Morgunblaðið - 19.02.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 9
FRÉTTIR
Ummæli
um „sjúka
kærendur“
dæmd ómerk
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur dæmt ómerk ummæli Eggerts
Haukdals oddvita í V-Landeyja-
hreppi um tvo íbúa í hreppnum. Um-
mælin komu fram í bréfi sem Eggert
sendi félagsmálaráðuneytinu í kjöl-
far kvartana íbúanna til ráðuneytis-
ins vegna ýmissa þátta í stjórnsýslu
Eggerts og hreppsnefndar V-Land-
eyjahrepps.
í bréfi sínu til félagsmálaráðu-
neytisins vitnar Eggert til viðræðna
við fjölmarga strfsbræður sína sunn-
anlands og í öðrum byggðarlögum og
segir að „þessar sveitii’ eigi sér enga
„kærendur“. Ekki vildi ég þessum
sveitum svo illt þó ég gæti að senda
þeim okkar „kærendur“.“ Einnig
segir hann: „Það er með ólíkindum
að sjúkir kærendur geti vaðið áfram
. . . í skjóli stjórnvalda og stór-
skemmt lítið samfélag." I dómi Hér-
aðsdóms Suðurlands segir að ofan-
greind ummæli skuli vera ómerk.
Stefnendur í málinu, þau Haraldur
Júlíusson og Svanborg Eygló
Óskarsdóttir, kröfðust þess að Égg-
ert yrði dæmdur til þyngstu refsing-
ar sem lög leyfa, greiðslu miskabóta
og birtingu dómsins í opinberu blaði,
en dómurinn sýknar Eggert af þess-
um kröfum. Hins vegar er hann
dæmdur til að greiða stefnendum 80
þúsund krónur í málskostnað hvoru
fyrir sig. Ólafur Börkur Þorvaldsson
kvað upp dóminn.
--------------
Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar
Tveir frambjóð-
endur í kjöri
ATKVÆÐAGREIÐSLU um for-
mann Starfsmannafélags Reykjavík-
urborgar lýkur í dag kl. 20, en kosið
er í húsnæði félagsins að Grettisgötu
89. Tveir eru í kjöri, Grétar Jón
Magnússon, deildarfulltrúi hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur og Sjöfn
Ingólfsdóttir, núverandi formaður
félagsins. Sjöfn og Grétar Jón
kepptu einnig um formannsembætt-
ið fyrir tveimur árum ásamt Maríasi
Sveinssyni strætisvagnabílstjóra. Þá
sigraði Sjöfn, en hún hefur verið for-
maður félagsins frá 1991. Sjöfn hefur
setið í stjórn félagsins frá 1980 og
verið í stjórn BSRB frá 1982 og er
nú varaformaður BSRB. Grétar Jón
hefur setið í fulltrúaráði Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar í
fjögur ár, en hefur um áratugaskeið
tekið þátt í félagsmálum innan
verkalýðs- og líknarfélaga.
Á kjörskrá eru u.þ.b. 3.200 manns.
Eftirlaunaþegar, sem eru i félaginu,
njóta fullra félagsréttinda og mega
taka þátt í kjörinu.
* >
Aki Armann
Jónsson settur
veiðistjóri
•GUÐMUNDUR Bjarnason, um-
hverfisráðherra, hefur sett Áka Ár-
niann Jónsson til þess að gegna
stöðu veiðistjóra tii
31. maí nk.
Áki Ármann hef-
ur starfað hjá veiði-
stj óraembættinu
síðan 1. mars 1995
og hefur séð um
uppbyggingu og
rekstur veiðikorta-
kerfisins. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
við Sund 1987 og B.S. prófi í líffræði
frá Háskóla Islands 1993. Eftir nám
vann hann m.a. á Keldum við rann-
sóknir á sníkjudýrum í æðarfugli og
fæðu æðarfugla en hann hefur
einnig unnið að uppsetningu og þró-
un gagnagrunna fyrir fyrirtæki og
félagasamtök.
Ljásakrámir
Ikmar
nfíft
-Qtofnnð i&74< munlt
Urval fallegra muna
Aiitík murnr, Klapparstíg 40, súri 552 7977.
Síðustu dagar
útsölunnar
Árshátíöir, starfsmannahópar, fundir, ráðstefnur, afmæli, brúðkaup,
(ólahlaðborð, fermingar... - Veislusalir fyrir allt að 350 manns.
Veisluhöld allt árið
Skíðaskálinn Hveradölum
Veitingahús og veisluþjónusta frá 1935. Boröapantanir ísíma 567-2020, fax 587-2337.
sergrein
u
Nú er rétti tíminn
tíi aö panta fermingarveisluna,
brúökaupsveisluna,
árshátíöina eöa
afmælisveisluna.
KYNNINGARTILBOÐ
VEISLUR OG VEITINGAR, ÁLFHEIMUM 74, GLÆSIBÆ, SÍMI 588-7400
Skólavörðustíg 7, 101 Rvík. sími 551-5814. Opið frá 10-18 virka daga og laugard. 10-14
Hverfisgötu 6-101 Reykjavík - sími 562 2862
tærn oe enn
verslun
Glœsileg
vorfatna
l 2141
10.00-Ili.HO, laugardaga frá M. 10.0(1-15.00
ESTEE LAUDER
Augun segja allt
Estée Lauder hefur svarið við öllu, frá flnum línum til dökkra bauga.
Nú er tækifærið til að kynnast því sem bætir útlit augna þinna.
Ráðgjafar frá Estée Lauder veita þér persónulega ráðgjöf og upplýsingar um
litaval, augnkrem, maskara, baugahyljara og augnháranæringu.
Komdu og kannaðu öll ráð til að augu þín líti sem best út.
Fáðu líka að kynnast Individualist nýja marskaranum sem þykkir og lengir stuttu
og gisnu augnhárin. Verð kr. 1.465,-
Ef keypt er fyrir 1000,- krónur af augnvöru frá Estée Lauder færðu Perfectionist farðann
heim með þér til að prófa.
Ráðgjafar verða i snyrtivöruversluninni Glæsibæ í dag, á morgun og á laugardag.
SNVRTIVÖRUVERSLUNIN
GLÆS8Æ sími 568 5170.