Morgunblaðið - 19.02.1998, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 17
Fjölmörg tækifæri
til útivistar
og skemmtunar
Gisting 1 sumarhúsum með öllu í Lalandia,
syðst á Lálandi.
Sumardvöl í sumarhúsahverfinu Marielyst Ferie Center
á suðausturströnd Falsturs, frábærum stað fyrir
bamafjölskyldur við eina af bestu og lengstu
baðströndum Danmerkur.
Frá báðum þessum fyrsta flokks sumarhúsahverfum
er stutt að fara á ýmsa áhugaverða staði á Lálandi,
Falstri og Suður-Sjálandi.
:
Náið ykkur í eintak af
nýjumferðabæklingi
Flugleiða, Sumaifjöri '98,
þarsemeraðfinna
nánari upplýsingarum
ferðamöguleika íDan-
mörku. Bæklingurinn liggur
frammi i öllum söluskrifstojum Flugleiða,
áferðaskrifstofunum og i öllum bensínstöðvum Olís.
Sjáumstöll íSumaijjöri ‘98 íDanmörku.
Sjáland, Fjón, Mön, Falstur, Láland og
síóast en ekki síst Jótland bjóða ferðafólki
ótal möguleika til að eiga skemmtilegt og
viðburðaiíkt sumarfrí á eigin vegum.
Námstefna hjá Rauða
krossinum á Flúðum
Hrunamannahreppi - Rauði
kross íslands héit námskeið á
Flúðum dagana 14. og 15. febrú-
ar um fjöldahjálp og félagslegt
hjálparstarf innan Almanna-
varna að tilhlutan Ámesinga-
deildar Rauða krossins.
„Við emm að undirbúa fólk á
þessu svæði og reyndar nokkmm
öðmm á landbyggðinni til þess
að bregðast við því að það geti
orðið að liði ef áfall verður í
byggðarlaginu. Til dæmis ef um
náttúruhamfarir er að ræða eða
fólk þarf að yfirgefa heimili sín.
Þá munu þessir aðilar stjórna
verkþætti Rauða krossins í
fjöldahjálp," sagði Rögnvaldur
Einarsson námstefnustjóri.
Hann er svæðisstjóri Rauða
krossins á Vesturlandi og hefur
stundað leiðbeiningarstörf síðan
1995, en unnið að björgunar-
störfum um aldaríjórðungsskeið.
Auk Qölþættra fyrirlestra Rögn-
valdar, m.a. um aðkomu á slys-
stað, skoðun sjúkiings og fyrstu
meðferð, ræddu þau Bjami Krist-
jánsson um Rauða krossinn og
markmið hans, Ora Egilsson um
Almannavamir ríkisins og starf-
semi þeirra, Sigríður Þormar um
skyndihjálp í fjöldahjálparstöð
og Gísli Viðar Harðarson um
skipulagningu fjöldahjálpar-
----------------------
Skilti sem segir til um
færð á Hellisheiði
eystri fært til
Ekki allir
sáttir við stað-
setninguna
Vaðbrekku, Jökuldal. - Skilti sem
segir frá færð yfir Hellisheiði eystri
hefur verið fært frá vegamótum við
Jökulsárbrú hjá Sellandi austur í
Fellabæ. Þykir mörgum bagalegt í
meira lagi að hafa ekki upplýsingar
um færð yfir Hellisheiði við vega-
mótin út Hlíð í átt að Hellisheiði,
vegna þess að ekki koma allir veg-
farendur er ætla yfir Hellisheiði eft-
ir veginum úr Fellabæ.
Undanfarna vetur hefur þetta
skilti verið við vegamótin út í Hlíð,
en um þau vegamót fara allir er ætla
norður yfir Hellisheiði. Að sögn
Magnúsar Jóhannssonar hjá Vega-
gerðinni var skiltið fært austur í
Fellabæ vegna þess að þar er auð-
veldara að þjónusta það vegna þess
að eftirliti með veginum yfir Hellis-
heiði er sinnt frá Vopnafirði. Til
dæmis ef færð breytist yfir daginn,
þá getur þurft að fara oft sama dag-
inn til að breyta merkingunni á
skiltinu. Ef heiðin er til að mynda
opnuð að morgunlagi verður að
breyta merkingunni á skiltinu, aftur
yrði að breyta ef færð spilltist fyrir
fólksbfla, síðan gæti spillst enn og
ekki orðið fært nema fyrir jeppa og
síðan gæti orðið alófært. Það gæti
þess vegna þurft að fara allt að fjór-
um sinnum norður að vegamótum
sama daginn til að breyta merking-
unni á skiltinu.
Auðveldara að hafa
nýjar upplýsingar
Með því að færa skiltið austur í
Fellabæ er mun auðveldara að hafa
alltaf nýjar upplýsingar á skiltinu
segir Magnús og eftir að vinnu er
lokið er ekki um að ræða að setja
nýjar upplýsingar á skiltið ef það er
norður við vegamót, en þangað eru
rúmir tuttugu kílómetrar úr Fella-
bæ.
Guðgeir Ragnarsson, bóndi á
Torfastöðum í Hlíð, segir ekki til
neins að hafa skiltið austur í Fella-
bæ. Nær sé að hafa það við vega-
mótin út í Hlíð og telur rök Vega-
gerðarinnar léttvæg, það sé hennar
hlutverk að þjónusta vegfarendur
sem allra best. Með þvi að hafa upp-
lýsingarnar á réttum stöðum náist
það markmið best.
starfs. Þá vom einnig sýnd fróð-
leg myndbönd um hjálparstörf.
Þátttakendur vom 18, flestir af
Suðurlandi, en einnig frá Rauða
krossdeildinni á Suðumesjum.
Svæðisskrifstofa opnuð
Nýlega var opnuð svæðisskrif-
stofa fyrir Rauða krossdeildir á
Suðurlandi og er hún í SSAS-
húsinu við Austurveg á Selfossi.
Starfsmaður er Halldór Gunnars-
son í tveimur þriðja hluta starfs.
Formaður Ámesingadeildar
Rauða krossins er Tómas Þórir
Jónsson á Flúðum.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
ÞÁTTTAKENDUR á námstefnunni á Flúðum.
DANSKA FERÐAMALARAÐIÐ
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskurferðafélagi
T
mm
"