Morgunblaðið - 19.02.1998, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
41. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Höfðar ekki
mál vegna
Estoniu-
slyssins
Efast um að Iraksför
Annans beri árangur
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
THOMAS Lindstrand, ríkissak-
sóknari Svía, telur ekki forsendur
fyrir málshöfðun til að fá úr því
skorið hver hafi borið sökina á því
að ferjan Estonia fórst 28. septem-
ber 1994 og 852 manns létust. Að
þessari niðurstöðu komst hann eftir
að hafa lesið rannsóknarskýrslu al-
þjóðanefndar og skýrslu Meyer-
skipasmíðastöðvarinnar um slysið.
Lindstrand undirstrikaði að verk-
efni sitt hefði einungis verið að
skera úr um hvort forsenda væri
fyrir að höfða mál á hendur ein-
hverjum aðila til að fá skorið úr um
hvar sökin lægi og vinna slíkt mál.
Niðurstaða sín væri að það væri
ekki hægt. Rannsókn hefur leitt í
Ijós að ekki var farið að alþjóðlegum
reglum við byggingu ferjunnar, en
Lindstrand segir slíkt ekki lögbrot.
Ákvörðunin vakti strax viðbrögð
meðal þeirra sem komust af og ætt-
ingja þeirra er fórust. Annars vegar
heyrðust raddir um að óviðunandi
væri að loka málinu án þess að fá
skorið úr um hver bæri ábyrgð.
Hins vegai’ þeir, sem álíta að leit að
sökudólgi þjóni engum tilgangi,
heldur skipti máli að slysið leiði til
aukins öryggis til sjós.
Washington. Reuters.
BANDARÍSKIR ráðamenn eru ef-
ins um að þáttaskil verði í deilunni
um eftirlit með gjöreyðingarvopn-
um Iraka í ferð Kofís Annans, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna
(SÞ), til Bagdad, en hann er vænt-
anlegur þangað á morgun, föstudag.
Þeir halda þó opnum möguleika á
nýrri málamiðlun sem felst í því að
Irökum verði boðið að diplómatar
frá aðildarríkjum öryggisráðs SÞ
fylgi bandarískum liðsmönnum í
vopnaeftirlitssveitum SÞ um svo-
nefnd „forsetasvæði" en að öðru
leyti virði Irakar öll ákvæði sam-
komulagsins um vopnahlé í
Persaflóastríðinu og samþykktir ör-
yggisráðs SÞ um vopnaeftirlit.
Mike McCurry, talsmaður Bills
Clintons forseta, sagði að mikilvægt
væri að gera enn eina tilraunina til
þess að reyna að leysa deiluna við
Iraka eftir pólitískum leiðum. Eng-
ar visbendingar hefðu þó borist frá
Bagdad er gæfu tilefni til að búast
við árangri af fór Annans. „Þaðan
heyrist aðeins þrákelkni, launung
og lygar,“ sagði Curry.
ÍSRAELAR búa sig af kappi til
að mæta hugsanlegri eitur-
vopnaárás frá Irak, en hér hef-
ur palestínsk fjölskylda í aust-
urhluta Jerúsalem fengið út-
hlutað gasgnmuskammti sínum.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði á blaða-
mannafundi í gær að ef til loftárása
á Irak kæmi yrði höggið sem Irök-
um yrði veitt það þungt að þeir
myndu verða lengi að jafna sig eftir
það.
Mesta áskorun Annans
Hubert Vedrine, utanríkisráð-
herra Frakka, sagði í gær að írakar
hefðu sjálfír enn tækifæri til að
komast hjá loftárásum og skoraði á
þá að grípa tækifærið sem gæfist
með ferð Kofis Annans til að fallast
á pólitíska lausn deilunnar.
Annan, sem heldur til Parísar í
dag á leið sinni til Iraks, stendur
frammi fyrir stærstu áskorun sinni
frá því hann tók við starfi fram-
kvæmdastjóra SÞ í ársbyrjun í
fyrra. Hann sagðist í gær hafa átt
mjög ítarlegt og gagnlegt samtal
við Clinton Bandaríkjaforseta um
alla þætti deilunnar við Iraka.
„Honum er ljóst hverju ég ætla að
reyna að áorka og ítrekaði, eins og
aðrir hafa gert, að hann kjósi frem-
ur friðsamlega lausn.“ Miðað er við
að Annan geri öryggisráðinu grein
fyrir viðræðum sínum við íraska
ráðamenn nk. þriðjudag.
Stjóm Clintons freistar þess að
afla fylgis við hugsanlegar aðgerðir
gegn Irökum. Samkvæmt Gallup-
könnun, sem gerð var fyrir CNN og
USA Today, styðja 76% bandarísku
þjóðarinnar lofthemað og 60%
sögðust myndu styðja það að land-
her yrði beitt ef til átaka kæmi.
I gær var 31 starfsmanni SÞ í
Irak stefnt til Jórdaníu í „varúðar-
skyni“ og tveimur til borgarinnar
Erbil á hlutlausa beltinu í norður-
hluta íraks. Hafa þeir einkum unnið
að hjálparstörfum í landinu.
Tugir af helstu rabbínum Israels
fóru í gær með flugvél sjö hringi
umhverfis Israel í þeim tilgangi að
knésetja stjórn Saddams Iraksfor-
seta með bæn og forða ísrael frá
hugsanlegri eiturvopnaárás. Með
leiðangrinum er hermt eftir þeirri
frásögn Biblíunnar að múrar Jeríkó
hafi hrunið eftir að Jósúa reið sjö
hringi umhverfis borgina.
Orlög Sinn Fein
ráðast í dag
Dublin. Reuters.
BÚIST var við því í gærkvöldi að
stjórnir Bretlands og Irlands
ákvæðu í dag hvort Sinn Fein,
stjórnmálaarmi írska lýðveldishers-
ins (IRA), yrði vísað frá viðræðum
um framtíð Norðui'-írlands, óháð því
hvort hæstiréttur Irlands hefði kveð-
ið upp úrskurð í máli sem Sinn Fein
höfðaði í gær til þess að koma í veg
fyrir að flokknum yrði meinuð þátt-
taka í viðræðunum.
David Andrews, utanríkisráð-
herra Irlands, gaf til kynna, að
dómsmeðferð málsins myndi tefja
ákvörðun um það hvort Sinn Fein
yrði gert að hætta þátttöku í viðræð-
unum. Hann sagði þó, að írsk og
bresk stjórnvöld hefðu þeirri póli-
tísku skyldu að gegna að fara að
leikreglum viðræðnanna. írsk
stjórnvöld segjast telja að IRA beri
að svara til saka fyrir tvö morð sem
framin voru í Belfast í síðustu viku.
Lögmenn Sinn Fein héldu því
fram við hæstarétt á Irlandi að Mo
Mowlam, N-írlandsmálaráðherra
bresku stjórnarinnar, hefði neitað
flokknum um stjórnarskrárbundinn
rétt. Mowlam samþykkti niðurstöðu
lögreglustjórans á N-írlandi, sem
telur að IRA hafi átt þátt í morðun-
um í Belfast. Samkvæmt grundvall-
arreglum viðræðnanna væri þetta
nægileg ástæða til að vísa Sinn Fein
frá samningaborðinu vegna tengsla
flokksins við IRA.
Lögmaður Sinn Fein, John
McMenamin, lagði áherslu á að
flokkurinn tæki þátt í viðræðunum
„af heilindum“ og yrði honum vísað
frá þeim væri sá stjórnarskrárlegi
réttur brotinn, að flokkurinn fengi
tækifæri til að láta reyna fyrir rétti á
niðurstöðu lögreglustjórans.
1 0® cergyPpoissv:'LAYE ' 1
Reuters
Birt verði hverjir séu frímiírarar
London. Daily Telegraph.
DÓMARAR og lögreglumenn í Bretlandi verða í
framtíðinni að gefa upp hvort þeir eru frímúrar-
ar, samkvæmt ákvörðun Jacks Straw innanríkis-
ráðherra. Hyggst hann fara þess á leit við bresku
frímúrarasamtökin (UGL) að þau birti sjálfviljug
lista yfir frímúrara sem vinna í dómskerfinu.
Sýni UGL ekki samstarfsvilja segir Straw
óhjákvæmilegt að grípa til lagasetningar sem
skuldbindi frímúrara í opinberum störfum til að
gefa upp stúkuaðild sína.
I íyrstu verður leitast við að fá starfsmenn
dómskerfisins til að skýra frá stúkuaðild sinni af
fúsum og frjálsum vilja.
Með ákvörðun sinni hefur Straw betur í
viðureign sinni við Irvine lávarð, forseta lá-
varðadeildarinnar, sem barist hefur fyrir því að
dómarar verði undanþegnir reglum um að
þurfa að skýra frá því hvort þeir séu frímúrar-
ar.
Straw sagði ríkisstjórnina vilja binda enda á
sífelldar ásakanir þess efnis að vefur frímúrara
ráði ferðinni í lögreglunni og dómskerfinu.
„Aðild að leynifélögum á borð við frímúrara-
regluna getur leitt til efasemda um hlutlægni.
Því er mikilvægt að almenningur fái að vita
staðreyndir málsins,“ sagði Straw.
Ýmsfr dómarar brugðust ókvæða við ákvörð-
un innanríkisráðherrans. Einn æðsti dómari
landsins, sem er frímúrari, sagði við BBC-út-
varpsstöðina, að með henni væri heiðarleiki
dómara að nauðsynjalausu dreginn í efa. Sagð-
ist hann aldrei hafa vitað hvort einhver sem
hann hefði fellt dóm yfir væri reglubróðir og
engum þeirra var kunnugt um að hann væri fri-
múrari. Sagðist hann spyrja sig hvers vegna
menn þyrftu ekki að gefa upp aðild sína að öðr-
um félögum, eins og golfklúbbum. „Það er eng-
inn munur á golfklúbbi og frímúrarastúku,"
sagði hann.
Kýrnar í
Parísarferð
FRANSKIR nautgripabændur ráku
hjörð kúa um miðborg Parísar í
gær og léku undir á harmonikkur.
Fóru þeir m.a. niður í neðanjarðar-
lestarstöðina Auber. Var það liður í
mótmælum þeirra við fyrirhuguð-
um áformum um lækkun ríkisað-
stoðar við bændur en á vettvangi
Evrópusambandsins (ESB) eru til
umræðu tillögur um að lækka nið-
urgreiðslur vegna lágmarksverðs á
nautakjöti um 30%. Ráku bændur
m.a. kú inn í landbúnaðarráðuneyt-
ið er þeir gengu á fund Louis Le
Pensec, sem þar ræður ríkjum.