Morgunblaðið - 11.11.1997, Side 34

Morgunblaðið - 11.11.1997, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Bætir endur- menntun vinnu- aðstæður? Endurmenntun íslenskra blaðamanna get- ur veitt þeim tækifæri til að bæta vinnuað- stæður sínar. Hér er rætt vlð Sigrúnu Stefánsdóttur, rektor norræna blaða- ---------------7------------- mannaháskólans í Arósum, um næsta skólaár og verkefni hennar. Námskeið víða um heim STARFSEMI norræna blaða- mannaháskólans í Arósum mun á næsta ári felast í tveggja mánaða námskeiðum fyrir starfandi blaða- menn, ýmsum stuttnámskeiðum fyrir stéttir sem skrifa reglulega í blöð eins og gagnrýnendur og fleiri sérhæfða hópa blaðamanna. Einnig eru ýmis sérhæfð námskeið í boði - og má nefna námskeið um öryggis- mál, samfélagsmál, jafnrétti, Evr- ópusambandið, nýtingu hafsins, málefni innflytjenda og um menn- ingarmál. Dr. Sigrún Stefánsdóttir rektor blaðamannaháskólans hefur undan- farið verið að skipuleggja skólaárið 1998-99 meðfram því að stjórna starfinu þetta ár á enda. „Höfuð- markmiðið er endurmenntun nor- rænna blaðamanna en líka að kenna blaðamennsku í Eystrasaltslöndun- um,“ segir hún, „námsefnið í Árós- um er að meginstofni annars vegar um málefni Norðurlandaþjóðanna og hins vegar Evrópusambandsins.“ Sigrún er á faraldsfæti í starfi sínu og fer víða vegna skipulagning- ar námskeiða og til að halda utan um námskeiðin. Hún verður til dæmis tíu daga í Moskvu með nem- endur sem eru á þriggja vikna nám- skeiði um öryggismál á Norðurlönd- um. Og svo síðar á helgarnámskeiði á Grænlandi um menningu á jaðar- svæðum. Fyrirrennari Sigrúnar í starfi var 135 vinnudaga í útlöndum árið 1996. Sigrún segir að ferðalögin í rekt- orsstarfinu séu ef til vill einum of tíð, því álag fylgi því að vera oft í framandi umhverfi og að hitta nýtt fólk eins og í Eystrasaltslöndum. Hins vegar er strax auðveldara að koma í annað sinn til þessara staða. Frá árinu 1991 hafa kennarar á vegum blaðamannaháskólans haldið mörg námskeið fyrir nágranna okk- ar í Eystrasaltslöndunum meðal annars til að styrkja þarlenda Morgunblaðið/Kristinn blaðamenn í hlutverki þeirra að efla lýðræðið og veita stjómvöldum og öðrum aðhald, fræða þá um Evi’- ópusambandið og kenna þeim að fjalla um kosningar svo eitthvað sé nefnt. íslenskir blaðamenn Árósar eru 300 þúsund manna bær sem liggur í brekku eins og Akureyri, heimabær Sigrúnar. Hún segir að iðulega þurfi að velja úr umsóknum vegna aðsóknar í nám- skeið á vegum skólans þar og að bú- ast megi við meiri aðsókn núna því námið er mánuði styttra en áður var - og betur sniðið að nútímanum. Sigrún telur endurmenntun ís- lenskra blaðamanna mikilvæga vegna álags í vinnu og nefnir að í Danmörku fái blaðamenn eina viku á ári af vinnutíma til að endur- mennta sig, sem þeir eru duglegir að nýta sér. „Menntunin er íslenskum blaða- mönnum kærkomin vegna þess að það er lítið gert hér til að rækta hæfileika þeirra,“ segir Sigrún. „Stundum finnst mér eins og þeim sé þjösnað áfram þangað til þeir brenna yfir. íslenskir blaðamenn eru duglegir en búa við verri að- stæður en félagar þeirra í Skandin- avíu.“ Menntun sem opnar möguleika Draumaverkefni Sigrúnar er að halda námskeið um nýtingu auð- linda hafsins á norðurslóðum og halda það á íslandi. Hún segir fólk hafa mikinn áhuga að koma hingað á slíkt námskeið, eini' gallinn er kostnaðurinn. Hún hefur samt ákveðið að dreifa námskeiðum um Norðurlöndin og fá íyrirlesara frá þeim öllum. Hún ætlar líka að íjölga íslensk- um fyrirlesurum og hefur þegar fengið Ingólf Hannesson, Helga Má Arthúrsson, Vigdísi Finnbogadóttur og Kristin Jóhannesson til liðs við sig. Sigrún tók til starfa sem rektor í september síðastliðnum og fékk leyfi í fjögur ár frá kennslu í Hag- nýtri fjölmiðlun við Háskóla Islands en hún er nýlega orðin dósent. Sig- rún segir að lokum að menntun hafi alltaf skapað henni ný tækifæri, eins reikni hún með að endur- menntun norrænna blaðamanna opni þeim nýja möguleika í starfi. LÍMMIÐAPRENT Þegar þig vantar límmiða! Skemmuvegi 14 • 200 Kópavogur Sími: 587 0980 • Fax: 557 4243 Farsími: 898 9500 skólar/námskeið ÝMISLEGT ■ Tréskurðamámskeið Örfá pláss laus. Hannes Flosason, sími 554 0123. Sundskóli KR Ný námskeið fyrir 3ja—7 ára böm hefjast þriðjudaginn 18. nóvember. Kennsla fer fram í sundlaug Austurbæjarskóla. Upplýsingar og innritun 10.—14. nóvem- ber í síma 562 2926 milli kl. 17 og 19. Vökvadælur 6-340 l/mín Þrýstingur upp. Spilverk Spilverk Sig. Sveinbjörnss. ehf. Simi 544-5600 Fax 544-5301 Blað allra landsmanna! JUor0imbtaí>ií> -kjarni málvins! Tilbreyting í skólagöngunni Alþjóðleffl unglingaskólinn í Bosrup er heimavistarskóli með kennslu fyrir 8. til 12. bekk í Danmörku sem samsvarar námsaldri 14-18 ára hérlendis. Hér er rætt við íslenskan dreng sem byrjaði í skólanum í haust. UNGLINGASKÓLINN í Bosnip er með nám fyrir nemendur hvaðanæva úr heiminum og starf- ið einkennist meðal annars af ferðum um Evrópu, Norður- Afríku, Tyrkland og Indland. Skólinn er viðurkenndur af danska Menntamálaráðuneytinu, en fær ekki ríkisstyrk þar sem hann fellur undir sérlög sem sett voru um skóla sem áður féllu und- ir Tvind skólasamstarfið. Hann er nú rekinn af einkaaðilum. Gunnar Benediktsson frá Reykjavík byrjaði í Alþjóðlega unglingaskólanum í Bosrup, sem er rétt hjá Hróarskeldu í Dan- mörku, í ágúst síðastliðnum. „Ég hafði áhuga á því að komast til út- landa til að upplifa heiminn, hitta fólk frá öðrum löndum og kynn- ast öðru landi. Fólk frá alþjóðlega danska unglingaskólanum heim- sótti skólann minn í Reykjavík og efnið sem það sagðist kenna höfð- aði til mín, svo ég innritaði mig til eins árs,“ segir Gunnar sem er 16 ára gamall. „Núna þekki ég skólastarflð og hef ekki séð eftir ákvörðuninni. Hér eru bæði nemendur og kenn- arar frá ýmsum löndum. í mínum bekk eru nemendurnir frá Dan- mörku, Islandi og Þýskalandi og kennarinn minn er frá Spáni." Gunnar segist eiga auðvelt með að fyigjast með í kennslunni, enda var hann ágætur í dönsku áður. Þeir sem þurfa fá hins vegar hjálp með dönskuna. „Okkur er kennt á nýstárlegan hátt hérna,“ segir hann. „Hver nemandi fær PC-tölvu til umráða þegar hann byrjar í skólanum og við lærum sjálf að skipuleggja og vinna verkefnin. Þess á milli er sam- kennsla í bekknum um ákveðið þema sem kennarinn hefur undir- búið. Það getur verið um þróun- ina í heiminum, nýjustu tækni og vísindi eða um listir og leikhús." Gunnar segir að ákveðið hefði verið að helga heiia viku því verk- efni að hjálpa hungruðum börn- um í Afríku. „Mér finnst gott að það sé hægt að láta gott af sér leiða í skóla,“ segir hann. „I janú- ar förum við til Tyrklands til að læra um land og þjóð. Við erum byijuð að safna peningum fyrir ferðina, til dæmis með því að tína ávexti á ávaxtaakrinum okkar og að selja blóm.“ í frítímanum fara nemendur gjarnan í körfubolta eða siglingar eða að teikna og mála, hjóla, hlaupa í skóginum. „En ég skráði mig í frönsku og spænsku tvisvar í viku.“ segir Gunnar þótt hann sé líka í leikjunum. „í september AHMAD, Gunnar Benediktsson, Abdul og Jens. NEMENDUR og kennarar í skóginum. Gunnar er í hvíta bolnum fyrir miðju. vorum við á stóru fþróttamóti með öðrum unglingaskólum." Gunnar segir félagsandann f skólanum góðan, bæði hjá nem- endum og kennurum. Margir kennarar búa f skólanum og lfta, að sögn Gunnars, á nemendur sem félaga. „Við gerum líka nyt- samlega hluti saman. Nemendur eru með í í matseldinni, hrein- gerningum, viðhaldi, hafa umsjón með bflum skóians og taka lfka þátt í ákvörðunum um margt. Auðvitað koma upp vandamál, en á þeim verðum við að finna lausn- ir - annars gengur það ekki upp að svona margir búi saman. Við verðum að læra að taka tillit og hjálpa hvert öðru,“ segir Gunnar að lokum. Hveiju skólaári lýkur með próf- um sem eru samræmd við skóla- nefnd Hróarskeldu. Heiinilisfang skólans er: Den Internationale Efterskole pá Bosrup Boserupvej 100 DK-4000 Roskilde.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.