Morgunblaðið - 19.02.1998, Page 23

Morgunblaðið - 19.02.1998, Page 23
MORGUNB LAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 23 ERLENT Fyrrverandi bryti sovétleiðtoganna Fyrsta olíufyrirtækið í Færeyjum I basli með borð- siðina í Kreml Moskvu. The Daily Telegraph. NÍKÍTA Krútsjev, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, var sannkallaður öreigi hvað borðsiðina varðaði og það brást aldrei, að hann kæmi gestum sín- um verulega á óvart. Þótt honum væru borin hin dýrustu vín, líkaði honum betur við land- ann, heimabruggað vodka. Frá þessu segir í rússneska dagblaðinu Komsomolskaja Pravda og sögumaðurinn er Akhmed Sattarov en hann var bryti sovét- leiðtoganna á árunum 1959 til 1972. Segir hann, að Krútsjev hafi aldrei lært að nota rétt hnífapör og alltaf gripið fisk- hnífinn fyrst. Var það oft mjög vandræðalegt fyrir gestina, sem voru þá á báðum áttum um hvort þeir ættu að fara að dæmi leiðtog- ans. „Skemmtilegur kokkteill“ I veislu, sem Lyndon Johnson, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hélt Krútsjev 1964, var boðið upp á kornhænu og fylgdi diskunum lítil skál með bláleitu vatni til að gestim- ir gætu skolað af fingrum sér. Krútsjev byrjaði á því að stinga gafflinum sínum í gegnum allar sítrónusneiðarnar og þegar hann hafði japl- að á þeim ætlaði hann að giápa skálina, sem hann hélt, að væri ein- hver skemmtilegur, framandi kokkteill. Þjónninn rauk þá til og bjargaði skálinni en til að koma ekki sovétleið- toganum í vandræði, létu aðrir það eiga sig að þvo sér upp úr „kokkteilnum". Bragðlaukarnir hans Krútsjevs komust heldur betur í feitt einu sinni þegar hann var á veiðum á Kúbu ásamt Fidel Castro. Komu þeir í lítið þorp og þar var boðið upp á samogon eða heimabruggað vodka. „Grafðu upp uppskriftina hjá þessu óbreytta alþýðufólki," sagði hann við brytann. „Þennan drykk vil ég hafa á mínum borðum." Litlu betra nú Krútsjev þótti mjög óheflaður og hann vann sér það meðal annars til frægðar að taka af sér annan skóinn og berja honum í ræðupúltið á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Sattarov segir hins veg- ar, að ástandið hafi ekki batnað mik- ið síðan. „Borðsiðirnir hjá núverandi leið- togum eru ekki upp á marga fisk- ana,“ segir hann. „Hve oft hef ég ekki séð þá fylla vínglösin svo út úr flóir í stað þess að hafa á þeim eitt- hverð borð. Þeir þuiTka framan úr sér svitann og baða út öllum öng- um.“ Sattarov segir, að veisluhöld með Kínverjum hafi ekki verið fyrir flök- urgjarnar sálir. I veislu, sem haldin var fyrir Chou-En-Lai, forsætisráð- herra Kína, var matseðillinn sniglar, hvítar mýs og pýtonslanga. „Slang- an var skorin í sneiðar en ennþá með hreistrið utan á.“ Svínakjöt fyrir Saudi-Araba Sattarov hafði fengið sérstaka þjálfun í því að elda ofan í útlend- inga en það kom þó ekki í veg fyrir alvarleg mistök. 1962 var boð fyrir sendinefnd frá Saudi-Arabíu, fyrir múslima, sem ekki éta svín, og aðal- rétturinn var að sjálfsögðu svína- kjöt, nánar tiltekið svínatungur. Þegar Lal Bahadur Shastri, þá- verandi forsætisráðherra Indlands, lést skyndilega í Tashkent í Ús- bekístan, sem þá var hluti af Sovét- ríkjunum, árið 1966, var Sattarov handtekinn klukkan fjögur að morgni og grunaður um að hafa eitr- að fyrir Indverjanum. Er það kom svo í Ijós, að banameinið var hjarta- bilun, var honum sleppt. Nokkrum árum síðar hætti hann vegna þess, að hann var orðinn „þreyttur á að vera undir stöðugri smásjá KGB“. KRÚTSJEV með „friðarddfu" á öxlinni í Egyptalandi 1964. Hlutabréf á almennan markað Þórshöfn. Morgunblaðið. EIGIÐ FÉ hins nýstofnaða olíu- vinnslufélags í Færeyjum, Atlantic Petrolium, hljóðar í dag upp á 25,5 milljónir danski'a króna, jafnvirði 268 milljóna íslenskra. En þar sem ætlunin er að félagið verði almenn- ingshlutafélag með sem víðtækastri eignaraðild er ráðgert að selja al- menningi hlutabréf fyrir 10 mOljónir danskra í fyrstu atrennu. Með stofnun Atlantaic Petroleum eru Færeyingar byrjaðir að undir- búa sig fyrir hugsanlegt olíuævin- týri. Einn helsti hvatamaðurinn að stofnun félagsins, Poul Mohr, ís- lenskur konsúll í Færeyjum, segir að allh' þeir Færeyingar sem hafi áhuga eigi að geta eignast hlut í Atlantic Petrolium, þar eð hvert hlutabréf muni kosta 500 krónur danskar. Þá er ætlunin að félagið verði að öllu leyti færeyskt og fyrstu tíu árin mega einungis Færeyingar eiga hlut í þvi. Þá má enginn, hvorki einstak- lingar né fyrirtæki, eiga meira en 20% hlutabréfanna. Aætlanir um að koma upp oliuiðn- aði í Færeyjum eru komnar svo vel á veg að fyrsta lota leyfisveitinga, þeg- ar alþjóðlegum olíufélögum verður gefinn kostur á að bjóða í þau svæði sem þau vilja bora á í færeyskri lög- sögu, verður væntanlega á þessu ári. Segir Mohr að mikilvægt sé að fær- eyska olíufélagið verði orðið að veru- leika áður en tilboðslotan hefst. Atlantic Petrolium verður þó ekki næri'i nógu stórt til þess að geta staðið eitt að olíuborunum og því er fyrirhugað að efna til samstarfs við önnur olíufélög. M.a. kemur til greina samstarf með norska félaginu Saga Petrolium sem hefur opnað úti- bú í Þórshöfn. Veiktist er heim kom FÍLKÝRIN Storma er komin heim tO Tælands frá Japan en er orðin fárveik vegna loftslags- breytinga og er með bólgu í sári á vinstra afturfæti, að því er Bang- kok Post greinir frá. Það var japanskur dýragarður sem gaf tælensku skógariðnaðar- samtökunum Stormu, sem kom heim á þriðjudag eftir að hafa dvalið í 20 ár í Japan. Storma er nú á fílaspítala eftir að hún missti matarlystina og datt illa. Preecha Puangkham, dýra- læknir við sjúkrahúsið i Hang Chat-héraði, tjáði Bangkok Post að Storma gæti hvorki aðlagast breyttu loftslagi né nýju matar- æði. Sárið gæti reynst banvænt. „Hún getur ekki borðað sykur- reyr, hestafóður eða banana, sem samtökin leggja tíl,“ sagði Preecha. Storma á einnig á hættu að verða fyrir áfalli vegna þess að horfur eru á að þurrkatímabilið standi nú óvenju lengi. Preecha sagði að þau ár sem Storma dvaldi í Japan hafi hún eingöngu nærst á tilbúnum mat. ✓ JL vilthafaþað ldag! w tórsteik cða skyndibiti, magurt eða feitt, heitt cða kalt, hátíðlcgt eða hvcrsdágslegt, hcima cða á hlaupum - alltaf nijtt, alltaf fcrskt, alltaf gott." ferska kjötið á hverjum degi In't fœrð uppskriftir nð girnilegum svínakjötsrcttuni í nuitvöruversiuniim

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.