Morgunblaðið - 11.11.1997, Síða 32

Morgunblaðið - 11.11.1997, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Juliana Gottskálks dóttir Forstöðu- maður safnsviðs •JÚLÍANA Gottskálksdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður safnsviðs Listasafns Islands. Hún er listfræðingur og arkitekt að mennt og hefur gegnt starfi deildarstjóra við Listasafnið und- anfarin níu ár. Hún er fædd 1947 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík árið 1967. Hún lauk fil.kand.- prófi frá Lundar- háskóla 1973, stundaði nám við Parísarháskóla 1973-1974 og doktorsnám við Lundarháskóla 1978- 1980. Árið 1986 lauk hún prófi frá Arkitektaskóla Listahá- skólans í Kaupmannahöfn. Auk starfa við Listasafn íslands hefur Júlíana gegnt starfi safnvarðar við Árbæjarsafn og deildarstjóra hús- vemdardeildar Þjóðminjasafns Is- lands. •ÓLAFUR Gíslasonhefur verið ráðinn sérfræðingur við Listasafn íslands og mun hefja störf 1. des- ember nk. Ólafur er fæddur 1943. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík 1963. Stundaði nám í listasögu og félagsfræði Óiafur við Háskólann í Gislason Lundi 1963— 1964, Listaháskólann í Kaup- mannahöfn 1964-1966 og Lista- akademíuna í Róm 1966-1969. Ólafur starfaði sem blaðamaður 1979- 1991, fararstjóri með Ítalíu sem sérgrein og kennari í listasögu m.a. við Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands 1991-1997. Ólaf- ur hefur birt fræðilegar ritgerðir um íslenska samtímalist í tilefni sýninga á vegum Listasafns Reykjavíkur og Listasafns íslands. Tónlist framtíðarinnar? Flutningnr í hæsta gæðaflokki TONLIST Langholtskirkja KÓRTÓNLEIKAR Kór Islensku óperunnar flutti íslensk og erlend söngverk og kórþætti úr frægum óperum. Einsöngvari var Ólöf Kolbrún Harðardóttir en stjóraandi Garðar Cortes og undirleikari Claudio Rizzi. Laugardagurinn 8. nóvember, 1997. KÓR íslensku óperunnar hefur fyrir löngu sannað ágæti sitt og um árabil sett svip sinn á flestar sýningar íslensku óperunnar, með miklum ágætum, og einnig staðið fyrir glæsilegum flutningi stærri kórverka, eins og t.d. Carmina Burana, eftir Carl Orff, sem vakti mikla og verðskuldaða athygli. Tónleikamir hófust með flutn- ingi íslenskra kórlaga, sem öll voru vel flutt. Mótun stjórnandans er oftlega frjáls í hryn og stundum eru tónhendingarnar helst til að- skildar þótt vel fari oft á að lagið „andi“, í stað þess að syngja allt í niðurnjörvuðum hryn. I heild var túlkunin mjög fallega mótuð í lög- um eins og Gloria tibi, Sofðu unga ástin mín en þó sérlega glæsilega í Maístjömunni. Hið undurfagra lag Sigfúsar Einarssonar, Sefur sól hjá ægi og Smávinir fagrir, eftir Jón Nordal, vom bæði mjög vel sungin og einnig sálmurinn Fyrirlátið mér, úr Galdra-Lofti, sem var glæsilega mótaður. Ólöf Kolbrún Harðardóttir var einsöngvari í Frið á jörðu, eftir Áma Thorsteinsson, Ave Mar- íunni, eftir Sigvalda Kaldalóns, Panis anglicus, eftir Cesar Franck og kvöldsöng Mozarts, Laudate Domine og þarf ekki að fara mörg- um orðum um glæsilegan söng hennar og kórsins. Eftir hlé var fyrst sótt til Wagners og sungin gestakveðjan, Freudig begriissen, úr Tannháus- er og síðan Wach auf, úr Meista- rasöngvurunum og voru báðir kórþættirnir glæsilega sungnir af kórnum og vaknar sú spurning hvort ekki sé kominn tími til að flytja þessar ópemr hér heima. Heldur var leikur píanistans, Claudio Rizzi, á köflum nokkuð grófur en í annan stað brá svo undarlega við, að leikur hans í forspilum og millispilum var oft mjög til baka haldandi og jafnvel óviss, Mótettan Hear my prayer, eftir Mendelssohn var ágætlega sungin af Ólöfu Kolbrúnu Harðar- dóttur og margt var vel gert hjá kórnum þótt merkja mætti, að ekki ríkti jafnmikil sátt í túlkun og í öðrum verkefnum kórsins á þessum tónleikum. Næsta verkefni var einn fræg- asti kórþáttur Verdis, Va, pensi- ero, úr Nabucco, sem kórinn söng mjög vel. Ólöf Kolbrún flutti ásamt karlaröddunum La vergine degli angeli úr Vald örlaganna. Sam- söngsþáttur þessi er þannig gerð tónsmíð, að hann er áhrifamikill í því samhengi, sem honum er ætlað í óperunni en einhvern veginn ekki alls kostar heppilegur sem kon- sertverkefni. Til þess er form kaf- lans of veikt, þó tónlistin sé að öðru leyti fögur og væri mjög vel flutt. Ölöf lauk sínum glæsilega söng með Inneggiamo il Signore, úr Cavalleria Rusticana, eftir Mascagni. Kór íslensku óperunnar er frá- bær sönghópur og mótun stjóm- andans, Garðars Cortes, gerir kröfur um veikan, vel hljómandi söng, upp í mesta styrk og leggur auk þess áherslu á sérstæða hend- ingamótun og túlkun, oft mótaða af sterkum tilfinningaandstæðum. Slíkur söngmáti gerir miklar kröf- ur til kórsins, sem er skipaður góðu söngfólki og var flutningur- inn samkvæmt því, í hæsta gæða- flokki. Jón Ásgeirsson Stytturnar í Prag hreinsaðar ÞESSI stytta eftir tékkneska myndhöggvarann Otto Gut- freund (1889-1927) komst ekki hjá bursta og sápu verkamanns í Prag. Þar er unnið hörðum höndum að því að gera upp Adriu-torgið í miðborginni og eru stytturnar við torgið hreins- aðar vel og vendilega. Reuters Pólskt menningar- kvöld í Gerðubergi MENNINGARFÉLAGIÐ Pol- onia hittist í Gerðubergi í kvöld, þriðjudag kl. 20, til að fagna þjóðhátíðardegi Pól- lands. Flutt verða ljóð og pólsk tónlist. TÖNLIST Tjarnarbíö KAMMERTÓNLIST Flutt voru verk eftir Kjartan Ólafs- son. Flyljendur voru höfundurinn, Pétur Jónasson, Hilmar Jensson og Matthías Hemstock. Föstudagurinn 7. nóvember 1997. RICHARD Wagner samdi rit- gerð, þar sem hann spáði um tón- list framtíðarinnar og eru sagn- fræðingar sammála um að meistar- inn hafi þar gert sig sekan um ótrúlega glámskyggni. Þeir sem vilja afsaka mistök hans, segja hann hafa byggt niðurstöður sínar á þróun tónlistar og miðað fram- hald hennar við svipuð skilyrði og þau sem hann þekkti af sögunni og eigin reynslu. Undirtitill tón- leika Kjartans Ólafssonar í Tjam- arbíói var „Tónlist 21. aldarinnar" og þótt stutt sé til aldamóta, er varasamt að hægt verði að sjá fyrir hversu háttað verði tónsköp- un á komandi öld. í dag er staðan sú, að hljóð- og myndritunartækn- in ásamt ótrúlegum miðlunar- möguleikum hefur skerpt alla óvissu um framvindu listsköpunar. Sú menntun og' einstaklings- bundna leikni, sem fyrrum var tal- in mikilvæg, er að miklu leyti orð- in óþörf, vegna þess að nú er hægt að útfæra leikniþáttinn með til þess gerðum tækjum, er vinna með milljónföldum hraða mannsins og bjóða upp á ótrúlega marg- brotna og áhrifamikla möguleika í úrvinnslu hugmyndanna. Til að nefna dæmi, getur sá tónlistar- maður, sem lítið kann til verka í píanóleik, samið vandasamt píanó- verk því tölvan sér nú um leiktæk- niútfærsluna. Raftónlistin, sem er bæði flutt á hljóðgerfla og leikin á raftengd hljóðfæri, er enn á tilraunastigi og í raun er hið algjöra frelsi það sem heftir eiginlega þróun hennar. Stöðlun hljóðmyndarinnar þýddi ekki að um leið væri hugmyndaleit- inni hætt, heldur að þróa mætti margbrotnari leiktækni, er aftur yki á möguleika í sköpun og túlk- un. Því þróun leiktækninnar er oftast sá þáttur sem minnst fer fyrir í nútímatónlist og var í raun einkennandi fyrir þessa tónleika, að flytjendur fengu lítil tækifæri til að sýna leikni sína, sem er í raun óaðskiljanlegur hluti upplif- unar á tónlist. Þetta tæknilega kraftleysi reyna menn að yfirvinna með hljómkraftinum einum, sem vissulega er einn af áhrifaþáttun- um en ekki sá eini. Kjartan Ólafsson hefur um ára- bil fengist við raf- og tölvutónsmíð- ar og komið sér upp tónsmíðafor- riti, sem hann nefnir Calmus. Á tónleikum, sem haldnir voru í Tjamarbíói sl. föstudag, voru flutt verk sem bæði vora forunnin á tölvu og leikin á raftengd hljóð- færi, tvo gítara, tölvuhljómborð og slagverk. Fyrsta verkið var örstutt brot úr eldra verki, Tilbrigðum við jómfrú, sem Pétur Jónasson lék, þar við tók án hlés samleiksverkið Tvíhljóð II, sem upphaflega er unnið á tölvu en síðar bætt við einleiksgítar, rafgítar, slagverki og tölvuhljómborði. Þama er unnið með „nákvæmlega útreiknaða tón- list“, sem unnin var með aðstoð tónsmíðaforritsins Calmus, og hljóðfæratónlist, sem er að miklu leyti leikin af fingrum fram. Einn af aðalspámönnum tilraunatónlist- ar, Pierre Boulez, segir tónlist að- eins vera há og lág hljóð, í mismun- andi hröðu ferli, tvinnuð saman við blæbrigði og andstæður í styrk (tíðni, tími, blær og styrkur). Það má segja að þetta sé hinn „kompós- itoríski" grunnur þeirra verka eftir Kjartan, sem flutt vora á þessum tónleikum og era þau að þessu leyti athyglisverð. Tónverkið Samantekt, með und- irtitlinum „Þrír heimar í einum“, er hreint tölvuverk og samtvinnað flutningi þess var myndband, sem að mestu stóð saman af myndverk- um eftir Önnu S. Bjömsdóttur, auk smá skota af fjölskyldunni og höf- undi, sem í raun spillir myndverk- inu. Tónefni þessa verks var nokk- uð dýrslega framsett og á margan hátt andstætt fallegum myndbrot- um, sem mörg hver vora af blóm- um. Tónleikunum lauk með verki, sem nefnist Skammdegi og er sam- ið fyrir tölvur, djassgítar, klassísk- an gítar og slagverk. Þama er ýmislegt tínt til, eins og t.d. tón- brot sem finna má í þekktri tón- list, klassískri, djassi, poppi, rokki og nútímatónlist og öllu steypt saman í sannfærandi heild, sem á köflum var áheyrileg. Það sem helst mætti finna að er hversu andstæður í styrk eru litlar og styrkurinn oftar hafður við efri mörkin, svo að á köflum getur tón- listin verið þreytandi fyrir eyrað. í síðasta verkinu gat þó oft að heyra flnleg tónbrigði bæði í slag- verkinu og samleik gítaristanna. Eitt vandamál fýlgir raftónlist, einkum er varðar bókritun ótón- bundinna hljóðhugmynda, sem hugsanlega er mikilvæg fyrir þá geymd, sem rituð gerð er, bæði sem heimild og fyrir áreiðanlegan end- urflutning. Þetta vandamál hafa margir reynt að leysa með „graf- ískri“ tónritun, sem enn sem komið er hefur reynst ónákvæmari er hin klassíska tónritun og því hefur hljóðritun verið eina færa geymslu- aðferðin. Hvað sem þessu líður var margt forvitnilegt að heyra í verk- um Kjartans og ljóst er að honum er alvara með ferð sinni um vand- rötuð víðemi hins ókunna. Jón Ásgeirsson Flygill fyrir 85 milljónir London. Reuters. FAGURLEGA skreyttur Steinway-flygill var seldur á föstudag fyrir 716.500 pund, sem svarar til 85 milljóna ísl. kr. á uppboði í London og hefur ekki fengist svo hátt verð fyrir hljóðfæri áður. Það var Francine Clark- stofnunin í Massachusetts í Bandaríkjunum sem festi kaup á flyglinum og sagði talsmaður hennar hann vera eitt glæsilegasta dæmið um skreytilist síðustu aldar. Flygillinn var smíðaður árið 1884 fyrir Henry G. Marquand, stofnanda Metro- politan-listasafnsins í New York, og er skreyttur kóröl- um; perlum og fílabeini. A meðal þeirra sem leikið hafa á flygilinn og ritað nafn sitt innan í hann eru Richard Rogers og Sir Arthur Sulli- van, báðir þekktir söngleikja- höfundar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.