Morgunblaðið - 19.02.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 19
samkeppni ríkir bæði við höfuð-
borgar-svæðið en ekld síst milli
þeirra tveggja apóteka sem þar
eru. Næstlægst er verðið á Akur-
eyri en þar ríkir einnig samkeppni.
Frávik frá þessu eru Borgarness
Apótek og Siglufjarðar Apótek
sem hafa hagstætt verð þrátt að
hafa lítinn markað og vera í tak-
markaðri samkeppni.“ Birgir segir
athyglisvert að munur milli hæsta
og lægsta verðs er meiri fyrir elli-
og örorkulífeyrisþega sem líklega
er vegna þess að minnstu lyfsöl-
urnar hafa takmarkað svigrúm til
að gefa afslátt. „Elli- og örorkulíf-
eyrisþegar fá ekki afslátt umfi’am
það sem lyfjaverðskrá tryggir
þeim. Þó verð sé lægra á höfuð-
borgarsvæðinu er Ijóst að lands-
byggðin hefur einnig hagnast á
frjálsri lyfsölu þar sem ávallt er
samkeppni við höfuðborgarsvæðið,
sem að einhverju leyti hefur skilað
sér í verðlagningu."
Verð tvisvar lægst
á landsbyggðinni
„I tveimur tilvikum er lægsta
verð á landsbyggðinni lægra en á
höfuðborgarsvæðinu en það var á
Laktulose mixtúru sem reyndist
ódýrust í Siglufjarðar Apóteki og á
Asýran töflum sem voru ódýrastar
iyrir elli- og örorkulífeyrisþega í
Akureyrar Apóteki. Þá virðast frá-
vik frá hámarksverði vera sjaldn-
ast hjá lyfsölum heilsugæslu-
stöðva, en í minnstu sveitarfélög-
unum eru eingöngu slíkar lyfsölur.
I könnuninni var kannað verð á
32 algengum lyfjum sem birt eru í
meðfylgjandi töflum og er tvenns-
konar verð fyrir hvert lyf, það efra
er verð sjúklings en það neðra er
verð elli- og örorkulífeyrisþega. Sá
hlutur sem Tryggingastofnun
greiðir fyrir er því ekki inni í þess-
um tölum. Eitt lyf nýtur töluverðr-
ar sérstöðu en það er Roaccutan,
en sum apótek gefa eftir hluta
sjúklings og stendur þá núll í töfl-
unni, en eyða ef lyfið var ekki til.
Tekið skal fram að Roaccutan er
ekki inni í samanburðði í súluriti
þar sem verðmunur þar var svo
mikill að það hefði skekkt
samanburðinn verulega. Þá skal
það einnig tekið fram að oft eru á
boðstólum samheitalyf sem eru
ódýrari en þau lyf sem valin voru í
þessa könnun. Eins er mjög al-
gengt að vissir viðskiptavinir njóti
sérkjara." Birgir leggur áherslu á
að um beinan verðsamanburð sé
að ræða og og segir að því sé ekki
lagt mat á þjónustu lyfsalanna.
Gáfu ekki upp verð
„Tvö apótek höfnuðu að veita
umbeðnar upplýsingar, apótekið á
Akranesi og Ames apótek á Sel-
fossi. Lyfsalan á Vopnafírði var
lokuð þennan dag, en verðtaka í
Keflavík, Patreksfirði, Húsavík og
Sauðárkróki fór úrskeiðis vegna
anna starfsfólks verkefnisins á
þessum stöðum.
Þá eru fjögur apótek í fleiri en
einu sveitarfélagi, en verð var í öll-
um þeim tilvikum sama; þau eru
Blönduós Apótek sem einnig er á
Skagaströnd, Dalvíkur Apótek
sem einnig er á Ólafsfirði, Egils-
staðaapótek sem einnig er á Stöðv-
arfirði, og Nesapótek sem er í
Neskaupstað, á Eskifirði og Reyð-
arfirði. Dalvikur apótek veitir
félögum í félagi eldri borgara 10%
afslátt.
Brandtex fatnaður
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður
Svona er
fiskurinn ferskur
VIÐ borðum ríkulega af fiski enda er
hann auðugur af selen, joði, D- og
B12-vítamíni.
Þegar fiskur er keyptur í matinn
skiptir miklu að hann sé ferskur.
Myndimar hér til hliðar birtust í
dönskum bæklingi um fisk sem
dönsku neytendasamtökin gáfu út
fyrir skömmu. Þær sýna hvernig
fundið er út hvort fiskur sé ferskur.
Eigi fólk í erfiðleikum með að dæma
um það eru augu fisksins besti mæli-
kvarðinn. Ef þau eru sokkin inn og
rauðleit er fiskurinn ekki ferskur.
Ef fiskurinn er keyptur innpakk-
aður á hann að vera með upplýsing-
um um síðasta neysludag.
I bæklingi dönsku neytendasam-
takanna er ennfremur ráðlagt með
skammtastærðir af fiski. Ef kaupa á
fisk í kvöldmat er mátulegt að kaupa
100-150 g af fiskfarsi á mann, 100-
200 g af af beinlausu flaki og 200-300
g ef flakið er með roði og beinum og
sé fiskurinn heill má reikna með 300-
400 g á mann.
„SV0NA FÉLAGI,
ENGAN
AUMINGJASKAP"
Gamall og góður vinur sem alltaf veit allt betur. Reykir ekki
Við vitum hvað er erfitt að hætta að reykja
Fólk sem aldrei hefur reykt á ekki gott með að skilja hve
þörfin fyrir sígarettu getur verið óbærileg. Jafnvel þeir sem
hafa fullan hug á að hætta, geta lotið í lægra haldi þegar
sígarettan er annars vegar. Þeir sem aldrei hafa reykt halda
oft að það að hætta sé einungis spurning um að taka sjálfan
sig taki og hafa viljann að vopni. En það að hætta að reykja
hefur ekki bara með viljastyrk að gera.
Tiler eðlileg skýring á því afhvetju eifitt er að batta
Þegar þú hættir að reykja getur þú þurft að berjast við mikil
fráhvarfseinkenni vegna þess að líkaminn saknar nikótínsins
sem hann er vanur að fá. Til að standast reykbindindi með
sem minnstum óþægindum, getur þurft meira en viljastyrk.
Góð reyklaus leið er að nota nikótínlyf til að minnka þörf
líkamans á nikótíni smám saman óg komast þannig yfir
erfiðustu vikurnar eftir að reykingum er hætt.
Að minnka þörfina er leið tilað hætta
Nikótínlyf innihalda nikótín í ákveðnum
skömmtum sem nægja til þess að minnka
nikótínþörfina og þú ert laus við tjöru og
kolmónoxíð úr sígarettureyknum. Nikótín er ekki krabba-
meinsvaldandi efni og þú munt ekki verða háður nikótíni
með því að nota nikótínlyf; sem reykingamaður ert þú
þegar orðinn háður nikótíninu en nikótínlyf voru þróuð til
að draga úr fráhvarfseinkennum og auðvelda fólki að hætta
að reykja.
Að ná árangri
Þú getur aukið möguleika þína á að standast reykbindindi
með því að nota Nicorette®, leiðandi vörumerki um allan
heim fyrir nikótínlyf, allt frá því Nicorette® nikótíntyggi-
gúmmí, fyrsta nikótínlyfið, var markaðssett.
Mismunandi einstaklingar, mismunandi þarfir, mis-
munandi leiðir til að bætta
I dag er hægt að fá Nicorette® sem tyggi-
gúmmí, forðaplástur og innsogslyf án lyf-
i seðils. Nicorette® nikótínlyf koma ekki í stað
___; viljastyrks, en geta veitt þér stuðning þegar þú
í ákveður að hætta að reykja.
sssss
NICORETTE"
NICORETTE
Við stöndum meðþér
Ntcorette® innsogslyf samanstendur af munnstykki sem í er sett rör sem inniheldur nikótín. Nicorette® innsogslyf er ætlað til að auðvelda fólki að hætta að reykja.
Algengur skammtur er a.m.k. 6 rör á dag en þó ekki fleiri en 12 á dag i a.m.k. 3 mánuði og venjulega ekki lengur en 6 mánuði. Nicorette® innsogslyf getur valdið
aukaverkunum eins og hósta, ertingu í munni og hálsi. Höfuöverkur, brjóstsviði, ógleði, hiksti, uppköst, óþægindi I hálsi, nefstlfla og blöðrur i munni geta einnig komið
fram. Við samtímis inntöku á gestagenöstrógen lyfjum getur, eins og við reykingar, verið aukin hætta á blóötappa. Nikótín getur valdiö bráðum eitrunum hjá börnum og
er efnið þvl alls ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema I samráði við lækni. Gæta skal varúðar hjá þeim sem hafa hjarta- og æðasjúkdóma. Þungaðar konur og
konur með barn á brjósti ættu ekki að nota lyfiö nema í samráöi við lækni.
Lesiö vandlega leiðbelningar sem fylgja hverrl pakknlngu lyfslns.
Markaösleyfishafi: Pharmacia & Upjohn AS, Danmörk. Innflytjandi: Pharmaco hf„ Hörgatúni 2, Garðabær.
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433