Morgunblaðið - 19.02.1998, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998
ERLENT
MORGUNB LAÐIÐ
GJÖREYÐINGARVOPN IRAKA
Bretar segja, að írakar hafi burði til að framleiða gjöreyðingarvopn og líklega einnig eldflaugar,
sem skjóta má á ísrael og Saudi-Arabíu.
UNSCOM, vopnaeftirlitsnefnd SÞ, leitar enn sprengjuodda fyrir Scud-flaugar og hefur áhyggjur af efna- og
sýklavopnaáætlunum Saddams.
EFNAVOPN
UNSCOM veit ekki hvað orðið hefur af 4.600 tonnum af efnum,
sem notuð eru til efnavopnaframleiðslu og gætu gert (rökum
kleift að framleiða nóg af VX-gasi til að útrýma mannkyninu.
♦ Agent15 Q
Hefuráhrifá taugakerfið. Lítill skammtur
veldur máttleysi, svima og skorti á
samhæfingu. Stór skammtur getur
verið banvænn.
♦ VX-taugagas ♦ ©©©
Endurbætt útgáfa afsarin og tabun.
Ræðst á taugakerfið og stöðvar
sfðan starfsemi lungna og hjarta.
♦ Sinnepsgas 0 © O
Veldur biindu, útbrotum ogdjúpum
bruna. Lungun fyllast af vökva og
banameinið erþví í raun dmkknun.
0
SÝKLA- OG LÍFEFNAVOPN
UNSCOM segir, að írakar eigi þúsundir lítra af miltisbrandi,
bótúlín og aflatoxln og einnig óþekkt magn af Ebola-veirunni,
svartadauða- og lungnabólgubakteríum, dostridium
perfringens-gasi og ricini.
© o © Miltisbrandur ♦
Leiðir til dauða á þremur dögum. Graftarkýli
hylja líkamann með miklum kvölum.
© Aflatoxín
Veldur krabbameini í lifur og
eyöileggur ónæmiskerfið.
© Clostridium Perfringens Gas
Veldur bióðeitrun ísárum, berstmeð
blóðinu og getur einnig valdið gulu áöur
en dauðinn ferað.
0 © Bótúlín
Veldur matareitrun og
yfirleitt skjótum dauða.
MEGNIATBURÐIR OG UNDANFARI ÁRÁSAR Á ÍRAK
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fer til íraks á
morgun þar sem hann reynir að koma vitinu fyrir íraka og afstýra árás
Bandaríkjamanna og Breta.
Vegna íraksfarar Annans virðist því hafa verið skotið á frest að ákveða loftárásir
þar til í byrjun næstu viku a.m.k.
FEBRUAR
I "
^ 20.
^ 22.
( 24.
NYH
TUNGL
) 28.
“““
! Staða tungls ▼ Meginatburðir
18. feb.: Persaflói - Anthony Zinni hershöfðingi og yfirmaöur bandaríska
heraflans í Persaflóa segir herinn næstum tilbúinn til árása.
19. feb.: irak - 31 starfsmaður SÞ fer frá írak af „tryggisástæðum".
20. feb.: Bagdad - Kofi Annan kemur til viðræðna við Saddam
Hussein.
París - Jacques Chirac, forseti Frakklands, hittir Hassan,
krónprins í Jórdaníu.
22. feb.: Nagano - Vetrarólympíuleikunum lýkur. Japansstjóm hefur
beðið Bandaríkjamenn að virða friðhelgi leikanna.
24. feb.: Washington - Bandaríkjaþing kemur aftur saman. Öldunga-
deildarþingmenn demókrata vilja, að þingið samþykki heimild
til árása.
26. feb.: Nýju tungli fylgja dimmar
nætur og auðveldar það
loftárásir.
SÍÐASTLIÐIN sjö ár eða allt frá
lokum Persaflóastríðsins hafa vopna-
eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna átt
í stöðugum útistöðum við stjórnvöld í
írak. Samkvæmt friðarskilmálunum,
sem íraksstjórn féllst á, átti hún upp-
haflega að gefa fullkomnar upplýsing-
ar um vopnaeign sína, svokölluð gjör-
eyðingarvopn, innan hálfs mánaðar
en sá tími leið og það var ekki fyrr en
fimm árum síðar, að hún lét eitthvað
frá sér fara. Á þeirri skýrslu var þó
nákvæmlega ekkert að græða. Síðan
eru liðin tvö ár og í þann tíma hafa
vopnaeftirlitsmennirnir farið fram og
aftur um Irak í árangurslausri leit að
25 sprengjuoddum, sem hafa inni að
halda einhverjar hættulegustu bakt-
eríur, sem um getur. Unnt er skjóta
sprengjuoddunum með meðaldræg-
um eldflaugum.
I fyrmefndri skýrslu sögðust írak-
ar hafa eytt nokkrum fjölda Scud-eld-
flauga, sem þeir máttu þó ekki gera
án þess, að Unscom eða vopnaeftir-
litsnefndin fylgdist með, og þeh- kváð-
ust hafa grafið í jörð 11 flutningabfls-
farma af eyðflögðum eldflaugahreyfl-
um. Á umræddum stað fundu eftir-
litsmenn þó aðeins brak til að fylla
einn bíl.
Á þessu hefur gengið og Irakar
hafa stöðugt verið að færa sig upp á
skaftið. Þegar nefnd á vegum Al-
Hvar eru sprengjuodd-
arnir með sýklunum?
í sjö ár hafa vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna átt í útistöðum
við írösk stjórnvöld, sem hafa hindrað störf þeirra á alla lund. Þau
hafa þó viðurkennt að hafa framleitt bótúlíneitur, sem drepið gæti allt
mannkyn nokkrum sinnum, og miltisbrandsbakteríur, sem tortímt
gætu milljörðum manna.
þjóðakjarnorkumálastofnunarinnar
kom inn um framdymar á einni
byggingunni var írösk bflalest að
skríða út um bakdyrnar. Vopnaeftir-
litsmönnunum hefttr margoft verið
hótað öllu illu, á þá hefur verið skotið
en mesti blekkingarleikurinn hefur
verið í kringum sýklavopnin. Vitað
er, að Saddam hefur notað efnavopn
gegn sínum eigin þegnum og Irakar
hafa verið að viða að sér þekkingu til
að smíða kjamavopn en minna var
hins vegar vitað um sýklavopnin.
Vestrænar leyniþjónustur höfðu
haft grunsemdir um, að unnið væri
að sýklavopnaáætlun í írak og vegna
þess voru allir bresku hermennirnir í
Persaflóastríðinu bólusettir við
svartadauða, miltisbrandi og bótúl-
íneitrun. Engar sannanir vora þó fyr-
ir hendi og í fjögur ár neituðu íraskir
embættismenn allri vitneskju um
sýklavopn og sökuðu eftirlitsmenn
SÞ um íhlutun og njósnir.
Það var síðla árs 1994 sem fyrsta
vísbendingin kom í ljós og þá vegna
skjala, sem Irakar létu af hendi fyrir
misskilning. Þar kom fram, að Irakar
Kátlrda
í tilefni 20 ára afmælis
Samvinnuferöa-Landsýnar
höldum viö veglega
ferðagleði í Súlnasal
Hótel Sögu sunnudaginn
1. mars kl. 18.
Þriggja rétta kvöldveröur
Glæsileg kynning á vor-, sumar- og haustferðum
Kátra daga
Ríó tríó skemmtir eins og þeim einum er lagið
Rómantík með Þorgeiri Andréssyni óperusöngvara
Pálmi Eyjólfsson, fyrrverandi sveitarstjóri á Hvolsvelli
fer á kostum
Fjöldi veglegra happdrættisvinninga
Einstakt afmælistilboð sem gildir aðeins 1. mars!
Fjöldasöngur
Dunandi da”c'
hefðu flutt inn lítið magn af efni, sem
notað er við bakteríuræktun. Frekari
athuganir leiddu hins vegar í ljós, að
flutt hafði verið inn geysimikið af
þessu efni frá bresku fyrirtæki,
Oxoid, seint á síðasta áratug. Sjúkra-
hús nota þetta efni í litlum mæli en
39 tonnin, sem keypt vora, hefðu
dugað öllum sjúkrahúsum í landinu
um áratugaskeið.
Það undarlega var, að efnið hafði
verið flutt inn í stóram ámum en ekki
í litlum pakkningum eins og sjúkra-
húsin nota og þessi tegund af efninu
hentar sérstaklega fyrir ræktun á
miltisbrandsbakteríunni.
Þegar gengið var á Iraka þvertóku
þeir fyrir að eiga efnið en þegar þeim
vora sýndar sannanir fyrir þvl, þá
sögðu þeir, að það hefði verið notað á
sjúkrahúsum. Þegar þeir vora spurð-
ir hvar birgðirnar væra, sögðu þeir,
að þær hefðu eyðilagst í óeirðum
undir lok Persaflóastríðs. Eftirlits-
mennirnir kröfðust þá farmbréfa og
eftir nokkurt stapp fengu þeir þau í
hendur.
Skjölin voru fölsuð, blekið ekki frá
réttum tíma og pappírinn ekki af
réttri gerð. Þegar Irökum var sagt
það, þá viðurkenndu þeir, að farm-
bréfin hefðu verið „endurgerð“ vegna
þess, að frumritin hefðu eyðilagst í
eldi. Var sagan sú, að vegna skamm-
hlaups hefðu skjölin brunnið inni í
málmskáp og aðeins þessi skjöl en
ekki önnur.
írösk stjómvöld vora nú orðin svo
margsaga, að þau viðurkenndu loks,
að unnið væri að sýklavopnaáætlun
undir stjórn dr. Rihab Taha, konu,
sem lagði stund á eiturefnafræði við
háskólann í Austur-Angliu snemma á
síðasta áratug.
Flótti tengdasonarins
Næsti hvalreki á fjörar vopnaeftir-
litsmannanna var flótti Hussein Ka-
mels, tengdasonar Saddam Husseins,
sumarið 1995 og þá leið ekki á löngu
þar til írakar breyttu enn sögu sinni.
Þeir fóra nú með eftirlitsmennina í
kjúklingabú, sem sagt var, að Kamel
ætti, og það reyndist yfírfullt af
sönnunargögnum, snældum, tölvu-
diskum og meira en 500.000 skjölum
um nákvæma áætlun um sýklavopna-
framleiðslu. írakar ætluðust til, að
eftirlitsmennimir tryðu þvi, að Ka-
mel hefði unnið að þessu einn og í
blóra við stjómina í Bagdad.
í framhaldi af þessu fundu eftir-
litsmenn rannsókna- og framleiðslu-
stöð í A1 Hakam, um 60 km suðaust-
ur af Bagdad, og 22 tonn af efni til að
rækta bakteríur. Þeim var eytt en
enn vantar 17 tonn. Um þau var
Robin Cook, utanríkisráðherra Bret-
lands, að tala ó þingi í síðustu viku
þegar hann sagði, að Irakar gætu
framleitt nóg af miltisbrandi til að
drepa tugmilljónh- manna.
Vopnaeftirlitsmönnunum hefur
orðið mest ágengt hvað varðar kjam-
orkuvopnaáætlun Iraka en talið er,
að hún hafi verið stöðvuð og unnt sé
að komast að raun um hvort á henni
verði byrjað aftur. Mikið hefur einnig
fundist og verið eytt af efnavopnum
en menn hafa áhyggjur af því, sem
ekki hefur fundist enn.
Þai' er aðallega um að ræða VX-
taugaeitur, sem veldur öndunar-
stöðvun og köfnun. Eitt glas af þvi
nægði til að drepa alla íbúa Lundúna-
borgar. Cook sagði í síðustu viku, að
vopnaeftirlitsnefndinni hefði ekki
verið gerð grein fyrir sex hundrað
tonnum af efnum til framleiðslunnar
en úr þeim er unnt framleiða tvö
hundrað tonn af eitrínu.
Cook minnti einnig á, að Saddam
stæði ekki í þessari framleiðslu af
fræðflegum áhuga einum saman.
Hann hefði notað sinnepsgas í stríð-
inu við írani og gegn sínum eigin
landsmönnum og í næsta mánuði
væra 10 ár liðin frá því hann myrti
5.000 Kúrda, karla, konur og böm,
með blöndu af tauga- og blásýragasi.
Auk fyrrnefndra eiturtegunda er
talið, að Irakar eigi miklar birgðir af
svokölluðu ,Agent 15“ en það er gas,
sem notað er til að lama fólk um
stundarsakir og getur verið banvænt.
Er það bannað í alþjóðlegum sátt-
mála um efnavopn.
150 lítrar af sýklum
Sprengjuoddarnir 25, sem vopna-
eftirlitsmennimir hafa verið að leita
að í tvö ár, vora geymdir í járn-
brautagöngum og grafnir í jörð í
Persaflóastríðinu. Mörgum mánuð-
um seinna sögðust írakar hafa eytt
þeim en því er ekki trúað. Þeir era
tæplega metrí á breidd og nærri
þriggja metra langir og þeim er hægt
að koma fyrir í Al-Hussein-flaugum,
sem írakar hafa verið að smíða á
laun og draga 400 mflur. írakar hafa
sjálfír viðurkennt, að í 21 sprengju-
oddi hafi verið komið fyrir um 150
lítram af miltisbrandsbakteríum eða
bótúlíneitrí. Sérfræðingar SÞ segja,
að við rétt veðurskilyrði sé unnt að
drepa frá 100.000 og upp í eina millj-
ón manna með hverjum sprengju-
oddi.
Irakar hafa skýrt Sameinuðu þjóð-
unum frá því, að þeir hafí á áranum
1989, 1990 og 1991 framleitt nóg af
bótúlíneitri til að drepa allt mannkyn
nokkram sinnum, fræðilega að
minnsta kosti, en sérfræðingar SÞ
telja, að þeii’ hafi í raun framleitt
tvisvar eða þrisvar sinnum meira en
það. Þá hafa þeir einnig viðurkennt
að hafa framleitt miltisbrandsbakter-
íur, sem tortímt gætu milljörðum
manna.
(Heimildir: Reuters, The Daily Tel-
egraph, Washington Post)