Morgunblaðið - 19.02.1998, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Félagsmálaráðherra
Nefnd kann-
ar launamun
kynjanna
FÉ LAGSMÁLARÁÐHE RRA hef-
ur ákveðið að skipa þriggja manna
nefnd er hafi það hlutverk að kanna
launamun verkakvenna og verka-
karla. I því skyni hefur hann óskað
eftir því að Alþýðusamband íslands
og Vinnuveitendasamband íslands
tilnefni fulltrúa í nefndina, en for-
maður hennar verður skipaður af
félagsmálaráðherra.
Þetta kom fram í svari félags-
málaráðherra, Páls Péturssonar, á
Alþingi í gær við fyrirspurn Jó-
hönnu Sigurðardóttur um það hvort
ráðherra hygðist beita sér fyrir því
að munur á dagvinnulaunum verka-
kvenna og verkakarla yrði leiðrétt-
ur.
„Komist nefndin að þeirri niður-
stöðu að jafnréttislög hafí verið
brotin og launamunur sem ekki
verði skýrður nema með kynferði
viðgangist ber mér hiklaust að
bregðast við og leita leiða til úr-
bóta,“ sagðir ráðherra.
Morgunblaðið/Þorkell
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra ræða saman
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra á Alþingi í gær
Bandarískir embættismenn
ræða málefni Hanes-hjóna
Byggja þarf
nýtt hús að
Ljósheimum
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA, Ingi-
björg Pálmadóttir, sagði á Alþingi í
gær að ljóst væri að byggja þyrfti
nýtt húsnæði fyrir vistmenn á öldr-
unardeild Sjúki'ahúss Suðurlands að
Ljósheimum eða flytja þá í nýtt hús-
næði þar sem það húsnæði sem fyrir
er væri í bágu ástandi. Undh'búning-
ur þess efnis væri þegar hafínn í
ráðuneytinu. Kom þetta fram í svari
ráðherra við fyrirspurn Margrétar
Frímannsdóttui', þingmanns Alþýðu-
bandalags og óháðra.
í fyrirspurn sinni sagði Margi'ét
m.a. að sú aðstaða sem öldruðum
sjúklingum, aðstandendum þeirra
sem og starfsfólki á Ljósheimum
væri boðið upp á væri til háborinnar
skammar. Jafnframt benti hún á að
samdóma niðurstaða Heilbrigðiseft-
irlits Suðurlands, Vinnueftirlits rík-
isins og byggingafulltrúa Selfoss-
bæjar frá síðasta ári væri sú að hús-
næðið væri í óviðunandi ástandi,
hvort sem um væri að ræða aðstöðu
sjúklinga eða starfsfólks. Þá væri ör-
yggi sjúklinga og starfsfólks í engu
'tryggt.
Heilbrigðisráðherra sagði m.a. í
svari sínu að nefnd sem hún hefði
skipað fyrir rösku ári til að kanna
húsnæðisþörf heilbrigðisstofnana á
Suðurlandi væri senn að ljúka störf-
um og að innan skamms mætti búast
við áliti nefndarinnar og tillögum.
Sagði hún að í drögum að skýrslu
nefndarinnar væri lagt til að á þessu
ári hæfíst undirbúningur að nýiri
byggingu eða flutningi vistmanna
Ljósheima í annað húsnæði. Undh'-
búningm- þess væri þegar hafinn í
ráðuneytinu, en hins vegar myndi hún
bíða tillagna frá nefndinni varðandi
fyrirkomulag, staif og íleh'i atriði.
EMBÆTTISMENN frá banda-
ríska dómsmálaráðuneytinu eru
væntanlegir hingað til lands og
munu ræða við fulltrúa íslenskra
stjórnvalda í dag um málefni Ha-
nes-hjónanna, að því er fram kom í
svari Þorsteins Pálssonar dóms-
málaráðhen-a við fyrirspurn Sig-
ríðar Jóhannesdóttur, þingmanns
Alþýðubandalags og óháðra, á Al-
þingi í gær.
Bandarísk stjórnvöld
óskuðu eftir viðræðunum
Auk þess verða á fundinum
rædd almenn samskipti landanna
á þessu sviði, að sögn ráðherra.
Bandarísk stjómvöld óskuðu eftir
viðræðunum í kjölfar niðurstöðu
Hæstaréttar í október sl. og form-
legri ákvörðun dómsmálaráðu-
neytisins þess efnis að Hanes-
hjónin verði ekki framseld til
Bandaríkjanna nema að uppfyllt-
um ákveðnum skilyrðum.
Sigríður Jóhannesdóttir spurði
ráðherra einnig að því hvort ís-
Almenn samskipti landanna á þessu
sviði verða einnig til umræðu
lensk stjórnvöld
gætu með ein-
hverjum hætti
stuðlað að því að
Hanes-hjónin
fengju aftur
vegabréf sín í
ljósi þess að þau
hefðu ítrekað
boðist til að
mæta fyrir rétti
í Bandaríkjun-
um án þess að fá við því nokkrar
undirtektir. Sagði hún að án vega-
bréfs fengju hjónin enga vinnu að
gagni og væru því sett í óþolandi
aðstöðu bjargarleysis. Ráðherra
sagði hins vegar að ekki væru for-
sendur til þess fyrir íslensk stjórn-
völd að beita sér fyrir því að
bandarísk stjórnvöld falli frá ógild-
ingu vegabréfa eða krefjist þess að
ný vegabréf séu
gefin út til
bandarískra
ríkisborgara.
Þá spurði
Sigríður ráð-
herra hvort
hann hygðist
beita sér fyrir
því að Hanes-
hjónunum yrði
veitt landvist
hér á landi til frambúðar af mann-
úðarástæðum. Ráðherra svaraði
því til að það væri Útlendingaeftir-
litið sem fjailaði um umsókn um
landvist af mannúðarástæðum eða
öðrum sérstökum ástæðum en
ákvörðun Útlendingaeftirlitsins
væri unnt að skjóta til dómsmála-
ráðuneytisins. „Það er því ekki
eðlilegt að æðra stjómvald láti í
ALÞINGI
ljós skoðun sína á tilgi'eindu máli
áður en það hefur komið til af-
greiðslu hjá lægra settu stjórn-
valdi,“ sagði hann.
Vilja veita Hanes-
hjónunum
ríkisborgararétt
Nokkrir þingmenn tóku til máls
að loknum svörum ráðherra og
skoruðu á hann að veita Hanes-
hjónunum íslenskan ríkisborgara-
rétt og íslenskt vegabréf sem
fyrst. Guðrún Helgadóttir, þing-
maður Alþýðubandalags og
óháðra, sagði að slíkt hefði verið
gert hefðu menn verið nýtilegir í
boltaleikjum af öllu tagi. „Ég
skora á hæstvirtan dómsmálaráð-
herra að meta umhyggu fyrir litlu
barni til jafns við hæfileika til að
sparka eða kasta bolta,“ sagði hún.
Óssur Skarphéðinsson, þingflokki
jafnaðarmanna, Steingrímur J.
Sigfússon, þingmaður Alþýðu-
bandalags og óháðra, og Sigríður
Jóhannesdóttir tóku í sama streng.
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst
kl. 10.30 í dag.
1. Mannréttindasáttmáli
Evrópu. Frh. 1. umr. (Atkvgr.)
2. Almannatryggingar. Frh.
1. umr. (Atkvgr.)
3. Kosning sérnefndar um
stjdrnarskrármál.
4. Eignarhald og nýting á
auðlindum í jörðu. Frh. 1.
umr.
5. Eignarhald á auðlindum í
jörðu. 1. umr.
6. Virkjunarréttur vatns-
falla. 1. umr.
7. Sfjómarskipunarlög. 1.
umr.
8. Skipan opinberrar nefnd-
ar um auðlindagjald. Fyrri
umr.
9. Ráðherraábyrgð. 1. umr.
10. Ráðuneyti lífeyris, al-
mannatrygginga og vinnu-
markaðsmála. Fyrri umr.
11. Lágmarkslaun. 1. umr.
12. Ritun sögu heimastjórn-
artímabilsins. Fyrri umr.
y
11 Utsðlulok |
TEENO
Bankastræti 10, 2 hæð,
símí 552 2201
IRosalegl
verðlækkun
englabörnín
Bankastræti 10,
sími 552 2201
Snyrtivöruversliin
við Laugaveg
Til sölu þekkt og rótgróið, vel innréttun verslun með
öll bestu vörumerki í snyrtivörum og góðum hliðar-
vörum. Hagstæð leiga. 100 fm nýlega innréttuð götu-
hæð með stórum gluggum.
Allar nánari upplýsingar veitir
Ingólfur hjá Valhöll, fasteignasölu,
Mörkinni 3, sími 588 4477.
Fyrirspurn um bifreiðakaup ráðuneyta
Ráðuneytin keyptu
25 bíla á sjö árum
SAMTALS voru keyptar 25 bif-
reiðar á vegum ráðuneytanna á
tímabilinu 1991 til 1997.
Af þeim voru 13 bflar keyptir af
bílaumboðinu Heklu hf., þrír af
Bifreiðum og landbúnaðai'vélum,
þrír af Globus hf., þrír af Sölu
vamarliðseigna, einn af Jóni E.
Ingólfssyni, einn af P. Samúelssyni
hf. og einn af Brimborg hf. Ráðu-
neytin eiga þó ekki allar þessar bif-
reiðar nú því sumar þeirra hafa
verið seldar þegar nýrri hafa verið
keyptar.
Þetta kemur fram í svari fjár-
málaráðherra við fyrirspurn Mar-
grétar Frímannsdóttur, þing-
manns Alþýðubandalags og
óháðra, sem dreift verður á Alþingi
í dag.
Þar kemur ennfremur fram að á
árinu 1991 voru sjö bílar keyptir
fyrir samtals rúmar sautján millj-
ónir króna, á árinu 1992 tveir fyrir
samtals um 5,5 milljónir króna, á
árinu 1993 einn fyrir rúma milljón,
á árinu 1994 tveir fyrir samtals
rúmar 4,3 milljónir króna, á árinu
1995 fimm fyrir samtals um 19
milljónir króna, á árinu 1996 sex
fyrir samtals um 18,7 milljónir
króna og á árinu 1997 voru tveir
bílar keyptir fýrir samtals um 4,5
milljónir króna.
Flestir keyptir af
fjármálaráðuneyti
Af þessum 25 bílum hefur fjár-
málaráðuneytið keypt flesta eða 8
bíla samtals á fyrrgreindu tímabili.
Samkvæmt reglugerð um bifreiða-
mál ríkisins skal Innkaupastofnun
ríkisins að öllu jöfnu kaupa bifreið-
ar að undangengnu útboði, en í
svarinu kemur ekki fram hvort um
útboð hafi verið að ræða í þessum
tilfellum.