var
handtekinn og færður á stöð, en
á honum fundust ætluð fíkniefni.
Landasali tekinn
Ökumaður sem lögregla hafði
afskipti af reyndist hafa í fórum
sínum nokkra lítra af landa. Hann
var handtekinn og fluttur á lög-
reglustöð.
Veggjakrot
Tveir piltar voru handteknir á
laugardag þar sem þeir voru að
krota á veggi og þannig vinna
skemmdir. Piltanir voru fluttir á
lögreglustöð og síðan sóttir af
foreldrum.
Annað
Um miðjan dag á laugardag
barst lögreglu tilkynning um að
19 manna flugvél hefði gert að-
vart um að ekki fengist staðfesting
á að hægra vélarhjól læstist. Bilun-
in kom fram er vélin átti að lenda
í Vestmannaeyjum og var henni
snúið til Reykjavíkur. Viðeigandi
ráðstafanir voru gerðar vegna
nauðlendingar og allt lögreglulið
sett í viðbragðsstöðu. Vélin lenti
síðan og reyndist allt vera í lagi.
Talið er að bilun hafi verið í
ljósabúnaði mælaborðs vélarinn-
ar. í vélinni voru auk tveggja flug-
manna sex farþegar.
Að morgni mánudags voru fjór-
ir piltar handteknir við Hlemm
og fluttir á stöð er í fórum þeirra
fundust ætluð fíkniefni og tæki
til neyslu slíkra efna.
Dagbók
Háskóla
*
Islands
ALLT áhugafólk er velkomið á fyrir-
lestra í boði Háskóla íslands. Dag-
bókin er uppfærð reglulega á heima-
síðu Háskólans: http://www.hi.is.
Miðvikudagurinn 12. nóvember
Háskólatónleikar. Kvintett Corr-
etto: Eiríkur Örn Pálsson, trompet,
Einar S.T. Jónsson, trompet, Emil
Friðfinnsson, horn, Sigurður Þor-
bergsson, básúna, Þórhallur I. Hall-
dórsson, túba, halda háskólatónleika
í Norræna húsinu kl. 12.30. Verkin
sem flutt verða eru: Mini Overture
eftir W. Lutoslawski, Þrír madrígalar
eftir Greaves, Bennet og Wilbye og
Sonatine_ eftir E. Bozza. Aðgangur
400 kr. Ókeypis fyrir handhafa stúd-
entaskírteinis.
Kynnt verða þijú verkefni, sem
voru styrkt af Nýsköpunarsjóði og
unnin á Tilraunastöð HÍ í meina-
fræði að Keldum sl. sumar: Fræðslu-
fundurinn hefst kl. 12.30: Hrund Ýr
Óladóttur: „Könnun á vessabundnum
ónæmisþáttum barra (Dicentrarchus
labrax).“ Páll Freyr Jónsson: „Bakt-
eríur, sem taka þátt í næringarnámi
dýrasvifs." Hjalti Már Þórisson:
„Rannsókn á samsetningu arfgerða
príongensins í einni riðuhjörð."
Fimmtudagurinn 13. nóvember
Ásgeir Theódórs sérfræðingur í
meltingarsjúkdómum flytur fyrirlest-
ur í málstofu læknadeildar í sal
Krabbameinsfélags íslands í Skógar-
hlíð 8 kl. 16. Fyrirlestur sinn nefnir
hann: „Nýjar niðurstöður um árang-
ur af kembileit að ristilkrabbameini."
Dr. Páll Ólafsson flytur fyrirlestur
kl. 16.15 í stofu 101 í Lögbergi á
vegum Eðlisfræðifélagsins og ljallar
hann um: „Líkan fyrir eiginleika ál-
melma til notkunar við hönnun nýrra
efna.“
Helga Kress, prófessor í almennri
bókmenntafræði og forstöðumaður
Rannsóknastofu í kvennafræðum,
flytur fyrirlestur á vegum Rann-
sóknastofu í kvennafræðum kl. 12 í
stofu 201 í Odda og hefnir hún fyrir-
lesturinn: „En ég er hér ef einhver
til mín spyrði.“ Ljóð eftir íslenskar
konur 1876-1995.
Helgi Tómasson lektor flytur fyrir-
lestur í málstofu í hagfræði á 3ju
hæð í Odda kl. 16 og fjallar um:
„Verðmat fasteigna án skoðunar."
Föstudagurinn 14. nóvember
Sigmundur Guðbjamason prófess-
or flytur fyrirlestur í málstofu líf-
fræðistofnunar kl. 12.20 í stofu G-6
á Grensásvegi 12 um „Leit að líf-
fræðilega virkum efnum í lækninga-
jurtum“.
Sýningar
Stofnun Árna Magnússonar í
Árnagarði.
Handritasýning opin almenningi í
Árnagarði þriðjudaga, miðvikudaga
og fimmtudaga kl. 14-16. Tekið
verður á móti hópum á öðrum tímum
sömu daga, ef pantað er með dags
fyrirvara.
Landsbókasafn íslands - Háskóla-
bókasafn
Í ljósaskiptunum. Setning nor-
rænnar bókasafnsviku 10. nóv. kl.
18 og opnun sýningar um Egils sögu.
Prestaskólinn í Reykjavík 150 ára,
1847-1997, sýningin er til 29. nóv-
ember.
Námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar HÍ vikuna
10.-15. nóv.
10. nóv. kl. 8.30-12.30.
Dreifð vinnsla með DCOM. Kenn-
ari: Magnús Guðmundsson, tölvunar-
fræðingur hjá EJS hf.
10. nóv. kl. 8.15-16, 11., 13. og
14. nóv. kl. 8.15-12.15.
Gagnagrunnskerfi. Kennari: Berg-
ur Jónsson tölvunarfræðingur hjá
Landsvirkjun.
10. nóv. kl. 16-19.30.
Skattamál - nýlegir úrskurðir og
dómar. Kennari: Steinþór Haraldsson
lögfræðingur ríkisskattstjóra.
10. nóv. kl. 9-12 og 11. nóv. kl.
13-16.
Hið alþjóðlega samkomulag um
viðskipti og tollamál. Kennarar:
Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri
og Guðrún Ásta Sigurðardóttir deild-
arstjóri ríkistollstjóra.
10. og 12. nóv. kl. 16-20.
Notkun Excel 7.0 við fjármál og
rekstur I. Kennarar: Páll Jensson
prófessor í rekstrarfræðum við HÍ
og Guðmundur Olafsson hagfræð-
ingur, lektor við HÍ.
11. og 12. nóv. kl. 9-16.
Myndir barna - leið til betri skiin-
ings á barninu? Kennari: Rósa
Steinsdóttir BA í sálfræði og mynd-
þerapisti, starfar við barna- og ungl-
ingageðdeild LSP.
11. og 12. nóv. kl. 13-16.
Utreikningar á verði og kenni-
tölum. Kennari: Agnar Hansson lekt-
or HÍ og deildarstjóri hjá íslands-
banka.
11. nóv. kl. 8:30-12:30.
Tölvuvædd skjalastjórnun. Kenn-
arar: Hörður Olavson framkvæmda-
stjóri Hópvinnukerfa ehf. og Jóhanna
Gunnlaugsdóttir bókasafnsfræðing-
ur hjá Gangskör sf.
1., 18. og 25. nóv., 22. eða 23.
des. og 6. jan. (5x).
„Að vera eða ekki vera ..." Kenn-
arar: Melkorka Tekla Ólafsdóttir leik-
listarráðunautur Þjóðleikhússins,
Baltasar Kormákur leikstjóri Hamlets
og Bjarni Jónsson leikhúsfræðingur.
11. og 12. nóv. kl. 8.30-12.
Áfalla- og stórslysasálfræði.
Framhaldsnámskeið fyrir hjálpar-
aðila. Kennari: Lárus H. Blöndal sál-
fræðingur.
12., 14. og 15. nóv. kl. 8.30-12.30.
Gerð verkáætlana með aðstoð
tölvu. Kennari: Eðvald Möller rekstr-
arverkfræðingur, lektor TÍ og
stundakennari. HÍ.
12. og 13. nóv. kl. 16-19.
EES reglur um samkeppni, ríkis-
aðstoð og opinber innkaup. Kennar-
ar: Árni Vilhjálmsson hrl. og Björn
Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri.
13. og 14. nóv. kl. 13-16.
Milliverkan lyfja. Greining og með-
ferð. Kennari: Sveinbjöm Gizurarson
dr. í lyfjafræði og dósent við HÍ.
13., 17. og 20. nóv. kl. 16:30-19:00.
Flutningur máls og framkoma í
ræðustóli. Kennari: Margrét Páls-
dóttir málfræðingur, málfarsráðu-
nautur RÚV.
13. og 14. nóv. kl. 13-17.
CE-merkingar. Umsjón: Frey-
garður Þorsteinsson yfirverkfræð-
ingur efnistæknideildar ITÍ.
13. og 14. nóv. kl. 8.30-12.30.
Lög og reglugerðir um mengunar-
mál. Kennarar: Ingimar Sigurðsson,
umhverfisráðuneyti, Björn Friðfinns-
son ráðuneytisstjóri, Olafur Péturs-
son og Davíð Egilsson frá Hollustu-
vernd ríkisins.
14. nóv. kl. 9-16 og 15. nóv. kl.
9:30-12:30.
Ofvirkni barna og unglinga. Or-
sakir, greining og meðferð. Kennar-
ar: Páll Magnússon sálfræðingur,
Ólafur Guðmundsson barnageðlækn-
ir, Kristín Kristmundsdóttir félags-
ráðgjafi, Sólveig Guðlaugsdóttir geð-
hjúkrunarfræðingur, Sólveig Ás-
grímsdóttir sálfræðingur, Rósa
Steinsdóttir myndþerapisti, Málfríð-
ur Lorange sálfræðingur, Ragna
Freyja Karlsdóttir sérkennari og Sig-
ríður Benediktsdóttir sálfræðingur.
15. nóv. kl. 9-17.
Klamydíusýkingar. Kyn-, öndun-
arfæra-, augn- og æðasjúkdómar.
Umsjón: Ólafur Steingrímsson sýkla-
fræðingur, yfirlæknir á sýklafræði-
deiid Landspítalans, dósent við
læknadeild HI. Ásamt Ólafi kenna á
námskeiðinu Guðrún Guðmundsdótt-
ir hjúkrunarfræðingur, Kristín Jóns-
dóttir meinatæknir, smitsjúkdóma-
læknarnir Sigurður B. Þorsteinsson,
Sigurður Guðmundsson og Haraldur
Briem, húð- og kynsjúkdómalækn-
arnir Jón Hjaltalín Ölafsson og Stein-
grímur Davíðsson og Reynir Tómas
Geirsson prófessor.
Kirkjustarf
Grindavíkurkirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10. TTT starf kl 18.
fyrir 10-12 ára. Unglingastarf,
kl. 20.30 fyrir 8., 9. og 10. bekk.
Borgarneskirkja. Helgistund
þriðjudaga kl. 18.30. Mömmu-
morgnar í Félagsbæ kl. 10.
Landakirkja. Kirkjuprakkarar
7-9 ára kl. 17.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Vonarhöfn í safnaðarh. Strand-
bergi fyrir 10-12 ára kl. 17.
Digraneskirkja. Kirkjustarf
aldraðra. Opið hús kl. 11. Venju-
leg dagskrá.