Morgunblaðið - 11.11.1997, Side 62

Morgunblaðið - 11.11.1997, Side 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ SOME PIRATE5 JU5T I UÚONDER IF lanped on THE BEACH! THEY'RE here A REAL NA5TV TO LOOK FOR L00KIN6 BUNCH! BURIEP TREA5URE.. rjC “7 p’ 0 1 V c ) THEY HAD CHOCOLATE, STRAWBERRY, ANP MAR.8LE FUD6E, BUT l'M 6LAP lUE ALL ORPEREP VANILLA. r Ái Einhverjir sjóræningjar Skyldu þeir vera hér Þeir áttu súkkulaði, jarðarbeija- og hnetuís, en ég voru að stíga á land! Reglu- til að leita að földum er feginn að við skyldum allir panta vanilluis ... lega ófrýnilegur hópur! fjársjóði? JlorgtttílhltoíilSS BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Hætta á ferðum Frá Gunnari Vigfússyni: ÓGEÐSLEGIR atburðir eru að gerast hér á landi. Útlendir auð- hringir búa um sig með fjölgun og stækkun álvera. Þeir boða inn- göngu í Vinnu- veitendas- ambandið og gera íslenskum verkamönnum erfitt fyrir í kjarabarátt- unni. Fyrir- myndin er vafalaust sótt til þriðja heimsins og má nefna Suð- ur- og Mið- Ameríku í þeim efnum. Þar eiga verkalýðsfélög erfitt uppdráttar eða eru hreinlega bönnuð. Þekkt er baráttan gegn Batista á Kúbu og erfiðleikar þeir sem mætt hafa Kúbumönnum eru engu líkir. Bar- átta þeirra við volduga auðhringi og verslunarbann Bandaríkja- manna er mönnum víti til varnað- ar. Sjaldnast hefur það orðið til góðs að færa útlendingum at- vinnureksturinn. Þeir hafa smátt og smátt gengið á lagið og náð raunstjórn á mörgum þessara landa sem ánetjast hafa peninga- veldi þeirra. Mig furðar hve flokkar hér á landi eru spenntir fyrir því að koma íslenskum verkamönnum í óloftið sem fylgir mengandi verksmiðjum. Á meðan þessu fer fram í at- vinnumálum okkar sigla frystitog- arar okkar til útlanda með lítt unninn físk sem vel mætti vinna innanlands í vistvænum verksmiðj- um. Halldór Ásgrímsson er höfundur kvótalaganna. Kvótar hafa lent í eigu örfárra aðila og sífellt verður algengara að byggðarlög missi kvóta sinn þar sem menn hafa ekki efni á að kaupa þá á upp- sprengdu verði. Þetta ásamt fleiru hefur stuðlað að síauknum flótta frá landsbyggðinni. Er unnt að hugsa sér meiri eyðibyggðastefnu en Framsóknarflokkurinn hefur stundað undanfarin ár? Stóriðjunefnd hefur verið að auglýsa í erlendum blöðum ódýrt vinnuafl og rafmagn sem er allt að því helmingur af því sem það myndi kosta á hinum Norðurlönd- unum. Allar þessar verksmiðjur eiga að rísa á suðvesturhorni landsins. Afleiðingin verður stór- aukinn flótti frá landsbyggðinni og var hann þó nógur fyrir. Er hægt að hugsa sér stjórn- málamenn sem fjálglega lýsa yfir stuðningi við raunhæfa byggða- stefnu í landinu en bregðast jafn- skammarlega og framsóknarmenn. I raun verður stefna þeirra eyði- byggðastefna. Flokkurinn er ábyrgur þar sem hann hefur haft orkumálaráðherra að undanförnu. Einum sem annt er um þjóðar- hag. GUNNAR VIGFÚSSON, Njálsgötu 32, Reykjavík. Leikur Pósts og síma að tölum Frá Tryggva Hjörvar: ÉG ER ekki sterkur í talnafræði frekar en stærsti hluti þjóðarinnar, eins og við „höfum pappír upp á“. Þar af leiðir að í öllu þessu talna- flóði vegna Pósts og síma þef ég gjörsamlega tapað áttum. Ég trúi orðið síðasta ræðumanni hveiju sinni, þó náttúrulega ekki forsvars- mönnum Pósts og síma eða þeirra yfirmanni. Einhvern veginn finnst mér þetta vera glæsileg sviðsetning P&S. Ég ætla engum manni í for- svari fyrir fyrirtæki að vera svo vitgrannur að halda að sú hækkun sem boðuð var á dögunum færi í gegn um kerfið, og gengi í þjóð- ina, orðalaust eða orðalítið. En mér býður í grun að fyrri hækkun- in hafi verið sviðsett, til þess að endanleg hækkun virtist vera eft- irgjöf eða lækkun gjaldanna. Styð- ur það grun minn hvað nýjar tölur lágu fljótt fyrir. Þetta hefur verið leikið áður og virðist einnig hafa tekist núna. Einhver sagði að maður sem stæði með annan fótinn í sjóðandi vatni og hinn í ísköldu vatni hefði það gott að meðaltali. Sama er að segja um meðaltal P&S, það segir ekkert um að hækkanirnar koma verst niður á þeim er síst skyldi, en lækka símakostnað innflutn- ingsfyrirtækjanna að sama skapi. Ekki veit ég hver er eðlileg af- koma fyrirtækis af þessari stærð- argráðu t.d. í sjávarútvegi með frían kvóta. Það væri gaman að sjá það á blaði. Því nefni ég frían kvóta, að hliðstæða er ljósleiðarinn sem P&S fékk gefins frá NATO, þótt P&S tali um fyrirframgreidda langtímaleigu á 3/8 strengsins, hluta sem þeir koma aldrei til með að þurfa að nota. Mér er ekki ljóst hvað verður um þessar 838 milljónir sem Sím- inn hefur lagt til með Póstinum samkvæmt töflu í Viðskiptablaðinu 5.11. ’97 en Pósturinn verður nú að innheimta sjálfur hjá okkur notendum. Ekki gufa þær upp, og bara þær ættu að réttlæta raun- verulega lækkun gjalda. Ég vil biðja þá þingmenn, sem eru á þingi okkar vegna, að fylgjast sérstak- lega með því hvað verður um þessa peninga. Einn þingmanna vorra benti á það í utandagskrárumræðu að P&S þyrfti að reyta sem mest af okkur meðan hann hefði aðstöðu til vegna væntanlegrar samkeppni, og þetta virtist hann segja í fullri alvöru. Það er nú svo með mig eins og fleiri, að vegna þeirra hundraða milljóna sem P&S hefir greitt beint til ríkisins á hverju ári, höfum við litið á hluta símareikningsins sem rekstrargjald og hluta sem skatt til ríkisins, og þá liggur í hlutarins eðli, að við breytinguna í einka- fyrirtæki ætti skatthlutinn að falla niður, en það er nú eitthvað annað. TRYGGVIHJÖRVAR (eldri), Austurbrún 35,104 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.