Morgunblaðið - 19.02.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Loðnu-
verð 58%
hærra en
1995
Fiskmjölsverksmiðjur bjóða nú
6.300 til 6.500 krónur fyrir tonnið af
loðnu upp úr sjó, sem er talsvert
hærra verð en á sama tíma í fyrra
þegar verksmiðjurnar buðu um
5.000 krónur fyrir tonnið. Á hinn
bóginn er verðið nú mun lægra en í
janúar er 9.000 krónur voru boðnar
íyrir tonnið til að hvetja útgerðir til
loðnuveiða. Loðnuverð er nú 58%
hærra en það var í febrúar 1995 er
greiddar voru 4.000 krónur fyrir
hvert tonn.
Gera má ráð fyrir því að verðið
fari lækkandi þegar líða tekur á
vertíðina þar sem loðnan gerist þá
verðminni vegna minnkandi fitu-
innihalds. „Við teljum að þetta verð
geti haldist einhverja daga í viðbót,
miðað við það að loðnan verði svip-
uð og hún er nú. Hráefnisverðið,
sem gjarnan hefur verið miðað við
að sé 54-55% af skilaverði, er í
hærri kantinum sem stendur, eða
tæp 60%,“ segir Þórður Jónsson,
rekstrarstjóri SR-mjöls.
Hvöttu til loðnuveiða
Að sögn Þórðar hefur verið hafð-
ur sá háttur á undanfarin ár að
greiða mjög hátt hráefnisverð í jan-
úar til þess að hvetja skip til loðnu-
leitar. „Það sama átti við í byrjun
janúar í ár þegar nokkur skip héldu
til loðnuleitai' en veiddu mjög lítið.
Til þess að styrkja útgerðirnar í
leitinni borguðum við þeim gríðar-
lega hátt verð fyrir loðnuna, allt
upp í 9.000 kr. á tonnið, sem er í
engu samhengi við raunveruleikann
þegar loðnan hefur loks fundist,“
segir Þórður og vísar til fregna,
sem hafðar voru eftir forystumönn-
um sjómanna, af „gríðarlegri" verð-
lækkun á loðnu.
■ Kaupendur hafa/21
---------------
Arekstur
bíls og
vélhjóls
í Eyjum
EINN maður var fluttur á sjúkra-
hús eftir talsvert harðan árekstur á
milli vélhjóls og bifreiðar í Vest-
mannaeyjum í gærmorgun, en við
rannsókn reyndust meiðsli hans
vera minniháttar.
Vélhjólinu og bifreiðinni var báð-
um ekið um Heiðarveg í Vest-
mannaeyjum laust fyrir klukkan 10
í gærmorgun, hjólið fór suður veg-
inn en bifreiðin var á norðurleið og
beygði hún á vinstri hönd inn hjá
slökkviliðsstöðinni og ók í veg fyrir
hjólið. Vélhjólið, sem er nýuppgert,
skall á bílnum og kastaðist ökumað-
ur þess nokkra metra fram fyrir
sig. Hann var fluttur á sjúkrahús en
meiðsli hans reyndust ekki vera al-
varleg. Bæði ökutækin skemmdust
mikið.
Bóndi á Reykjum í A-Húnavatnssýslu ósáttur við afgreiðslu búvörusamnings
Kærir tilhögun atkvæða-
greiðslu til ráðherra
ÞORSTEINN H. Gunnarsson,
bóndi á Reykjum í Austur-Húna-
vatnssýslu, hefur farið fram á það
við landbúnaðarráðherra að hann
úrskurði hverjir hafi atkvæðisrétt í
atkvæðagreiðslum um nýja búvöru-
samninginn og samstarfssamning
milli Bændasamtaka íslands (BI)
og Landssambands kúabænda. Þor-
steinn sættir sig ekki við þá tilhög-
un að aðeins þeir bændur sem eru
með kvóta eða kálfaeldi hafi at-
kvæðisrétt en ekki aðrir félagar BÍ.
Stjórn BÍ hafnaði kærunni
Þorsteinn kærði í seinasta mán-
uði tilhögun atkvæðagreiðslunnar
til stjórnar Bændasamtaka íslands
en stjórnin hafnaði kærunni.
„Bændasamtök íslands eru ekki
deildaskipt og því er enginn félagi
þar öðrum rétthærri. í annan stað
er Landssamband kúabænda ekki
lögformlegur aðili að Bændasam-
tökunum. Búnaðarsamböndin úti
um allt land eru aðildarsamtök. í
þriðja lagi liggur samningsrétturinn
raunverulega hjá bændum en for-
ystumenn bændasamtakanna hafa
eingöngu umboð frá hinum almenna
félaga. Þeir virðast einnig gera að
aðalatriði að eingöngu þeir bændur
sem eiga kvóta hafi hagsmuna að
gæta og þess vegna eigi þeir að
greiða atkvæði en aðrir ekki. Þeir
bændur sem ekki eru með kvóta
eiga auðvitað þeirra hagsmuna að
gæta að slá þetta kerfi af eða breyta
því, gera það opnara og frjálslegra.
Það eiga því allir bændur hagsmuna
að gæta. Mér sýnist að þeir séu að
búa þarna til einhverjar nýjar regl-
ur um að þeir einir megi kjósa sem
eiga kvóta eða eru með kálfaeldi,"
segir Þorsteinn í samtali við Morg-
unblaðið.
Formleysa og óréttmæt
sjálftaka
„Ég tel verulega annmarka á að
sex menn í stjóm BI hafi vald til að
ákveða að einhver tiltekinn hluti fé-
lagsmanna BÍ hafi atkvæðisrétt um
jafn flókin réttindi og búvörusamn-
ingur er, án heimildar frá löggjaf-
anum og umboðs frá hinum al-
menna félaga í BÍ,“ segir í bréfi
Þorsteins til ráðherra. „Hagsmunir
geta verið margbrotnir sem skarast
inn á stjórnarskrárbundinn rétt
manna, svo sem eignarrétt, at-
vinnurétt og hina almennu jafnræð-
isreglu. Ég tel því atkvæðagreiðslu
þá sem uppi er um nýjan búvöru-
samning formleysu þar sem þeir
aðilar sem fá að greiða atkvæði
hafa engan lögformlegan rétt um-
fram aðra félaga í BÍ og tel ég
þetta óréttmæta sjálftöku," segir
þar ennfremur.
Hefur þýðingu við framkvæmd
vinnulöggjafarinnar?
Þorsteinn bendir á í samtali við
blaðið að þetta mál hafi hugsanlega
einnig þýðingu varðandi afgreiðslu
samninga samkvæmt nýju vinnu-
löggjöfinni og kveðst hafa orðið var
við að launþegasamtökin fylgdust af
áhuga með þessu máli.
Morgunblaðið/Ásdís
Nafnlaust bréf veldur
deilum í Hveragerði
Safna
skeljum
KRAKKARNIR á leikskólanum
Sæborg voru önnum kafin við að
safna skeljum í fjörunni í gær og
létu rigninguna ekkert á sig fá.
--------♦-♦-♦--
Ríkisendurskoðun
Landmæl-
ingar til
athugunar
RÍKISENDURSKOÐUN er með í
athugun fjárhagsbókhald Land-
mælinga íslands.
Samkvæmt upplýsingum Ríkis-
endurskoðunar er málið á byrjunar-
stigi. Það kom upp í lok síðustu viku
við hefðbundna skoðun á stofnun-
inni. Samkvæmt upplýsingum Rík-
isendurskoðunar lýtur málið að
fjárreiðum forstjóra Landmælinga
gagnvart stofnuninni.
Ovíst er hvenær niðurstaða at-
hugunarinnar liggur íyrir.
GÍSLI Páll Pálsson, forseti bæjar-
stjórnar og framkvæmdastjóri dval-
arheimilisins Áss í Hveragerði, seg-
ist hafa rökstuddan grun um að
nafnlaust bréf, sem dreift hafi verið
með pósti í öll hús í Hveragerði í
vikunni, sé komið frá fyrrverandi
félögum sínum í Sjálfstæðisfélaginu
Ingólfi.
Björn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisfélagsins Ingólfs, segist ekki
hafa komist hjá því að heyra af
ásökunum Gísla Páls. Það sé hins
vegar alveg ljóst að bréfið komi
ekki frá Sjálfstæðisfélaginu og hon-
um finnist ásakanimar bæði dapur-
legar og ósmekklegar. Gísli Páll
verði að fara að átta sig á því að
hann eigi fleiri andstæðinga en
Sjálfstæðisfélagið Ingólf.
Þá segist Björn vera alveg jafn
felmtri sleginn yfir þessu bréfi og
flestir Hvergerðingar. Hann voni
bara að það sé ekki rétt að til standi
að vista ósakhæfa afbrotamenn í
Hveragerði.
í bréfinu er því m.a. haldið fram
að vistmenn Dvalarheimilisins Áss,
sem eigi við geðræn vandamál að
stríða, hafi árum saman áreitt böm
og unglinga í Hveragerði. Einnig að
fyrir liggi samkomulag um að Ás
taki að sér ósakhæfa afbrotamenn
sem útskrifist til reynslu frá Sogni.
Gísli segir tilgang bréfsins greini-
lega vera þann að koma höggi á sig
þannig að hann dragi sig út úr póli-
tík. „Þeir finna styrk Bæjarmálafé-
lagsins meðal bæjarbúa og óttast
hann,“ segir hann. „Þeir hafa enga
málefnalega gagnrýni á takteinum
og fara því niður á þetta óskemmti-
lega plan.“
Gísli segir þetta hið sorglegasta
mál. Auk þess sem bréfritari reyni
að koma höggi á sig og fjölskyldu
sína beini hann spjótum sínum að
þeim sem minnst mega sín. Fólk frá
geðdeild Landspítalans hafi dvalið á
Asi í tæp 30 ár. „Fyrir mörgum ár-
um kom upp eitt mál þar sem mað-
ur talaði dónalega til bams,“ segir
hann. ,jtonars veit ég aldrei til þess
að lögð hafi veri fram kvörtun
vegna þessa fólks.“
Gísli segir heldur engan fót vera
fyrir þvi að Ás hyggist taka við fólki
frá Sogni. Fyrirspurn hafi komið
frá Sogni um það hvort Ás gæti tek-
ið við einum manni en því hafi verið
hafnað þar sem stefna heimilisins sé
að leggja meiri áherslu á þjónustu
við aldraða.
Framkvæmdastjóri Sjúkrahúss
Suðurlands hefur sent frá sér yfir-
lýsingu þar sem staðfest er að ekki
standi til að hefja viðræður við Ás
um þjónustu við vistmenn með-
ferðarheimilisins Sogns.