Morgunblaðið - 19.02.1998, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
íbúum fjölgaði um 1.443 á 17
árum en 1.335 íbúðir byggðar
ÍBÚUM á Akureyri hefur fjölgað
um 1.443 á síðustu 17 árum, frá ár-
inu 1981, en á sama tímabili hafa
verið byggðar 1.335 nýjar íbúðir í
bænum. Þetta kemur fram í svari
við fyrirspurn Heimis Ingimars-
sonar bæjai-fulltrúa Alþýðubanda-
lags um tengsl milli íbúaþróunar
og fjölda fullgerðra íbúða á Akur-
eyri.
Fram kemur að á árunum 1982
til 1985 fjölgaði íbúum um 161
samtals, en á því tímabili var lokið
við byggingu 367 íbúða sem gerir
að 0,44 íbúar hafa verið á hverja
íbúð. Á næsta tímabili, frá 1986 til
1989, fjölgaði íbúum um 325 og þá
var lokið við 265 íbúðir í bænum,
sem gerir 1,23 íbúa á hverja íbúð.
Á tímabilinu 1990 til 1993 fjölgaði
um 708 íbúa og á sama tíma var
lokið við byggingu 395 íbúða, eða
1,79 íbúar í hverri íbúð. Frá 1994
til 1997 fjölgaði um 249 í bænum
og var á sama tíma lokið við að
byggja 308 íbúðir, eða 0,81 íbúi á
hverja íbúð.
Morgunblaðið/Kristján
ÁRNI Jónsson pípulagningameistari að leggja vatnslagnir í plötu í hús
í Snægili þar sem Húsnæðisnefnd Akureyrar er að byggja.
Heimir telur að rekja megi mis-
ræmi á fyrsta tímabilinu til verk-
takamarkaðarins, mikið hafí verið
byggt án þess að eftirspurn eftir
húsnæðinu væri til staðar. Hvað
síðasta tímabilið varðar, þegar
einnig er byggt mun meira af íbúð-
um miðað við fjölgun íbúa, telur
Heimir að megi skýra með því að
stefna meirihluta bæjarstjórnar sé
ekki vinsamleg t.d. námsfólki.
Nefnir hann í því sambandi að
fram til síðustu áramóta hafi húsa-
leigubætur ekki verið greiddar og
dagvistargjöld námsmanna verið
hærri en t.d. í Reykjavík. Einnig
nefnir Heimir að á síðustu árum
hafi töluvert af íbúðum verið selt
og þær gerðar og orlofsíbúðum, en
slíkar íbúðir séu rúmlega hundrað
talsins.
Verður af tekjum
„Ég er þess fullviss að 1.500 til
2.000 manns séu að staðaldri í
bænum án þess að eiga hér lög-
heimili,“ segir Heimir og bendir
m.a. á námsmenn í því sambandi.
„Ef við gerum ráð fyrir að þetta sé
ofmetið hjá mér og hugsum okkur
að um 750 manns séu hér heimilis-
fastir án þess að hafa hér lögheim-
ili sitt, þá er bærinn að verða af
heilmiklum tekjum,“ segtr Heimir,
en árið 1996 voru skatttekjur á
hvern íbúa 119.600 krónur, sem
gerir 89,7 milljónir króna.
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Skipagötu 9 - Pósthólf 114 - 602 Akureyri
Sími 460 4700 Fax 460 4717
Aðalfundur 1998
Aðalfundur Kaupþings Norðurlands hf. fyrir
starfsárið 1997 verður haldinn á Hótei KEA
föstudaginn 27. febrúar nk. og hefst kl. 15.00.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
14. grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um hlutafjáraukningu.
3. Önnur mál.
Stjórn Kaupþings Norðuriands hf.
Blaðbera
vantar í eftirtalin hverfi:
Byggðavegur/Hrafnabjörg
Einholt/Langholt
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið
kemur.
Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið
Kaupvangsstræti 1, Akureyri.
Sími 461 1600.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Nám-
skeið
um létt-
ara líf
„LÉTTARA líf“ er heiti á nám-
skeiði sem haldið verður á veg-
um Menntasmiðju kvenna um
næstu helgi, dagana 20. til 22.
febrúar. Það er ætlað konum
sem eru að kljást við vanlíðan
vegna ofáts, aukakílóa og
óreglulegs mataræðis.
Þátttakendur læra ýmsar
leiðir til að verða meðvitaðri
um það mynstur sem þær hafa
komið sér upp varðandi matar-
æði, sjá orsakir og finna aðferð-
ir sem henta hverri og einni til
að að rjúfa vítahringinn.
Leiðbeinandi er Sigurborg
Kr. Hannesdóttir, jógakennari
á Egilsstöðum, en hún hefur
lokið námi í svokallaðri Phoenix
Rising-jógameðferð.
Landvinnsla ÚA komin í gang eftir verkfall sjómanna
Mikið um
veikindi
starfs-
fólks
LANDVINNSLA Útgerðarfé-
lags Akureyringa hf. fór í gang
á ný sl. þriðjudagsmorgun, eftir
að hafa stöðvast í tvo og hálfan
sólarhring vegna verkfalls sjó-
manna.
Að sögn Gunnars Larsen
framleiðslustjóra hefur vinnsl-
an þó ekki náð fullum afköst-
um, þar sem töluvert er um
veikindi starfsfólks, bæði á
Akureyri og í frystihúsi félags-
ins á Grenivík.
„Við erum að taka um 60
tonn af hráefni í gegnum húsið
á venjulegum degi en þessa
dagana erum við að taka 50
tonn hér í gegn. Þannig að við
flnnum vel fyrir því að það eru
margir veikir.“
Vitlaus flensa
Gunnar sagði að starfsfólkið
á Grenivík hafi verið bólusett,
„en það hefur bara verið bólu-
sett við vitlausri flensu.“
Kaldbakur EA, ísfisktogari
ÚA, kom með 80 tonn af þorski
Morgunblaðið/Kristján
til löndunar sl. sunnudag. í gær
var svo verið að landa úr Bjarti
NK frá Neskaupstað á Akureyri
og fer þorskaflinn, um 75 tonn,
til vinnslu hjá ÚA en lúðuafli
skipsins fór í gáma og á erlend-
an markað.
„Við sjáum fram á að eiga
nóg hráefni á næstunni, svo
framarlega sem ekki skellur á
verkfall aftur í næsta mánuði,“
sagði Gunnar.
Zontaklúbbarnir
á Akureyri
Málþing um
ofbeldi gegn
konum og
börnum
MÁLÞING um ofbeldi gegn konum
og börnum verður haldið í Oddfell-
owhúsinu á Akureyri á laugardag,
21. febrúar og stendur það frá kl. 14
til 17. Zontaklúbbarnir Þórunn
hyrna og Zontaklúbbur Akureyrar
standa sameiginlega að málþinginu,
sem er öllum opið.
Fjallað verður fræðilega um efnið
og áhersla lögð á að kynna hvaða
úrræði og aðstoð stendur fórnar-
lömbum ofbeldis af þessu tagi til
boða í samfélaginu.
Fimm fyrirlestrar verða fluttir
auk þess sem tími gefst til fyrir-
spurna úr sal og umræðna. Guðrún
Sigurðardóttir deildarstjóri ráðgjaf-
ardeildar Akureyrarbæjar íjallar
um þjónustu bæjarins í velferðar-
málum, Jóhannes Sigfússon varð-
stjóri hjá lögreglunni á Akureyri
ræðir um málefnið út frá sjónarmið-
um lögreglu, Lína Gunnarsdóttir
hjúki-unarfræðingur hjá Neyðar-
móttöku kvenna á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri lýsir starf-
seminni þar, Karólína Stefánsdóttir
fjölskylduráðgjafi á Heilsugæslu-
stöðinni á Akureyri flytur fyrirlest-
ur sem hún nefnir; Að vinna gegn
ofbeldi, fjölskylduverndarstefna á
Heilsugæslustöðinni á Akureyri og
loks flytur Katrín Friðriksdóttir
skólahjúkrunarfræðingur í Brekku-
skóla fyrirlestur sem nefnist; Hvert
leita börnin þegar þau eiga í vanda?
Aðgangur að málþinginu er
ókeypis og öllum heimill. I kaffihléi
verður selt kaffi og rjómabollur en
allur ágóði af sölunni rennur til
Neyðarmóttöku kvenna við Fjórð-
ungssjúki’ahúsið á Akureyri.
--------------
Sameining
undirbýr
framboð
FÉLAGSHYGGJUFÓLK á Dalvík,
Ái-skógsströnd og í Svarfaðardal
undirbýr nú sameiginlegt framboð
til sveitarstjórnarkosninga í nýju
sveitarfélagi, en þessi sveitarfélög
verða sameinuð í eitt eftir kosning-
ar.
Kosningar hafa verið óhlutbundn-
ar í Árskógshreppi og Svarfaðardal
en A-flokkarnir ásamt fleira félags-
hyggjufólki bar fram sameiginlegan
lista í síðustu kosningum.
Stofnfundur félagshyggjufólks var
haldinn um síðustu helgi og hlaut fé-
lagið nafnið Sameining, en nafnið á
að undirstrika sameiningu vinstri-
manna og sameiningu sveitarfélag-
anna. Framhaldsstofnfundur verður
haldinn í Árskógi á Árskógsströnd á
laugardag, 21. febrúar kl. 15.
PCIlíraogfuguefni
=F—+:
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
^SKIPAPLÖTUR - INNRÉTTINGAR
PLÖTURÍLESTAR
^ I | fjfl SERVANTPLÖTUR
I | 1 I I SALERNISHÓLF
,WLB I J BAÐÞIUUR
ELDHÚS-BORÐPLÖTUR
^Á LAGER-NORSK HÁGÆÐA VARA
Þ.ÞORGRlMSSON&CO
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640