Morgunblaðið - 11.11.1997, Page 15

Morgunblaðið - 11.11.1997, Page 15
MORGUNB LAÐIÐ AKUREYRI ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 15 Starfsmanni Neytenda- samtakanna sagt upp Leikfélag Hörg- dæla stofnað Rympa á ruslahaugn- um sett upp LEIKFÉLAG Hörgdæla var stofn- að nú fyrir skömmu, en um árabil hefur leiklist verið stunduð í Hörg- árdal undir merkjum Ungmennafé- lags Skriðuhrepps eða leikdeildar þess félags. Starfsemi félagsins hef- ur verið fremur lítil á öðrum sviðum síðustu ár og því er eins farið hjá ungmennafélögum í nágrannasveit- unum. Til eflingar íþrótta- og æsku- lýðsstarfi á svæðinu var því gripið til þess ráðs að sameina ungmenna- félögin í von um aukinn kraft í stærra og fjölmennara félagi. Jafnframt var ákveðið að færa leikstarfsemina undan merkjum ungmennafélagsins og stofna sjálf- stætt leikfélag og var það stofnað á Melum fyrr í þessum mánuði. Nafn þess er Leikfélag Hörgdæla og er tilgangur þess að efla og iðka leik- list í Hörgárdal og nágrenni, standa fyrir námskeiðum í leiklist, vera vettvangur fyrir hvers konar hóp- vinnu á því sviði og standa fyrir leiksýningum. Einar Karl Haraldsson formaður Bandalags íslenskra leikfélaga mætti á stofnfundinn og kynnti m.a. starfsemi bandalagsins og ræddi al- mennt um leiklist í landinu sem víða er ótrúlega öflug. f stjórn Leikfélags Hörgdæla voru kjörin Guðmundur Stein'dórs- son formaður, Valgeir Anton Þóris- son, varaformaður, Unnur Ai’n- steinsdóttir, ritari, Hermann Ama- son, gjaldkeri og Fanney Valsdóttir meðstjómandi. t Ákveðið hefur verið að setja upp á Melum í vetur barnaleikritið Rympu á ruslahaugnum eftir Her- dísi Egilsdóttur. Leikstjóri verður Sunna Borg. Stefnt er að því að hefja æfingar af fullum krafti strax eftir áramót og frumsýna seinni- hluta febrúar. Ök alltof hægt FLEST afskipti lögreglu vegna ökuhraða eru vegna þess að of hratt er ekið en þó kemur fyrir að hafa þarf af- skipti af mönnum sem aka of hægt og tefja þannig aðra vegfarendur. Lögregla hafði þannig af- skipti af ökumanni sem ók á 20 kílómetra hraða á klukku- stund eftir Þingvallastræti og hafði hann myndað 15-20 bíla röð á eftir sér. Var hann með kerru í eftirdragi án tilskilins ljósabúnaðar og með farm sem skyggði á afturljós bif- reiðarinnar. Lögregla vill benda öku- mönnum á að trufla ekki aðra umferð að óþörfu og haga akstri sínum þannig að hún gangi greiðlega. Þá bendir hún einnig á að kerrur þurfi að vera búnar ljósum. Námskeið í jólaskreyt- ingum HJÁ Blómabúð Akureyrar í Hafnarstræti verður á næst- unni boðið upp á námskeið í jólaskreytingum. Námskeiðin fara fram á kvöldin og eru þau ætluð kon- um og körlum á öllum aldri. Geta bæði hópar og einstak- lingar skráð sig en leiðbein- andi verður Svanhvít Jóseps- dóttir. VILHJÁLMI Inga Árnasyni, starfsmanni Neytendasamtakanna á Akureyri, var sagt upp störfum fyrir helgi og þess jafnframt óskað að hann léti þegar af störfum. Vil- hjálmur Ingi er 2. varaformaður framkvæmdastjórnar Neytenda- samtakanna og formaður Neyt- endafélags Akureyrar og nágrennis. Jóhannes Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Neytendasamtak- anna, sagði að ákvörðun um upp- sögn Vilhjálms Inga hafi verið alfar- ið sín en hann hafi þó áður rætt við aðila í framkvæmdastjórn og stjórn Neytendasamtakanna. „Þetta skref sem ég tók var erfitt en nauðsyn- legt vegna samstarfsörðugleika og trúnaðarbrests. Málið er erfiðara vegna þess að viðkomandi er 2. varaformaður og situr í stjórn Neytendsamtakanna." Vantraust á stjórnarfundi? Næstkomandi laugardag hefur verið boðaður stjórnarfundur Neyt- Framtíð Kísiliðjunnar Ný tækni við dælingu Mývatnssveit. Morgunblaðið. ÁHUGAFÓLK um framtíð Kísiliðj- unnar við Mývatn boðaði til fundar í Hótel Reynihlíð 9. nóvmeber sl. Bjarni Bjarnason fyn-verandi framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar flutti mjög fróðlegt erindi um starf- semi fyrirtækisins, forsöguna, stöð- una í dag, nýjar vinnsluaðferðir. Hann lagði sérstaka áherslu á nýja tækni við dælingu úr botni Mý- vatns sem gert er ráð fyrir að verði reynd á næsta ári. Með henni er dælt þynnra lagi en áður og undan efsta gróðurlaginu sem síðan leggst yfir botninn á ný. Þess er vænst að ný hráefnisöflun Kísiliðjunnar reyn- ist vel og fyrirtækinu verði gert kleift að fá öruggt rekstrarleyfi til lengri tíma með dælingu utan Ytri- Flóa. Bjarni gat þess að búið væri að samþykkja að setja upp nýjan hreinsibúnað á útblástur verksmiðj- unnar. endasamtakanna og sagði Jóhannes að þar yrði fjallað um þetta mál. „I stjórn situr 21 aðili af öllu landinu og ég ætla mér ekki að gefa mér niðurstöðu fundarins fyrirfram," sagði Jóhannes. Vilhjálmur Ingi sagist hafa heyrt af því að á fundin- um á laugardag verði lögð fram vantrauststillaga á störf sín innan stjórnar. Jóhannes sagði að Neytendasam- tökin hefðu gert samning við verka- lýðsfélög á Eyjafjarðarsvæðinu um neytendastarf og yrði að sjálfsögðu staðið við hann af hálfu Neytenda- samtakanna. „Við munum innan mjög skamms tíma opna nýja skrif- stofu í Alþýðuhúsinu á Akureyri og við erum að leita að starfsmanni. Neytendasamtökin munu því eftir sem áður reka skrifstofu á Akur- eyri.“ Fór með gögnin aftur Vilhjálmur Ingi hefur verið í 80% starfi hjá Neytendasamtökunum og sagði Jóhannes að ekki hefði verið TVÍBURABRÆÐURNIR Pétur og Guðmundur Karl Guðmundssynir komust í fréttirnar fyrir réttum tveimur árum en þeir fæddust í Grænlandi 10. nóvember 1995. Þeir voru fyrirmálsbörn og var öðrum vart hugað líf. Læknir frá Land- spítalanum sótti þá í sjúkraflugi og nutu þeir aðhlyimingar þar. Tvf- rætt um neina breytingu þar á með nýjum starfsmanni. Ef breyting verði þar á, verður það mál rætt við Neytendafélag Akureyrar og ná- grennis vegna ákvæða sem eru í samstarfssamningi Neytendasam- takanna og félagsins á Akureyri. Vilhjálmi Inga hafði verið gert að skila gögnum Neytendasamtakanna til verkalýðsfélagsins Einingar og fór hann í það mál í gærmorgun. „Þar sem ekki hafði verið ráðinn starfsmaður í minn stað, tók ég þá ákvörðun sem varaformaður Neyt- endasamtakanna, yfirmaður Jó- hannesar Gunnarssonar og með málefni landsbyggðarinnar á minni könnu, að þessi gögn væru betur komin í minni vörslu og fór því með þau aftur." Vilhjálmur Ingi sagðist jafnframt vona að ný skrifstofa með nýjum starfsmanni yrði opnuð á Akureyri. „Ég mun svo eins og áður vera áfram á skrifstofu Neytendafélags Akureyrar og nágrennis eins og ekkert hafi i skorist." burasnáðunum hefur vegnað vel og svona litu þeir út þegar þeir voru að baða sig í balanum í sumarbú- stað norðirr í Aðaldalslirauni þar sem þeir dvöldu ineð foreldrum sín- um, Maríu Vigfúsdóttur og Guð- mundi Magnússyni í sumar. Þeir búa nú á Akureyri og héldu upp á tveggja ára afmæli sitt í gær. Handtekinn þegar hann vitjaði hassins TVÖ ííkniefnamál komu upp hjá rannsóknardeild lögregl- unnar á Akureyri um helgina. I öðra tilvikinu lagði lög- regla hald á sendingu sem barst norður en í henni vora um 10 grömm af hassi. Móttakandinn var handtekinn er hann vitjaði efnisins og við- urkenndi hann við yfirheyrslu að hafa pantað efnið úr Reykjavík. Hassreykingar í heimahúsi I gær, mánudag, vora tveir menn handteknir vegna gruns um fíkniefnaneyslu, öðram var sleppt fljótlega, þar sem talið er að hann sé saklaus, en hinn viðurkenndi að hafa verið við hassreykingar í heimahúsi um helgina. Við húsleit heima hjá honum fundust leifar af fíkniefnum og tæki og tól til fíkniefnaneyslu. Manninum var sleppt að lokinni yfir- heyrslu en talið er að fleiri tengist málinu og er það í rannsókn. Ók yfír fætur stúlkunnar EKIÐ var yfir fætur stúlku sem stóð í þvögu fólks í Skipa- götu eftir að skemmtistöðum var lokað aðfaranótt laugar- dags. Hópur fólks hafði safn- ast saman svo sem títt er eftir lokun öldurhúsa en nokkur fjöldi fólks var í miðbænum um helgina. Stúlkan var flutt á slysadeild en mun ekki hafa slasast alvarlega í óhappinu. Þá var ekið á 6 ára gamla stúlku í Skarðshlíð á fóstu- dagskvöld, en hún mun hafa hlaupið út á götuna í veg fyrir bfl sem ekki náði að stöðva í tæka tíð vegna mikillar hálku. Var stúlkan flutt á sjúkrahús en mun ekki hafa hlotið alvar- lega áverka. Dýrar rúður brotnar NOKKUÐ hefur borið á því í haust að rúður í strætisvagna- skýlum í bænum hafa verið brotnar. Búið er að brjóta fjórar slíkar rúður nú á haust- dögum, en rúðumar sem era úr sérstöku gleri kosta hver um sig 50 þúsund krónur. Mikill hvellur myndast þeg- ar rúðurar brotna og biður lögregla þá sem verða varir við hávaðann að láta vita svo hafa megi hendur í hári þeirra sem þennan ljóta leik stunda. Þeim yrði gert að greiða rúð- urnar, en þannig má minnka rekstrarkostnað vagnanna. Finnland í brennidepli NORRÆN sögustund verður á Amtsbókasafninu á Akur- eyri í dag, þriðjudag, kl. 10.30 en nú stendur yfir norræna bókasafnsvikan I Ijósaskipt- unum. Finnland verður í sviðsljósinu í dag og á þrjúbíó sýningu safnsins verður sýnd myndin „Pessi ja Illusia“ með finnsku tali og Múmínálfarnir með íslensku tali. Lesið verð- ur upp kl. 17 á finnsku og ís- lensku úr Kalevala. Hildur Tryggvadóttir syngur Sibelius og boðið verður upp á kaffi og finnskt meðlæti. „í boði sveitarstjórnar“ KABARETTINN „í boði sveitarsljórnar" verður sýnd- ur í Freyvangi um næstu helgi, laugardagskvöldið 15. nóvember. Hefð er fyrir slíkum kabarettsýningum í Eyjafjarðarsveit, en gjarnan er gert góðlátlegt grín að málefnum líðandi stundar bæði í sveitinni og al- mennt á Iandsbyggðinni og er af nógu að taka um þessar mundir. Eins og sjá má á myndinni koma sein- heppnar gæsaskyttur við sögu og eflaust verður kom- ið inn á málefni tengd hrossum og hestamennsku. Að lokinni sýningu verður dansleikur með Hljómsveit Illuga. Forsala aðgöngumiða fer fram fimmtudags- kvöldið 13. nóvember frá kl. 20 til 22 í Freyvangi. Tvíburasnáðarnir tveggja ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.