Morgunblaðið - 19.02.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 33
Claudio
Rizzi kynn-
ir Astar-
drykkinn
STOFNUN Dante Alighieri,
ítalska menningarfélagið á Is-
landi, býður til tónlistarkvölds
í Hjáleigunni, Hverfísgötu
8-10, fimmtudaginn 19. apríi
kl. 20.30. Italski píanóleikarinn
Claudio Rizzi kynnir óperuna
Astardrykkinn eftir ítalska
tónskáldið Gaetano Donizetti.
Claudio Rizzi stjórnar tónlist-
arflutningi Islensku óperunnar
sem flytur óperuna nú um
mundir.
Aðgangur er ókeypis.
Kórakvöld í
Garðinum
í SAMKOMUHÚSINU í
Garðinum verður kórakvöld
föstudaginn 20. febrúar kl.
20.30. Það eru Útskála- og
Svalneskirkjukór, Bjöllukór
Tónlistarskóla Gerðahrepps,
Karlakórinn Víkingar, ein-
söngvarar og kennai'ar við
Tónlistarskóla Gerðahrepps
sem flytja lög eftir Sigfús
Halldórsson.
Upplestur í
Gerðarsafni
RITLISTARHÓPUR Kópa-
vogs býður upp á upplestur í
Kaffístofu Gerðarsafns, Lista-
safni Kópavogs, fimmtudaginn
19. febrúar kl. 17.
Gestir að þessu sinni eru
hjónin Þorgeir Þorgeirson og
Vilborg Dagbjartsdóttir. Þor-
geir er m.a. þekktur fyrir þýð-
ingar sínar og Vilborg fyrir
ljóðagerð. Valgerður Bene-
diktsdóttir flytur inngang um
skáldin.
MK sýnir
nýtt leikrit
SAUÐKINDIN, leikfélag
Menntaskóla Kópavogs, sýnir
nýtt íslenskt leikrit eftir Stef-
án Sturla Sigurjónsson, byggt
á samnefndu leikriti eftir
London Thomas. Frumsýnt
verður föstudaginn 20. febraar
kl. 20.30 í félagsheimili Kópa-
vogs, Fannborg 2.
Agal lia á
Café 17
Á CAFÉ 17, Laugavegi 91,
stendur yfir sýning Agöthu
Kristjánsdóttur á landslags-
myndum og fantasíum unnum
með olíu á mesonit. Agatha
hefur starfað í rúman áratug
að myndlistinni.
Sýningunni lýkur 14. mars.
Kynning á
leikritinu
Feður og
synir
ÁÐUR en sýning hefst á Feðr-
um og sonum eftir Ivan Túr-
genjev, föstudaginn 20. febrú-
ar, mun Ingibjörg Hafstað
bókmenntafræðingur kynna
höfundinn og setja verkið í
sögulegt samhengi á Leynibar
Borgarleikhússins og hefst
kynningin kl. 19.
Verkið var frumsýnt á Stóra
sviði Borgarleikhússins 9. jan-
úar sl. og er í þýðingu Ingi-
bjargar Haraldsdóttur.
Komdu
olshunni
binni u
0VU(t...
od hsrou
gjöfina OOruvísi!
NV NATTURULEG
SNVRTTVÖRUUNA
FYRIR DÖMUR OG HERRA
20%
kynningar-
afsláttur
í nokkra daga
Opið alla daga frá kl. 9:00-24:00
Morgunblaðið/Aðalheiður
SKÁLDIÐ Einar Már Guðmundsson með áheyrendum í 9. og 10. bekk grunnskólans á Hellu.
Englar alheimsins
í Rangárþingi
Hvolsvöllur. Morgunblaðið.
ÞESSA dagana eru nemendur í 10.
bekkjum grunnskólans í Rangár-
vallasýslu að lesa skáldverk Einars
Más Guðmundssonar, Englar al-
heimsins. Höfundurinn brá sér
austur fyrir fja.ll fyrir skemmstu
og heimsótti grunnskólann á
Hellu, Laugalandi og Hvolsvelli,
þar sem hann Ias upp úr verkinu.
Einar Már kvaðst gara þó nokkuð
af þessu og hafa mikla ánægju af,
enda fengið góð viðbrögð frá ung-
lingunum.
Eftir lesturinn báru nemendur
upp fyrirspurnir um efni og per-
sónur bókarinnar og spuunust líf-
legar umræður um hana. Þess má
geta að níundabekkingar fengu
einnig að njóta nærveru skáldsins,
en þeir eru einmitt að kljást við
bók Einars, Riddarar hringstigans.
^iTlkoa''>
pfangtmUahih
- kjarni málsins!
Kynning á tnorgun, föstudag,
Snvrtivörud.
Dnyrti'
Hagkaups,
Skeifuimi.
Tímarit
• TÍMARIT Máls og menningar, 1.
hefti 1998, er komið út.
Meðal efnis má nefna að Kristján
Árnason, Baldur Pálmason, Þórunn
Valdimarsdóttir og Elísabet Arnar-
dóttir frumbmta ljóð; þýðing Hjalta
Rögnvaldssonar leikara á tveimur
ljóðum eftir eitt af höfuðskáldum
Tyrkja, Orhan Veli; Hannes Pét-
ursson skáld ritar grein um leikrit
sem sett var upp í Kaupmannahöfn
um miðbik síðustu aldar og kom af
stað nokkru fjaðrafoki meðal ís-
lendinga þar; Birna Bjarnardóttir
ritar grein um sambönd og innra líf
í sögum Guðbergs Bergssonar; Sig-
urður A. Magn-
ússon ritar grein
um Dario Fo;
nýtt viðtal við
þýska rithöfund-
inn Gunter
Grass; í Neftó-
bakshorninu er
þýðing á stuttri
hugleiðingu
Árna Magnús-
sonar handritasafnara um sögurit-
un, en Már Jónsson sagnfræðingur
ritar inngang; ádrepur eftir þau
Giinter Grass
Árna Björnsson, Guðna Elísson og
Þórdísi Gísladóttur; ritdómar eftir
Dagnýju Kristjánsdóttur, Guðbjörn
Sigurmundsson og Rögnu Garðars-
dóttur.
Margar gi-einar úr TMM hafa
birst í erlendum tímaritum.
Tímarit Máls og menningar er
120 bls. Það kemur út ársfjórðungs-
lega og kostar ársáskrift 3.300 kr.
Ritstjóri TMM er Friðrik Rafns-
son.
Nánari upplýsingar og efnisyfirlit
síðustu árganga er að finna á
heimasíðu Máls og menningar:
http://www.mm.is
Grænt hlaup og gáfnaljós
Þrjár nýjar andlitslínur
frá
MARBERT
Vegna þess að húðin hefur
mismunandi þarfir.
Vertu velkomin í næstu
MARBERT
verslun og fáðu bækling og prufu af
nýju kremi sem hentar þinni húðgerð.
KVIKMYNDIR
Bfóborgin, Kringlu-
bíð, SAM-bfóin,
Á1 fabakka
„FLUBBER" ★★
Leikstjóri Les Mayfield. Handritshöf-
undur Samuel W. Taylor. Kvik-
myndatökustjóri Dean Cundey. Tón-
list Danny Eifinan. Aðalleikarar
Robin Williams, Marcia Gay Harden,
Christopher McDonald, Ciancy
Brown, Ted Levine. 94 mín. Banda-
risk. Walt Disney Pictures 1997.
PRÓFESSOR Bernaird (Robin
Williams) er maður svo viðutan að
hann man ekki einusinni eftir sinni
eigin giftingu. Svo brúðurin (Marcia
Gay Harden) rýkur á brott með
erkifjandanum Wilson (Christopher
McDonald). Það sem öðru fremur
veldur utangáttarformi próferssors-
ins er ný uppfinning sem hann vinn-
ur að ásamt „aðstoðarmanni" sín-
um, véldömunni Weebo. Það sem
prófessorinn er að malla er grænt
hlaup, mikið undraefni, m.a. þeirrar
náttúru að leika á þyngdarlögmálið.
Skólinn hans Bernairds er á kúp-
unni, en Bernaird og græna hlaupið
„flubber", bjarga að sjálfsögðu
rekstrinum og hjónabandinu á síð-
ustu stundu.
Prófessorinn viðutan, hét ágæt
Disneymynd með Fred McMurray,
sem hér er verið að endurgera með
hæpnum árangri. Að þessu sinni er
tölvutæknin í aðalhlutverkinu og
græna hlaupið er svosem ágætt,
einnig véldaman Víbó, uns hún
verður yfirgengilega væmin undir
lokin. Tónlistin hans Danny
Elfmans er líka til bóta, annað er
það eiginlega ekki. Robin Williams,
sá magnaði leikari, endurtekur sig
úr fjölda annarra (og betri) hlut-
verka. Marcia Gay Harden er svo
heillandi að flestir myndu láta sig
hverfa á brúðkaupsdaginn,
Christopher McDonald er óþolandi
að venju - en á að vera það. Þeir
Clancy Brown og Ted Levine
standa sig hinsvegar vel sem sauð-
heimskir þorparar.
Myndin höfðar fyrst og fremst til
smáfólks undir 10 ára aldri og er vel
gjaldgeng sem barnamynd. Afinn
gaf ★1/2, dóttursonurinn hinsvegar
★★'/2, svo það varð að kveða upp
Salómonsdóm. Eitt stakk augað,
textahöfundur játaði sig sigraðan
gagnvart nafni hlaupsins, hafði ekk-
ert skárra að notast við en „flöbber-
ið“.
Sæbjörn Valdimarsson
Kynning í dag, flmmtudag,
BRÁ
Laugavegi 66, simi 551 2170.