Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 31
____________LISTIR_________
A mörkum sjálfsins
SJÁLFIÐ I-III.
MYNDLIST
Hafnarborg
MÁLVERK/SKÚLPTÚR
REBEKKA RÁN SAMPER
Opið 12-6 alla daga nema þriðju-
daga. Opið til 24. nóvember.
Aðgangur 200 kr.
REBEKKA Rán Samper sýnir
nú í fyrsta sinn á Islandi eftir tíu
ára dvöl á Spáni þar sem hún út-
skrifaðist frá listaakademíunni í
Barcelona og hefur haldið nokkrar
einkasýningar frá 1990. Sýning
hennar í Hafnarborg vekur þvi
nokkra forvitni, ekki síst fyrir þá
sök að hér er einn fulltrúi hinnar
listrænu Samper-fjölskyldu kom-
inn, dóttir Baltasars og Kristjönu
Samper.
Sýning Rebekku Ránar er all-
viðamikil og fjölbreytt, málverk,
skúlptúrar og myndaseríur ýmiss
konar, þar sem ólíkum stflbrögðum
er beitt. Það er ekki laust við að
suðrænn andi Miðjarðarhafsins
leiki um þessa sýningu, bæði í þeim
litatónum sem Rebekka velur sér
og í dramatískum efnistökum.
Hinn norræni andi er vanari því að
draga úr frekar en að auka í og
leggur meira upp úr því að hafa
taumhald á hlutunum og halda sig
innan ákveðinna marka. Rebekka
Rán er ekkert smeyk við að gefa
verkum sínum ákveðna þyngd og
áherslu og það er ekki laust við að
maður finni fyrir þeim myrka und-
irtón spm lengi hefur fylgt mynd-
list af Iberíuskaga.
Sýningin sem heild hefði getað
orðið sundurlaus ef ekki hefði kom-
ið til að í gegnum alla sýninguna er
Rebekka Rán að fást við sömu hug-
myndina sem gengur eins og stef í
gegnum öll verkin, útfært með
ýmsum tilbrigðum. Sama grunn-
formið, sem líkist einna helst lirfu
eða fiðrildapúpu, er þungamiðja í
nánast öllum verkunum, bæði mál-
verkum og skúlptúrum. Púpan er
nokkuð skýr myndlfldng sem gefur
færi á margs konar túlkunum, sem
sést greinilega af þeim titlum sem
verkunum eru gefin, eins og „Sjálf-
ið“ og „Sálir“.
Jafn óáþreifanlegt fyrirbæri og
sjálf hefur ekkert sýnilegt form, og
það verður því að lýsa því á óbein-
an hátt. Skapgerðareinkenni og
innra tilfinningalíf hafa listamenn
löngum tjáð með líkamsburði og
andlitsdráttum, eða litum og form-
um, en mér sýnist að Rebekka sé
frekar að leita eftir að draga fram
hinn ósættanlega mun á líkama og
sál. Púpan er ekki mynd af sjálfinu,
ekki sálin sjálf, heldur fremur
hylki sem geymir hinn innri mann.
Eftir myndunum að dæma er
Rebekka Rán að lýsa sambandi
milli sálar og líkama, sem er
þrungið spennu, ef ekki sársauka.
Eitt verkanna, sem heitir reynd-
ar „Sálir“, er eins og röð af litlum
svörtum nálapúðum, litlar loðnar
lirfur eða ígulker, þar sem nálarn-
ar snúa inn á við. I öðrum verkum
eru púpumar með rifjum sem
binda og þrengja að, þannig að
innihaldið virðist í þann mund að
sprengja af sér skelina. I röð
þriggja skúlptúra, sem hver um sig
heitir „Sjálfið", verður sálarhylkið
nánast að framandi óhugnaði, sem
gæti vel átt heima í hryllingsmynd
eða vísindaskáldsögu. Ein besta út-
færslan á hugmyndinni kemur
fram í myndröðinni „Uppruni",
sem er ekki eins dramatísk, en not-
ar efniviðinn á hugmyndaríkan
hátt. Innan einfalds tréramma og
kramdar bak við sandblásið gler
em púpulaga filtrúllur. Hér gefur
Rebekka Rán færi á því að líta á
myndverkið sjálft sem hylki utan
um sjálf listamannsins. I málverk-
unum er þó sú mynd sem er dregin
upp af sjálfinu aðeins mýkri, eins
og í „Samkennd", þar sem mun
bjartara er yfir og ekki sú þrúg-
andi innilokun sem er að finna víða
á sýningunni.
Rebekka Rán á auðsjáanlega
auðvelt með að tileinka sér ólík stfl-
brögð og leika sér með hvaða efni-
við sem er, en það er ekki laust við
að maður finni fyrir eirðarleysi
þegar litið er yfir sýninguna í heild
sem er eðlilegt hjá myndlistarkonu
sem er að leita fyrir sér og láta
reyna á krafta sína. Ég gæti trúað
að hún ætti enn eftir að finna sitt
eðlilega raddsvið í myndlistinni og
þar er að vænta góðra hluta frá
Rebekku Rán Samper.
Gunnar J. Arnason
Gyðingar ósáttir við nasistasýningu
Jerúsalem. The Daily Telegraph.
ÍSRAELSK myndlistarsýning, þar
sem áhorfendum er kynntur heimur
Evu Braun, ástkonu Adolfs Hitlers,
hefur vakið mikla reiði í Israel, sér-
staklega á meðal gyðinga sem lifðu
helfórina af. Listasafn Israels, sem
stendur íyrir sýningunni, vísar
gagnrýninni á bug og segir það
fjarri sanni að reynt sé að draga
fram mannlegu hliðina á Braun og
Hitler.
•SAKAMÁLAHÖFUNDURINN
Frederick Forsyth hefur fengið nóg
af skrifum og segist ekki ætla að
skrifa fleiri bækur. Frá því að bók-
in „Icon“ kom út hefur ekkert sést
á prenti eftir Forsyth, þrátt fyrir
óskir útgefenda og tryggra les-
enda. Hann segist vera búinn að
skrifa um allt sem máli skipti; til-
ræði, byltingar og njósnara. „Það
þarf eitthvað alveg sérstakt til að
kveikja áhuga minn að nýju en það
sama á við rithöfunda og nauta-
bana, þeir eiga rétt á því að draga
sig 6 sinnum í hlé. Eg hef aðeins
gert það tvisvar."
•SÖNGLEIKURINN „Dans
vampýranna“ var frumsýndur fyrir
skemmstu í Vín, við heldur fálegar
undirtektir. Hann er byggður á
kvikmynd Romans Polanskis, „Nótt
vampýranna" frá 1967, sem hefur
verið lýst sem gamansamri hryll-
ingsmynd. í dómi í bandaríska
tímaritinu Variety segir að vandinn
við söngleikinn sé sá að hann sé
hvorki skemmtilegur, æsandi né
kaldhæðnislegur, heldur blóðlítill
og tannlaus.
Listamaðurinn, Roee Rosen,
dregur hins vegar ekki dul á að til-
gangur hans sé að ráðast gegn því
banni sem verið hefur við því að
fjalla um helforina í ísraelskri mynd-
list. Sýningin er handrit að sýndar-
veruleikasýningu þar sem áhorfand-
inn er leiddur inn veröld Evu Braun.
Dregnar eru upp augnabliks-
myndir úr lífi hennar í texta á vegg-
spjöldum. Rosen fær áhorfendur til
dæmis til að ímynda sér náin kynni
Braun og Hitlers. „Ánægjuhrollur-
inn er nánast yfirþyrmandi þegar þú
finnur þetta fræga litla yfirvara-
skegg kitla þig á eyranu og hálsin-
um,“ segir á einu textablaðinu. Við
hlið hvers blaðs eru svart-hvítar
myndir þar sem nasistatákn og
klámfengnar myndir eiu tengd
myndum sem tákna eiga barnslegt
sakleysi.
rmanns Kr. Einarssonar
Ævintýri lífs míns -
er komið á markað.
Bókin er 408 bls. með myndum,
teikningum og nafnaskrá.
Verð 3.980 kr.
Skemmtileg bók
handa allri fjölskyldunni.
Upplag takmarkað.
Tryggði! þér eintak.
Sléttuvegi II. 103 Reykjavík.
Ævintýri lífs mfns fæst f bóka-
verslunum og hjá forlaginu.
Pöntunarsímar 5S3 6057,5812638.553 5382.
Amitsubishi
Sjónvörp og myndbandstæki í hæsta gæðaflokki
HIJÓMCO
Fákafen 11 Sími 568 8005
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
MITSUBISHI M-751
Mest selda STEREO
myndbandstæki á íslandi!
6 hausa Hi-Fi Nicam Stereo,
Myndvaki (Show View), NTSC
afspilun (USA kerfið), sjálfvirk
stöðvaleitun, góð kyrrmynd, ofl. ofl.
Dreifing Brum ehf.
sími 587 2244.
fyrir að standa
með okkur:
Versl. 10-11
Versl. 11-11
Versl. Hagkaups
Versl. Nóatúns
Þín verslun um land allt
Versl. KÁ
Fjarðarkaup
Versl. Blómavals
Grund, Flúðum "
Selið, Mývatni
Staðarkaup, Grindavík
Bónus, Holtagörðum
Blómaborg Hveragerði
Versl. Borg, Skagaströnd
Kf. Skagfirðinga
Kf. Þingeyinga
Kf. Héraðsbúa
Kf. Reyðarfirði
Kf. Fáskrúðsfirði
Kf. Borgamess
Versl. Samkaup
Versl. Sparkaup
Kf. V-Húnvetninga
Kf. Suðurnesja
mr‘
jfc&r.
f§
Blað allra landsmanna!
plnpnMð^i^