Morgunblaðið - 11.11.1997, Qupperneq 69

Morgunblaðið - 11.11.1997, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 69v FOLK í FRÉTTUM Neónraflýst hjarta á brúðkaupsafmælinu MYNPBÖNP Undarlegt hótel SKILTIÐ var bara sett upp þennan dag,“ segir Kristín Sighvatsdóttir sem fékk neónljósaskilti frá manni sínum Karli Jóhanni Karls- syni á 50 ára brúðkaups- afmæli þeirra. „Mér leist ljómandi vel á hjartað,“ bætir hún við. „Ég hugsa að það hafí ekki margar konur fengið svona neónlýst hjai-ta á gullbrúðkaupsdegi sín- um.“ Hann er þá ennþá róman- tískur? spyr blaðamaður glettnislega. „Já, alveg sérlega róman- tískur, elskulegur og góður eiginmaður." Hvað var gert í tilefni dagsins? „Við buðum börnum, bamabömum, vinum og vandamönnum heim til okk- ar milli 17 og 19,“ segir Kristín brosandi. „Þau komu okkur á óvart með því að fá Ólöfu Kolbrúnu Harðardótt- ur og Jón Stefánsson til að flytja yndislega fallega ást- arsöngva til okkar. Það var óskaplega fallegt veður og þessi dagur verður okkur ógleymanlegur." Hvernig var brúðkaups- dagurinn fyrir fimmtíu ár- um? „Það er nú svo langt síðan,“ segir Kristín. „Hann var bara ósköp yndislegur og góður. Við giftum okkur heima hjá séra Áma Sig- Morgunblaðið/Jón Stefánsson KRISTÍN Sighvatsdóttir og Karl Jóhann Karlsson fyrir utan heimili sitt á brúð- kaupsafmælinu. urðssyni fríkirkjupresti í Garðastræti og konan hans söng og spilaði undir.“ Karl tekur undir með eig- inkonu sinni um brúðkaups- afmælið og segir: „Þetta var yndislegur dagur, vinur minn. Þú getur ímyndað þér - gullbrúðkaup - fimmtíu ár með sömu konunni!" Hann segir að það þurfi ekki að koma á óvart að hann hafi smíðað neónljósaskilti handa Kiist- ínu á brúðkaupsafmælinu. „Ég var íyrstur til að smíða neónljósaskilti á íslandi," segir hann. „Af hverju ætti ég ekki að smíða neon- ljósaskilti fyrir konuna mína?“ Raunar á hann viður- kenningu frá Félagi ís- lenskra iðnrekenda sem hann fékk árið 1977 fyrir neónrafljósagerð í 25 ár. En hvaða skilti var fyrst lýst með neonrafljósum á ís- landi? „Ég held það hafi verið Bókabúð Lámsar Blöndal," svarar hann. „Það var góður maður og ágætis bókabúð. Maður saknar alltaf þessara gömlu bókabúða." Af hverju? spyr blaðamaður en hefði kannski átt að hugsa sig betur um. „Vegna þess að maður er sílesandi," svarar Karl og hlær. Skemmtiferð (Joyride) Spennumynd ★ ★‘/2 Framleiðandi: John Julilin. Leik- stjóri: Quinton Peeples. Hand- ritshöfundar: Quinton Peeples. Kvik- myndataka: S. Douglas Smith. Tdnlist: Evyen Klean, Ivo Watts Russel. Aðalhlutverk: Tobey Maguire, Amy Hathaway, Wilson Cruz, Christina Naify, Adam West. 91 mfn. Bandarikin. Skífan 1997. Utgáfudagur: 5. nóvember. Myndin er bönnuð börnum innan 16 ára. MYNDBÖND eru oft eina leiðin til að sjá frumlegar og ferskar kvik- myndir, sem koma ekki í kvikmyndahús vegna þess að bíóin þora ekki að taka áhættu. Æ fleiri stórsprengjumyndir eru gefnar út og varpa þær skugga sínum yfir myndir sem eru ekki eins markaðsvænar, því þær lúta ekki lögmálum popps og kóks. Kvikmyndin Skemmtiferð er að mörgU leyti stórgölluð en hún er eigi að síður merkilegri en flest það sem er boðið fram í kvik- myndahúsum borgarinnar. Mynd- in segir frá J.T. sem er hálf- gerður ræfill og vinnur við að halda sóðalegu hóteli fóður síns við. Á hótelið koma nokkrar litríkar persónur sem eiga eftir að hafa mikil áhrifálíf J.T. Þetta er fyrsta kvikmynd leik- stjórans og hand- ritshöfundarins Quinton Peeples og getur hann verið þokkalega ánægður með frumraun sína. Sögufléttan er ágætlega unnin og persónurnar eru ekki hinar dæmigerðu klisjur sem maður á að venjast. J.T. er svo mikill aumingi að það er varla hægt annað en að vor- kenna greyinu og túlkun Tobey Maguire á honum er ágæt. Adam West, sem er betur þekktur sem bumbu-Bat- man í hinum skemmtilega hallærislegu sjónvaprsþáttum um ógnvaldinn á náttfötunum, er ein- staklega öfuguggaleg- ur sem faðir stúlkunn- ar sem J.T. verður ást- fanginn af. Aðrir leikar- ar standa sig misjafn- lega vel en enginn þarf að skammast sín fyrir frammistöðu sína. Þrátt fyrir góðar persónur og skemmtilega hugmynd nær Peeples ekki að halda dampi út myndina og síðasti þriðjungur hennar er frekar slakur. Það væri gaman að sjá fleiri myndir sem fara jafn ótroðnar slóðir sem þessi. Ottó Geir Borg Richard Gere í Tíbet LEIKARINN Richard Gere stillir sér upp við Ijósmyndir, sem hann tók í Tíbet, á opnun sýningar í New York. Ágóði af sölu mynd- anna og bókar sem nefnist „Pil- grim“ eða Pflagrímur mun verða notaður til þess að kynna málstað Tíbetbúa. Kýr í vellystingum ÓHÆTT er að segja að kýrnar í Kampong Som í Kambódfu lifi í vellystingum praktuglega. Þorpsbúar trúa því að kýrnar búi Vfir lækningamætti og nota hálfmelt gras úr þeim í lækningasúpur. Þeir trúa því cinnig að kýrin geti læknað með því að sleikja. Einnig hræra þeir saman kúahlandi, skít og dryklgarvatni til þess að malla hin ýmsu lækningameðul. GOÐIRI Fjölbreytt úrval af vönduöum | fataskápum á frábœru verði I .160.- Aöeins í Húsgagnahöllinni Breidd 120 cm Hœð 203 cm Dýpt 55 cm , . , „, HÚSGAGNAHÖLUN Beyki OQ hvitt BlkUhMðlM-IWRvlk-SÆIOBOOO
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.