Morgunblaðið - 11.11.1997, Page 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Náttfari frá Ytra-Dalsgerði
Fremstur
gæðinga í
röðum
stóðhesta
Þeir falla hver af öðrum, höfðingjarnir sem
lagt hafa grunninn að ræktunarstarfinu
undanfarna tvo áratugi. Fyrir skömmu var
Náttfari frá Ytra-Dalsgerði felldur 27 vetra
gamall. Þar með er genginn einn af athygl-
isverðustu stóðhestum undangenginna ára-
^ tuga. Valdimar Kristinsson stiklar hér á
stóru í ferli þessa fræga hests.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
NATTFARI frá Ytra-Dalsgerði hefur nú skeiðað yfir móðuna miklu. Hans verður minnst sem fremsta
gæðings í röðum stóðhesta með skeiðið sem sérgrein. Jóhann Þorsteinsson situr hestinn á myndinni sem
tekin var á fjórðungsmóti á Víðivöllum í Reykjavík 1985 þegar Náttfari hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi.
NÁTTFARI vakti mikla athygli
þegar hann kom fram á Landsmóti
1974 á Vindheimamelum, þá fjög-
urra vetra. Má segja að þar hafi
opnast nýjar víddir skeiðsins því
skeiðsprettir þessa unga hests
þóttu einstakir. Töldu margir að
honum hefði verið ofgert og hann
biði þess aldrei bætur. Raunin varð
önnur því Náttfari hélt sínu og vel
það og síðast fengu menn að sjá
klárinn skeiða í gegnum reiðhöllina
í Víðidal á þrítugsaldri og var ekki
annað að sjá en allt væri í góðu
lagi, snerpan og rýmið enn á sínum
stað.
Eftir landsmótið keypti Sigur-
bjöm Eiríksson á Stóra-Hofi Nátt-
fara og var hann notaður þar
fyrstu árin á eftir. Ekki var útlitið
gott þegar fyrstu afkvæmin voru
tamin en á þeim tíma voru gerðar
svokallaðar afkvæmarannsóknir á
ungum stóðhestum. Fóru þær
þannig fram að tekinn var ákveð-
inn fjöldi trippa og þau tamin af
sama tamningamanni og þau síðan
tekin út að tveimur mánuðum liðn-
um. Niðurstaðan úr þessari rann-
sókn varð sú að Náttfari var talinn
nothæfur en ekki álitlegur til kyn-
bóta. Var þessi niðurstaða mikið
reiðarslag því miklar vonir höfðu
verið bundnar við klárinn. Ekki
kom þetta þó í veg fyrir að haldið
væri áfram að nota Náttfara. Síðar
kom í ljós að flest afkvæmi Nátt-
fara þurftu sinn tíma til að
þroskast og oftast kom viljinn ekki
fyrr en á öðra ári.
Á landsmóti 1978 á Skógarhólum
stóð hann efstur stóðhesta sex
vetra og eldri og hlaut þá hæstu
hæfileikaeinkunn sem gefin hafði
verið nokkra kynbótahrossi, 9,08.
Hlaut hann meðal annars 10 fyrir
skeið og hefur aldrei verið ágrein-
ingur um að hann átti þessa ein-
kunn fyllilega skilið. Einnig var
brokkið í Náttfara einstakt, hlaut
þar 9,0 en töltið var veikasti hlekk-
urinn í þessum þremur aðalgang;
tegundum íslenska hestsins. I
dómsorði um hann var sagt: „Fríð-
ur og heldur vel byggður hestur,
viljamikill, þjáll með frábæra lund,
ganghæfileikar fágætir að rými og
fjölhæfni. Mesti gæðingur í röðum
stóðhesta.“ Það var ekki síst eftir
þennan glæsilega árangur Nátt-
fara sem menn fóru að binda mikla
vonir við hann. Hann kom
nokkrum sinnum fram á sýningum
og brást vai'la nokkra sinni sprett-
ur hjá þessum mikla vekringi.
Náttfari hlaut fyrstu verðlaun
fyrir afkvæmi á fjórðungsmóti í
Reykjavík 1985 samkvæmt gamla
kerfinu þar sem teknir voru dómar
sex bestu afkvæmanna og lagðir
saman og hann sýndur mpð sex af-
kvæmum á mótsstað. Árið eftir
hlaut hann heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi samkvæmt nýju kynbóta-
mati Búnaðarfélags Islands. Þá
fylgdu honum 12 afkvæmi í sýning-
unni.
Undan Náttfara kom fjöldinn
allur af gæðingum og þá einkum
vel vakrir alhliðahestar og má þar
fremstan nefna Eldjárn frá
Hvassafelli sem efstur stóð í A-
flokki gæðinga á landsmóti á Vind-
heimamelum 1982. Þá gat hann af
sér fjölda góðra kynbótahrossa og
má þar nefna stóðhestana Höð frá
Hvoli, Náttar frá Miðfelli, Eld frá
Stóra-Hofi, Sólon frá Hóíi, Hlekk
frá Hofi, Baldur frá Bakka, Gand
frá Skjálg og þeirra fremstan Stíg
frá Kjartansstöðum sem hefur á
síðustu áram verið einn af eftir-
sóttustu stóðhestum landsins. Þá
hafa komið margar góðar hryssur
undan Náttfara. Þegar einkunnir
afkvæma hans eru skoðaðar má sjá
að ótrúlega mörg hafa hlotið 9,0
eða 9,5 fyrir skeið og sýnir það vel
að þótt ekkert afkvæmanna standi
föður sínum á sporði þá hefur hann
skilað skeiðinu vel í ræktuninni. Er
með 117 stig fyrir skeið og er þar
þriðji hæsti hesta með yfir 50
dæmd afkvæmi að baki en alls hafa
203 afkvæmi hans hlotið dóm.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SAFÍR frá Viðvík hefur nú skipt um eigendur. Fyrrver-
andi eigandi, Jóhannes Ottósson, situr hestinn en myndin
er tekin á fjórðungsmóti á Vindheimamelum 1993.
EIRÍKUR Guðmundsson Forsætisbóndi hefur keypt Gald-
ur frá Sauðárkróki og hyggst eiga hestinn. Myndin er
tekin í Gunnarsholti 1993 og situr Eiríkur hestinn.
KAPPI frá Hörgshóli sem er með hæst dæmdu stóðhest-
um ársins er nú kominn til Noregs. Knapi á myndinni er
Sigurður Sigurðarson og var hún tekin í gæðingakeppni
hjá Herði í vor.
Lífleg stóðhestasala
STÓÐHESTAR hafa gengið kaup-
um og sölum undanfarið og með
réttu hægt að segja að líflegt hafi
verið á þeim markaði í haust. Af
nýlegum sölum ber hæst söluna á
Safír frá Viðvík sem stefnir hrað-
byri upp skala kynbótamatsins en
‘ ^hann er með 126 stig og skipar
fjórða sæti hesta með 15 til 49 af-
kvæmi. Seljandi er Jóhannes Ott-
ósson sem átt hefur Safír frá upp-
hafi en kaupendur eru Ásgeir Svan
Herbertsson og Jón Kristjánsson.
Kaupverðið fékkst ekki uppgefið.
Safír, sem er undan Hrafni frá
Holtsmúla og Gloríu frá Hjalta-
stöðum, hefur hlotið hæst í aðalein-
kunn 8,31, fyrir sköpulag 8,23 og
fyrir hæfileika 8,39, en hann stóð
efstur stóðhesta sex vetra og eldri
á fjórðungsmóti á Vindheimamel-
um 1993.
Þá hefur Eiríkur Guðmundson
keypt stóðhestinn Galdur frá
Sauðárkróki en hann er undan
Gusti frá Sauðárkróki sem betur
er þekktur undir heitinu Höfða-
Gustur og Hrafnhettu frá Sauðár-
króki. Galdur var sýndur á stóð-
hestastöðinni fyrir fjórum áram og
hlaut þá háar einkunnir fyrir vilja,
fegurð í reið og fótgerð. Fyrir
sköpulag hlaut Galdur 7,95, 8,59
fyrir hæfileika og 8,27 í aðalein-
kunn. I kynbótamati er hann með
117 stig fyrir 17 dæmd afkvæmi.
Seljandi er Guðmundur Sveinsson
á Sauðárkróki en söluverðið var
rétt innan við tvær milljónir króna.
Eiríkur sagðist koma til með nota
Galdur sjálfur á hryssur og auðvit-
að myndi hann leigja hann út. Þá
kvaðst hann eitthvað koma til með
að nota Galdur til reiðar en þetta
væri einstakur reiðhestur meða af-
bragðs gott tölt og mikinn vilja og
skeið. Hann tók það fram að eng-
inn áform væru uppi um endur-
sölu.
Eiríkur hefur sem kunnugt er
keypt jörðina Forsæti í Vestur-
Landeyjum og er hann um þessar
mundir að breyta stórum fjárhús-
um í hesthús sem kemur til með að
ráma 43 hross. Meðal þeirra
hrossa sem koma til með gista í
hesthúsinu í Forsæti í vetur má
nefna stóðhestinn Hilmi frá Sauð-
árkróki.
Kappi frá Hörgshóli var fyrir
skömmu seldur til Noregs. Kaup-
andi er Leif Ai-ne Ellingseter og
fleiri en seljandi var Þorkell
Traustason. Kaupverð fékkst ekki
uppgefið. Kappi hlaut háan dóm í
vor, er með 8,33 fyrir sköpulag og
8,37 fyrir hæfileika og 8,35 í aðal-
einkunn. Kappi hefur í kynbóta-
mati 120 stig en ekkert dæmt af-
kvæmi. Hann er undan frá Mími
Ytra-Skörðugili og Baldursbrá frá
Hörgshóli.