Morgunblaðið - 19.02.1998, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
)
ERLENT
JEAN-Luc Dehaene mætir á blaðamannafund í Brussel í gær.
Reuters
Belgar tilkynna upp-
stokkun í lögreglunni
Brussel. Reuters.
Farsímar
bannaðir í
flugvélum
REGLUR er banna notkun
rafeindatækja í evrópskum
flugvélum ganga í gildi 1. apríl
nk., en vandamál er skapast af
notkun slíkra tækja, sérstak-
lega farsíma, færast í aukana.
A sunnudaginn varð flugvél
SAS-flugfélagsins á leið frá
Osló til Bodö að snúa við til
Fornebuflugvallar eftir að far-
sími farþega setti í gang að-
vörunarbúnað í vélinni. Far-
þeginn hafði gleymt að slökkva
á símanum og var hringt í
hann eftir að komið var í loftið.
Fyrir hálfum mánuði var
norskur farþegi í SAS-vél í
innanlandsflugi sektaður um
200 þúsund íslenskar krónur
fyrir að hafa bæði reykt og tal-
að í farsíma sinn og brotið þar
með reglur SAS.
Það er nú undir flugfélögun-
um sjálfum komið hvað far-
þegum í vélum þeirra leyfíst
að nota, en með tilkomu sam-
eiginlegra evrópskra reglna
um flug (JAR) verður notkun
rafeindatækja með öllu bönn-
u'ð.
Afengi og
brjóstakrabbi
KONUR sem drekka tvö til
fímm vínglös á dag, eða sam-
svarandi vínandamagn af bjór
eða sterku víni, eiga frekar á
hættu að fá brjóstakrabba-
mein, að því er niðurstöður
bandarískrar athugunar benda
til. Athugunin var byggð á
rannsóknum í Kanada, Svíþjóð
og Hollandi.
JEAN-Luc Dehaene, forsætisráð-
herra Belgíu, kynnti í gær áform
um víðtæka uppstokkun á belgísku
lögreglunni. Lögreglan hefur sætt
harðri gagnrýni sökum þess hvern-
ig staðið var að rannsókn barnaníð-
ingsmála á undanförnum árum.
Meðal annars stendur til að sam-
eina ólíkar deildir lögreglu í eina
öfluga ríkislögreglu er sæta mun
eftirliti sérstakrar nefndar.
Hörð gagnrýni hefur komið fram
á störf lögreglunnar í tveimur
skýrslum og var sú síðari gerð opin-
ber á þriðjudag. Lögreglan er sögð
hafa gert fjölmörg mistök og í raun
klúðrað leit að fjórum ungum stúlk-
um er höfðu horfið sporlaust. Lík
stúlknanna fundust árið 1996 og
höfðu þær verið grafnar á lóð
dæmds barnanauðgara, Marcs
Dutroux.
í ljós kom að lögregla hafði ekki
kannað hvort Dutroux ætti aðild að
hvaifí stúlknanna, þrátt fyrir fyrri
sakfellingar og að hann hafí verið
undir eftirliti hluta þess tíma, sem
leitin að stúlkunum stóð yfir.
Mistökin við lögreglurannsóknina
voru það mörg og alvarleg að upp
komu fjölmargar kenningar í Belgíu
um að barnaniðingar hefðu beinlínis
notið verndar háttsettra manna inn-
an lögreglunnar.
I fyrrnefndum skýrslum kom
fram að vegna rígs milli deilda lög-
reglunnar hafi upplýsingum verið
haldið eftir og jafnvel komið fyrir að
ein deild lögreglunnar hafí veitt
annarri deild rangar upplýsingar.
Dehaene sagði að ríkisstjórnin
hygðist koma frumvarpi um breyt-
ingar á lögreglunni í gegnum þingið
fyrir næstu kosningar, sem haldnar
verða um mitt næsta ár.
Líkams- 1
hluti músar
óx aftur
London. The Daily Telegraph.
MÚS sem ræktuð var í vísinda-
skyni reyndist óvænt hafa þann
eiginleika að á hana óx aftur
líkamshluti sem numinn hafði
verið í burtu. Þessi uppgötvun
vekur vonir um að hægt verði I
að yfirstíga vandamál sem
komið hafa í veg fyrir endur-
vöxt líkamshluta á fólki.
Ellen Heber-Katz, prófessor
við Wistar-stofnunina í Fíla-
delfíu í Bandaríkjunum, greindi
frá þessu á sunnudag á fundi
Vísindaframfarasamtaka
Bandai’íkjanna (American As-
sociation for the Advancement
of Science). Kvaðst hún hafa
orðið ákaflega undrandi þegar |
líkamsvefur endurnýjaðist, með
brjóski og æðum og öðru sem í
honum er.
Heber-Katz hafði pantað
mýs, svonefndar MRL-mýs, til
annarra rannsókna. Þessar
mýs, sem hafa ekkert ónæmis-
kerfi, eru mUdð notaðar við
rannsóknir. „Eg bað aðstoðar-
mann minn að eyrnamerkja
þær. Mýs eru yfirleitt merktar
með þessum hætti því mark í \
eyra lokast ekki aftur og þær
bera því merkið meðan þær
lifa. En þremur vikum síðar var
engin músanna með mark og
það voru engin ör á eyrunum,"
sagði Heber-Katz.
Hún sagði ekki vera um að
ræða það sama og gerist þegar
sár gróa. „Við teljum að um sé
að ræða það sama og gerist
þegai' útlimh- endumýjast á j
froskdýrum. Hlutar skotts uxu .
aftur á mýsnar og partur sem ’
tekinn var af lifur gat vaxið aft-
ur nákvæmlega eins.“
Vísindamenn telja að endur-
myndunarhæfileiki sé að ein-
hverju leyti fyrir hendi í spen-
dýrum en önnur gen haldi hon-
um í skefjum, og þá líklega T-
eitilfrumur í ónæmiskeifínu
sem koma í veg fyrir ki’abba-
meinsvöxt.
s<>
Austurstræti 20
Suðurlandsbraut 56
TVÖFALDUJR
McOstborgari
189,-kr.
Yeður talið
orsakaþáttur
París. Reuters.
AIRB U S-flugvélaverksmiðj urnar
tilkynntu í gær að ólíklegt væri að
rekja mætti orsakir þess að Airbus-
þota fórst á Tævan á mánudag til
stýribúnaðar flugvélarinnar. Þótt of
snemmt væri að segja nokkuð um
orsakir slyssins mætti líklegt telja að
mannleg mistök og slæmt skyggni
væru helstu áhrifaþættir. Oháður
flugmálasérfræðingur tók undir
þetta viðhorf Airbus.
Vélin sem fórst var breiðþota af
gerðinni A300-600, og var í eigu
tævanska flugfélagsins China Air-
lines. Hún var að koma inn til lend-
ingar á Taipeiflugvelli er hún hrap-
aði í íbúðahverfi við jaðar flugvallar-
ins með þeim afleiðingum að 203 fór-
ust, þar af sjö á jörðu niðri.
Fréttaskýrendur hafa gefið í skyn
að sjálfvirkur stýribúnaður, sem er
að miklu leyti tölvutengdur, hafi átt
þátt í að svo fór sem fór. Þessi gagn-
rýni kemur illa við Airbus, en flug-
málasérfræðingar hafa áður gagn-
rýnt fyrirtækið fyrir að stýribúnaður
véia þess byggist um of á tölvum og
rafmagnsleiðslum sem sendi og beri
boð frá stjórntækjum til stýriflata.
A300-200 þotan var ekki búin
stýribúnaði af þessari gerð heldur
eldri gerð sem byggð er á köplum og
talíum er bera boð til stýriflata.
Flugfélagið hefur sagt að líkur á vél-
arbilun séu „mjög litlar“. Aðrar þot-
ur félagsins af þessari gerð hafa
engu að síður verið kyrrsettar með-
an rannsókn á slysinu stendui’ yfir.
Airbus vildi í gær ekkert segja um
þessa ákvörðun flugfélagsins, en vís- i
aði á bug getgátum um að háþróuð
sjálfvirkni hefði stuðlað að slysinu.
„A300-600 er flugvél sem hönnuð var
á níunda áratugnum og tölvubúnað-
ur í henni er svipaður og í öllum öðr-
um fiugvélum af þeirri kynslóð,"
sagði Robert Alizart, talsmaður Air-
bus.
„Algert bull“ |
„Þetta er algert bull, skrifað af j
fjölmiðlafólki sem veit ekki hvað
snýr fram og hvað snýr aftur á flug-
vél,“ sagði hann um getgátur þess
efnis að flugmenn þotunnar hafi ekki
getað tekið stjórnina af tölvum nægi-
lega snemma.
A upptöku af samtölum flugmanna
og flugumferðarstjóra er gerðar
voru í flugturninum í Taipei má að
því er virðist heyra, nokkrum sek-
úndum áður en vélin hrapaði, viðvör- |
unarhljóð í stjórnklefanum, og gæti |
það gefið til kynna að flugmennirnir
hafi verið að reyna að rjúfa sjálfstýr- 1
ingu vélarinnar.
Skyggni var einn kílómetri, vel yf-
ir þeim 600 metrum sem eru lág-
marksskyggni til lendingar á vellin-
um. David Learmont, öryggismála-
sérfræðingur tímaritsins Flight
International, segir að skyggni
kunni að hafa átt þátt í því að vélin
fórst. „Allar vísbendingar sem komið i
hafa fram benda til þess að sú stað-
reynd að skyggni var lélegt hafi ver- '
ið fyrsti orsakaþátturinn er ieiddi til j
slyssins," sagði hann.